Morgunblaðið - 01.11.2006, Side 36

Morgunblaðið - 01.11.2006, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Kalvin & Hobbes ÉG ER EINVALDUR HÉR OG STJÓRNA ALLRI RÍKISSTJÓRNINNI ÉG LEYFI ENGIN MÓTMÆLI! ÉG EINN RÆÐ HINU GÓÐA! ÉG EINN RÆÐ... HÁTTATÍMI, KALVIN! HVAÐ MEÐ AÐ KJÓSA UM ÞETTA? Kalvin & Hobbes EF ÞÚ GÆTIR ÓSKAÐ ÞÉR HVERS SEM ER, HVERS MUNDIR ÞÚ ÓSKA ÞÉR? ÉG MUNDI VILJA FÁ STÓRT, SÓLRÍKT ENGI EITTHVAÐ ASNALEGT ENGI!! ÞÚ HEFUR ÞAÐ NÚ ÞEGAR! HVAÐ MEÐ PENINGA? HVAÐ MEÐ VÖLD? ÞÚ GÆTIR FENGIÐ HVAÐ SEM ER!! ÞAÐ ER ERFITT AÐ RÍFAST VIÐ EINHVERN SEM ER SVONA ÁNÆGÐUR Kalvin & Hobbes HÉRNA FISKAR! ÞEIR HLJÓTA AÐKUNNA ÞENNAN Risaeðlugrín © DARGAUD ÉG FLUTTI AÐALEGA ÚT AF NÁGRÖNNUNUM. ÞAÐ VAR HRÆÐILEGT AÐ BÚA VIÐ ALLAN ÞENNAN HÁVAÐA ÞAÐ VAR EINS GOTT. ÞESSI HELLIR LOSNAÐI Í FYRRADAG OG ÉG GAT FLUTT INN STRAX GJÖRIÐI SVO VEL OOOO EN FALLEGT! MIKIÐPLÁSS! ÞÆGILEGT! OG HLJÓÐBÆRT FYRVERANDI LEIGJANDINN KVARTAÐI UNDAN RAKA. SJÁIÐ! ÞAÐ ER BARA EINN VEGGUR SEM ER RAKUR KOMUM NÆR HÉR ER HANN ÉG ÁKVAÐ AÐ INNRÉTTA ÞENNAN HLUTA HELLISINS SEM BAÐHERBERGI. ÉG ÞARF AÐ REISA 3 VEGGI KRINGUM ÞAÐ OG ÞÁ ER KOMIN... ÞÁ ER KOMIN... STURTA! JÁÁÁ! EKKI VITLAUST GÓÐ HUGMYND! HENTUGT! MIG LANGAR NÆSTUM AÐ PRÓFA HANA MIG LÍKA MIG LÍKA EKKERT MÁL! LÁTIÐ YKKUR LÍÐA EINS OG HEIM HJÁ YKKUR ÉG ER ÁNÆGÐUR AÐ SJÁ HVAÐ ÞIÐ ERUÐ UPPTEKNIR AF HREINLÆTI ROSALEGA ER ÞETTA GOTT! Næstkomandi laugardag, 4.nóvember, efna meist-aranemar í alþjóðasam-skiptum við Háskóla Ís- lands og Alþjóðamálastofnun Háskól- ans til ráðstefnu um öryggismál Íslands. Ráðstefnan er haldin í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafnsins undir yf- irskriftinni Tímamót: valkostir ís- lands í öryggis- og varnarmálum. Pia Hansson nemi er einn af skipu- leggjendum ráðstefnunnar: „Með brottför varnarliðsins og nýjum varn- arsamningi milli Íslands og Banda- ríkjanna er óhætt að segja að Ísland standi á tímamótum í öryggismálum. Með málþinginu viljum við fara yfir stöðu mála í dag og skoða betur nýtil- kominn varnarsamning,“ útskýrir Pia. „Þetta eru spennandi tímar og við höfum fengið fræðimenn til að ræða þá kosti sem eru í stöðunni; hvort Ísland eigi að leita annarra leiða í varnarmálum eða hvort örygg- ismál landsins séu nú þegar góð.“ Aðstandendur ráðstefnunnar hafa fengið til liðs við sig góða gesti: „Við státum af einvalaliði fyrirlesara og eigum von á fróðlegum og skemmti- legum umræðum. Við vorum svo heppin að fá Alyson Bailes, yfirmann SIPRI-friðarrannsóknastofnunar- innar í Stokkhólmi, til að taka þátt í ráðstefnunni. Hún er mikill sérfræð- ingur í varnar- og öryggismálum og Evrópufræðum, með áralangan og farsælan feril að baki við utanríkis- þjónustu Bretlands og er fyrrverandi sendiherra,“ segir Pia. „Einnig tekur Michael T. Corgan, prófessor í stjórnmálafræði við Bostonháskóla og gestakennari við HÍ, þátt í ráð- stefnunni. Hann mun veita sýn bandarísks fræðimanns, en Michael hefur rannsakað ítarlega tengsl Ís- lands og Bandaríkjanna og skrifað bækur og greinar um þau mál. Ragn- heiður Elín Árnadóttir, aðstoð- armaður forsætisráðherra og fulltrúi hans í samninganefnd Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál, mun flytja erindi og einnig Þórunn Svein- bjarnardóttir, alþingismaður og fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis. Þórunn er með gráðu í alþjóðasamskiptum frá John Hopkins-háskóla og hefur verið gagnrýnin á varnarstefnu stjórnvalda.“ Að loknum fyrirlestrum verða pall- borðsumræður með þátttöku fyr- irlesara auk Silju Báru Ómarsdóttur, forstöðumanns Alþjóðamálastofn- unar. Ráðstefnustjóri er Þóra Arn- órsdóttir fréttamaður. Ráðstefnan fer öll fram á ensku. Dagskráin hefst kl. 13 og lýkur um- ræðum um kl. 15.30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Í lok ráðstefnunnar verður boðið til fagnaðar í tilefni af stofnun nýs fé- lags meistaranema í alþjóðasam- skiptum. „Félagið hefur fengið nafnið Alþjóðasamfélagið og er ætlað að verða vettvangur fyrir fyrirlestra og umræður um áhugaverð mál á sviði alþjóðasamskipta,“ segir Pia en formlegur stofnfundur verður á fimmtudag. Nánari upplýsingar má finna á www.hi.is/page/ams. Alþjóðamál | Ráðstefna um stöðu og möguleika Íslands í öryggis- og varnarmálum Eru varnir Íslands tryggar?  Pia Hansson fæddist í Lysekil 1964. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1985, BA- prófi í fjölmiðlun frá University of Minnesota 1988 og stundaði nám í sjónvarps- dagskrárgerð við City University í New York. Hún leggur nú stund á meistaranám í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Pia starfaði sem dagskrárgerðarmaður og upp- tökustjóri hjá Stöð 2 og við sjón- varpsdagskrárgerð í Danmörku. Hún var upplýsingafulltrúi sendi- ráðs Bandaríkjanna á Íslandi frá 2000–2006. Pia er gift Þór Ingólfs- syni, grafískum hönnuði, og eiga þau þrjú börn. Clint Eastwood segir að ParisHilton sé „fræg fyrir ekki neitt“. Clint hefur verið kvikmynda- leikari í rúma fjóra áratugi og segir að ólíkt því sem nú gerist hafi ein- ungis raunverulegt hæfileikafólk getað orðið frægt þegar hann hafi verið að hefja ferilinn. „Þegar ég var ungur voru ein- ungis fáeinar kvikmynda- stjörnur frægar. Núna verða allir stjörnur þannig að það þarf að búa til ofurstjörn- ur. Erfingjar verða stjörnur, eins og Paris Hil- ton.“ Clint sagði sínar hetjur hafa verið Eisenhower og Gary Cooper. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.