Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 11
ESB heimilt að fresta gildistöku ákvæðanna í allt að fimm ár til við- bótar, eða til 1. maí 2011. Alþingi samþykkti að beita aðlögunartak- mörkunum gagnvart ríkisborgurum þessara ríkja að því er íslenskan vinnumarkað varðaði, en sl. vor voru fyrirvararnir felldir úr gildi með breytingu á lögum um frjálsan at- vinnu- og búseturétt launafólks inn- an Evrópska efnahagssvæðisins og lögum um atvinnuréttindi útlend- inga. Skammur fyrirvari Frumvarpið var lagt fram á Al- þingi til meðferðar 10. apríl sl., tæp- um mánuði áður en lögin áttu að taka gildi. Í greinargerð með frum- varpinu segir m.a. að nokkur þensla hafi ríkt á íslenskum vinnumarkaði á síðustu misserum. Dregið hafi verulega úr atvinnuleysi og sam- hliða hafi umsóknum um atvinnu- og dvalarleyfi fjölgað. Segir að stefna stjórnvalda við útgáfu dvalar- og at- vinnuleyfa hafi verið sú að veita rík- isborgurum nýju aðildarríkjanna að samningnum um EES forgang um- fram ríkisborgara frá ríkjum utan svæðisins. Atvinnurekendur hafi því verið hvattir til að leita eftir vinnu- afli á sameiginlegum innri markaði. Svo segir: „Svo virðist sem nokkur hreyfanleiki sé meðal ríkisborgara hinna nýju ríkja, enda atvinnuleysi þar nokkurt.“ Þá er tekið fram að hlutfall út- lendinga á innlendum vinnumarkaði hefur aukist stórlega á síðustu árum og er nú orðið um 7%, sem er það hæsta á Norðurlöndum. Í lögunum eru ákvæði um að at- vinnurekendur þurfi að tilkynna um það til Vinnumálastofnunar þegar þeir ráða ríkisborgara ríkjanna átta til starfa. Gildir þetta einnig þegar útlendingur skiptir um starf hér á landi, en þá tilkynnir nýi atvinnu- rekandinn um ráðninguna til Vinnu- málastofnunar. Tilgangur þessarar tilkynningarskyldu atvinnurekanda, samkvæmt greinargerð frumvarps- ins, er m.a. að gera stjórnvöldum kleift að fylgjast með framvindu mála og hafa yfirsýn yfir aðstæður á innlendum vinnumarkaði. Mikil fjölgun frá 1. maí Á tímabilinu 1. maí–1. nóvember sl. bárust Vinnumálastofnun 3.327 skráningar starfsmanna frá nýju að- ildarríkjunum átta, þar af 2.447 ný- skráningar. Hefur þeim fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði. Á síð- asta ári komu 2.765 launamenn frá nýju aðildarríkjunum, eða rétt tæp 70% allra sem fengu hér atvinnu- leyfi. Til samanburðar voru gefin út 1.375 atvinnuleyfi á árinu 2004 en þar af komu 626 launamenn frá nýju aðildarríkjunum, eða rúm 45%. Vinnumálastofnun telur að vel yf- ir 2.000 manns, sem þegar hafa fengið kennitölur hjá Þjóðskrá, eigi eftir að skila sér til skráningar. Fólk frá aðildarlöndum EES má dvelja og starfa hér á landi án sér- staks leyfis í allt að þrjá mánuði frá komu til landsins eða allt að sex mánuði ef hann er í atvinnuleit. Ef viðkomandi dvelst lengur í landinu þá skal hann hafa dvalarleyfi. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, segir að frá því í september í fyrra og þar til lögin tóku gildi 1. maí sl., hafi fáum um- sóknum um atvinnuleyfi frá nýju að- ildarríkjunum verið hafnað. „Ég held að þetta flæði sé meira en menn höfðu reiknað með og þá um leið eftirspurnin því þetta fólk kemst að ég tel undantekningar- laust í vinnu,“ segir Gissur um áhrif lagabreytingarinnar. „Það er auðvit- að það sem skiptir höfuðmáli, að hingað sé ekki að flæða fólk sem er atvinnulaust.“ En Gissur segir að lagabreytingin hafi ýmis áhrif sem bregðast verði við. „Í kjölfarið koma ýmsar kröfur sem þetta fólk gerir til samfélagsins og við þurfum að svara. Númer eitt er vinnan og númer tvö er að kenna fólki tungumálið.“ Hann segir nauðsynlegt að fjár- magn verði nú sett í íslensku- kennslu. Gissur segir nokkurn misbrest á skráningu fólks frá nýju aðildar- löndunum hjá Vinnumálastofnun. Við því hefur stofnunin nú brugðist m.a. með því að senda út bréf til 300 fyrirtækja þar sem þau eru beðin að skrá starfsmenn sína. Stofnunin hef- ur heimildir til að beita dagsektum skrái fyrirtæki ekki starfsmenn. Morgunblaðið/Árni Torfason Samfélagið Er íslenskt samfélag undir það búið að veita þeim mikla fjölda útlendinga sem hingað koma til starfa þá þjónustu sem þeir eiga rétt á? MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 11 FRÉTTIR SPENNUÞRUNGIÐ andrúmsloft ríkti á Hótel Selfossi í gærkvöldi þeg- ar talið var í prófkjöri Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi. Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður hélt 1. sæti listans allt frá fyrstu tölum. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður var í 2. sæti. Tveir nýir frambjóðendur, þau Róbert Marshall og Ragnheiður Her- geirsdóttir, tryggðu sér 3. og 4. sæti á listanum. Jón Gunnarsson alþingis- maður varð í 5. sæti en færist niður vegna kynjakvóta. Í staðinn færist Guðrún Erlingsdóttir, sem fékk 6. sæti, upp um eitt sæti. Fyrstu tölur voru birtar þegar búið var að telja 1.500 atkvæði. Þær gáfu strax til kynna að niðurstaða próf- kjörsins gæti sætt nokkrum tíðind- um. Björgvin var þá með flest at- kvæði í 1. sæti og hélt þeirri forystu alla talninguna, Ragnheiður með flest atkvæði í 1.–2. sæti, Lúðvík í 1.–3. sæti, Róbert í 1.–4. sæti og Jón í 1.–5. sæti. Þegar leið á talninguna skaust Róbert upp í þriðja sætið og sat þar sem fastast. Þau Lúðvík og Ragnheið- ur skiptust hins vegar á 2. og 4. sæti og oft með litlum mun. Alls kusu 5.149 í prófkjörinu sem haldið var síðastliðinn laugardag. Kosið var á 20 kjörstöðum sem voru opnir frá kl. 9–18. Prófkjörið var opið öllum kosningabærum íbúum kjör- dæmisins. Kjörsókn þótti framar von- um í ljósi leiðinlegs veðurs. Ætlunin hafði verið að telja upp úr kjörköss- unum á Hótel Selfossi á sunnudaginn var. Veðurofsinn olli því að ófært var á sjó og í lofti frá Vestmannaeyjum og komust kjörgögnin því ekki til Selfoss svo talning gæti hafist á tilsettum tíma. Talningu var því frestað þar til kl. 14 í gær. Kristinn M. Bárðarson, formaður kjördæmaráðs, sagði að síðasta flug hefði farið frá Eyjum kl. 17.30 á laug- ardag en kjörkassarnir ekki verið til- búnir til flutnings fyrr en kl. 20. Ferð- ir Herjólfs og flug féll svo niður á sunnudag. „Fyrir fjórum árum voru kassar úr Vestmannaeyjum líka veð- urtepptir, en þá ætluðum við að telja strax um kvöldið. Þá skall á vont veð- ur og kassarnir komu með Herjólfi morguninn eftir. Að fenginni þeirri reynslu töldum við snjallt að telja nú á sunnudeginum,“ sagði Kristinn. Í síðasta prófkjöri Samfylkingar- innar vegna alþingiskosninga tóku þátt 2.400 flokksfélagar. Margrét Frí- mannsdóttir var þá í 1. sæti, Lúðvík Bergvinsson í 2. sæti, Björgvin G. Sigurðsson í 3. sæti og Jón Gunnars- son í 4. sæti. Spennandi talning á Selfossi Björgvin G. Sigurðsson hlaut 1. sæti, Lúðvík Bergvinsson lenti í 2. sæti, Róbert Marshall í 3. sæti, Ragnheiður Hergeirsdóttir í 4. sæti. Jón Gunnarsson í 5. sæti og Guðrún Erlingsdóttir í 6. sæti. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ánægð Ragnheiður Hergeirsdóttir, Róbert Marshall og Björgvin G. Sig- urðsson fagna með formanni Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, í gærkvöldi. Í HNOTSKURN » Fjórir Samfylking-arþingmenn úr Suður- kjördæmi sitja nú á Alþingi. Þeir eru: Björgvin G. Sigurðs- son, Jón Gunnarsson, Lúðvík Bergvinsson og Margrét S. Frímannsdóttir. Margrét S. Frímannsdóttir, sem leiddi listann í síðustu kosningum, hefur tilkynnt að hún hyggist láta af þing- mennsku. » Fimm efstu sætin í próf-kjörinu eru bindandi að teknu tilliti til jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um að hvort kyn skuli hafa að lág- marki 40% fulltrúa. Guðrún Erlingsdóttir færist því upp í 5. sæti á listanu en Jón Gunn- arsson færist niður í 6. sæti.                    ' (  6  ' 7 ! * 8 7 8 &       9  :   *     8        ! "  +( +(02/         +(3,(   +(/,-        +(3-(    +(4,0        +(3.(      ,(+05       +(3/(       +(4,2                      ;(  ,(42- ,(1+1 ,(4+/ ,(.0, +(4,2 +(1,4 +(-14 +(-,4 „Niðurstaðan er vonbrigði,“ sagði Lúðvík Berg- vinsson alþing- ismaður. Hann lenti í 2. sæti í prófkjörinu en hafði gefið kost á sér í 1. sæti. „Niðurstaðan er önnur en ég stefndi að en hún er komin og ég tek henni. Ég vil óska Björgvini til hamingju með sigurinn.“ Lúðvík kvaðst vera ánægður með að yfir fimm þúsund kjósendur í Suðurkjördæmi skyldu hafa tekið þátt í prófkjörinu. Lúðvík Bergvinsson Niðurstaðan er vonbrigði BJÖRGVIN G. Sigurðsson sigraði örugglega í í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. „Ég fékk ótvíræða kosningu og afgerandi í fyrsta sætið og í rauninni langt framar vonum því ég taldi að baráttan yrði jöfn enda keppinautar mínu miklir stjórnmálamenn. Þetta var enginn leikur og ég er ákaflega stoltur yfir árangrinum og þakklátur.“ Björgvin segir að niðurstaðan sé dómur fólksins í fjöl- mennu prófkjöri „og vonandi get ég þakkað verkum mínum í þinginu að einhverju leyti því menn uppskera eins og þeir sá. Í stóru prófkjöri á enginn möguleika nema hann hafi unnið fyrir því“. Að sögn Björgvins er listinn skipaður mjög ólíku fólki og því spanni hann mikla breidd. Búsetan hafi ekki ráðið vali kjósenda heldur hafi fólkið valið þann lista sem því hafi þótt sigurstranglegastur og útkoman sé mjög sterk- ur listi sem hann sé mjög stoltur af. „Listinn er þess bær að halda þeim ár- angri sem við náðum síðast, að vera stærsti flokkurinn í kjördæminu og vera með fjóra alþingismenn. Það er markmiðið.“ Sigurstranglegasti listinn Björgvin G. Sigurðsson RAGNHEIÐUR Hergeirsdóttir hafnaði í fjórða sæti eftir mikla baráttu við Lúðvík Bergvinsson um annað sætið. „Ég sóttist eftir öðru til þriðja sæti og það eru auðvitað vonbrigði að ná því ekki en hins vegar er ég afar ánægð með þessa kosningu og mjög þakklát fyrir stuðninginn. Það munar aðeins 25 atkvæðum á okkur Lúðvík í annað sætið og ég lendi í því fjórða sem er baráttusætið okk- ar.“ Tveir nýliðar eru í fjórum efstu sætunum, Róbert Marshall og Ragnheiður Hergeirsdóttir. „Mér líst vel á listann, þetta er öflugt fólk,“ segir Ragnheiður og telur að það eigi eftir að vinna vel saman. Mikil spenna ríkti meðan á talningunni stóð og skiptust Ragnheiður og Lúðvík á að vera í öðru og fjórða sæti. Ragnheiður fékk bestu kosningu kvenna og bendir á að aðeins hafi verið fimm konur á 17 manna framboðs- lista. Engin kona hafi sóst eftir fyrsta sætinu og hún hafi verið í baráttu við þrjá sitjandi þingmenn. Það hefði verið ákjósanlegt að komast hærra, „en ég held að það sé flott að vera með konu í baráttusæti“, segir hún. Kona sterk í baráttusætinu Ragnheiður Hergeirsdóttir „Mér líður afskaplega vel. Ég komst í eitt af þremur fyrstu sætunum og það var það sem ég stefndi að,“ sagði Róbert Marshall spurður um líðanina eftir að hafa feng- ið 3. sæti í prófkjörinu. „Mér finnst móttökurnar sem ég fæ vera afskaplega hlýjar. Ég gekk á milli fólks í kjör- dæminu og spurði hvort mætti bjóða því nýjan þing- mann. Svarið er mjög afgerandi já. Ég fékk mjög jafna og góða kosningu og sýnist tæp 60% hafa viljað hafa mig þarna í forystunni. Ég er mjög þakklátur því fólki sem sýndi mér þetta traust,“ sagði Róbert. Róbert kvaðst hafa lagt áherslu á náttúruvernd, jafn- réttismál og borgaraleg réttindi í prófkjörsbaráttu sinni og vilja vinna að þeim málefnum. Hann sagðist hafa fundið að í kjördæm- inu væru bæjarfélög sem eru afskipt þegar kemur að ríkisvaldinu. „Það setur sinn svip á pólitíkina. Það sem gerist nú er að hópurinn sem skipar listann mun koma sér saman um sín áherslumál.“ Fékk hlýjar móttökur Róbert Marshall lenti í 3. sæti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.