Morgunblaðið - 07.11.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 43
menning
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Raðhús á einni hæð auk bílskúrs óskast. Staðgreiðsla í
boði. Hentug stærð 125-170 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ
Á VATNSENDASVÆÐINU ÓSKAST
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Vorum beðin að útvega 55-75 fm 2ja herbergja íbúð í grónu hverfi,
t.d. Háaleiti, Vesturbæ, Hlíðum eða austurborginni.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ
Í GRÓNU HVERFI ÓSKAST
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sérhæð við Landakotstún
eða nágrenni óskast
Traustur kaupandi óskast eftir 140-160 fm sérhæð á
framangreindu svæði.
Staðgreiðsla í boði fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
Miðasala í síma 4 600 200 I www.leikfelag.is
ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI!
„glæsilega unnið sviðsverk með
skínandi beittan brodd…
Frábær skemmtun – alvöru hrollur.
Flott verk, flottur leikur, flott sýning.“
PBB, Fréttablaðið 30/10/06
„LA hefur hitt í mark og eignast fyndna
og hæfilega ögrandi sýningu ... Drepfyndið“
ÞT, Mbl, 30/10/06
„gríðarlega áhrifamikil sýning“
SLG, RÚV, 30/10/06
„enn ein skrautfjöðurin í hatt LA“
HMB, akureyri.is, 30/10/06
„fjögurra grímna hressandi helvíti... Það er
magnað að vita til þess að hér norður við
heimskautsbaug sé okkur boðið uppá
frábæra leiksýningu í heimsklassa...“
JJ, dagur.net, 30/10/06
Sýning í Mublu
Fjölbreytt sýning
Bjarna Jónssonar listmálara
stendur nú yfir í húsgagnaversluninni Mublu á
Nýbýlavegi 18, Kópavogi. Opið á verslunartíma
rúmhelga daga frá kl. 11-18, laugardaga kl. 11-16,
lokað á sunnudögum.
LITLA sviðið í Silfurtunglinu í
Austurbæ er tilvalið fyrir fyrstu til-
raunir ungra leikstjóra og leikara.
Það er mikil nálægð, varla pláss
fyrir fleiri en tvær persónur á svið-
inu og staðurinn sjálfur frelsar fólk
frá því að mæta á sparifötunum.
Enda uppselt á allar sýningarnar
um Danny og Rebeccu og ég þurfti
að bíða í langri biðröð með nær ein-
göngu ungu fólki kvöldið sem ég
fór.
Það var hins vegar merkilegt, að
finnast sem ég væri mætt á nýja
útfærslu á leikriti Agnars Jóns Eg-
ilssonar Afgöngum sem frumsýnt
var þarna fyrir nákvæmlega tveim-
ur mánuðum: Karl og kona hittast
á bar, flækjast saman í rúmið og
þegar morgnar hefjast tilraunir til
nálgunar. Munurinn helst sá að í
fyrra tilfellinu var um að ræða tvo
velalda, blaseraða Íslendinga,
ófæra um að elska og úr því verður
eðlilega lítil dramatík. Hér stað-
setur Jón Gunnar Þórðarson reið-
ar, ofbeldisfullar, örvinglaðar per-
sónur með þunga bagga
fortíðar-ameríska leikritaskáldsins
Johns Patricks Shanleys- í bresku
lágstéttarumhverfi og úr örvingl-
uninni skapast líkt og hjá Karli
Marx átök og von! Bæði verkin þó
byggð á engilsaxneskri klisju og
vaknar sú spurning hvort ekki sé
þarft að fara að ræða hvaða áhrif
aukið vægi engilsaxneska natúral-
ismans í leikhúsunum þessu síðustu
ár kunni að hafa á leiklist okkar.
Líkt og þarft er að ræða gjörning-
inn, leikinn með ofbeldi og hrátt
raunsæi í Listaháskólanum sem
vekur óneitanlega upp áhugaverðar
spurningar um siðferðileg mörk og
hlutverk ímyndunaraflsins í list-
sköpun. Og hvort einhver tengsl
séu á milli hrás raunsæis (sem sést
hefur víðar en í Listaháskólanum)
og dekursins við natúralismann?
Jón Gunnar Ólafsson hefur unnið
þetta verk sitt af alúð, við hann er
kannski ekki að sakast hversu und-
arlega léttilega þetta verk hverfist
frá ruddaskap yfir í ljúfa drauma
um betra líf en af sýningu hans að
dæma er ástæðulaust að hafa
áhyggjur af siðgæði ungs leik-
húsfólks, verkið gefur tilefni til enn
meira ofbeldis og ógnar en hann
kallar fram. Það stafar hætta af
þeim Nicolette Morrison og Matt-
hew Hugget í byrjun leiks og þau
eru ósköp trúverðug sem elskuleg-
ar ungar manneskjur þrátt fyrir
allt, er eiga sér draum. En ég spyr
mig enn einu sinni á þessum stað af
hverju ég þarf að fara í leikhús til
að horfa á sjónvarpsþátt? Það
finnst mér að Jón Gunnar Ólafsson
ætti að spyrja sig líka, hann virðist
hafa alla burði til að velja sér
áhugaverðari viðfangsefni.
Enn hittast karl og
kona í Silfurtunglinu
LEIKLIST
Austurbær
Danny and the deep blue sea
Eftir John Panick Shanley. Leikstjóri: Jón
Gunnar Þórðarson. Hljóðhönnun: Dúett-
inn Melos: Sindri Þórarinsson og Egill
Antonsson. Leikarar: Nicolette Morrison
og Matthew Hugget
María Kristjánsdóttir
Morgunblaðið/Eyþór
Hættuleg „Það stafar hætta af
þeim Nicolette Morrison og Matt-
hew Hugget í byrjun leiks og þau
eru ósköp trúverðug sem elskuleg-
ar ungar manneskjur þrátt fyrir
allt,“ segir í dómnum.