Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 21

Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 21 LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Miðfjörður | Grettistak vinnur að uppbyggingu skemmti- og fræðslu- garðsins Grettisbóls á Laug- arbakka í Miðfirði. Þar verður áhersla lögð á styrk og kraft með skírskotun til sögu Grettis sterka Ásmundarsonar sem ólst upp á Bjargi. Búið er að reisa risastórt sverð við garðinn, sverð Grettis. Það sést vel frá þjóðveginum og þjónar því hlutverki að vekja at- hygli vegfarenda á starfseminni. Í garðinum verður sérstök áhersla lögð á aflraunir, í anda söguhetjunnar, að sögn Jóns Ósk- ars Péturssonar, framkvæmda- stjóra Grettistaks. Gestum gefst kostur á að spreyta sig á ýmsum þrautum. Þar verður einnig upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun. Jafnframt stendur til að gera sögu Grettis skil með tækni nútímans og þar eiga gestir að geta upplifað einstaka þætti sögunnar, til dæmis glímuna við drauginn Glám. Loks má nefna útimarkað sem fyrirhugað er að hafa á svæðinu sem og útileikhús. „Það verður reynt að hafa lifandi starfsemi á svæðinu,“ segir Jón. Saga Grettis teygir sig um stóran hluta landsins, meðal annars ná- grannahéruð Miðfjarðar, Vatnsdal og Skagafjörð. Hugmyndir eru uppi um að gera söguslóð sem teyg- ir sig yfir þetta svæði. Opnað næsta sumar Stefnt er að því að opna garðinn næsta sumar enda eru fram- kvæmdir komnar vel áleiðis. Grett- istak tók á leigu tveggja hektara land á Laugarbakka. Búið er að skipta um jarðveg, leggja lagnir, gera göngustíga og gróðursetja á svæðinu. Þá hefur stofnunin keypt mikið hús þarna, gamalt vélaverk- stæði, og er unnið að breytingum á því. Reynt er að hafa umgjörð garðsins og mannvirki í honum sem náttúrulegust og því eru grjót- hleðslur mikið notaðar sem og rekaviður. Segir Jón Óskar að búið sé að fjárfesta fyrir vel á annan tug milljóna króna. Sverðið sem stendur tíu metra upp úr jörðinni er mest áberandi. Þetta er útilistavek sem Jón Óskar segir að sé ætlað til að vekja athygli á starfseminni og draga ferðafólk að enda blasir það við af hringveg- inum. Við smíði sverðsins var tekið mið af sverðum frá tíma Grettis sem fundist hafa á Norðurlönd- unum. Á þetta að vera sverðið Jök- ulsnautur, ættarsverð Vatnsdæla, sem Gretti var gefið. Grettistak er sjálfseignarstofnun sem Húnaþing vestra og fleiri heimaaðilar standa að. Fengist hafa framlög úr ríkissjóði til uppbygg- ingarinnar. Áætlað er að sá áfangi sem tekinn verður í notkun í vor kosti um 50 milljónir kr. en verk- efnið í heild um 130 milljónir, að hans sögn. Jón Óskar tók við starfi fram- kvæmdastjóra Grettistaks um ára- mótin, fyrst í hlutastarfi á meðan hann var að ljúka viðskipta- fræðinámi á Bifröst en í fullu starfi frá því í vor. „Ég fór að svipast um eftir vinnu þegar líða fór á námið og bauðst þetta starf,“ segir hann. „Þetta er frumkvöðlastarf, töluvert fjölbreytt og reynir á ýmsa þætti, sem ég hef jafnvel ekki komið ná- lægt áður.“ Jökulsnautur vekur athygli á Grettisbóli Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Jökulsnautur Jón Óskar Pétursson stendur framan við sverð Grettis sterka sem stendur tíu metra upp úr jörðinni á Laugarbakka í Miðfirði. Í HNOTSKURN »Grettisból verðurskemmti- og fræðslugarð- ur á Laugarbakka í Miðfirði, í nágrenni Bjargs. » Í garðinum verður lögðáhersla á kraft og styrk og boðið upp á aflraunir, auk kynningar á Grettissögu. »Þar verður upplýsinga-miðstöð, minjagripaversl- un, markaður, útileikhús og önnur ferðaþjónusta. Eftir Hafþór Hreiðarsson Húsavík | Eikarbátur sem hvala- skoðunarfyrirtækið Norður-Sigling á Húsavík keypti frá Ólafsvík er kominn til heimahafnar. Báturinn er 104 brúttólestir að stærð og mun hljóta nafnið Garðar Svavarsson. Báturinn verður sá stærsti í flota Norður-Siglingar en í honum eru nú fimm bátar. Allt eru þetta eikarbát- ar. Þeir fjórir sem fyrirtækið átti fyr- ir, Knörrinn, Náttfari, Bjössi Sör og skonnortan Haukur, eru allir smíð- aðir á Íslandi en sá nýi í Danmörku. Einstök útgerðarsaga Báturinn sem heitir Sveinbjörn Jakobsson var smíðaður árið 1964 fyrir útgerðarfyrirtækið Dverg í Ólafsvík og hefur alla tíð verið í eigu þess. „Þessi bátur á sér einstaka útgerð- arsögu,“ segir Heimir Harðarson, markaðsstjóri Norður-Siglingar. „Hann kom til Ólafsvíkur í mars 1964 og hefur því verið gerður þaðan út í tæplega fjörutíu og þrjú ár, alla tíð í eigu sama fyrirtækisins, sömu eig- enda og einungis þrír skipstjórar hafa verið með bátinn sem ávallt hef- ur verið mikið happa- og aflaskip,“ segir Heimir. Sveinbjörn Jakobsson mun fá nafnið Garðar Svavarsson og með því eru Norður-Siglingarmenn að minnast sænska víkingsins sem hafði vetursetu á Húsavík skömmu fyrir landnám. Heimir segir bátinn í mjög góðu standi, mun betra en þeir bátar sem fyrirtækið á fyrir voru í þegar þeir voru keyptir, kannski að Bjössa Sör undanskildum en hann er þeirra yngstur. Óvissa vegna hvalveiða Spurður um breytingar á bátnum fyrir nýtt hlutverk segir Heimir bát- inn hafa verið keyptan áður en at- vinnuveiðar Íslendinga á hval komu til og því sé nokkuð óvíst í dag hve- nær af breytingunum verður. Fimmti eikarbáturinn Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Garðar Svavarsson Fiskibátsins bíður nýtt hlutverk á Húsavík. Selfoss | Nýjar hugmyndir um Suð- urlandsveg og uppbyggingu umferð- armannvirkja verða kynntar á fundi í Tryggvaskála á Selfossi í dag, þriðjudag, klukkan 12 til 13.40. Fundurinn er öllum opinn. Stefanía Katrín Karlsdóttir, bæj- arstjóri Árborgar, setur fundinn. Framsögumenn verða Þór Sigfússon forstjóri Sjóvár, Einar Guðmunds- son forstöðumaður Sjóvár–For- varnahúss og Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Í lok fundarins verða pallborðsumræður þar sem m.a. verður rætt um nýjungar í framkvæmd og fjármögnun vega- framkvæmda. Í umræðunum taka þátt Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra, Þór Sigfússon forstjóri Sjó- vár, Stefanía Katrín Karlsdóttir bæjarstjóri Árborgar og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS. Árni Magnússon deildarstjóri hjá Glitni stýrir umræðum. Að fundinum standa Sjóvá, Sam- tök sunnlenskra sveitarfélaga, Ár- borg, Hveragerðisbær, Ölfus og Grímsnes- og Grafningshreppur. Kemur þetta fram á vef SASS. Kynning á tvöföldun Blönduós | Uppskeruhátíð ferða- þjónustunnar á Norðurlandi verður að þessu sinni haldin í Austur-Húna- vatnssýslu. Hátíðin verður haldin fimmtudaginn 9. nóvember. Gestir skoða Heimilisiðnaðarsafn- ið á Blönduósi og fara síðan í sýn- isferð um héraðið í fylgd fróðra heimamanna. Loks verður matar- veisla í Kántrýbæ á Skagaströnd. Austur-Húnavatnssýsla hefur margt að bjóða gestum sínum, bæði í náttúru og menningu. Vonast er til að ferðaþjónustuaðilar af öllu Norð- urlandi mæti til leiks og ekki síst að heimamenn taki þátt, segir í frétta- tilkynningu. Vakin er athygli á því að gagnlegt og skemmtilegt sé fyrir fólk í greininni að bera saman bækur sínar og eyða deginum saman. Halda uppskeruhátíð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.