Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 7
FRÉTTIR
fremur hefðu orðið skemmdir á
varnargarðinum. Þá hefði sjór far-
ið inn í sláturhúsið. Lítið tjón hefði
orðið á húsinu, en mikil vinna hefði
verið að þrífa þara og leir sem bor-
ist hefði inn í húsið. Ekki er slátrað
í húsinu en unnið er við kjötvinnslu.
Sú vinna hélt áfram án truflunar í
gær.
Gunnólfur sagði að björg-
unarsveitarmenn hefðu verið kall-
aðir út á sunnudag þegar plötur
höfðu losnað á fjárréttarhúsi.
MILLJÓNATJÓN varð á hafn-
armannvirkjum í Búðardal í óveðr-
inu sem gekk yfir landið á sunnu-
dag. Þá gekk sjór inn í sláturhúsið
en lítið tjón varð á húsinu sjálfu.
Nýbúið er að leggja malbik og
hellur á hafnarbakkann í Búðardal.
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri í
Dalabyggð, sagði í samtali við
Morgunblaðið að miklar skemmdir
hefðu orðið á þessari klæðningu.
Hún hefði sópast á haf út að hluta
til og hellur hefðu gengið til. Enn-
Við höfnina stendur gamla kaup-
félagshúsið, en unnið er að því að
breyta því í Leifssafn. Gunnólfur
sagði að ekkert tjón hefði orðið á
þessu húsi.
Mannvirkin sem skemmdust við
höfnina eru í eigu Dalabyggðar.
Fulltrúar frá Siglingamálastofnun
munu koma að því að meta tjónið á
mannvirkjunum.
Gunnólfur sagði að veðrið á
sunnudaginn væri með verri veðr-
um sem komið hefðu í Búðardal.
Milljónatjón varð á hafnar-
mannvirkjum í Búðardal
Morgunblaðið/Björn Anton Einarsson
Malbikið af Nýbúið var að leggja malbik og hellur á hafnarbakkann. Þetta
stórskemmdist allt í óveðrinu á sunnudaginn. Tjónið skiptir milljónum.
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var í
Héraðsdómi Reykjaness í gær
dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi
fyrir ítrekaðan ölvunarakstur, svipt-
ingarakstur, fíkniefnalagabrot og
vopnalagabrot. Var hann einnig
sviptur ökurétti í fimm ár.
Í dómsniðurstöðu segir, að mað-
urinn eigi sakaferil að baki frá árinu
1997 og með brotum þeim, sem hann
var sakfellur fyrir í gær, hafi hann
rofið skilorð reynslulausnar. Ekki
komi til álita að skilyrða refsinguna.
Málið dæmdi Finnbogi H. Alexand-
ersson héraðsdómari, verjandi var
Hilmar Ingimundarson hrl. og sækj-
andi Ásgeir Eiríksson.
Fékk 15
mánuði
KARLMAÐUR var handtekinn í
fyrrinótt af lögreglunni í Reykja-
vík og færður í fangageymslur eft-
ir tilraun til innbrots í KB banka í
Borgartúni. Málið uppgötvaðist
um klukkan tvö þá um nóttina
þegar vaktmaður í eftirlitsferð í
bankanum varð var við óboðinn
gest sem hafði brotið rúðu á fjórðu
hæð bankans. Þangað hafði við-
komandi komist um nýbyggingu
sem stendur við bankann. Þegar
innbrotsþjófurinn varð þess
áskynja að upp um hann var að
komast greip hann til þess ráðs að
flýja af vettvangi. Það var hins
vegar athugull lögreglumaður sem
fann hann fljótlega við leit þar sem
maðurinn hafði reynt að fela sig
milli steinullarplatna í kjallara ný-
byggingarinnar. Farið var með
manninn á lögreglustöð þar sem
hans biðu yfirheyrslur.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu lögreglunnar.
Tekinn við
innbrot
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir lík-
amsárás gegn fyrrverandi eiginkonu
sinni í fyrrasumar og fyrir að ryðjast
í heimildarleysi inn í íbúð hennar síð-
astliðið haust. Dómurinn taldi mann-
inn ekki eiga sér neinar málsbætur
og til refsiþyngingar horfði að lík-
amsárásin var framin inni á heimili
hennar að barni þeirra ásjáandi.
Fram kom í málinu að maðurinn
stæði í forræðisdeilu við konuna en
að mati dómsins réttlætti það engan
veginn háttsemi hans.
Málið dæmdi Sandra Baldvins-
dóttir héraðsdómari. Verjandi var
Hilmar Ingimundarson hrl. og sækj-
andi Katrín Hilmarsdóttir fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík.
Barði fyrr-
verandi
eiginkonu
♦♦♦
♦♦♦
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
3
4
6
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
2.590.000 kr.
Saab 9-3 Linear 1.8 i, beinskiptur
Saab
Ertu ekki örugglega í þotuliðinu?
Framleiðendur hinna virtu Saab bifreiða eiga að baki áratugalanga sögu sem flugvélaframleiðendur. Saab
9-3 hefur fengið fjölda verðlauna fyrir frábæra aksturseiginleika og öryggi. Sannkölluð evrópsk gæði,
skemmtileg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður er það sem gerir Saab 9-3 að afburða bíl.
Nú bjóðum við þér eina af þotunum í Saab bílaflotanum, 9-3 Linear, á frábæru verði.
Komdu og reynsluaktu, finndu muninn!