Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 45 dægradvöl 1. Rf3 Rf6 2. g3 d5 3. Bg2 Bf5 4. O-O e6 5. d4 h6 6. c4 c6 7. b3 Be7 8. Bb2 O-O 9. Rbd2 a5 10. a3 Db6 11. Re5 Hd8 12. c5 Da6 13. He1 Rbd7 14. Rxd7 Rxd7 15. Bf1 Da7 16. b4 Bf6 17. f4 b6 18. Dc1 Hdb8 19. Bc3 bxc5 20. bxc5 Staðan kom upp í fyrri hluta Flug- félagsdeildar Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram fyrir skömmu í Mennta- skólanum í Hamrahlíð. Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2387) hafði svart gegn Jóhanni Erni Sigur- jónssyni (2208). 20... Rxc5! 21. e3 svartur hefði einnig staðið til vinnings eftir 21. dxc5 Dxc5+. 21... Ra4 22. Rf3 Hb3 23. Bd2 c5 24. Re5 cxd4 og hvítur gafst upp enda staðan að hruni komin. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Margt í boði. Norður ♠KG109 ♥ÁD742 ♦83 ♣65 Vestur Austur ♠Á2 ♠53 ♥1053 ♥KG98 ♦ÁD102 ♦G954 ♣G872 ♣D109 Suður ♠D8764 ♥6 ♦K76 ♣ÁK43 Suður spilar 4♠ og vestur hefur vörnina með spaðaás og meiri spaða. Tvær trompanir í borði skila sagn- hafa aðeins níu slögum, sem þýðir að hann verður að næla sér í tíunda slaginn á rautt spil. Einn möguleiki er að spila strax tígli á kóng, en svína í hjarta ef tígullinn bregst. Betri áætlun er þó að reyna að trompa út hjartakónginn í samspili við innkast á vestur. Þá er hjartaás tekinn og hjarta trompað. Síðan er laufi spilað þrisvar með trompun og hjarta stungið. Ekki kemur kóngurinn, en þegar vestur fylgir lit í fjórða laufið er málið leyst – sagnhafi hendir tígli úr borði og vestur verður að gefa slag. Hefði austur átt fjórða laufið, myndi sagnhafi trompa í borði, spila hjarta og henda tígli heima. Þá er vestur endaspilaður ef hann á hjarta- kónginn. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 hörfar, 4 bolur, 7 hlaupi, 8 stormurinn, 9 útlim, 11 boli, 13 ástund- unarsama,14 erfiður við- fangs, 15 brjóst, 17 ljós- ker, 20 mann, 22 stífla, 23 snákur, 24 trjágróður, 25 haldast. Lóðrétt | 1 skækjan, 2 ræðustóls, 3 sleit, 4 brott, 5 fúskið, 6 aflaga, 10 ógöngur, 12 auð, 13 vond, 15 kæna, 16 nið- urgangurinn, 18 mergð, 19 grassvarðarlengja, 20 karlfugl, 21 taugaáfall. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 vindhöggs, 8 unnar, 9 umber, 10 kál, 11 dorga, 13 leiða, 15 skerf, 18 gráða, 21 jór, 22 logna, 23 óviti, 24 villingur. Lóðrétt: 2 iðnar, 3 dýrka, 4 ötull, 5 gubbi, 6 sund, 7 hráa, 12 gær, 14 eir, 15 sult, 16 eigri, 17 fjall, 18 gróin, 19 álitu, 20 akir. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1Hrafn Jökulsson efndi til skák-maraþons um helgina. Hvað heit- ir skákfélagið sem Hrafn teflir fyrir? 2Hart var barist í prófkjöri Samfylk-ingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Sigurvegarinn bar sigurorð af tveimur þingkonum. Hvað heitir hann? 3Verið er að gera heimildamynd umRolling Stones. Einn virtasti kvik- myndaleikstjóri heims vinnur að myndinni. Hver er hann? 4Einn frægasti millivegalenda-hlaupari allra tíma er nú formað- ur framkvæmdanefndar Ólympíu- leikanna í London 2012. Hvað heitir hann? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Ein af bókum William Styron, sem lést í síðustu viku, var Sophiés Choice, sem var kvikmynduð. Hver fór með aðalhlutverkið? Svar: Meryl Streep. 2. Samningur hefur ver- ið gerður um að kanna möguleika á menn- ingar- og náttúrusetri á Álftanesi. Hver er bæjarstjóri þar? Svar: Sigurður Magnús- son. 3. Sr. Sigurður Árni Þórðarson er helsti forsprakki kyrrðardaga í í Neskirkju. Hann er einnig djassleikari. Á hvaða hljóðfæri leikur hann? Svar: Saxófón. 4. Magga Stína hefur gefið út geisladisk þar sem hún túlkar lög eins ástsælasta söngvahöfundar okkar. Hver er hann? Svar: Megas. Spurt er… ritstjorn@mbl.is    Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is TÓNLEIKAR helgaðir minningu Þorsteins Gylfasonar prófessors og listunnanda verða haldnir í Söng- skólanum í Reykjavík í kvöld þar sem nemendur syngja ljóðaþýðingar og lög Þorsteins. „Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember og þá erum við vön að halda tónleika þar sem nemendur syngja eitthvað íslenskt en vetrarfrí skólans ber nú upp á þann dag svo við ákváðum að flýta tónleikunum og hafa þá í þessari viku. Tónleikarnir í ár eru tileinkaðir minningu Þor- steins Gylfasonar og nemendur munu eingöngu flytja íslensk ljóð hans við sönglög hinna ýmsu tón- skálda,“ segir Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir kennari við Söngskólann í Reykjavík en hún skipulagði tón- leikana ásamt Bergþóri Páls- syni. „Það verða líka flutt þrjú lög sem Þorsteinn samdi við ljóð Tómasar Guð- mundssonar. Þótt hann væri aðallega í ljóða- þýðingum tók hann sig alltaf til og samdi sjálfur falleg sönglög.“ Leiðir Þorsteins og Söngskólans lágu fyrst saman árið 1979 þegar prófessor dr. Erik Werba hélt sín fyrstu ljóðasöngnámskeið fyrir skól- ann. Þorsteinn var mikill músíkant og styrktarfélagi og kær vinur Söng- skólanema og kennara. Þá sat hann í stjórn Íslensku óperunnar frá upp- hafi, vann af alhug og miklum krafti að uppbyggingu sönglífs og fylgdist af áhuga með ungum söngvurum stíga sín fyrstu spor á listabrautinni. Ólöf segir að það hafi verið ómet- anlegt að eiga Þorstein að og geta leitað til hans með texta og annað sem viðkom tónlist. Syngja 28 ljóð Þorsteins „Á tónleikunum munu 28 nem- endur Ljóða- og aríudeildar skólans flytja sönglög ýmissa tónskálda, við ljóðaþýðingar Þorsteins auk hans eigin laga. Þorsteinn var afskaplega laginn við að gera texta til að syngja við. Hann þýddi mikið fyrir okkur í Íslensku óperunni í gegnum árin og það er sérlega gott að syngja text- ana hans, hann hafði góða tilfinningu fyrir því hvað hentaði söngvaranum. Hver nemandi syngur eitt lag á tón- leikunum en við erum fyrst og fremst að reyna að hafa sem mest af ljóðum Þorsteins og gefa flestum tækifæri til að syngja,“ segir Ólöf. „Ég og Bergþór völdum lögin sem verða flutt í kvöld. Við byrjuðum á að tína saman allt sem við fundum eftir Þorstein og svo völdum við úr þeim bunka eftir því hvað hver og einn söngvari réð við.“ Píanóleikari í kvöld er Kristinn Örn Kristinsson og segir Ólöf hans hlut mjög stóran á þessum tón- leikum. „Hann er búinn að vinna þetta allt og æfa með nemendunum, það er mikil vinna sem liggur að baki svona undirbúningi.“ Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld í tónleikasal skólans, Snorrabúð, að- gangur er ókeypis og allir eru vel- komnir. „Þorsteinn Gylfason lést fyrir rúmu ári síðan, langt um aldur fram. Hann er okkur hugleikinn maður og minnistæður fyrir svo margt og að halda þessa tónleika er ein leiðin til að heiðra minningu hans,“ segir Ólöf að lokum. Tónleikar | Söngskólinn í Reykjavík heiðrar minningu Þorsteins Gylfasonar Samdi söngvæna texta Ólöf Kolbrún Harðardóttir Morgunblaðið/Jim Smart Músíkant Þorsteinn Gylfason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.