Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Petrónella S.Ársælsdóttir,
Ella, fæddist í Vest-
mannaeyjum 26.
maí 1921. Hún lést
á Landspítala Foss-
vogi 30. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar
voru, Laufey Sig-
urðardóttir húsfrú,
f. 2. september
1895, d. 16. ágúst
1962, og Ársæll
Sveinsson útvegs-
bóndi, f. 31. desem-
ber 1893, d. 14. apríl 1969. Systk-
ini Ellu voru Lárus, f. 1914, d.
1990, Sveinn, f. 1915, d. 1968,
Guðrún, f. 1920, d. 1927, Ásta
Skuld, f. 1925, d. 1928, Guðrún
Ásta, f. 1929, d. 1977, Leifur, f.
1931, Lilja, f. 1933, og Ársæll, f.
1936.
Hinn 30. desember 1939 giftist
Ella Ágústi Kristjáni Björnssyni,
verkstjóra, f. 4.11. 1916, d. 27.8.
1979. Allan þeirra hjúskap var
Ella húsmóðir á heimili þeirra,
syni, f. 31. október 1957. Barna-
börnin 16 eru eftirtalin: Margrét,
Ella Kristín, Jóhann Þór, Hannes,
Marta María, Ella Kristín, Ástríð-
ur Hanna, Ágúst Bjarki, Heiða
Björk, Margrét, Harpa, Kristján,
Petronella, Íris Anna, Steinarr
Lár og Ágúst Kristján. Lang-
ömmubörnin 33 eru eftirtalin:
Davíð Mar, Thelma, Leifur Vikt-
or, Birgir Leifur, Eiríkur, Lauf-
ey, Bjarki Þór, Fylkir, Birgir
Viktor, Atli Hrafn, Hannes, Berg-
lind, Ásgeir, Jón Axel, Konráð
Jóhann, Andri Björn, Róbert
Örn, Silja Rut, Vignir Örn, Victor
Blær, Karen Björg, Birna Krist-
ín, Daníel Ingi, Páll Valdimar,
Herborg Agnes, Kristinn Vil-
berg, Kristján Már, Sigríður
Tinna, Magnús Máni, Kristján
Andri, Ísabella Rós, Ívar og Ey-
dís Sól. Langalangömmubörnin
fjögur eru eftirtalin: Ingi Rúnar,
Birgitta Sóley, Ólafur Karel og
Tristan Birkir.
Útför Ellu verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
fyrst í Vestmanna-
eyjum, síðan í
Hafnarfirði og að
lokum í Ljósheimum
14a þar sem hún hélt
heimili til dán-
ardags. Þegar hún
varð ekkja 58 ára
gömul fór hún út á
vinnumarkaðinn og
starfaði í kennara-
mötuneyti Iðnskól-
ans í Reykjavík og
síðan hjá Skeljungi í
mötuneyti þeirra í
Skerjafirði. Ella og
Stjáni eignuðust 57 afkomendur,
en 58. afkomandinn er vænt-
anlegur nú í desember. Börn Ellu
og Stjána eru Laufey, f. 11. nóv-
ember 1939, gift Birgi Hann-
essyni, f. 29. september 1941, d.
4. febrúar 2005, Birna Kristín, f.
6. febrúar 1942, gift Jóni Hannes-
syni, f. 10. nóvember 1947, Krist-
ján Sigurður, f. 16. október 1947,
kvæntur Sigríði Árnadóttur, f.
1941, og Ásta Gunna, f. 30. júlí
1958, gift Steinarri Steinarrs-
Mamma er dáin. Hún ólst upp á
ástríku, mannmörgu heimili foreldra
sinna, með níu systkinum ásamt ver-
tíðarmönnum og vinnukonum. For-
eldrar hennar voru miklir bindindis-
menn og var afi alltaf stoltur af að
dætur hans væru það líka. Ung missti
mamma tvær systur sínar úr heila-
bólgu og hafði það mikil áhrif á allt
hennar líf. Hún sem alltaf var kirtla-
veik var skilin eftir en þær teknar frá
henni. Mamma tók þátt í störfum for-
eldra sinna, vann á stakkstæðinu
kauplaust og við hlið vinnukvenna og
oft var mikið að gera, bakaðar 60 flat-
kökur annan hvern dag og allir þvott-
ar þvegnir í bölum, ekki einu sinni
rennandi vatn. Kýr voru á heimilinu
og var mjólkin mikil búbót á stóru
heimili. Mamma sagði oft frá því þeg-
ar hún var send á fátæk heimili með
mjólk og beðin um að nefna það ekki
við neinn. Mamma var alltaf hrædd
við dýr en rak samt kýrnar í haga. Oft
sagði hún söguna af kjúklingnum sem
datt í flórinn, hún gat ekki hugsað sér
að koma við hann vegna hræðslu. Svo
hún tók skóflu og mokaði honum upp.
Ung var mamma á leið í nám til
Kaupmannahafnar og ætlaði að búa
hjá listakonunni Júlíönu Sveinsdóttur
föðursystur sinni, en aldrei fór hún
utan, því hún var orðin ástfangin af
ungum, myndarlegum töffara, honum
pabba. Mamma og pabbi héldu heim-
ili í Vestmannaeyjum til 1960, fluttu
þá til Hafnarfjarðar og þaðan til
Reykjavíkur. Þau héldu heimili sam-
an í 40 ár og var mamma heimavinn-
andi húsmóðir öll þau ár, heimilið allt-
af hreint og fínt, allir fengu nóg,
börnin hrein og saumaði hún fötin á
okkur. Á kreppuárunum þegar ekki
var hægt að kaupa allt í verslunum
eins og í dag saumaði hún upp úr
gömlum flíkum, hún venti flíkinni og
varð t.d. frakki af afa buxur á Kidda
bróður.
Mamma var nýtin kona, krafðist
ekki mikils fyrir sjálfa sig, hún hugs-
aði vel um heilsuna, ung æfði hún og
keppti í handbolta, þau pabbi dönsuðu
mikið bæði á böllum og heima í stofu,
og alla tíð gerði hún morgunleikfimi
og var lipur og létt á sér fram á síð-
asta dag.
Nú síðustu mánuði fór hún með
Birnu systur og Nonna í göngutúra
minnst einu sinni í viku, notaði engi-
ferrót, Q-10 og einn sopa af koníaki
sér til heilsubótar á morgnana.
Við mamma brölluðum margt sam-
an, hún sagði að ég væri selskaps-
daman hennar, við töluðum saman á
hverjum degi, versluðum í matinn,
fórum á kaffihús, ég fylgdi henni allt-
af til læknis, setti permanett og litaði
augnhárin og -brúnirnar, eða eins og
hún sagði, setti á hana andlitið. Ég fór
með henni á kvenfélagsfundi og í
heimsóknir til vinkvenna hennar,
henni fannst ekki gott að vera ein ut-
an heimilisins.
Mamma fór út að vinna 58 ára, hún
naut þess að ráða sér sjálf, eignast
nýjar vinkonur sem alla tíð héldu ást-
fóstri við hana. Voru bíltúrarnir með
Laugu og Línu miklir gleðigjafar í lífi
hennar, hvað er sætara en þrjár kon-
ur á níræðisaldri á kaffihúsi eða í bíl-
túr um landið? Síðasta ferðin þeirra
saman var í sumar. Þá fóru þær upp á
Akranes, keyrðu fyrir fjörð í yndis-
legu veðri, komu við hjá Kidda bróður
og Siggu til að skoða steinasafnið
þeirra, fóru á minjasafnið og enduðu í
kaffi hjá Laufeyju systur.
Mamma var mikil amma, alltaf
tilbúin að spila rommí, sagði margar
nákvæmar sögur af sjálfri sér eða ein-
hverju sem hún hafði lesið í dönsku
blöðunum. Hún passaði sig á því að
gera aldrei upp á milli, sem varð til
þess að stundum gerði hún bara ekki
neitt. Lét öllum líða vel eins og þeir
væru í sérstöku uppáhaldi. Hún hlust-
aði en dæmdi ekki, var aldrei með
neina dramatík.
Mamma var dama til hinstu stund-
ar og hélt fullri reisn, þegar sjúkra-
bíllinn sótti hana í hennar hinstu ferð
kom ekki til greina að fara út á bör-
um, hún gekk út í bílinn róleg og yf-
irveguð. Stolt og hljóðlát kvaddi hún
lífið, krafðist aldrei neins, vildi alltaf
vera á hliðarlínunni.
Takk, mamma, fyrir allar stundirn-
ar okkar saman, nú spilum við ekki
oftar marías eða horfum saman á
Idolið og nú nálgast jólin og þú verður
ekki hjá okkur Steinari og krökkun-
um. Það verður skrýtið. Koss og knús.
Ég sakna þín.
Þín dóttir
Ásta Gunna.
Elsku Ella. Ég vildi skrifa þér
nokkur orð og þakka þér fyrir tímann
okkar saman.
Ég man þegar ég sá þig fyrst.
Brosandi glöð tókstu á móti mér inn í
fjölskylduna fyrir rúmum sjö árum.
Ég man svo margt.
Ég man eftir öllum Idol-kvöldun-
um okkar og ég man þegar þú sagðir
mér sögur af þér í Vestmannaeyjum.
Ég man þegar þú komst í 25 ára af-
mælið mitt og ég man eftir öllum fjöl-
skylduboðunum. Ég man hvað þú
varst alltaf létt á þér og ég man eftir
fallega hlátrinum þínum.
Ég man eftir þér.
Björg Ragnheiður Vignisdóttir.
Takk fyrir okkur Amma.
Við erum svo heppin að hafa átt
þig.
Steinarr Lár, Hera, Eydís Sól.
Þú varst eina amma mín, og þó ég
hefði enga aðra ömmu eða afa þá
vantaði aldrei neitt upp á. Þú fylltir
skarð sem oftast fjórir fylla og gerðir
það leikandi. Sama á hvaða stað í líf-
inu ég var, þá varst þú alltaf til staðar
á Ljósheimum og studdir við bakið á
mér ef ég leitaði til þín.
Amma, þú lést mér alltaf líða eins
og ég væri uppáhaldið þitt, en eflaust
fannst öllum það líka enda tókst þú
öllum fagnandi, sem komu í heimsókn
til þín. Öll þau mörgu skipti sem ég
kom til þín beiðst þú tilbúin í dyrun-
um, skælbrosandi, og tókst á móti
mér með kossi.Og þegar við kvödd-
umst þá kvöddumst við alltaf eins, við
kysstumst þrisvar sinnum.
Við áttum okkar kvöld, Idolkvöld,
og áttum við fjölskyldan frábærar
stundir saman yfir þeim þáttum síð-
ustu þrjú árin. Sjónvarpsefnið var
ekki aðalatriðið heldur að vera öll
saman. Við hlökkuðum öll til að halda
þessu áfram með X-factor þáttunum
og varst þú farin að undirbúa það í
huganum. Ég mun alltaf hugsa til þín,
amma, þegar ég horfi á þessa þætti.
Ég var búinn að undirbúa gjöf
handa þér, amma. Ég ætlaði að gefa
þér dagbókina okkar Bjargar frá því
að við vorum á Ítalíu. Svo ætluðum við
að gefa þér mynd af okkur, innramm-
aða. Af einhverri ástæðu vorum við
ekki búin að þessu en ég hlakkaði
mikið til að gefa þér þetta, enda var
fátt skemmtilegra en að gleðja þig.
Þó að ég hafi óteljandi oft hlaupið
upp tröppurnar í Ljósheimum og
gengið að opnum dyrum hjá þér þar
sem þú tókst fagnandi á móti mér. Þá
vildi ég að ég gæti gert það einu sinni
enn, bara til að gefa þér síðasta þre-
falda kossinn, til að knúsa þig aðeins
og kannski gefa þér gjafirnar sem ég
var búinn að undirbúa svo lengi.
Nú ert þú komin á annan stað og ef
sá staður er jafn góður og heimili þitt
hefur verið mér síðustu 26 árin, þá
veit ég að þér líður vel.
Þinn „uppáhalds“ dóttursonur,
Ágúst Kristján.
Elsku amma okkar er fallin frá.
Þetta gerðist mjög snöggt, eitthvað
sem við áttum alls ekki von á því að
hún hugsaði alltaf svo vel um heils-
una. Amma stundaði leikfimi heima
frá því við munum eftir okkur og
spáði mikið í mataræðið. Ef okkur
vantaði einhver ráð varðandi heilsuna
eða góð húsráð þá var hún óþrjótandi
viskubrunnur. En við minnumst þín
sem bestu ömmu í heimi alltaf glöð og
ánægð og að láta sér leiðast var ekki
til í hennar orðabók. Alltaf var gaman
að sitja og hlusta á sögurnar hennar,
og var hún þeim eiginleikum gædd að
hún gat gert grín að sjálfri sér. T.d
heilsaði hún sjálfri sér í spegli í snyrti-
vöruverslun, bauð gínu góðan daginn
á Árbæjarsafninu og hafði hún mjög
gaman að segja slíkar sögur.
Þegar við vorum yngri og komum í
heimsókn er sérstaklega minnisstæð
skálin með heimagerðu karmellunum
og græna kakan. Okkur þótti þær öll-
um alveg frábærar. Í gamla daga hitt-
umst við öll stórfjölskyldan á jóladag í
jólaboði hjá þér og var þá alltaf glatt á
hjalla. Eins þegar við stóðum sem
krakkar og sungum í útvarpið og allt
var tekið upp.
Amma fylgdist vel með öllu og lagði
sig fram um að vera mikið inni í því
hvað krakkar voru að gera. Hún átti
sko tölvuleiki, var áskrifandi að And-
res önd, hafði fullt af rásum í sjón-
varpinu og ýmsu dóti fyrir börnin sem
okkur þótti mjög spennandi og okkar
börnum líka. Hún hugsaði alltaf vel
um alla.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Elsku amma, allar góðu minning-
arnar um þig munum við geyma í
hjarta okkar. Megi góður Guð geyma
þig.
Petronella, Ásta, Ágúst, Heiða,
makar og börn.
Petronella S. Ársælsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Petronellu S. Ársælsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Ella
Kristín og Íris Anna
✝ Jón Stefánssonfæddist í
Vestra-Stokks-
eyraseli í Árnes-
sýslu 28. október
1919. Hann lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 1. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Stefán Bjarnason, f.
27.10. 1887, d. 22.5.
1935, og Steinunn
Jónsdóttir, f. 17.5.
1892, d. 13.12. 1985.
Jón átti fjögur
systkini. Þau eru: Ólafur f. 3.8.
1915, d. 17.5. 1970; Lilja, f. 20.10.
1916, d 7.6. 1995; Guðrún, f. 23.8.
1921; Bjarni, f. 2.1. 1923; og Stef-
án, f. 11.12. 1935.
Árið 1943 kvæntist Jón Sigríði
Ingimundardóttir, f. 11.10. 1917,
d. 7.5. 1997. Foreldrar hennar
voru Ingimundur Brandsson og
Ingiríður Eyjólfsdóttir. Jón og
Sigríður eignust
fjögur börn. Þau
eru: 1) Stefán, f.
1944, maki Sigríður
Sveinsdóttir, þau
eiga fimm börn og
tíu barnabörn. 2)
Ingiríður Karen, f.
1949, maki Þröstur
Eyjólfsson, þau eiga
þrjú börn og sex
barnabörn. 3) Bryn-
dís, f. 1951, maki
Ágúst Ingi Andrés-
son, þau eiga þrjú
börn og sex barna-
börn. 4) Steinunn, f. 1957, maki
Hallur Ólafsson, þau eiga þrjú
börn og þrjú barnabörn. Áður átti
Sigríður dótturina Erlu Óskars-
dóttir, f. 1938, d. 1997, maki Daní-
el Hafliðason, þau eiga þrjú börn
og sex barnabörn.
Útför Jóns verður gerð frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Elsku afi minn, nú ertu farinn og
það er sárt að sitja og hugsa um það
að við eigum ekki eftir að eiga fleiri
stundir saman en það eru minningar
sem ég á um þig sem eru svo yndis-
legar allt frá því þú studdir mig við
fyrstu sporin þar til ég studdi þig.
Ég gæti skrifað endalaust um það
en það eru okkar minningar. Það á
eftir að vera svo erfitt að hafa þig
ekki með okkur.
Takk fyrir allt það sem þú hefur
kennt mér og drengjunum okkar.
Það er demantur í minningu okkar.
Þinn
Sighvatur.
Elsku afi, nú kveð ég þig með sökn-
uði. Allt það sem við höfum brallað og
spjallað er ógleymanlegt.
Nú veit ég að þú ert glaður að vera
kominn til hennar ömmu sem hugsar
vel um þig.
Helga.
Elsku afi, nú er stundin runnin upp
og þú hefur fengið hvíldina eftir langa
ævi. Þó að við vitum öll að dauðinn er
hluti af lífinu þá er erfitt að sætta sig
við þegar kallið kemur. Það er margt
sem kemur upp í hugann, margar
góðar minningar sem ég mun aldrei
gleyma. T.d. allar þær stundir í
vaskahúsinu á Bústó sem fóru í að
skrúfa í sundur og setja saman hina
ýmsu rafmagnshluti sem þú komst
með fyrir okkur frændurna, einnig
þær ófáu ferðir sem farnar voru fyrir
þig í búðina sönglandi vísu sem þú
kenndir okkur; „einn London docks
og passaðu að brjóta hann ekki“.
Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu á
góðan stað. Þakka þér fyrir allar
góðu minningarnar sem þú skildir
eftir, ég mun ætíð minnast þín. Guð
blessi þig og varðveiti.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sig.)
Þinn dóttursonur,
Viðar.
Elsku afi minn, nú er komið að
kveðjustund og því fylgir mikil sorg.
En ég veit að nú ert þú kominn til
hennar ömmu með bros á vör.
Það rifjast upp allar góðu minning-
arnar um ykkur ömmu, þegar maður
kom í heimsókn á Bústaðaveginn og
fékk glænýja jólaköku og mjólk. Ef
enginn var inni þegar maður kom fór
maður út í garð og leitaði í beðunum
og oftar en ekki leyndist amma þar
og aldrei varst þú langt undan. Það
var yndislegt að sjá hvernig þú
hljópst í kringum hana ömmu og
ómetanlegt hvað þú varst góður við
hana.
Elsku afi, ég vona að þú sért kom-
inn til ömmu, sáttur og sæll. Þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu. Takk
fyrir allar góðu stundirnar, elsku afi.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Elfa Björk.
Elsku langafi.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Sigursteinn Atli og Brynjar Nói.
Jón Stefánsson