Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 41
menning
NNFA QUALITY
Það er eðlileg spurning hvort
Beevor geri of mikið úr hryll-
ingnum sem fylgdi framrás Sov-
étherjanna en fegri framferði
Bandaríkjamanna, Breta og
Frakka. Vissulega gerðu menn sér
glansmynd af framrás vesturherj-
anna sem vafalaust er að hluta
byggð á fegrun, rétt eins og sú
mynd sem Rússar hafa af sínu liði.
Kannski leiða myndirnar úr Abu
Ghraib-fangelsinu í Írak til ein-
hverrar endurskoðunar á ímynd
Bandaríkjamanna í öðrum stríðum
líka. En það er hins vegar ekki víst
að svarið við spurningunni sé
áhugavert. Aðalatriðið er alls ekki
hver var betri og hver verri heldur
miklu fremur að ekki sé látið eins
og það sem gerðist hafi alls ekki
gerst.
Þýðing Jóns Þ. Þórs rennur að
mestu leyti vel, þó að af og til birt-
ist stirðlegar setningar – þeim fer
raunar fjölgandi þegar líður á bók-
ina. Útgáfan er að flestu leyti vel úr
garði gerð, en þó er það galli að
ritaskrá, sem virðist vísað til í neð-
anmálsgreinum, er alls ekki að
finna í bókinni.
Jón Ólafsson
Ein af eftirtektarverðustubarnabókum síðustu áranefnist Svona gera prins-
essur og er eftir Svíann Per Gust-
avsson.
Þar er sleginn nýr og ferskur
tónn í annars yfirleitt staðlaðri
sýn okkar á bleikklæddar prins-
essur, sem eyða jafnan ævinni í að
huga að útlitinu og bíða eftir
draumaprinsinum á hvíta hest-
inum.
Söguhetjan, prinsessan ónefnda,
er nefnilega mikill forkur. Hún
berst við dreka, spilar íshokkí af
miklum móð og bjargar prinsi úr
álögum til að giftast.
Þetta gerir hún íklædd sínu fín-
asta skarti, bleikum kjól og spari-
skóm.
Bókin er í miklu uppáhaldi hjámér og ég les hana oft fyrir
dóttur mína, enda þykir mér
prinsessan heppileg fyrirmynd og
boðberi þeirrar staðreyndar að
börn geti gert það sem þau vilji,
bleikur kjóll sé ekki hindrun fyrir
því að leika íshokkí, skylmast með
sverði eða vera í dúkkuleik, allt
eftir því hvað viðkomandi hugn-
ast.
Höfundurinn Gustavsson til-einkar dætrum sínum, Kajsu
og Minnu, söguna. Tilurð bók-
arinnar má nefnilega rekja til
samtals Gustavsson við fyrr-
nefnda dóttur sína, sem hélt því
fram að prinsessur gætu bara gift
sig og eignast börn, ekki staðið í
skylmingum eða öðru slíku. Bókin
á því líklega að leiðrétta þann
misskilning barnsins, sem og að
koma í veg fyrir að aðrar prins-
essur misskilji hlutverk sitt.
Nú er komin út önnur bók umprinsessuna ónefndu, Afmæli
prinsessunnar, en í henni fagnar
hún afmæli sínu.
Eins og prinsessum sæmir fá
þær gjafir allstaðar að úr heim-
inum, keyra um stræti og torg og
veifa til almennings og halda svo
risastórar veislur.
Þegar einn óboðinn gestur stel-
ur gestunum neyðast prinsessur
til að bjarga þeim með öllum ráð-
um.
Nýja bókin um prinsessunaónefndu er skemmtileg, þó
hún sé ekki eins skemmtileg og sú
fyrri. Hvort það er vegna þess að
í fyrri bókinni kvað við nýjan tón,
tón sem maður þekkti við lestur á
seinni bókinni, skal ósagt en báð-
ar eiga þær fullt erindi við prins-
essur og prinsa á öllum aldri.
Svona gera prinsessur
» ...enda þykir mérprinsessan heppileg
fyrirmynd og boðberi
þeirrar staðreyndar að
börn geti gert það sem
þau vilji, bleikur kjóll sé
ekki hindrun fyrir því að
leika íshokkí, skylmast
með sverði eða vera í
dúkkuleik, allt eftir því
hvað viðkomandi hugn-
ast.
Afmæli prinsessunnar „Þegar einn óboðinn gestur stelur gestunum neyð-
ast prinsessur til að bjarga þeim með öllum ráðum.“birta@mbl.is
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
EMBÆTTI forstöðumanns Lista-
safns Íslands er laust til umsóknar,
að því er kemur fram í auglýsingu á
heimasíðu menntamálaráðuneyt-
isins frá 3. nóvember. Eins og kveðið
er á um í lögum um Listasafn Ís-
lands nr. 58/1999 er forstöðumaður
stjórnandi safnsins og mótar list-
ræna stefnu þess í samráði við safn-
ráð. Hann stjórnar daglegum
rekstri, skipuleggur sýningar á
verkum safnsins og sér um aðra
venjulega starfsemi.
Nýr forstöðumaður
Gert er ráð fyrir því að skipað eða
sett verði í embættið frá og með 1.
mars 2007 og er skipunin í höndum
menntamálaráðherra að fenginni
umsögn safnráðs. Skipað er til fimm
ára hverju sinni en heimilt er að end-
urnýja skipun forstöðumanns einu
sinni til fimm ára og getur sam-
anlagður skipunartími því lengstur
orðið 10 ár.
Í téðri auglýsingu mennta-
málaráðuneyt-
isins kemur fram
að í embættið
skuli „skipaður
einstaklingur
með sérfræðilega
menntun og stað-
góða þekkingu á
myndlist og
rekstri lista-
safna.“
Núverandi forstöðumaður Lista-
safns Íslands er Ólafur Kvaran. Þar
eð Ólafur hefur senn setið hámarks-
skipunartíma er ljóst að nýr for-
stöðumaður tekur við í mars nk. Að
sögn Ólafs hverfur hann til nýrra og
spennandi starfa.
Listasafn Ísland er meginsafn ís-
lenskrar myndlistar í landinu. Verk-
efni þess eru m.a. að rannsaka ís-
lenska myndlist, afla erlendra
listaverka, sjá um fræðslustarfsemi
um innlenda sem erlenda myndlist
og veita innlendum söfnum faglega
ráðgjöf.
Ólafur Kvaran hættir
Ólafur Kvaran