Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI FULLTRÚAR stjórnarandstöðunn- ar gagnrýndu ríkisstjórnina á Alþingi í gær fyrir að taka of lítið skref í þá átt að leiðrétta skerðingu á vaxtabótum vegna hækkandi fasteignamats þegar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um tekjuskatt vegna hækkun- ar á lágmarki eignaviðmiðunar að frá- dregnum skuldum til skerðingar á vaxtabótum. Árni sagði frumvarpið í samræmi við yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi ASÍ og SA um áframhaldandi gildi kjara- samninga. Árni sagði að þegar ákvarðanir um vaxtabætur vegna vaxtagjalda síðasta árs lágu fyrir í ágúst sl. hefði komið í ljós talsverð skerðing á heildarfjárhæð vaxtabóta frá því sem reiknað hafði verið með skv. forsendum fjárlaga fyrir yfir- standandi ár. Með frumvarpinu væri eingöngu verið að bregðast við fasteignamats- þættinum en matið hefði hækkað frá 5–35% eftir því hvar á landinu væri um að ræða. Í frumvarpinu er valin sú leið að leggja til hækkun eignavið- miða á grundvelli meðaltalshækkana, enda ekki annað talið framkvæman- legt. Því er lagt til að lágmark eigna- viðmiðunar að frádregnum skuldum til skerðingar á vaxtabótum verði hækkað afturvirkt um 25% sem talin er kosta ríkissjóð um 200 milljónir króna umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlögum þessa árs, sem þýðir endurgreiðslur upp á 5,3 milljarða í stað 5,1 milljarðs. Hjón með 8 milljóna kr. árstekjur og 20 milljóna kr. skuld vegna íbúða- kaupa og 11 milljóna kr. eignastofn og 1 milljón í vaxtagreiðslur fengju því 94 þúsund í vaxtabætur í stað einskis við síðustu álagningu í ágúst sl. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingar, gagnrýndi að út- reikningar ríkisstjórnar hefðu ekki verið í samráði við ASÍ. Rétt tala ætti að vera 700 milljónir króna í stað 500 sem samtala fyrirhugaðrar leiðrétt- ingar og 300 milljóna kr. áætlun fjár- laga. Lýsti Steingrímur J. Sigfússon einnig vanþóknun sinni á hve stutt skref væri um að ræða. Fjármálaráðherra boðar 200 milljóna kr. hækkun vaxtabóta vegna fasteignamats Of lítil leiðrétting að mati stjórnarandstöðunnar Morgunblaðið/RAX Vaxtabætur Þingmenn í þungum þönkum á Alþingi. Stjórnarandstaðan gagnrýndi í gær fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar varðandi vaxtabætur. GEIR H. Haarde forsætisráð- herra sagðist á Alþingi í gær meta Seðlabank- ann mikils þótt ekki væru menn alltaf sammála því sem bankinn léti frá sér fara er hann svaraði fyrirspurn Stein- gríms J. Sigfússonar um hvort ráðherrann hefði sömu áhyggjur af lánshæfismati þjóðarbúsins og Seðlabankinn. Spurði Steingrímur einnig hvort til greina kæmi að endurskoða áform ríkisstjórnar í skattamálum og stöðva undirbún- ing frekari stóriðjuframkvæmda. Í svari sínu sagði forsætisráð- herra að markmið Seðlabankans fælust í að sjá til þess að verð- bólguspár bankans rættust. „Þenslan er á mikilli niðurleið,“ sagði hann. Sagðist hann halda að allar efnahagsspár, líka spár Seðlabankans, sýndu fram á það að spennan í efnahagslífinu væri mjög á undanhaldi. „Við höfum tímasett skattalækkanir með þeim hætti að þær koma til fram- kvæmda þegar dregið hefur úr spennunni.“ Segir þensluna fara minnkandi Geir H. Haarde MAGNÚS Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, lýsti eftir stefnu ríkisstjórnarinnar varð- andi frjálst flæði vinnuafls frá Búlg- aríu og Rúmeníu sem ganga í ESB um næstu áramót. Sagði hann þetta fjölmenn ríki með 30 milljónir íbúa. Beindi hann þeirri fyrirspurn til Magnúsar Stefánssonar félagsmála- ráðherra hvort vænta mætti frum- varps til breytinga á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Spurðist hann einnig fyrir um hvað liði fram- kvæmdaáætlun varðandi málefni innflytjenda sem kynna hefði átt fyr- ir 1. október sl. Einnig hefði starfs- hópur átt að fara yfir þessi málefni þar sem fulltrúar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins ættu að eiga sæti. „Þessi starfshópur átti að skila af sér 1. nóvember sl. en ég hef ekki séð að af því hafi orðið,“ sagði Magnús Þór Í svari félags- málaráðherra kom fram að ekki væri búið að ákveða hvernig yrði tekið á mál- um varðandi Búlgaríu og Rúmeníu. Um stefnumótun í málefnum inn- flytjenda minnti ráðherra á, að inn- flytjendaráð hefði verið skipað fyrr á árinu og unnið hefði verið að stefnu- mótun. „Ég vænti þess að við sjáum afrakstur þeirrar vinnu fljótlega,“ sagði hann. Varðandi nefnd að störf- um í félagsmálaráðuneytinu sem fjallar um lagaumhverfi útlendinga, sagði Magnús að mikil vinna hefði verið innt af hendi. „Ég vænti þess einnig að niðurstaða þeirrar vinnu liggi fyrir fljótlega. Ég mun m.a. eiga fund síðar í dag með fulltrúum ASÍ í því máli.“ Magnús Þór taldi svar ráðherrans lélegt og taldi ljóst að ríkisstjórnin hefði enn ekki ákveðið hvað gera ætti þegar Rúmenía og Búlgaría yrðu aðilar að ESB. „Það eru ekki margir dagar eftir af störfum þings- ins og við hér á Alþingi þurfum að fá þetta mál til meðferðar. Á þá virki- lega að fara sömu leið og í vor þegar lögin um frjálst flæði voru keyrð í gegnum þingið á örfáum dögum, af- greidd út úr félagsmálanefnd, nán- ast með valdi og allir þingmenn greiddu því atkvæði nema þrír þing- menn Frjálslynda flokksins?“ sagði Magnús Þór Hafsteinsson. Lýsir eftir stefnu í útlendingamálunum Tveir starfshópar að störfum segir félagsmálaráðherra Magnús Þór Hafsteinsson ÁSTA R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingar, beindi þeirri fyr- irspurn til Geirs H. Haarde for- sætisráðherra í gær, hvort hann teldi það vera hlutverk rík- isstjórnar að meina fulltrúum op- inberra stofnana að veita þing- mönnum og Alþingi upplýsingar um stöðu stofnananna sem þeir væru í forsvari fyrir. Forsaga fyrirspurnarinnar var sú að Ásta sagðist hafa verið að kynna sér hvaða afleiðingar hálfs milljarðs króna skuldahali og fyr- irsjáanlegur 1 milljarðs kr. halli hefði á rekstur Landspítalans á næstunni. Sagðist Ásta hafa fengið þær upplýsingar að segja ætti upp a.m.k. 300 manns á næstunni og skerða almenna spítalaþjónustu. „Skert þjónusta og uppsagnir vofa yfir 300 manns,“ sagði Ásta. „En hvers vegna er Alþingi og þingmenn ekki upplýst um þetta al- varlega ástand? Jú, ástæðan er sú að ríkisstjórnin hefur sent út fyr- irmæli með ríkisstjórnarsamþykkt frá 6. október til ráðuneyta um að stofnanir leiti ekki beint til Alþing- is með mál sem þetta.“ Taldi Ásta þetta vera til marks um „ótrúlega framkomu við Alþingi“. Margra ára vinnuregla Geir sagðist telja að ef hann skildi þingmanninn rétt væri verið að kvarta yfir vinnureglu sem tíðk- ast hefði í mörg ár varðandi vinnu fjárlaganefndar að einstökum þátt- um í fjárlagafrumvarpinu. „Þar hefur reglan verið sú að ráðu- neytin svara fyrir sínar stofnanir gagnvart nefndinni en ekki stofn- anirnar sjálfar,“ sagði Geir. „Fag- ráðuneytin bera ábyrgð á fjár- málum sinna stofnana gagnvart þinginu og síðan bera þau sína ábyrgð gagnvart þessum stofn- unum.“ Minnti Geir þá á að eitt sitt síð- asta verk sem fjármálaráðherra hefði verið að beita sér fyrir mjög stórfelldri aukafjárveitingu til LSH „og þá þótti mönnum góðar horfur á því að spítalinn kæmist í jafn- vægi,“ sagði hann. Segir uppsagnir vofa yfir 300 manns á LSH Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „STÓRSLYS,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður og þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, á heimasíðu sinni um frjálst flæði vinnuafls hingað til lands frá átta nýjum aðildarlöndum Evrópusambandsins (ESB), sem samþykkt var með lögum frá Al- þingi 1. maí sl. með breytingu á lög- um um frjálsan atvinnu- og búsetu- rétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Með lagabreytingunni voru felldar niður aðgangstakmarkanir að íslenskum vinnumarkaði fyrir einstaklinga sem koma frá löndunum átta, þ.e. frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Pól- landi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi og Ungverjalandi. Breytingin leiddi til þess að fólk frá þessum löndum þarf ekki lengur atvinnuleyfi til þess að starfa á íslenskum vinnumarkaði og launamanni sem er ríkisborgari einhvers ríkjanna átta er heimilt að koma hingað til lands í atvinnuleit og nýtur sama forgangs til starfa hér á landi og Íslendingar, sem og fólk frá öðrum aðildarlöndum EES. Enn fremur á hann sama rétt til að- stoðar vinnumiðlunar og innlendir ríkisborgarar sem eru í atvinnuleit. Hins vegar ber fyrirtækjum sem ráða til sín einstaklinga frá þessum löndum að tilkynna ráðninguna til Vinnumálastofnunar. Gagnrýndi Frjálslyndi flokkurinn hversu seint frumvarp um frjálst flæði þessara átta ESB-landa kom fram á Alþingi og greiddu allir þing- menn flokksins atkvæði gegn frum- varpinu sl. vor. Helsta áhyggjuefni þeirra sem gagnrýnt hafa lagabreytinguna er m.a. það að íslenskt samfélag sé ekki nægilega vel undirbúið til að taka við svo miklum fjölda útlend- inga. Hvað með íslenskukennslu handa þessu fólki? Hvað með heil- brigðiskerfið? Hvaða kostnað áætl- uðu stjórnvöld að lagabreytingin myndi hafa í för með sér? Reyndar ekki krónu. „Verði frumvarpið óbreytt að lög- um verður ekki séð að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkis- sjóð,“ segir í greinargerð með frum- varpinu sl. vor. Nú hefur hins vegar komið á daginn, líkt og væntanlega var fyrirséð, að álag á Vinnumála- stofnun hefur stóraukist og mikil þörf er á innspýtingu í íslensku- kennslu þessa nýja starfsfólks og fjölskyldna þess. Jafn réttur allra frá ESB Með lagabreytingunni í vor eru nú lögð að jöfnu réttindi fólks frá öllum aðildarríkjum ESB, en settur hafði verið fyrirvari á nýju löndin átta, sem gengu í sambandið 1. maí árið 2004. Samhliða stækkun ESB tók gildi stækkun EES sbr. aðild- arsamning EES. Í samningaviðræð- um um aðild ríkjanna átta að ESB var gert ráð fyrir að sömu reglur kæmu til með að gilda á öllu svæð- inu. Í mörgum tilfellum þótti engu síður nauðsynlegt að semja um sér- staka aðlögun á löggjöf ESB gagn- vart nýju aðildarríkjunum á tiltekn- um sviðum. Meðal þess sem gerður var fyrirvari um var gildistaka ákvæða reglugerðar um frelsi laun- þega til flutninga innan EES. Samn- ingarnir um inngöngu ríkjanna átta í ESB gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði tækju gildi að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þess- ara landa sem launamanna innan svæðisins fyrr en í fyrsta lagi 1. maí 2006. Enn fremur var aðildarríkjum Flæðið meira en reiknað var með Lagabreyting sem átti ekkert að kosta kallar á fjármagn til íslenskukennslu þúsunda útlendinga Í HNOTSKURN »Á tímabilinu 1. maí–1. nóv-ember sl. bárust Vinnu- málastofnun 3.327 skráningar starfsmanna frá nýju aðild- arríkjunum átta í ESB, þar af 2.447 nýskráningar. »Á síðasta ári komu 2.765launamenn frá nýju aðild- arríkjunum. »Árið 2004 voru þeir 626.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.