Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 35

Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 35 Ég hef ekki orðið vitni að hraustlegri glímu en þeirri sem Óli nágranni og Elli kerling stigu síðustu árin. Að fylgjast með níræðum manni hrista af sér heilablóðfall eins og hvert annað kvef og ganga mörg hundruð metra á dag á öðru lunganu er ógleymanlegt. Um leið og við fjölskyldan vottum Hildi okkar innilegustu samúð tek ég ofan hattinn fyrir manni sem neitaði að gefast upp fyrir lögmálum þessa heims og komst næstum því upp með það. Stefán Máni Sigþórsson. HINSTA KVEÐJA ✝ Óli Pálmi H.Þorbergsson fæddist á Sæbóli í Aðalvík 17. júlí 1916. Hann lést á Landspítala Foss- vogi 29. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru Þorbergur Jónsson bóndi í Efri-Miðvík, f. í Rekavík bak Látur 19. apríl 1858, d. 9. janúar 1934, og Oddný Finnbogadóttir hús- freyja, f. í Efri-Miðvík í Aðalvík 15. maí 1874, d. 14. september 1938. Hálfsystkini Óla samfeðra eru Þórunn María, f. 1884, d. 1975, og Óli, f. 1885, d. 1914. Alystkini Óla eru Finnbjörn, f. 1893, d. 1958, Sölvi, f. 1895, d. 1960, Margrét Halldóra, f. 1896, d. 1973, Sigríður Jóna, f. 1899, d. 1983, Þorbergur, f. 1902, d. 1982, Petólína Oddný, f. 1905, d. 1992, Valdimar, f. 1906, d. 2001, Guð- munda, f. 1908, og Finnbogi Þór- arinn, f. 1912, d. 1991. Óli kvæntist 5. nóvember 1955 1956. Börn þeirra eru: a) Jakob Filippus, f. 20. október 1985, og b) Hildur Helga, f. 16. júní 1991. Óli ólst upp í Efri-Miðvík í Aðal- vík. Hann fluttist alfarinn að vest- an árið 1937 en þaðan lá leiðin í vinnumennsku hjá Klemens Krist- jánssyni, tilraunabónda á Sáms- stöðum í Fljótshlíð. Hann stund- aði sjóinn um skeið, frá Vest- mannaeyjum og Reykjanesi, eða þar til hann veiktist af berklum. Hann dvaldist langdvölum á berklahælinu á Vífilsstöðum og um tíma vann hann á vinnuheimili berklasjúklinga á Reykjalundi. Hann var fyrsti sjúklingurinn í endurhæfingu sem komst á samn- ing sem nemi í húsgagnasmíði fyrir tilstilli forráðamanna Reykjalundar. Skömmu eftir að hann lauk námi stofnaði hann sitt eigið húsgagnafyrirtæki sem hann starfrækti í tæpa þrjá ára- tugi, lengst af í Auðbrekku í Kópavogi. Hann vann langt fram á áttræðisaldur, síðast í hluta- starfi hjá Axis. Útför Óla verður gerð frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hildi Kjartans- dóttur, f. 17. júlí 1923, frá Höfn í Hornafirði, en hún starfaði lengst af sem talsímavörður. Foreldrar hennar voru Kjartan Krist- inn Halldórsson, verkstjóri, f. í Bjarnanessókn í A- Skaftafellssýslu 25. október 1896, d. 7. febrúar 1956, og Helga Sigurðar- dóttir húsfreyja, f. í Holtaseli á Mýrum 4. apríl 1885, d. 4. janúar 1993. Börn Óla og Hildar eru: 1) Kjartan Ólason, f. 15. janúar 1955. 2) Helga Óladótt- ir, f. 4. apríl 1956, hennar maður er Konráð Eyjólfsson, f. 28. júní 1954. Börn þeirra eru: a) Óli Hall- dór, f. 18. maí 1977, maki Hólm- fríður Jensdóttir, f. 13. október 1978. Dóttir Óla Halldórs er Helga Björg, f. 20. febrúar 2001. b) Unnur Linda, f. 23. desember 1982. 3) Oddný Þóra Óladóttir, f. 26. janúar 1963, hennar maður er Pétur H. Jónsson, f. 15. mars Faðir minn var af þeirri kynslóð Ís- lendinga sem þekkti ekki aðra leið en að stóla á sjálfan sig. Hann hafði í sér sjálfstæðisanda einyrkjans íslenska sem hlífði sér í engu, einarður í fram- göngu og átti erfitt með að þola fram- taksleysi og doða. Hlutirnir urðu að gerast strax, helst í gær. Alla tíð var hann sívakandi um hvaðeina sem efst var á baugi hverju sinni, myndaði sér skoðanir og var óragur við að halda þeim frammi. Hann var mótaður af harðri lífsbaráttu kreppuáranna, með sterka réttlætiskennd. Þrátt fyrir að hafa ekki notið langr- ar skólagöngu var pabbi ágætlega að sér um margt. Átti gott safn ís- lenskra bóka, skáldskap, þjóðlegar syrpur ýmiss konar, sögufróðleik og bækur almenns eðlis. Flestar þessara bóka marglas hann og vitnaði í sögu- persónur eins og um nákomna kunn- ingja væri að ræða, skaut hnytti- legum tilsvörum skáldaðra persóna eins og ekkert væri sjálfsagðara. En fyrst og fremst var hann Vestfirðing- ur, alinn upp í harðbýlu landi Horn- stranda þar sem nútímatækni hafði ekki rutt sér til rúms. Fjölskyldu- tengsl voru sterk og samheldni fólks mikil. Hann var yngstur tólf systkina sem öll komust til manns og af þeim er kominn stór ættbogi. Einkennum þessa fólks fór faðir minn ekki var- hluta af, kraftur og sterkt einstak- lingseðli voru mest áberandi eðlis- þættir í fari þess. Hann yfirgaf heimahagana árið 1937, var vinnumaður um tíma hjá frænda sínum Klemensi Kr. Krist- jánssyni á Sámsstöðum í Fljótshlíð, sem var upphafsmaður skjólbelta- ræktunar hérlendis og brautryðjandi í kornrækt. Hann undi sér afar vel á þessum stað og bar Klemensi vel sög- una og átti hann eftir að reynast föð- ur mínum vel. Pabbi stundaði sjóinn frá útgerðarstöðum á Suðurlandi, allt þar til hann veiktist af berklum, hálfþrítugur að aldri. Við tók erfitt og langt veikindastríð. Hann dvaldist á berklahælinu á Vífilsstöðum og síðar í endurhæfingu á Reykjalundi. Þrátt fyrir allt voru árin á Vífilsstöðum mikil þroskaár og þar kynntist hann fólki af öllum þjóðfélagsstigum. Fyrir tilstilli Reykjalundarmanna komst hann á samning sem nemi í hús- gagnasmíði og kláraði námið undir leiðsögn Árna Hreiðars Árnasonar. Fljótlega eftir að hann útskrifaðist hóf hann eigin atvinnurekstur. Verk- stæði hans framleiddi húsgögn, allt frá kommóðum og skrifborðum yfir í stærri innréttingar. Hann fylgdist vel með í faginu, sótti sýningar og var ávallt vel tækjum búinn. Vinnustað- urinn var jafnan líflegur, þar var afar gestkvæmt og margir áttu leið um og oft voru fjörlegar umræður yfir létt- um veigum. Upp úr 1980 þegar opnað var fyrir óheftan innflutning á hús- gögnum, lagðist húsgagnaframleiðsla niður að mestu á Íslandi og um það leyti hætti pabbi rekstri. Eftir það vann hann ýmis íhlaupastörf. Síðustu æviárin var pabbi heilsu- hraustur og ern, fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni og stundaði sín áhugamál. Hann hafði kynnt sér vel vestfirskar ættir og æviskrár og var orðinn allvel að sér í þeim fræðum. Hann var frændrækinn og vinamarg- ur, þótt nokkuð hafi verið farið að fækka í hópnum á síðustu árum. En umfram allt var hann umhyggjusam- ur fjölskyldumaður. Eftir situr minn- ing um fallegan föður og afa. Oddný Þóra. Ég tel það mikið lán og lífi mínu stoð að hafa fengið að vera samferða Óla Þorbergs í rúm þrjátíu ár. Það var ýmislegt sem brúaði kynslóðabil- ið, við vorum báðir Vestfirðingar, höfðum svipaðan húmor, vorum létt hrekkjóttir og höfðum gaman af því að fá okkur aðeins í tána. Mestu skipti þó að við elskuðum báðir sömu konuna, hann sem dóttur og ég sem eiginkonu. Við Helga hófum okkar búskap á neðri hæðinni i Selbrekku og bjuggum inni á Óla og Hildi í um þrjú ár og ég minnist þess ekki að okkur Óla yrði svo mikið sem sundur- orða og brölluðum þó ýmislegt. Það skipti náttúrulega miklu að ég var pabbi Óla, fyrsta barnabarnsins, og afinn sá varla sólina fyrir strákn- um. Óli var höfðingi, hélt herlegar veislur og hafði hreina unun af að veita gestum sínum kræsingar. Hans mat á því hvenær vel væri veitt var nokkuð fornt. Að ferðast með Óla var frábært, hvort heldur var til sólarstranda eða um Vestfirðina því að hann var haf- sjór af fróðleik og skemmtisögum. Við áttum hreint ævintýralega viku í Aðalvík. Bíltúr um Vestfirði með Óla og frænda hans Guðbjarti Óla líður seint úr minni. Eitt kvöldið í Vatns- firði urðum við Raggi Þorbergs að fara í göngutúr því við vorum komnir með slíka strengi af hlátri að við vor- um farnir að kvíða næsta brandara. Ég heimsótti Óla viku fyrir andlát- ið og eins og oft áður voru sagðar nokkrar skemmtisögur og hlegið svo að tárin láku úr augunum. Ég er þakklátur forsjóninni fyrir að Óli var ern fram á síðasta dag og fékk þráða hvíld án langs aðdraganda. Með tengdapabba er genginn merkilegur maður. Hann upplifði og tók virkan þátt í stærstu umhleyp- ingum Íslandssögunnar, var víðles- inn og fylgdist vel með gangi þjóð- mála og hafði sterkar skoðanir á öllu því sem máli skipti. Áratugarlöng barátta hans við berkla og kynni hans af vosbúð meitluðu í hans stóra hjarta eldheitan jafnaðarmann. Við kveðjum þennan heiðursmann með söknuði. Konráð. Örfá orð um afa minn. Aldrei talaði hann við mig nema á jafnræðisgrund- velli og var ólatur að leggja mér góð ráð í komandi baráttu, kenndi mér að binda bindishnúta og lagði ríka áherslu á að vera í vel burstuðum skóm og nota úrvals rakspíra og kvenfólkið átti ég að umgangast af virðingu. Af fullkomnu langlundar- geði fylgdist hann með brotlending- um mínum í skólakerfinu, sífellt hvetjandi mig á hliðarlínunni. Svo þegar kom að því að ég kláraði loks stúdentsprófið mætti hann strokinn og fínn, teinréttur og flottur, ilmandi af Old Spice, hrókur alls fagnaðar, skálaði við hvern sem var og spjallaði á þann sérstaka máta sem honum var eiginlegur. Já, hann var flottur, á gömlum myndum með örmjótt Clark Gable-skegg og með greiðsluna í lagi, líkastur Hollywood-stjörnu. Sjálfsagt skilgreindur sem framsækinn eftir nýjustu mælikvörðum, með tækja- og bíladellu á háu stigi, sá alls staðar möguleika og var óragur við að prófa eitthvað nýtt, sannkallaður vestfirsk- ur töffari. Aldrei var hann verulega sáttur við síðasta bílinn, lítið örverpi, eiturgræna Nissan-tík, sem hann taldi varla til bílaættar, en sá ekki ástæðu til að skipta út svona á síðustu metrunum. En það dróst að hann yf- irgæfi táradalinn, árin liðu hvert af öðru þar til hann náði tíræðisaldri í júlí síðastliðnum. Ekki var að sjá að dregið væri að endalokunum, endur- nýjað kort í ræktinni og væntanleg Kanaríeyjaferð fyrirhuguð. En málin tóku óvænta stefnu, skyndilega veikt- ist hann hastarlega, var farinn með það sama og var það örugglega í hans anda því hlutirnir urðu að gerast hratt, á eldingarhraða og með reisn. Sé þig síðar, afi. Jakob Filippus (Kobbi). Drúpir dimmviður dökku höfði, dagur er dauða nær. Hrynja laufatár litarvana köldum af kvistsaugum. (Jóh. S.) Hver af öðrum kveðja þeir sem fæddir voru og uppaldir í Sléttu- hreppi, sem fór í eyði 1952. Óli P.H. Þorbergsson náði níræðisaldri og er til moldar borinn í dag. Hann var yngstur þrettán barna Þorbergs Jónssonar í Efri-Miðvík í Aðalvík. Óli skipaði sérstakan sess í huga mínum, var nafni og hálfbróðir afa míns, sem verið hafði elsti sonur Þor- bergs í Efri-Miðvík en fórst 28 ára með seglskipinu Gunnari úti fyrir Straumnesi 1914, tveimur árum fyrir fæðingu Óla yngri. Þessi ættartengsl lét Óli mig vel finna eftir að við kynnt- umst og þann hlýhug í minn garð og minna þakka ég nú við leiðaskil. Óli P.H. Þorbergsson þurfti fljót- lega eftir að hann hleypti heimdrag- anum að takast á við mikla þrekraun eða þann alræmda vágest, berkla- veikina, sem fæstu eirði fyrir miðja seinustu öld. En Óli hafði betur, var höggvinn sem kallað var og náði það góðum bata að dugði honum til far- sæls lífs að hárri elli. En það að þreyta slíka raun hefur án efa sett mark sitt á manninn og öll lífsviðhorf hans. Enda mátti víða sjá þess stað í flestu því sem Óli tók sér fyrir hendur að þar fór maður sem var heill í verkum sínum og afstöðu. Áður en hann haslaði sér völl á þeim vettvangi sem telja má að verið hafi meginlífsstarf hans vann hann ýmis störf eins og títt var um unga menn á hans tíð, t.a.m. vann hann um skeið hjá Klemensi frænda sínum á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Hann lauk síðan námi í húsgagnasmíðaiðn og rak um árabil húsgagnasmíðaverk- stæði í Auðbrekku í Kópavogi. Og Óli varð hamingjumaður í einkalífi. Eignaðist góða eiginkonu, þrjú mannvænleg börn og fjölda ann- arra afkomenda. Við Svava sendum þeim innilegar samúðarkveðjur um leið og við biðj- um minningu Óla P.H. Þorbergsson- ar blessunar Guðs. Óli Þ. Guðbjartsson. Óli Pálmi H. Þorbergsson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, AÐALHEIÐUR UNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður til heimilis á Kaplaskjólsvegi 56, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga og Samtök um byggingu Tónlistarhúss í Reykjavík. Gyða Theodórsdóttir, Gylfi Theodórsson, Hulda Theodórsdóttir, Sigurbjörn Theodórsson, Theodór Theodórsson, Steinar Engilbert Theodórsson, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Systir okkar, ERLA KARLSDÓTTIR NELSON, fædd 13. febrúar 1928, lést í Minneapolis, Bandaríkjunum, laugardaginn 28. október sl. þar sem hún hefur búið í 50 ár. Jarðarförin fór fram í Bandaríkjunum fimmtudaginn 2. nóvember. Systur hennar og aðrir ættingjar kveðja hana með þakklæti og söknuði. Guð blessi minningu hennar. Ása Karlsdóttir, Laufey Karlsdóttir, Hulda Haralds Onyika, systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HALLVARÐSSON rafvirki, Kristnibraut 33, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 5. nóv- ember. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 9. nóvember kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Málhildur Þóra Angantýsdóttir, Angantýr Sigurðsson, Erla Björk Gunnarsdóttir, Hallvarður Sigurðsson, Anna Margrét Ingólfsdóttir, Elín Fríða Sigurðardóttir, Davíð Þór Óskarsson og afabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.