Morgunblaðið - 01.11.2006, Page 27

Morgunblaðið - 01.11.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 27 MINNINGAR Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HJÖRLEIFUR INGÓLFSSON slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður frá Vöglum í Vatnsdal, Tjarnargötu 25a, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 28. október. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 2. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag langveikra barna. Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir Arna Björk Hjörleifsdóttir, Högni Sturluson, Ingvi Þór Hjörleifsson, Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir, Árni Jakob Hjörleifsson, Geirþrúður Ósk Geirsdóttir Halldór Hagalín Hjörleifsson, Gunnar Brynjólfur Sigurðsson, Ólöf Haraldsdóttir, Sara Björg Pétursdóttir, Ingunn Guðmundsdóttir Larson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, (Dóda), hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, andaðist mánudaginn 23. október. Útför verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. nóvember næstkomandi kl. 13:00. Sveinn Haukur Björnsson, Elín M. Sigurðardóttir, Hugi Ingibjartsson, Björn Valdimar Sveinsson, Margrét Birna Sveinsdóttir, Linda Kristín Sveinsdóttir, Jón Guðni Ómarsson, Kristófer Snær Hugason, Ísak Tandri Hugason og barnabarnabörn. Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur, dóttursonur og frændi, ÓLAFUR ÞÓR ÓLAFSSON, lést fimmtudaginn 26. október. Hann verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstu- daginn 3. nóvember kl. 13.30. Sigrún Gyða Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Th. Ólafsson, Elín Vigdís Ólafsdóttir, Hrund Ólafsdóttir, Bragi Ólafsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Sigrún Sól Ólafsdóttir, Pálmi J. Sigurhjartarson, Guðrún Sigurðardóttir og systkinabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ANDRÉS ÁSMUNDSSON læknir, Sjafnargötu 14, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 30. október. Þorbjörg Pálsdóttir, Stefán Andrésson, Þórunn Andrésdóttir, Katrín Andrésdóttir, Gunnar Kristjánsson, Þóra Andrésdóttir, Gunnar H. Roach, Andrés Narfi Andrésson, Ása Sjöfn Lórensdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HJALTI AUÐUNSSON, Öldugötu 15, Hafnarfirði, varð bráðkvaddur laugardaginn 28. október. Útförin verður auglýst síðar. Ólöf Erla Þórarinsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra, GUNVOR LANGVAD, 15.05.30 — 27.10.06 - hvetjandi, hlý, gefandi - Jarðarförin fer fram frá Lyngbykirkju laugardaginn 4. nóvember kl. 12.00. Søren, börn, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSTA JÓHANNA KRISTINSDÓTTIR frá Löndum, Dverghamri 11, Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 29. október. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum laugardaginn 4. nóvember kl. 14.00. Garðar Sigurjónsson, Þórir Garðarsson, Þórunn Einarsdóttir, Kristín Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær systir okkar, SIGRÍÐUR GIZURARDÓTTIR lífeindafræðingur, Kvisthaga 29, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn 29. október. Útför hennar verður auglýst síðar. Lúðvík Gizurarson, Bergsteinn Gizurarson, Sigurður Gizurarson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ THEÓDÓRSDÓTTIR BJARNAR húsmóðir, lést á lungnadeild Landspítala Fossvogi mánu- daginn 30. október. Útförin auglýst síðar. Vilborg Sigríður Árnadóttir, Kristín Árnadóttir, Ásgeir Þór Ólafsson, Björn Th. Árnason, Sigurlín Einarsdóttir Scheving, Einar Sveinn Árnason, Margrét Þorvarðardóttir, Árni Árnason, Vilhjálmur Jens Árnason, Hanna Birna Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur en samt ertu farin á miklu betri stað. Þó að það sé virkilega sárt að vita að þú sért ekki lengur hér, þá líður mér samt svo mikið betur að vita að þú finnur ekki lengur fyrir sársaukan- um sem þú ert búin að vera með und- anfarna mánuði, og nú sért þú hjá afa og Betta frænda og ég tala nú ekki um Passó, Tönju og Pollý. Kannski leynist kisan mín, hann Baldur, þarna uppi líka. Þú hélst svo upp á hann. Ég man eftir því þegar við fjölskyldan bjuggum í Fjallalind- inni, og þú varst hjá okkur um jólin. Þú spurðir alltaf hvar Baldur væri. Þá var gerð leit að honum um húsið, en hann fannst ekki. En síðan hopp- aði hann bara inn um stofugluggann og lagðist í fangið á þér. Þú varst svo mikill dýravinur. Ég man eftir Passó og Tönju. Þau fóru alltaf með ykkur afa upp í sumarbústað. Alltaf í skott- inu á bláa Subaruinum, og þau voru líka þar þegar við Berglind frænka fengum að vera í skottinu á leiðinni upp í sumarbústað. Þá var þröngt á þingi, en alltaf svo gaman og spenn- andi. Ég man eftir því þegar að við vorum að fara upp í bústað. Pabbi skutlaði mér inn á Bugðulæk til þín, og síðan biðum við alltaf eftir að Berglind frænka kæmi. Síðan komu Berglind og afi loksins og þá lögðum við af stað austur í bústaðinn ykkar. Við Berglind iðuðum alltaf í sætun- um vegna þess að við vildum fara í skottið. Og þar sem við vorum litlu prakkararnir ykkar afa, fengum við alltaf að stökkva aftur í um leið og við keyrðum fram hjá Rauðavatni, við litla hrifningu foreldra okkar. Síðan sátum við þar og hlógum og hlógum og afi fylgdist með okkur í baksýnisspeglinum. Ég get með sanni sagt að bestu bernskuminningar mínar séu um ykkur afa. Ég á svo margar góðar minningar, en ef ég myndi skrifa þær allar hérna niður þá tækju þær margar blaðsíður. Sú helsta er samt frá því að þú varst að reyna að greiða hárið á mér hér um árið. Ég hef verið um sjö ára gömul. Ég var svo hársár, og þú varst að reyna að ná spennunni úr hárinu á mér. Þú náðir henni ekki Úlfhildur Þorsteinsdóttir ✝ Úlfhildur Þor-steinsdóttir fæddist á Úlfs- stöðum í Loðmund- arfirði 25. nóv- ember 1919. Hún andaðist á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli við Kleppsveg 7. október síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Laugarneskirkju 20. október. úr mér strax, og varst farin að kalla hana ,,aulaspennuna“. Síðar hélst þetta viðurnefni við spennuna. Minningarnar um þig, elsku amma, eru mér svo ofboðslega kærar. Þegar ég kvaddi þig síðastliðinn laugardag sagði Árni bróðir: ,,Nú eru amma og afi að dansa!“ Ég sé afa fyrir mér bíða eftir þér í nýpúss- uðum spariskónum, ið- andi af spenningi. Níu ára bið eftir að fá að halda þér aftur í örmum sín- um er nú lokið. Tilhugsunin um að þú sért með afa núna róar sorgina í hjarta mínu mikið. Elsku amma mín, ég ætla að kveðja þig núna, með bros á vör en söknuð í hjarta. Ég bið að heilsa afa og Betta frænda. Ef þú rekst á Baldur, þá máttu gefa honum eina stroku frá mér. Hittumst síðar í betri heimi, elsku amma mín. Þín Viktoría. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.