Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 22
|þriðjudagur|7. 11. 2006| mbl.is daglegtlíf Rífa á gamla barnaskóla- húsið á Hólmavík. sem var byggt árið 1913. » 23 bæjarlífið Allt að 77% verðmunur var á smurþjónustu við stóra jeppa í verðkönnun verðlags- eftirlits ASÍ. » 24 verðkönnun Það er margt sem leynist í kompum manna og koma má í verð á www.safn- arbudin.is. » 25 neytendur Undirbúningur fyrir útilegur og notkun áttavita eru meðal þess sem Elísabet og Haraldur Jóns- börn læra í skátunum. » 24 tómstundir Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Hefurðu einhvern tímann fengið dónalegantölvupóst? Getur verið að þú hafir sent slík-an sjálf/ur? Margrét Reynisdóttir leiðbein-andi á námskeiðinu Bætt tölvupóstsamskipti – meiri árangur segir að þótt nánast allir sendi tölvu- pósta hafi fæstir lært hvernig eigi að standa að þeim. „Rannsóknir hafa sýnt að með því að tileinka sér réttar aðferðir við tölvupóstsamskipti getur t.a.m. 20 manna fyrirtæki sparað að lágmarki 5 milljónir árlega. Þá er ekki tekið tillit til bættrar ímyndar og betri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsmenn,“ segir Margrét sem er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun. „Flestir ef ekki allir hafa sannreynt að tölvupóstur er í sífellt meira mæli notaður í stað hefðbundinna sam- skipta, eins og að hringja, skrifa bréf eða að hittast. Fólk, fyrirtæki og stofnanir þurfa því að vera meðvituð um að í tölvupósti fer ímyndarsköpun líka fram. Það er mik- ilvægt að vanda þar til verka því jafnvel þótt pósturinn sé oft óformleg samskiptaleið þá endurspeglar hann send- andann í huga viðtakandans. Tölvupósturinn er í vaxandi mæli að verða andlit fyrirtækja út á við.“ Stundum tímasóun Það er enginn vafi á því að tölvupósturinn er kominn til að vera en rannsóknir sýna samt að tæplega 60% telja tölvupóst of mikið notaðan í stað þess að ræða málin aug- liti til auglitis eða símleiðis. Þá hafa um 30% pósts ekkert gildi fyrir viðtakandann og eru hrein tímasóun. „Fólk þarf að meta hvenær rétt er að nota tölvupóst- Mistök algeng í tölvupóst- samskiptum inn og hvenær betra er að nota aðrar samskiptaleiðir. Það gildir samt þar eins og í öðrum samskiptum að kurteisi og vingjarnleiki margborga sig. Fólk getur spurt sjálft sig hvernig það myndi bregðast við ef manneskja gengi að því án þess að heilsa eða kynna sig og notaði síðan boðhátt eins og „gerðu“ og „farðu“ og færi síðan aftur án þess að kveðja en þetta gera margir í tölvupósti. Þeir sem þetta gera hafa venju- lega ekki áttað sig á því og myndu aldrei nokkurn tím- ann koma svona fram þegar þeir hafa samband sím- leiðis eða augliti til auglitis. Tölvupóstur er þýðingarmikið samskiptatæki og það skiptir máli hvernig fólk kemur fyrir, annars getur sambandið orðið fyrir skaða. Þetta skiptir máli, því í nútíma- Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tölvupóstaímyndir Margrét Reynisdóttir kennir Íslendingum að skrifa betri tölvubréf og pósta enda hafa þau áhrif á ímynd fólks og fyrirtækja. samfélögum fara samskipti að miklu leyti fram í tölv- um, sérstaklega í viðskiptum,“ segir tölvupósts- leiðbeinandinn. „Það gilda að flestu leyti sömu reglur um rafbréf og hefðbundin bréf varðandi ávörp og kveðjur. Efni bréfsins þarf auk þess að vera markvisst til þess að eyða sem minnstu af tíma viðtakandans og fyrirsögnin á að vera lýsandi fyrir umfjöllunina. Það er líka mikilvægt að viðtakandi lesi bréfið, það sýnir t.d. litla virðingu að hálflesa bréf og senda póst til baka með spurningu um eitthvað sem var í fyrra bréfi. Þá er mikilvægt að vanda málfar og lesa alltaf bréfið yfir áður en ýtt er á sendingarhnappinn. Þú breytir ekki eftir á og veist aldrei hvar eða hjá hverjum pósturinn gæti endað.“ Námskeiðið Bætt tölvu- samskipti – meiri árangur er haldið á veg- um Þekking- armiðlunar. Breska fyrirtækið Gymkidshefur sett á markað nýtttæki sem hvetur börn tilað stunda æfingar með- an þau leika tölvuleiki, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Tækið, stigvél sem nefnist Step2Play, er tengt við stjórnborð leikjatölvunnar. Börnin geta ekki leikið tölvuleikina nema þau noti stigvélina og stígi á þeim hraða sem tækið er stillt á. Þar sem tæk- ið stjórnar aðeins stjórnborðinu, ekki leikjunum, er hægt að nota það með öllum Playstation- leikjum. „Áfellisdómur“ BBC hafði eftir Ian Campbell, talsmanni Weight Concern, sam- taka sem berjast gegn offitu í Bretlandi, að tækið væri „gagn- legt“ vegna þess að börn hreyfðu sig ekki eins mikið og þau þyrftu. „Allt sem hvetur þau til að stunda líkamsæfingar er af hinu góða. Það er samt sorglegt að við skul- um þurfa að múta börnunum til að hreyfa sig. Það er hræðilegur áfellisdómur yfir samfélagi okk- ar.“ „Ég tel þetta ekki slæma upp- finningu en hún er þó ekki til fyrirmyndar. Það væri miklu betra að hvetja börnin almennt til að hreyfa sig reglulega, jafnt í skólanum sem heima hjá sér. Og það gæti verið ráðlegt fyrir for- eldra að takmarka aðgang barna sinna að tölvunni.“ Colin Waine, formaður National Obesity Forum, annarra samtaka sem berjast gegn offitu í Bret- landi, kvaðst vera hlynntur tækinu og sagði það geta stuðlað að því að börn fitnuðu ekki þegar þau kæmust á unglingsárin. „Íþróttir höfða ekki til allra og við þurfum að hugsa út fyrir leikvöllinn. Tæk- ið er nýstárleg leið til að fá börnin til að hreyfa sig meira. Ég tel ekki að þetta séu mútur, heldur aðeins hvatning.“ Fær börn til að hreyfa sig við tölvuna Step2Play Stigvél sem tengd er við stjórnborð leikjatölvu. Vondur og góður póstur Hér eru tvö dæmi um tölvupósta sem fjalla um sama efnið en eru settir fram með mismunandi hætti. Hvorn myndir þú heldur vilja fá? Tölvupóstur þar sem sendand-inn hefur ekki vandað sig:Gögnin eru komin ætlar þú að koma í dag að sækja þau ??kv. Jón Póstur sem inniheldur sömu skila- boðin en er afar kurteislegur, með ávarpsorðum og kveðju og meðfylgj- andi upplýsingum um það hvar hægt er að ná í sendandann. Sæll Guðmundur. Þakka þér fyrir að svara strax tölvupóstinum sem ég sendi í gær. Skýrslan sem þú óskaðir eftir er tilbúin. Þú getur sótt hana þegar þér hentar í afgreiðslu hjá okkur. Bestu kveðjur, ___________________________ Jón Jónsson viðskiptastjóri Fyrirtækið ehf Götu 66, 110 Reykajvík Símar: 555 5555 & 888 8888 Bréfasími: 555 5556 Ungbörn geta tileinkað sér þekk- ingu úr myndabókum. Í bandarískri rannsókn sem fjallað er um á norska vísindavefnum www.forskning.no kom í ljós að börn á aldrinum 18–30 mánaða gátu lært úr myndabókum að búa til einfalda hringlu. Börn- unum voru sýndar myndir af sam- setningu hringlunnar og eftir að hafa skoðað myndirnar gátu þau náð betri árangri en samanburðarhóp- urinn við að setja hringluna saman. Rannsóknin sýndi að börnin lærðu meira af ljósmyndum en blýants- teikningum í lit. Morgunblaðið/Ásdís Smábörn læra af myndabókum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.