Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 49 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn er einstaklega aðlaðandi þessa dagana. Ólgandi augnaráð leið- ir eitthvað af sér. Ef þú ert ekki í þeirri aðstöðu að geta fylgt því eftir, skaltu vera með sólgleraugu eða bara passa að horfa ekki. Útlitið hjálpar þér við að auka tekjurnar í augnablik- inu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið myndi vilja að umhverfið á heimilinu væri í jafnvægi, en það virðist ekki vera takmark allra sem um ræðir. Í kvöld fá allir tækifæri til þess að segja hvað þeim býr í brjósti og byrja upp á nýtt með hreint borð. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þoka í kollinum fylgir veðurútlitinu í stjörnuspánni í dag. En dagdrauma eftirmiðdagsins ber við bláan og heið- an himin. Ímyndaðu þér að þú skilir frábæru verki og gerðu það svo í al- vörunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn í dag verður hálf mislukk- aður, þess vegna skaltu horfa á hann með þeim formerkjum. Einhver í fiska- eða bogmannsmerki á sitthvað undir því að þér takist vel upp. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Að þrá er yndisleg tilfinning og að vita hvað maður vill er jafnvel enn betra. En eins og allir þeir sem unnið hafa stórt í happdrætti vita, tryggir það ekki endilega hamingju að fá það sem maður vill. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Freisting kemur við sögu fyrir há- degi. Eitthvað sem virðist meinlaust í litlum skömmtum á samt eftir að leiða til glötunar. Besta herbragðið er að halda sig alveg í burtu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Daðraðu við nýjar hugmyndir. Þú ert með eina í kollinum sem gæti opnað þér væna tekjulind, en þú þarft að lokka hana út. Steingeitur og naut eiga eftir að reynast ágætis próf- steinar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Skraf getur verið undirstaða við- skipta. Maður lærir það sem maður þarf að vita með því að vera vakandi fyrir minnstu smáatriðum í þess kon- ar samskiptum. Þér tekst sérlega vel upp með einhverjum í vatns- beramerki. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Stundum þegar fólk biður þig um að gera það sem þú gerir best líður þér eins og tömdum sel með bolta á nef- inu sem vonast eftir fiski að launum. En það er ekki eins og aðrir sjá þig. Segðu sjálfum þér að það sé allt í lagi að vera hæfileikaríkur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ef hungur er mannlegt, er guðdóm- legt að vera mettur. Steingeitin veit hvernig hún á að vera mannleg án þess að útiloka guðlega forsjá í lífi sínu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Styrkur þinn felst í því að vera hlý- legur við aðra, hlusta á þá og viður- kenna velgengni þeirra og sársauka. Með þessu styrkir þú líka persónu- leika þinn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Framfarir í einkalífinu gera daginn einstaklega líflegan. Gerðu upp við þig hvar þú átt að einbeita þér, því himintunglin gefa þér meiriháttar meðbyr ef þú gerir það. Merkúr og Venus eru í samstöðu í dag sem er fyrirboði ákafrar þarfar til þess að tjá sig við aðra. Vingjarnlegt tungl í tví- bura vermir andrúmsloftið með því að blaðra um allt og ekkert en úr því verða kannski einn eða tveir samn- ingar. stjörnuspá Holiday Mathis LEIKARINN og leikstjórinn Zach Braff hefur átt skjótan frama í kvik- myndabransanum en segja má að hann hafi skapað sér ímynd sem vandaður og klár en um leið ögn aulalegur sjarmör. Í Síðasta koss- inum er gengið út frá þessari ímynd í persónusköpun aðalsögupersón- unnar en þar leikur Braff Michael, 29 ára gamlan arkitekt sem á von á barni með Jennu (Jacinda Barrett), heittelskaðri unnustu sinni til margra ára. Michael virðist sem sagt allt ganga í haginn, en nú þegar barn er á leiðinni sér hann fram á að líf sitt sé að steypast í fyrir fram ákveðið mót og fyllist kvíða. Hann fer því að hugleiða að láta tilleiðast þegar Kim (Rachel Bilson), 19 ára háskólastelpa, sýnir honum áhuga. Síðasti kossinn fjallar um sambönd, hjónabönd og ást í gegnum persónur myndarinnar, en strákarnir í vina- hóp Michaels eru allir að ganga í gegnum erfiðleika á rómantíska sviðinu og varðandi almenna stefnu sína í lífinu, og sama er að segja um foreldra Jennu sem eiga 30 ára hjónaband að baki. Viðleitni mynd- arinnar til þess að taka á tilfinninga- legum málum ristir þó ekki sérlega djúpt þar sem hún er lituð af rót- grónum hugmyndum um að karl- menn séu á einhvern hátt neyddir til að fullorðnast og binda sig fjöl- skyldu og heimili af konum sem sjálfar hafi engar efasemdir um að ganga inn í það hlutverk. Þannig má skipa Síðasta kossinum í áberandi stóran flokk Hollywood-kvikmynda sem fjalla um karlmenn sem vilja ekki fullorðnast. Í þessum myndum birtast samskipti kynjanna á staðl- aðan máta, og alfarið út frá sjón- arhóli karlmannanna, þar sem konur birtast sem óskiljanlegar ráðgátur, og virðast vilja fátt annað en að snara karlmenn í hlutverk feðra og fyrirvinna og nöldra síðan í þeim það sem eftir er ævinnar. Sem mynd af þessu tagi hefur Síðasti kossinn þó talsvert fleiri víddir en gengur og gerist, og nær talsverðri einlægni í sögupersónum á borð við móður Jennu sem leikin er af Blythe Danner og vininn Chris (Casey Af- fleck) sem sýnir mesta tilfinn- ingalega þroskann gagnvart sinni tilvistarkreppu af strákunum í vina- hópnum. Tilfinningakreppa að- alsögupersónunnar Michaels er hins vegar klaufalega spiluð út, og sam- leikur þeirra Zach Braff (sem er sér- lega ofmetinn leikari að mínu mati) og Rachel Bilson er ósannfærandi og kraftlaus. Strákar í kreppu Síðasti kossinn „Þannig má skipa Síðasta kossinum í áberandi stóran flokk Hollywood-kvikmynda sem fjalla um karlmenn sem vilja ekki fullorðnast.“ KVIKMYNDIR Háskólabíó og Sambíóin Álfabakka Leikstjórn:Tony Goldwyn. Aðahlutverk: Zach Braff, Jacinda Barrett, Rachel Bil- son, Casey Affleck, Blythe Danner og Tom Wilkinson. Bandaríkin, 104 mín. Síðasti kossinn (The Last Kiss)  Heiða Jóhannsdóttir KOMIN Á HEIMASÍÐU MÍNA !!!!!!!! ÉG KYSSI ÞIG !!!!!. Þar segir einnig: ,,Hver er vill koma TYRK- LAND ég get boðið ... Hún getur verið mínu heimili.“ Cagri segist vera blaðamaður að atvinnu, en Borat er fréttamaður. Þá má sjá ljósmyndir af Cagri í tennis og í sundi í níðþröngri, rauðri sund- skýlu. Svipuð atriði má sjá í mynd- inni um Borat, sem frumsýnd var hér á landi um helgina. Cagri útilokar ekki að fara í mál við Cohen. ,,Ef mögulegt þú geta hjálpað mér til fyrir að stöðva þetta eða finna góðan lögfræðing?“ mun Cagri hafa spurt Wired News. Ástr- alska blaðið Sydney Morning Herald segir frá þessu. fyrir 18 mán- uðum síðan. Mun hún halda þrenna tónleika í Sydney en ferðinni er svo heitið í fimm aðrar borgir fyrir jól. Í jan- úar hyggst Minogue svo koma fram á nokkrum tónleikum í Bretlandi. „Það er stórkostlegt að vera komin aftur. Ég hef beðið þessa augnabliks lengi,“ sagði hin 38 ára Minogue við blaðamenn á alþjóðlega flugvellinum í Sydney við komuna þangað. Ástralska söngkonan KylieMinogue er komin til heima- landsins og hyggst halda áfram það- an sem frá var horfið með Showgirl- tónleikaferð sína, en hún frestaði Ástralíuhluta ferðarinnar þegar hún greindist með krabbamein í brjósti Mikill er máttur fjölmiðla og ekkisíst fjölmiðladrottningarinnar Oprah Winfrey. Eftir að hafa komið fram í þætti Oprah í síðustu viku hefur bók næringarlæknanna Mich- ael F. Roizen og Mehmet C. Oz verið áberandi á metsölulistum vestanhafs svo bókaútgáfan Simon & Schuster hefur ákveðið að auka upplagið um nokkur hundruð þúsund eintök. Um er að ræða auðskildar for- skriftir að heilbrigðari lífstíl þar sem höfundarnir líkja mannslíkamanum við hús.    / ÁLFABAKKA THE DEPARTED kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10:10 B.i. 16 THE DEPARTED VIP kl. 5:30 - 8:30 THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 12 THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ BARNYARD m/ensku tali kl. 6 - 10:10 LEYFÐ JACKASS NUMBER 2 kl. 4 - 8 B.i. 12 ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff („Scrubs“, „Garden State“), Rachel Bilson („The O.C.“ þættirnir) ofl. SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI „THE DEPARTED ER EÐAL GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR OG ER ENN EIN RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“ eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL FRÁ HANDRITSHÖFUNDI „MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“ ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! „...groddalegur og beinskeyttur húmor... þannig að maður ælir nánast af hlátri“ Þ.Þ. - FRÉTTABLAÐIÐ Sýnd í Sambíóunum í Kringlunni og Keflavík SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. UPPRUNALEGU PARTÝ-DÝRIN ERU MÆTTÞú átt eftir að skemmta þér sjúklega vel. eeee H.Ó. MBL eee LIB Topp5.is KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu the last kiss eee EMPIRE Eruð þið tilbúin fyrir eina fyndnustu mynd allra tíma? / KRINGLUNNI BORAT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 DIGITAL BÆJARHLAÐIÐ kl. 6 LEYFÐ m/ísl. tali MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ BEERFEST kl. 8 B.i. 12 / KEFLAVÍK BORAT kl. 10 B.I. 12 MÝRIN kl. 8 B.I. 12 THE DEPARTED kl. 10:10 B.I. 16 / AKUREYRI THE DEPARTED kl. 8 b.i. 16 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ THE GUARDIAN kl. 8 b.i. 12 eeee EMPIRE MAGAZINE T.V. - Kvikmyndir.com eeeee THE MIRROR eeee S.V. MBL eeeee V.J.V. - Topp5.is eeeee EMPIRE Þriðjudagar eru bíódagar 2 fyrir 1 í Sambíóinfyrir viðskiptavini Sparisjóðsins 04.11.2006 3 12 21 24 25 1 8 5 9 3 9 9 1 9 4 18 01.11.2006 4 14 16 32 45 48 4820 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.