Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 2

Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag þriðjudagur 7. 11. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Helena Sverrisdóttir setti stoðsendingamet >> 4 VEIGAR PÁLL GÓÐUR NÆST MARKAHÆSTUR Í NOREGI OG OFARLEGA Í EINKUNNARGJÖF FJÖLMIÐLA >> 4 Rúnar, sem er orðinn 37 ára, fór hreint á kostum í leiknum og þeir sem héldu að hann væri farinn að gefa eftir sáu að það er nú langt frá. Rúnar lék eins og hann gerði best á síðasta ári. Hann vann mjög vel í leiknum, átti góðar sendingar, lagði upp mark og skoraði sjálfur beint úr aukaspyrnu sem var um 25 m frá markinu beint yfir varnarmúr Brugge og í markvinkilinn. Fyrr í leiknum hafði markvörður Club Brugge varið vítaspyrnu Rúnars en með markinu í aukaspyrnunni gleymdu stuðningsmenn Lokeren því atviki. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rúnar skorar sigurmark Lokeren gegn Club Brugge, því fyrir ári síð- an lék hann sama leikinn. Roger Lambrecht, forseti Loke- ren, hrósar Rúnari í Het Nieuws- blad í gær fyrir hinn frábæra leik á móti Club Brugge. Rúnar átti stórleik. Hann var í heimsklassa á móti Club Brugge og er það hreint ótrúlegt að hann skuli vera orðinn 37 ára gamall. Rúnar var hreint úr sagt frábær,“ sagði Lam- brecht. Rúnar fær alls staðar mjög góða dóma í fjölmiðlum í gær. Honum er hælt á hvert reipi. Sjálfur segist Rúnar alltaf vilja leika á móti topp- liðunum. „Þau henta mér betur. Ég fæ meira pláss til að athafna mig,“ segir Rúnar og ítrekar að þrátt fyrir góðan frammistöðu hyggist hann ekki endurskoða afstöðu sína til þess að hætta næsta vor. „Ég mun hætta eftir þetta tímabil.“ Viðræður við nýjan þjálfara Rudi Cossey stjórnaði liði Loke- ren í þessum leik en hann hefur tek- ið við liðinu til bráðabirgða eftir að þjálfaranum var sagt upp fyrir skömmu. Viðræður eru hafnar við annan þjálfara, Muslin að nafni, og fylgdist hann með leiknum í fyrra- kvöld úr stúkunni. Taki Muslin við þjálfuninni er tal- ið að hann vilji koma með þrjá til fjóra leikmenn með sér. Rúnar fór á kostum „ÞAÐ verður skarð fyrir skildi í belgískri knattspyrnu þegar Rúnar Kristinsson leggur skóna á hilluna eftir þetta keppnistímabil,“ sagði Aime Anthuenis, fyrrverandi þjálf- ari belgíska landsliðsins í knatt- spyrnu og einn kunnasti þjálfari Belgíu, eftir leik Lokeren og Club Brugge núna í fyrrakvöld. Í leikn- um fór Rúnar á kostum í liði Loke- ren og lagði grunninn að óvæntum sigri liðsins, auk þess sem hann skoraði sigurmarkið, 3:2. Skoraði glæsilegt sigurmark Lokeren beint úr aukaspyrnu gegn Brugge Rúnar Kristinsson Eftir Kristján Bernburg í Belgíu FIMM Íslendingalið verða í eldlínunni í Skandinavíu- deildinni, Royal League, í knattspyrnu sem hefst í vik- unni. Tólf félög frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku taka þátt í keppninni sem hefst á fimmtudaginn og keppa í þremur riðlum og meðal leikja á fimmtudaginn er viðureign nýkrýndra Nor- egsmeistara Rosenborg og Brann sem varð í öðru sæti. Í fyrsta riðli eru Helsing- borg frá Svíþjóð, OB frá Danmörku og norsku liðin Rosenborg og Brann, sem þeir Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson og Ármann Smári Björnsson leika með. Í öðrum riðli leika FC Kö- benhavn frá Danmörku, Lilleström frá Noregi sem Viktor Bjarki Arnarson er genginn til liðs við, Bröndby frá Danmörku, sem Hannes Þ. Sigurðsson leikur með, sænska liðið Hammarby, sem þeir Gunnar Þór Gunn- arsson og Pétur Hafliði Marteinsson leika með en Pétur leikur sína síðustu leiki með Hammarby í keppninni áður en hann gengur í raðir KR. Í þriðja riðli leika Elfs- borg, nýkrýndir Svíþjóða- meistarar, AIK frá Svíþjóð, Viborg frá Danmörku og Vålerenga, sem Árni Gautur Arason spilar með. Fimm Íslendingalið í Skandinavíudeildinni GUÐJÓN Valur Sigurðsson, Gummersbach, er marka- hæstur í meistaradeild Evr- ópu í handknattleik ásamt Hvít-Rússanum Siarhai Har- bok, sem leikur með slóv- enska liðinu Celje Lasko. Báðir hafa skorað 40 mörk í fimm leikjum í riðlakeppninni, eða 8 mörk að meðaltali í leik. Markahrókar mætast Þeir Guðjón Valur og Har- bok mætast um næstu helgi en þá sækir Gummersbach lið Celje Lasko heim til Slóveníu í hreinum úrslitaleik um efsta sætið í F-riðlinum í Slóveníu. Gummersbach hefur 10 stig í efsta sæti en Celje hefur 8 en takist Celje að vinna með fjög- urra marka mun tryggir liðið sér efsta sætið. Makedóníumaðurinn Kiril Lazarov í liði Fotex Vesprém kemur á hæla Guðjóni og Har- bok en hann hefur skorað 39 mörk. Guðjón Valur, sem varð markakóngur þýsku 1. deild- arinnar á síðustu leiktíð og var útnefndur besti leikmaður deildarinnar, er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn í þýsku 1. deildinni. Guðjón Valur hefur skorað 62 mörk í deildinni. Markahæstur er Holger Glandorf í liði Nordhorn með 75 mörk en Nordhorn hefur leikið tveimur leikjum fleira en Gummersbach. Guðjón markahæstur í meistaradeildinni Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Gegnumbrot Akureyringurinn Andri Snær Stefánsson brýst framhjá tveimur Fylkismönnum og skorar eitt sex marka sinna í sigri Akureyri á Fylki í úrvalsdeild karla í handknattleik á Akureyri í gærkvöld. Yf ir l i t                                   ! " # $ %          &         '() * +,,,                        Í dag Sigmund 8 Daglegt líf 22/25 Veður 8 Umræðan 28/31 Staksteinar 51 Forystugrein 26 Úr verinu 14 Viðhorf 28 Viðskipti 14/15 Minningar 32/37 Erlent 16/17 Dagbók 46/49 Akureyri 20 Víkverji 48 Austurland 22 Velvakandi 48 Suðurnes 21 Staður og stund 46 Landið 21 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Brotist var inn í heimabanka og peningar millifærðir milli íslenskra banka og að lokum til banka í Úkra- ínu. Talið er að Íslendingur hafi ver- ið blekktur til að millifæra pening- ana úr landi. Atvikið átti sér stað í síðustu viku. Peningarnir voru frystir þegar málið komst upp. » Forsíða  Aðfaranótt laugardags lést tutt- ugu og fjögurra ára gömul kona eftir að hafa tekið inn e-töflu en ekki er vitað til þess að dauðsfall af þeim sökum hafi áður átt sér stað hér á landi. Þá voru tveir ungir menn fluttir al- varlega veikir á sjúkrahús á sunnu- dagsmorgun og höfðu þeir sömuleið- is tekið inn e-töflur. Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ á Vogi, segir neyslu e-taflna fara vaxandi. » Baksíða  Frá 1. maí, þegar breytingar á lögum um frjálst flæði vinnuafls frá átta nýjum aðildarríkjum Evrópu- sambandsins tóku gildi, hefur Vinnumálastofnun skráð 3.327 starfsmenn frá þessum löndum, þar af eru 2.447 nýskráningar. Telur stofnunin að enn eigi eftir að skila sér um tvö þúsund skráningar miðað við fjölda útgefinna kenni- talna hjá Þjóðskrá. » Baksíða  Björgvin G. Sigurðsson alþing- ismaður sigraði nokkuð örugglega í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð- urkjördæmi sem fram fór um helgina. Lúðvík Bergvinsson alþing- ismaður náði öðru sæti og Róbert Marshall því þriðja. Ragnheiður Hergeirsdóttir lenti í fjórða sæti listans. » Baksíða  Ómetanleg og óbætanleg nátt- úruverðmæti fóru forgörðum þegar eigendur frystigeymslu, sem Nátt- úrufræðistofnun Íslands hefur verið með á leigu, ákváðu að farga öllu innihaldi klefans að stofnuninni for- spurðri. Var innihaldinu fargað sökum þess að rafmagn fór að frystiklefanum sl. vor með þeim afleiðingum að kjöt sem þar var geymt úldnaði. Ekki er vitað hvort um bilun hafi verið að ræða eða rafmagnið verið tekið af vísvitandi. » Forsíða Erlent  Daniel Ortega, leiðtogi Sand- ínistaflokksins, verður líklega næsti forseti Níkaragva. Kosningarnar fóru fram á sunnudag og þegar um 40% atkvæða höfðu verið talin í gær- kvöldi hafði Ortega fengið um 40% atkvæða og um 7% fleiri atkvæði en næsti maður. Til að ná kjöri í fyrstu umferð þarf frambjóðandi að fá að minnsta kosti 35% atkvæða og 5% fleiri atkvæði en frambjóðandi í öðru sæti. »» 16  Loftslagsbreytingar eru dragbít- ur á framfarir í Austur-Afríku, þar sem mörg af fátækustu ríkjum heims glíma við mikla þurrka. » 16  Dómstóll í Mílanó á Ítalíu dæmdi í gær Egyptann Rabei Ousmane Sayed Ahmed í tíu ára fangelsi fyrir aðild að samtökum sem tengjast al- Qaeda-hryðjuverkanetinu. » »17  Í nýlegum umræðum um þing- kosningarnar í Bandaríkjunum sem fram fara í dag hefur áherslan verið á mikið forskot demókrata í könn- unum og hvort þeim takist að ná meirihluta í að minnsta kosti annarri deild þingsins. En enginn skyldi vanmeta kosningavél repúblikana sem hefur enn einu sinni sýnt að hún er einhver öflugasta smölunarmask- ína í heimi þegar hún fer að mala fyrir alvöru. » 26 EITTSTÓRBROTNASTA BÓKMENNTAVERKHEIMS WUTHERING HEIGHTS EFTIR EMILY BRONTË Magnaðasta ástarsaga heimsbókmenntanna í nýrri og glæsilegri þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. KONA um þrítugt komst af eigin rammleik ásamt tveimur börnum sínum út úr brennandi íbúð í Kefla- vík í gær. Þegar slökkvilið kom að stóðu logarnir út um gluggana á íbúð konunnar á annarri hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Farið var með fólkið á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja vegna gruns um reykeitrun. Slökkvilið fékk tilkynningu um eldinn á níunda tímanum og var allt tiltækt lið Brunavarna Suðurnesja kallað út, segir Jón Gunnlaugsson varaslökkviliðsstjóri. „Það er alltaf mikil hætta á ferðum þegar eldur kviknar í svona fjölbýlis- húsi,“ segir Jón. „Þegar við komum að stóðu eldtungurnar út um gluggana.“ Lögreglan rýmdi húsið á meðan um 20 slökkviliðsmenn réðust til atlögu við eldinn og gekk vel að ráða niðurlögum hans. Íbúðin þar sem eldurinn kviknaði er gjöreyðilögð og eitthvert tjón varð í nærliggjandi íbúðum. Slökkvi- lið reykræsti allar íbúðir í húsinu. Kona og tvö börn sluppu úr eldsvoða Eldtungurnar stóðu út um gluggana þegar að var komið Ljósmynd/Víkurfréttir Eldur laus Allt tiltækt lið Brunavarna Suðurnesja var kallað út og var m.a. beitt körfubíl til að komast að íbúðum í þessu þriggja hæða fjölbýlishúsi. ÞUNG vestanalda óð yfir varnargarð við Eiðsgranda og Ánanaust í óveðrinu á sunnudag og olli talsverðum skemmdum. Malbik á göngustíg brotnaði upp og grjót úr varnargarði og möl dreifðist víða. Skemmdirnar urðu frá Rekagranda og að bensínstöð Olís á móts við Vesturgötu og sjórinn sópaði þara og möl upp á göngu- stíg við Ægisíðu frá Fornhaga og út að Gnitanesi. Jón Bergvinsson, rekstrarfulltrúi á Hverfisbækistöð Reykjavíkur við Njarðargötu, sagði, að þetta hefði einnig gerst fyrir tveimur árum, 15. nóvember 2004. „Mér sýnist þetta þó heldur meira núna af myndum að dæma,“ sagði Jón. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skemmdir af völdum sjógangs AFGREIÐSLA farþega í Leifsstöð í gær, fyrsta daginn sem hertar ör- yggisreglur um handfarangur í milli- landaflugi tóku gildi, gekk mjög vel og er það mat manna að það megi þakka samstilltu átaki upplýstra far- þega og öryggisvarða. Eins og kunn- ugt er fela nýju reglurnar það m.a. í sér að vökvar og vökvakennd efni í handfarangri mega ekki vera í um- búðum sem taka meira en 100 milli- lítra en farþegar mega taka fleiri en eina slíka einingu með sér. Farþeg- um ber að setja allar vökvaumbúðir í glæran poka með plastrennilás. Að sögn Friðþórs Eydals, fulltrúa Flugmálastjórnar, má ekki síst þakka það góðri kynningu í fjölmiðl- um að flestir voru vel með á nótun- um. Íslenskir farþegar stóðu sig best og einnig farþegar frá EES-svæðinu en umræddar reglur gilda þar sem hér. Svonefndir þriðjalands-farþeg- ar, utan EES, voru aftur lítt und- irbúnir. Flugfarþegar komu undirbúnir Í HNOTSKURN »Vökvar og vökvakenndefni mega framvegis ekki vera í umbúðum sem taka meira en 100 millilítra. » Í Leifsstöð er útbýtt sér-hönnuðum plastpokum til þeirra sem ekki hafa slíkt und- ir vökvaumbúðir sínar. FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjálf- stæðisflokksins sér ekki tilefni til frekari aðgerða vegna meðferðar skráa í aðdrag- anda prófkjörsins í Reykjavík en mun beita sér fyr- ir heildstæðri endurskoðun á reglum um með- ferð og miðlun flokksskrár í framtíðinni. Þetta segir Andri Ótt- arsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Mál þessi voru rædd á fundi fram- kvæmdastjórnar flokksins sem hald- inn var í hádeginu í gær en ný úttekt skrifstofu flokksins á meðferð skráa í prófkjörinu í Reykjavík liggur nú fyrir. Andri Óttarsson Endurskoða reglurnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.