Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðvestlæg átt,
3–8 m/s. Él eða
skúrir vestan til,
annars þurrt og
bjart með köflum. Vægt
frost norðan- og aust-
anlands. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
Löggilt menntun klæðskera og kjólameistara tryggir viðskipta-
vinum faglega ráðgjöf og þjónustu í hönnun, sérsaum og
framleiðslu á hverskyns fatnaði til daglegra nota, samkvæmis-
fatnaði, brúðarkjólum, herrafatnaði, búningum og fleiru.
www.meistarinn.is
þjónusta í boði
Fagleg oglögleg Í Klæðskera- og kjólameistara-félaginu eru hátt í eitt hundraðfélagar og um tuttugu fyrirtæki
og vinnustofur. Merki félagsins
er trygging fyrir þeirri aðild.
Samtök iðnaðarins hvetja
landsmenn að skipta aðeins við
fagfólk með tilskilin réttindi - og
þá er að finna á Meistarinn.is
FERMINGARBÖRN alls staðar að af landinu flæddu
um borg og byggð í gærkvöldi og söfnuðu peningum til
vatnsverkefna á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar í
Mósambík, Malaví og Úganda í Afríku. Þessi hópur
fékk söfnunarbaukana í hendur í Grafarvogskirkju frá
sr. Vigfúsi Þór Árnasyni sóknarpresti.
„Fræðslan sem fer fram í fermingarundirbúningnum
snýst um það hvað það er að vera kristinn. Það að
leggja eitthvað af mörkum og hjálpa öðrum er kjarninn
í boðskapnum,“ segir Anna M. Þ. Ólafsdóttir, fræðslu-
og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
„Krakkarnir hafa ekki svo oft tækifæri til að leggja
eitthvað af mörkum, þess vegna finnst mér þetta svo
mikilvægt. Ekki síst í okkar nútímasamfélagi þar sem
þau eru vön því að fá svo mikið upp í hendurnar.“
Um 3.400 fermingarbörn stunda fermingarundirbún-
ing í vetur hjá 66 prestum. Þetta er í 8. sinn sem þessi
söfnun er haldin, en í fyrra söfnuðust 6,8 milljónir.
„Ég held að það sé mjög mikilvægt að krakkarnir
fari út, þó það sé kannski eitthvað annað sem þau
myndu vilja gera þetta kvöld. Bara það að drífa sig út
og leggja þetta á sig, til þess til dæmis að einhver
munaðarlaus börn fái vatnstank við húsið sitt, er gríð-
arlega mikilvægt,“ segir Anna.
Morgunblaðið/Kristinn
Fermingarbörn söfnuðu fyrir vatni
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
og Bjarna Ólafsson
FRÁ 1. maí, þegar breytingar á
lögum um frjálst flæði vinnuafls frá
átta nýjum aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins tóku gildi, hefur Vinnu-
málastofnun skráð 3.327 manns frá
þessum löndum, þar af eru um 2.447
nýskráningar. Telur stofnunin að
enn eigi eftir að skila sér um 2.000
skráningar, miðað við fjölda útgef-
inna kennitalna hjá Þjóðskrá.
Á síðasta ári komu 2.765 launa-
menn frá nýju aðildarríkjunum, eða
rétt tæp 70% allra sem fengu hér at-
vinnuleyfi, 3.965 manns á síðasta ári.
Telur Vinnumálastofnun að sam-
bærileg heildartala í dag væri um
7.000, að teknu tilliti til vanskráning-
ar samkvæmt Þjóðskrá.
Löndin átta sem um ræðir eru
Pólland, Lettland, Litháen, Eist-
land, Ungverjaland, Tékkland, Slóv-
enía og Slóvakía. Fyrirvari um rétt-
indi þeirra á íslenskum
vinnumarkaði féll úr gildi með laga-
breytingu sl. vor. Breytingin leiddi
til þess að fólk frá þessum löndum
þarf ekki lengur atvinnuleyfi til að
starfa á íslenskum vinnumarkaði.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segist telja flæði
vinnuafls frá löndunum átta meira
en menn hafi átt von á. Hann telur
fólkið allt fá vinnu en nauðsynlegt sé
að efla íslenskukennslu.
Lýsa vonbrigðum
Þá lýstu í gær ungliðar allra
stjórnmálaflokka utan Frjálslynda
flokksins, auk Frjálshyggjufélags-
ins, Stúdentaráðs, Vöku, Röskvu og
nokkurra vefrita, vonbrigðum með
það sem kallað er í tilkynningu
„ákvörðun nokkurra forystumanna í
Frjálslynda flokknum að ala á trúar-
bragðafordómum og tortryggni í
garð útlendinga til að auka fylgi
flokks síns.“
Meira flæði | 10–11 og miðopna
Um sjö þúsund útlend-
ingar til starfa í ár
Ungliðar mótmæla málflutningi forystumanna Frjálslynda flokksins
Björgvin G. Sigurðsson alþing-
ismaður sigraði nokkuð örugglega
í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi sem fram fór um
helgina en talning fór fram í gær.
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður
náði öðru sætinu en fáum atkvæð-
um munaði á honum og Ragnheiði
Hergeirsdóttur í það sæti. Róbert
Marshall hreppti þriðja sætið,
Ragnheiður varð í því fjórða og í
fimmta sæti varð Jón Gunnarsson
alþingismaður. Vegna kynjakvóta
fer Jón niður í það sjötta en Guðrún
Erlingsdóttir flyst upp um eitt. | 11
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Sigraði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir óskar Björgvini til hamingju.
Björgvin í
fyrsta sæti
AÐFARANÓTT laugardags lést
tuttugu og fjögurra ára gömul kona
eftir að hafa tekið inn e-töflu, en
ekki er vitað til þess að dauðsfall af
þeim sökum hafi áður átt sér stað
hér á landi. Talið er að konan hafi
keypt töfluna af óþekktum aðila,
sennilega á föstudagskvöld. Þá voru
tveir ungir menn fluttir alvarlega
veikir á sjúkrahús á sunnudags-
morgun og höfðu þeir sömuleiðis
tekið inn e-töflur.
Í ljósi þessara atburða telur lög-
reglan rétt að vara sérstaklega við
notkun e-taflna.
Neyslan fer vaxandi
Sigurbjörn Víðir Eggertsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn sagði í
samtali við Morgunblaðið að rann-
sókn málanna héldi áfram en að svo
stöddu væri ekki hægt að gefa frek-
ari upplýsingar.
Að sögn Valgerðar Rúnarsdóttur,
læknis hjá SÁÁ á Vogi, eru dauðs-
föll eftir neyslu e-taflna þekkt fyr-
irbæri erlendis. Aðspurð segist hún
ekki muna eftir því að neysla tafln-
anna hafi áður leitt til dauða hér-
lendis, nema þá hugsanlega með
óbeinum hætti í formi sjálfsvíga.
Valgerður segir neyslu e-taflna fara
vaxandi.
Bendir hún máli sínu til stuðn-
ings á að 40% þeirra 1.800 ein-
staklinga sem leituðu aðstoðar hjá
Vogi á síðasta ári hafi notað örv-
andi efni, en e-taflan telst til slíkra
efna. Segir hún langflesta neytend-
ur e-taflna vera ungt fólk undir tví-
tugu.
Sviplegt lát
ungrar konu
Lögreglan varar sérstaklega við notk-
un e-taflna í ljósi atburða helgarinnar
Í HNOTSKURN
» E-töflufaraldurinn breidd-ist út á árunum 1995–96,
en eftir að fréttir bárust af
dauðsföllum erlendis dróst
neyslan saman um tíma.
» Frá 1999 hefur neysla e-taflna hins vegar aukist ár
frá ári.
GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, segir að í umræðum á Alþingi í apríl sem leið
hafi þingflokkurinn tekið þá afstöðu að nýta bæri fyr-
irvarana um frjálst flæði vinnuafls frá nýjum aðild-
arríkjum Evrópusambandsins og fresta gildistöku lag-
anna til 2009 eða með sérstökum rökstuðningi til 2011.
Að sögn Guðjóns óttuðust þingmenn flokksins flóð er-
lends vinnuafls eftir 1. maí og það hefði gengið eftir.
Guðjón segir að hann sé ekki að dæma fólkið sem komi
til landsins, heldur benda á vandamálin sem fylgi frjálsu
flæði vinnuafls, eins og t.d. lægri laun og atvinnuleysi.
Hann segir að komi til atvinnuleysis bitni það á þeim sem
fyrir séu og fólk óttist stöðuna, jafnt útlendingar sem hafi komið hingað fyr-
ir 1. maí og Íslendingar. Síðan megi spyrja hvort Vestur-Evrópuþjóðir geri
fátækari þjóðum Evrópu greiða með því að taka efnilegasta fólkið frá þeim.
Guðjón A.
Kristjánsson
Mikilvægt að stýra flæðinu