Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 25
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 25
olíu á gírkassa/ sjálfskiptingu,
bremsuvökva og frostlegi.
Þrjár stöðvar neituðu þátttöku
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
verðlagseftirliti ASÍ neituðu þrjár
smurstöðvar þátttöku í verðkönn-
uninni. Bifreiðaverkstæði Reykja-
víkur Bæjarflöt 13, Smur- og
dekkjaþjónusta Breiðholts, Jafn-
aseli 6, og Hjólbarða- og smurþjón-
ustan Klöpp, Vegmúla 2.
Morgunblaðið/Eyþór
Smurning Mestur verðmunur var á þjónustu við stóra jeppa.
krakkar frá tíu til tólf ára en þeir
sem eru eldri en tólf ára eru full-
gildir skátar og þeir eru yfirleitt
fimm saman í flokk og yfir þeim
er einn foringi sem á helst að vera
orðinn fimmtán ára. Í útilegunum
mynda kannski fjórir flokkar eina
sveit.“
Elísabet og Haraldur segja að
skátarnir haldi reglulega skáta-
fundi og hittist einu sinni í viku
yfir veturinn í Skátaheimilinu og
geri ýmislegt saman. „Það er mis-
jafnt hvað við gerum á skáta-
fundum, stundum erum við að
læra eitthvað, stundum erum við
að ræða einhver ákveðin málefni
eða eitthvað sem er í gangi hjá
okkur og stundum erum við bara
að spjalla saman og förum í alls-
konar leiki, eftir því hvað sá for-
ingi sem stjórnar hefur skipulagt
hverju sinni.“
Venjulegur skátabúningur sam-
anstendur af blárri skyrtu og
rauðum klút og skal klæðast bún-
ingnum við svartar buxur. Krakk-
arnir sauma allskonar merki í
skyrturnar sínar en fullkominn
búningur er líka með belti og hatt.
Eins er hægt að fá peysur með fé-
lagsmerki eða bandalagsmerki.
„Við erum alltaf í búningnum við
sérstök tækifæri og þó svo að við
eigum líka að klæðast honum á
vikulegu fundunum, þá er ekki
tekið strangt á því ef við komum í
öðrum fötum.“
Nýr uppboðs- og auglýs-ingavefur, safn-arabudin.is hefur ver-ið opnaður hér á
landi. Fyrirmynd vefjarins er
uppboðsvefurinn e-bay sem
margir kannast við úr net-
heimum.
„Með þessu er verið að gefa
fólki kost á að selja eða kaupa
háalofts- eða kompudót á upp-
boði,“ segir Einar Kolbeinsson,
ábygðarmaður vefjarins. „Fólk á
að hafa gaman af þessu, enda
getur verið mjög spennandi að
fylgjast með því hvernig hlut-
irnir manns seljast í gegnum
svona uppboð.“
Enn sem komið er hefur verið
vinsælast að selja varning á borð
við bækur, plaköt og kort í gegn
um vefinn en hugmyndin er að í
framtíðinni verði allt milli him-
ins og jarðar falt á síðunni. „Það
er undir hverjum og einum kom-
ið hvort hann setur eitthvert
lágmarksverð á hlutinn sinn eða
ekki en svo er líka hægt að setja
venjulega smáauglýsingu inn á
vefinn, án þess að hluturinn fari
á uppboð.“ Að sögn Einars er
ákveðið gjald tekið fyrir þjón-
ustuna en upphæðin er breytileg
og fer eftir því hversu lengi
hluturinn á að vera aðgengileg-
ur á netinu, hvort mynd á að
fylgja með, hvort auglýsingin er
baklýst eða feitletruð og svo
mætti lengi telja. Hann segist
áætla að kostnaður seljenda
hlaupi á bilinu 300 til 650 krón-
ur en til að byrja með er ekkert
rukkað fyrir fyrstu auglýsinguna
eða uppboðið sem skráð er inn á
vefinn.
Inntur eftir því hver sé
óvenjulegasti hluturinn sem hafi
rekið á fjörur vefjarins þann
tímasem hann hefur verið starf-
ræktur segir Einar það senni-
lega hafa verið fyrsta hlutinn
sem seldist.
„Þetta var skjal sem þrír þýsk-
ir kafbátaforingjar höfðu skrifað
nöfnin sín á. Þetta voru þekktir
menn sem hafa meðal annars oft
verið til umfjöllunar á Discovery
sjónvarpsstöðinni. Þýskur blaða-
maður fékk þá einhverju sinni til
að skrifa á þetta blað á ráð-
stefnu eða endurfundum sem
þeir sóttu en í framhaldinu lagði
hann það út til sölu e-bay þaðan
sem það seldist hingað til Ís-
lands. Kaupandinn seldi það svo
aftur á safnarabudin.is.“
Kompudótið á vefinn
Morgunblaðið/Þorkell
Geymsla Það leynist ýmislegt í geymslum og kompum sem koma má í verð.
Opið hús
Glæsilega hannaðar íbúðir
Ásakór er fallegt þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu og 6 íbúðum á hæð.
Sérinngangur er í hverja íbúð og fylgir eitt bílastæði hverri íbúð. Svala-
gangar 2. og 3. hæðar eru með glerskermun. Íbúðum er skilað fullbúnum
án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum.
Innréttingar eru vandaðar frá HTH. Þvottaherbergi er í öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja 98-110 fm.
Örfáar íbúðir eru óseldar. Til afhendingar strax.
Verð frá 22,9 millj. með sér stæði í bílageymslu
Íslenskir aðalverktakar hf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is
Í dag þriðjudag milli kl. 16 og 18