Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Höfum
kaupendur
Erum með kaupendur að öllum stærðum og gerðum fyrir-
tækja sem mega kosta allt upp í 3-400 milljónir. Margt
kemur til greina. Einnig kaupendur að öllum gerðum lítilla
fyrirtækja. Greiðslur eru oftast staðgreiðsla. Hafið samband
við Reyni Þorgrímsson, sem stofnaði þessa elstu starfandi
fyrirtækjasölu landsins og starfar þar enn. Hann þekkir því
þessi mál betur en flestir aðrir. Gemsinn hans er 896 1810.
Allar upplýsingar í fullum trúnaði.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða
á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG NÁÐI ALDREI AÐ FÁ
HANA TIL ÞESS AÐ HLÆGJA
ÉG SETTI MEIRA AÐ
SEGJA FRANSKAR Í
EYRUN OG SKEIÐ Á
NEFIÐ Á MÉR
ÞESSAR KONUR ERU SVO
DULARFULLAR
ÉG STEND HÉR AÐ BÍÐA
EFTIR SKÓLABÍLNUM...
ELLEFU ÁR EFTIR AÐ
SKÓLANUM SÍÐAN FER ÉG
Í HÁSKÓLA OG SÍÐAN Í
VINNUNA ÞAÐ SEM EFTIR ER!
HVERNIG
HEIMUR ER
ÞETTA! MAÐUR
FÆR BARA 5 ÁR
TIL AÐ VERA
BARN!
HVAÐ MEÐ
AÐ LEIKA SÉR
OG UPPGÖTVA
NÝJA HLUTI?
ÞAÐ ER LÍKA
MIKILVÆGT!
ÞÚ ÁTT
ALLTAF
EFTIR AÐ
HAFA KVÖLD
OG HELGAR
EN ÞÁ
HORFI ÉG Á
SJÓNVARPIÐ
AF HVERJU
ERTU SVONA
SÚR Á SVIPINN
EDDI?
ÞÚ VEIST HVAÐ ÞEIR
SEGJA: „GRÁTTU OG
GRÁTTU EINN, HLÆÐU
OG HEIMURINN HLÆR
MEÐ ÞÉR.“
ÞANNIG AÐ ÞÚ
ÆTTIR BARA AÐ
HLÆGJA AÐEINS!
ALLT Í
LAGI
KENNARINN
ÞINN SKILDI EFTIR
MIÐA Í
EINKUNNABÓKINNI
ÞINNI!
ÞESSI
KENNARI ER
SAMT
EITTHVAÐ
KLIKKAÐUR
HANN SEGIR
AÐ ÉG SÉ
ÆÐI OG AÐ
ÉG ÆTTI AÐ
HVÍLA MIG
HANN SEGIR
AÐ ÞÚ SÉRT MEÐ
HUNDAÆÐI OG AÐ
ÞAÐ ÆTTI AÐ
SVÆFA ÞIG!!
SJÁIÐ KRAKKAR,
ÞARNA ER
HÓTELIÐ OKKAR!
ÞETTA
LÍTUR ÚT
EINS OG
FRUMSKÓGUR
JÁ, ÞAÐ ERU
ÝMIS ÞEMU Í
MÚSAVERÖLD
OG ÞEIR
HALDA SIG
VIÐ ÞAU
Á ÉG AÐ TAKA
TÖSKUNA?
GET ÉG FENGIÐ
AÐ TALA VIÐ
LEIKARANN ÞARNA
ER EKKI Í LAGI
AÐ VIÐ TÖKUM
FYRST UPP
ATRIÐIÐ?
JÚ, EKKERT MÁL, MIG
VANTAR BARA EIGIN-
HANDARÁRITUN FYRIR
STRÁKINN MINN
LÖGGAN HEFUR ÁTTAÐ SIG Á
ÞESSU! ÉG VERÐ AÐ KÁLA
KÓNGULÓNNI FYRR EN ÉG ÆTLAÐI
Sagnfræðingafélag Íslandsbýður til fyrirlestrar í dag,þriðjudag, í fyrirlestrarsalÞjóðminjasafnsins. Fyrir-
lesturinn er hluti af fyrirlestraröð
Sagnfræðingafélagsins í vetur en að
þessu sinni mun Sigrún Sigurðar-
dóttir, sagnfræðingur og menning-
arfræðingur, flytja erindið Munn-
legar heimildir; möguleikar og
sannleiksgildi.
„Ég mun fjalla um munnlegar
heimildir og hvernig notkun þeirra
kallar á að sagnfræðingar takist á
við aðferðafræðilegar spurningar er
varða, til dæmis, sannleikshugtakið
og umgengni við heimildarmenn,“
útskýrir Sigrún sem notar kenning-
ar þýska fræðimannsins Walter
Benjamin sem útgangspunkt í erindi
sínu: „Benjamin skrifaði m.a. grein-
ina „Um söguhugtakið“ þar sem
hann fjallar um hvernig ríkjandi orð-
ræða endurspeglar sögu sigurvegar-
anna og heldur niðri ákveðnum þjóð-
félagshópum.“
Sigrún nefnir að á áttunda og ní-
unda áratugnum hafi aðferðafræði
munnlegrar sögu orðið meira áber-
andi í sagnfræði, meðal annars til að
ná til hópa sem höfðu ekki áður haft
rödd í hinni opinberu sögu, og ekki
skilið eftir sig ritaðar heimildir:
„Nefna má sem gott dæmi tvo stóra
hópa sem munnleg sagnfræði hefur
varpað nýju ljósi á: konur og verka-
menn. Almennt hafa þessir hópar
fólks ekki verið líklegir til að skilja
eftir sig ritaðar heimildir eða hafa
bein áhrif á hvernig opinber saga er
skrifuð. Eins má nefna sögu minni-
hlutahópa, t.d. innflytjenda. Í fyrir-
lestrinum mun ég m.a. fjalla um
sögu innflytjenda á Íslandi og
hvernig saga þeirra lítur út ef hún er
skrifuð út frá sjónarhóli þeirra
sjálfra.“
Í umfjöllun sinni um munnlegar
heimildir leggur Sigrún á það
áherslu að hún telur heimildir skráð-
ar niður eftir viðtölum ekki til munn-
legra heimilda: „Munnleg heimild er
allt það sem sagt er frá, líka þögnin
milli orða, hrynjandi frásagnarinnar,
hlátur eða grátur þess sem segir frá.
Ef munnleg heimild er varðveitt á
myndbandi geta jafnvel svipbrigði
og látbragð myndað mikilvægan
hluta af heimildinni,“ útskýrir Sig-
rún. „Frásögnin sjálf og uppbygging
hennar verður hluti af heimildinni
og öll túlkun þar með afstæð og háð
sjónarhorni hvers og eins. Það
krefst um leið þess að sagnfræð-
ingar hugi að samspili afstæðs sann-
leika og hugmyndum sagnfræðinnar
um algildan sannleika.“
Sigrún mun í fyrirlestri sínum
bæði spila upptökur úr viðtölum,
sýna myndbönd, spila tónlist og sýna
ljósmyndir en nýlega kom út í Kaup-
mannahöfn bók hennar Det
Traumatiske Øjeblik sem fjallaði um
ljósmyndir sem heimildir: „Ég fjalla
um samspil ólíkra heimilda í fyrir-
lestrinum og skoða hvernig ólíkar
heimildir hafa haft mótandi áhrif á
söguskrif og söguvitund. Í fyrirlestr-
inum geri ég ráð fyrir að kalla fram
fjölbreytt viðbrögð hjá áhorfendum
með því að sýna þeim ólíkar heimild-
ir,“ segir Sigrún að lokum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12.05. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Sagnfræði | Fyrirlestur á vegum Sagnfræð-
ingafélagsins í Þjóðminjasafni Íslands í dag
Möguleikar munn-
legra heimilda
Sigrún Sigurð-
ardóttir fæddist í
Reykjavík 1973.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá VÍ
1993, B.A.-prófi í
sagnfræði frá HÍ
1998 og Cand.-
Mag.-prófi í
menningarfræði
og menningarmiðlun frá Kaup-
mannahafnarháskóla 2004. Sigrún
er verkefnisstjóri undirbúnings-
nefndar um stofnun Miðstöðvar
munnlegrar sögu og fagstjóri fræði-
námskeiða við Hönnunar- og arki-
tektúrdeild LHÍ. Sigrún er gift Birni
Þorsteinssyni heimspekingi og eiga
þau dæturnar Snædísi og Matthildi.
Skjótt skipast veður í lofti í lífileikkonunnar Brooke Shields.
Shields fæddi sitt annað barn Grier,
á sjúkrahúsi í Los Angeles fyrr á
þessu ári en sama dag fæddi leik-
konan Katie Holmes dóttur sína
Suri á sama sjúkrahúsi.
Þetta væri þó sennilega ekki í frá-
sögur færandi nema af því að Tom
Cruise, unnusti og barnsfaðir Hol-
mes, gagnrýndi
Shields harðlega
á opinberum vett-
vangi eftir að hún
greindi frá því að
hún hefði tekið
inn þunglyndislyf
eftir fæðingu
eldri dóttur sinn-
ar Rowan árið
2003.
Cruise bað
Shields afsökunar á ummælum sín-
um og nú hefur Shields greint frá
því að þær Holmes séu vinkonur.
Fólk folk@mbl.is