Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 31
ÍSLAND er eina ríkið í hinum
vestræna heimi sem ekki hefur sett
sér heildstæða löggjöf þegar kemur
að málefnum innflytjenda og út-
lendinga í takti við
fjölgun þeirra í sam-
félaginu. Þetta mál er
mjög aðkallandi enda
hefur útlendingum
með dvalarleyfi fjölg-
að um fjögur þúsund
frá því í vor á þessu
ári.
Aðgöngumiðinn að
íslensku samfélagi er
íslenska. Flestir þeir
sem náð hafa góðum
tökum á tungumálinu
aðlagast vel. Núgild-
andi lög skylda alla þá
sem hingað koma og sækjast eftir
dvalarleyfi í 150 tíma íslensku-
kennslu án þess að nokkrir beinir
fjármunir fylgi.
Þurfum að gera miklu betur
Skýrar og aðgengilegar upplýs-
ingar á sem flestum tungumálum
þurfa að vera til staðar þegar fólk
kemur til landsins. Þýðingar þurfa
að vera til staðar og túlkaþjónustu
þarf að tryggja með lögum. Sér-
staklega í málum þar sem fólk af
erlendum uppruna sækir rétt sinn
og stendur berskjaldað fyrir flóknu
réttarkerfi.
Það er einnig mikilvægt að hlúa
að yngri kynslóðinni. Skilgreina
þarf þarfir barna sem ekki eiga ís-
lensku sem fyrsta mál. Huga þarf
að þörfum þeirra í skólum og
styðja þarf sérstaklega þátttöku
þeirra í íþrótta- og tómstunda-
starfi, svo auðveldara verði að brúa
bilið milli barna af er-
lendum uppruna og
barna sem eiga ís-
lenska foreldra.
Aðlögun okkar
Kórrétt íslenska og
aðför að fólki sem ekki
talar lýtalausa ís-
lensku er duldir for-
dómar sem við þurfum
að ræða og taka á. Sá
sem getur gert sig vel
skiljanlegan á íslensku
hefur unnið mikið af-
rek enda er tungu-
málið okkar langt frá því að vera
auðvelt.
Við þurfum að fræðast og fagna
fjölbreytileikanum. Fordóma-
fræðsla í skólakerfinu er mikilvæg
en aukin fræðsla um hið óþekkta
dregur úr ótta og gerir okkur kleift
að læra og þroskast sem samfélag.
Afar mikilvægt er að við tryggj-
um stöðu þeirra kvenna sem sæta
heimilisofbeldi af hálfu eiginmanna
sinna og hafa dvalið hér í skemur
en tvö ár. Eins og staðan er í dag
eiga þessar konur hættu á að vera
reknar úr landi fari þær frá ofbeld-
ismanninum. Slík réttarstaða er ól-
íðandi, en þessi atvik koma einmitt
upp þegar heildstæð löggjöf er ekki
til staðar.
Við þurfum að sýna viljann í
verki og Samfylkingin hefur margí-
trekað talað fyrir því að mótuð
verði heildstæð stefna í málefnum
innflytjenda og útlendinga. Ég hef
þýtt áherslumál mín, sem ég hef
lagt fram vegna framboðs míns í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík, á arabísku, ensku, taí-
lensku, pólsku, norsku og spænsku.
Hægt er að nálgast þýðingarnar á
heimasíðu minni www.brynd-
isisfold.com
Mitt erindi, með þingflokki Sam-
fylkingarinnar, er að koma til móts
við þarfir þessa hóps með því að
móta heildstæða löggjöf er varðar
almenn réttindi og skyldur hans.
www.bryndisisfold.com.
... wielokolorowe społe-
czeństwo ... Litríkt samfélag
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
skrifar um málefni innflytjenda
og útlendinga.
»Ég hef þýtt áherslu-mál mín, sem ég hef
lagt fram vegna fram-
boðs míns í prófkjöri
Samfylkingarinnar í
Reykjavík, á arabísku,
ensku, taílensku,
pólsku, norsku og
spænsku.
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir
Höfundur býður sig fram í 6. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík
Więcej informacji w Twoim języku
możesz uzyskać na mojej stronie
internetowej:
www.bryndisisfold.com.
Mam nadzieję, że przyjdziesz i
weźmiesz udział.
ทานสามารถคนหาขอมูลเก่ียวกับนโยบ
ายของขาพเจาเปนภาษาของทาน
ไดท่ีเวปไซทของขาพเจา:
www.bryndisisfold.com
หวังวาทานจะมาใหกําลังใจและสนับสนุ
นขาพเจา
Sagt var: Ég fer þangað alla vega einu sinni í viku.
RÉTT VÆRI: Ég fer þangað að minnsta kosti einu sinni í viku.
Gætum tungunnar
NÚ HEFUR verið
opinberað að verk-
stjórar stjórnarskrár-
nefndarinnar hafa gef-
ist upp á
heildarendurskoðun
íslensku stjórn-
arskrárinnar. Það er
mjög miður því ný
stjórnarskrá myndi
efla lýðræði og rétt-
arríki á Íslandi. Miklar
úrbætur eru mögu-
legar og því fyrr, því
betra.
Ný vinnubrögð
nauðsynleg
Verði þetta lyktir
starfsins ættu ábyrgir
aðilar að hugleiða
hvort rétt hafi verið að
málum staðið. Skyn-
samleg skref voru
stigin í upphafi t.d.
með opnum fundum
sem félagasamtökum
bauðst að taka þátt í, vefsetrinu
stjornarskra.is og skipan sérfræð-
inganefndar. Engu að síður væri
hægt að gera mun betur. Heildar-
endurskoðun stjórnarskrár á ekki að
fara fram án álits allra innlendra
sérfræðinga, hún á að byggjast á
bestu þekkingu og það er eðlilegt að
stjórnvöld verji talsverðu rann-
sóknafé til nýrra rannsókna í lög-
fræði, stjórnmálafræði og fleiri
greinum gagngert vegna hennar.
Það er líka eðlilegt að stjórn-
arskrárnefnd kalli sérfræðinga og
áhugaaðila á fundi sem mætti halda í
heyranda hljóði. Þá er og sjálfsagður
hlutur að ríkisfjölmiðlar eins og
Sjónvarpið geri slíku máli rækileg
skil og fái jafnvel til þess sérstakt fé.
Enn er uppi í núverandi nefnd sú
hugmynd að afgreiða
einhver mál til Alþingis
fyrir kosningar í vor.
Eitt af því sem þar er
uppi er ákvæði um aðild
Íslands að alþjóðlegum
stofnunum. Slíkt
ákvæði er mjög á-
ríðandi. Ísland er nú
þegar aðili að Evrópska
efnahagssvæðinu sem
margir telja yfirþjóð-
legt í eðli sínu og fjölda
annarra alþjóðlegra
stofnana án þess að
mælt sé fyrir um sam-
skiptin í stjórnarskrá.
Ljóst er að frekari
tengsl við Evrópu
munu komast á dagskrá
fyrr eða síðar og þá er
mikils virði að leik-
reglur um þjóð-
aratkvæði ofl. verði
ekki bitbein heldur mál-
efnið sjálft. Við Íslend-
ingar ættum að læra af
erfiðum ágreiningsmálum liðinna
ára og leggja grunn að málefnalegri
ákvörðun um Evrópusambandið.
Verði slíkt ákvæði sent Alþingi til
umfjöllunar strax getur það komist í
stjórnarskrá innan árs sem væri
gæfuspor fyrir okkur öll, hvaða
skoðun sem við höfum á ESB-aðild.
Flestöll ríki í Evrópu tóku slík
ákvæði upp fyrir löngu. Hér er Ís-
land fimmtíu árum á eftir.
Stjórnarskráin
og Evrópa
Kristrún Heimisdóttir
skrifar um Evrópumál
Kristrún Heimisdóttir
» ...þá er mik-ils virði að
leikreglur um
þjóðaratkvæði
ofl. verði ekki
bitbein heldur
málefnið sjálft.
Höfundur situr í stjórnarskrárnefnd
fyrir Samfylkinguna og býður sig
fram í 5. sæti í prófkjöri í Reykjavík.
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík
Sími 588 0200 – www.eirvik.is
-hágæðaheimilistæki
Miele þvottavélar
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
-hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is