Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ gegnum posann. Finnst ekki taka því. Starfsmenn verslana eru mun betur á varð- bergi erlendis, a.m.k. þar sem Víkverji kem- ur. Hann hefur verið óvenju víðförull á þessu ári, sótt heim Bretland, Spán og Frakkland og það er hending ef myndin á greiðslukort- inu er ekki skoðuð þeg- ar því er framvísað á þessum stöðum. Og hvað gerist þá? Stundum ekki neitt. Stundum brosa menn í kampinn en segja ekki orð. Oftast fær Víkverji þó fyrir- spurn. „Hver á þetta kort, lagsi, og hvers vegna ert þú með það?“ Þá fer Víkverji með sína þaulæfðu útskýr- ingarþulu sem dugar alltaf, a.m.k. hingað til. Margir líta hann þó efa- semdaraugum. Enda þótt Víkverji hafi lúmskt gaman af þessum uppákomum ákvað hann nýverið að spara sér – og verslunarfólki í fjarlægum löndum – tíma í framtíðinni og skilaði inn glæ- nýrri ljósmynd í bankann sinn. Á hann nú von á nýjum greiðslukort- um. Fróðlegt verður að sjá hvort nýja myndin verður tekin gild að tólf árum liðnum. Víkverji hefurbreyst mikið í út- liti undanfarin tólf ár. Vonandi er breytingin til hins betra en það er eflaust umdeilanlegt. Ástæðan fyrir því að Víkverji gerist svo héralegur að vekja máls á þessu er að ljós- myndin á greiðslukort- um hans er einmitt orðin tólf ára gömul. Hvernig sem á því stendur er fæstum Ís- lendingum ljóst hvern- ig Víkverji leit út árið 1994 og fyrir vikið er umrædd mynd oft og tíðum uppspretta skondinna orða- skipta milli Víkverja og afgreiðslu- manna í verslunum. „Hver á þetta kort?“ spyrja menn gjarnan. „Ég,“ svarar Víkverji þá án þess að hika enda þrautþjálfaður í viðbrögðum við þessar vandræðalegu aðstæður. Þá hleypa menn yfirleitt brúnum og skella jafnvel góðlátlega upp úr. Flestir spyrja hvað myndin sé gömul en aðhafast ekki frekar í málinu. Það er merkilegt að Víkverji lend- ir margfalt oftar í þessu erlendis en hér heima. Ástæðan er sú að íslensk- ir verslunarmenn líta núorðið yfir- leitt ekki á myndirnar á greiðslu- kortunum áður en þeir renna þeim í     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8,21). Í dag er þriðjudagur 7. nóvember, 311. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hugleiðingar um vöruverð REGLULEGA birtast fréttir í fjöl- miðlum um að neytendur og starfs- fólk steli svo og svo mörgum millj- örðum úr verslunum landsins og meðal annars þess vegna er verð hærra en ella. Eflaust er eitthvað til í þessu en ég ætla að nefna nokkur dæmi sem snúa að versluninni sjálfri. Hvað skyldi það gerast oft að ný- byrjað fólk gefi vitlaust til baka í verslunum og sjoppum? Verða ekki flestir varir við það í stórmörkuðum að hilluverð er mun lægra en þegar maður les strimilinn? Hvers vegna? Jú, svo þeir sem taka ekki strimilinn sjái ekki muninn á hilluverði og strimlaverði. Hversu oft verður maður ekki var við það að jarðarber og bláber í boxi virðast fersk í útliti en þegar maður opnar öskjuna heima kemur í ljós að 20% berjanna eru ónýt. Hvers vegna skyldi Fig Rolls kex sem kostaði 78 kr. í byrjun árs kosta 128 kr. núna? Varla hefur innkaupsverð hækkað á því kexi um 65% frá áramótum. Ég get nefnt fjölmörg önnur dæmi en læt gott heita. Ef maður tæki bara þessi fáu dæmi og umreiknaði í eitt ár, þá kæmi eflaust í ljós að verslunin í landinu stelur engu minna óbeint sjálf en neytendur. Ég vil kalla þetta óbeinan þjófnað verslana og ekkert annað. En það gera ekki allar verslanir þetta og það sama gildir um neytendur. Neytandi. Til blaðbera KVÖRTUN mín beinist til blaðbera en undanfarið hef ég og mínir nán- ustu dottið ítrekað um hvíta plast- hringi sem halda blaðabunkum sam- an. Þetta er stórhættulegt! Persónulega er ég hræddur við að hleypa börnum mínum út einum í ótta við að þau hrasi um hringina og geti enga björg sér veitt. Þetta er grafalvarlegt mál, sem ber að taka á hið fyrsta! Svo ég segi: Blaðberar! Hirðið upp eftir ykkur! Með von um bætta umgengni, Böðvar Ásbjörnsson. Blíðfinnur er týndur 3JA ÁRA gæfur og skemmtilegur högni týndist 30. október frá Framnesvegi 31. Hann er nýflutt- ur í hverfið og gæti hugsanlega ekki ratað heim. Hann er svartur og hvítur með svarta doppu á nebbanum. Hann er eyrnamerktur og með hálsól sem gæti hafið dottið af. Kettir geta auðveldlega lokast inni, vinsamleg- ast kíkið í skúra við húsin ykkar. Hans er sárt saknað. Fundarlaun. Þeir sem geta gefið upplýsingar, vin- samlegast hringi í 552 3982 eða 698 9011. árnað heilla ritstjorn@mbl.is 60 ára af-mæli. Í dag, 7. nóvem- ber, er sextugur Gunnar Stef- ánsson, út- varpsmaður, Kvisthaga 16, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Kvikmyndin um Kasakann Borat,Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan, var vel sótt í Bandaríkjunum um helgina en nú vill Mahir nokkur Cagri fá sinn skerf af ágóðanum. Cagri þessi segir Sacha Baron Cohen, manninn á bakvið Borat, herma eftir sér. Allir viti að Cohen sé að herma eftir hon- um. Cagri er Tyrki, býr í Bandaríkj- unum og er hreint ótrúlega líkur Bo- rat bæði í útliti og tali. Cagri sagði Wired News fréttavefnum að Cohen hefði aldrei fengið leyfi til þess að herma eftir honum. Cagri þessi er Íslendingum ekki alls ókunnugur því fyrir nokkrum árum gekk slóð á vefsíðu hans manna á milli og þótti þar margt skemmtilegt að finna. Vefsíðuna opnaði Cagri árið 1999. Cagri fagnar þeim sem heim- sækja síðuna með orðunum WEL- COME TO MY HOME PAGE !!!!!!!!! I KISS YOU !!!!!, eða VEL- Romeo Beckham, fjögurra árasonur David og Victoriu Beck- ham hefur verið greindur með floga- veiki. Vinur hjónanna segir hann hafa verið fluttan fjórum sinnum á spítala vegna þess á síðustu þremur árum og að foreldrar hans hafi mikl- ar áhyggjur af heilsu hans. Hann sé á lyfjum en sé þrátt fyrir það afar viðkvæmur fyrir áreiti. Þetta kemur fram á fréttavef Ananova. Romeo brást harkalega við flassi ljósmyndara er fjölskyldan kom ný- lega frá Madrid til Lundúna og mun Victoria þá hafa hrópað. „Látið hann í friði. Hann er með flogaveiki. Flassið getur komið af staði flogi. Þið megið ekki gera þetta.“ Fólk folk@mbl.is Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Tanja Líf, Auður Huld og Sigurveig Steinunn héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.306 til styrktar Rauða krossi Íslands WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919 Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið eeee H.S. – Morgunblaðið eeee DV eeeee Jón Viðar – Ísafold BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára. THE LAST KISS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára WORLD TRADE CENTER kl. 10:30 B.i. 12.ára THE QUEEN kl. 8 B.i. 12.ára. THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16.ára. BÖRN kl. 8 B.i.12.ára. AN INCONVENIENT TRUTH kl. 6 FRÁ HANDRITSHÖFUNDI „MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“ HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN. the last kiss Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff („Scrubs“, „Garden State“), Rachel Bilson („The O.C.“ þættirnir) ofl. eeee EMPIRE MAGAZINE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.