Morgunblaðið - 07.11.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 19
MENNING
Knarrarvogi 4, Reykjavík
Skilagjaldið er
10 krónur
fyrir vín-, öl- og gosdrykkjaumbúðir
Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi 11. nóvember
VIÐ STYÐJUM PÉTUR ÁRNA Í 5. SÆTI
www.peturarni.is
Árni Sigurjónsson
Lögmaður og fyrrv.
form. Týs, f.u.s.
Kópavogi
Ingimundur Sigfússon
Fyrrv. forstjóri
og sendiherra
Sigurður Kári
Kristjánsson
Alþingismaður
Magnús Gunnarsson
Fyrrv. bæjarstjóri,
Hafnarfirði
Jónmundur
Guðmarsson
Bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi
Björn Bjarnason
Dóms- og
kirkjumálaráðherra
Sigrún Eddda
Jónsdóttir
Bæjarfulltrúi,
Seltjarnarnes
Ásdís Halla
Bragadóttir
Forstjóri og fyrrverandi
bæjarstjóri í Garðabæ
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
Borgarfulltrúi
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Forseti
borgarstjórnar
Tómas Már Sigurðsson
Forstjóri
Þorsteinn Davíðsson
Lögfræðingur
Guðmundur
G. Gunnarsson
Oddviti sjálfstæðis-
manna, Álftanesi
Hafsteinn Þór
Hauksson
Fyrrv. formaður SUS og
Hugins, f.u.s. Garðabæ
Ríkharður Daðason
Hagfræðingur og
knattspyrnumaður
Sigurgeir Sigurðsson
Fyrrv. bæjarstjóri,
Seltjarnarnesi
Hilmar Sigurðsson
Fyrrv. bæjarfulltrúi,
Mosfellsbæ
Margrét Valdimarsdóttir
Viðskiptafr. og form.
Stefnis, f.u.s. Hafnarfirði
Stefán Konráðsson
Bæjarfulltrúi, Garðabæ
Kristinn Andersen
Verkfræðingur,
Hafnarfirði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Páli
Valssyni útgáfustjóra skáldverka hjá
Eddu útgáfu hf.
„Svo virðist sem Birna Bjarnadótt-
ir hafi fengið það verkefni hjá rit-
stjórnarfulltrúa Lesbókar Morg-
unblaðsins að skrifa um
skáldsagnaþátt hinnar nýju Íslensku
bókmenntasögu IV og V sem nýlega
komu út. Afraksturinn gat að líta í
síðustu Lesbók og er með þeim en-
demum að óhjákvæmilegt er að gera
athugasemdir við. Ég mun ekki elta
ólar við það að greinin virðist ekki
fullunnin, athugasemdir til yfirlesara
eru inni í miðri grein, né heldur stíl og
myndmál hennar þótt full ástæða sé
til.
Mest virðist fara í taugarnar á
Birnu fyrirferð Halldórs Laxness í
bókunum og er hún full hneykslunar
yfir því að 20. öldin skuli kölluð hans
öld í íslenskum bókmenntum. Hvað
svo sem mönnum finnst um verk
Halldórs Laxness, þá er ég hræddur
um að fáir geti andmælt því að verk
hans séu „rauður þráður í bók-
menntasögu 20. aldar“, sem Birnu
finnst greinilega fráleitt. Ekki er
heldur alveg ljóst hvað ætti að koma í
staðinn. Að minnsta kosti er ekki
hægt að taka mark á þessari upp-
hrópun hennar: „Hvar er Ófeigur
Sigurðsson? Haraldur Jónsson? …“
Hvorugur þessara ágætu höfunda
skrifaði skáldsögu á 20. öld. Manni
virðist sem undir niðri blundi sú skoð-
un að fyrirferð Halldórs Laxness sé á
kostnað Guðbergs Bergssonar, sem
Birna hefur mjög borið fyrir brjósti,
en ekki er alltaf gott að átta sig á
hvað hún meinar. Hún segir til dæm-
is: „Þrátt fyrir einhvers konar við-
urkenningu á mikilvægi skáldskapar
Guðbergs er honum enn eina ferðina
kippt inn fyrir íslensku girðing-
arstaurana …“ Vafalaust á þetta að
vera mjög neikvætt og niðurlægjandi
fyrir Guðberg, en væri ekki verra ef
hann hefði lent utan girðingar í Ís-
lenskri bókmenntasögu?
Í þessari stuttu umsögn er líka
furðulega mikið um mótsagnir og
hreinar vitleysur. Svo dæmi sé tekið
þá hrósar Birnu Dagnýju Kristjáns-
dóttur og Jóni Yngva Jóhannssyni
sem hún segir réttilega „bera að
stórum hluta þungann í umfjöllun um
sagnaritun 20. aldar“, en samt skrifar
hún eins og hún sé einmitt mjög ósátt
við þennan hluta.
Verst er þó að Birna lætur að því
liggja að Matthías Viðar Sæmunds-
son heitinn hafi ekki getað lokið sín-
um hluta í verkinu. Þetta er einfald-
lega ekki rétt. Eitt af því sem gladdi
Matthías Viðar í lokin var að hafa
haft þrek til þess að ljúka sínum þætti
með fullum sóma. Að halda öðru fram
er því ekki einasta alrangt heldur
jafnframt vanvirðing við minningu
Matthíasar.
Birna verður líka að eiga við sjálfa
sig ósmekklegar dylgjur og brigsl um
vanþekkingu í garð ritstjórans, Guð-
mundar Andra Thorssonar.
Það verður því miður að segjast
eins og er að þessi hálfkaraða og illa
grundaða umsögn er hvorki Birnu né
Morgunblaðinu til sóma. Hún er
skrifuð af furðulegri ólund í garð
verksins alls og aðstandenda þess,
sem hún uppnefnir í niðrandi tóni.
Þetta eru kaldar kveðjur og ómakleg-
ar í garð þess mikla fjölda íslenskra
fræðimanna og allra þeirra sem hafa
lagt mikið á sig árum saman til þess
að stórvirkið Íslensk bókmenntasaga
I-V yrði að veruleika.“
Að gefnu
tilefni
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Reuters
Í lausu lofti Cinthia Beranek, sviðslistamaður frá Brasilíu hangir hér yfir
leiksviði í New Jersey í Bandaríkjunum, en atriðið er í rómaðri sýningu
Circue Du Soleil, „Delirium“ sem frumsýnd var fyrir nokkrum dögum.