Morgunblaðið - 09.11.2006, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
fimmtudagur 9.
11. 2006
viðskipti mbl.is
viðskipti
Fyrirliði mulningsvélarinnar orðinn framkvæmdastjóri » 20
VALDATAFL Í RÚSSLANDI
DANINN JEFFREY P. GALMOND STENDUR Í STRÖNGU EYSTRA
SEGIST FÓRNARLAMB NJÓSNARA OG FJÁRKÚGARA » 14
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
TRYGGINGAR og þá fyrst og
fremst bifreiða- og ábyrgðartrygg-
ingar hafa hækkað umtalsvert það
sem af er árinu og mun meira en sem
nemur hækkun vísitölu neysluverðs.
Margt bendir til þess að verulega
hafi dregið úr verðsamkeppninni á
tryggingamarkaðinum miðað við það
sem áður var og að frekari hækkanir
á iðgjöldum kunni að vera yfirvof-
andi að óbreyttu.
Þetta má einnig lesa úr nýbirtum
uppgjörum bæði Exista, sem á VÍS,
og Tryggingamiðstöðvarinnar en
bæði félög eru skráð í Kauphöll Ís-
lands. Í þeim kemur fram að ið-
gjaldatekjur Tryggingamiðstöðvar-
innar (án norska félagsins Nemi)
hækkuðu um rúm 18% á fyrstu níu
mánuðum ársins og VÍS um ein 15%
en iðgjaldatekjur Sjóvár, sem ekki
er skráð á markað, munu hafa hækk-
að nokkru minna eða um 10% á sama
tímabili. Forsvarsmenn trygginga-
félaganna hafa sagt afkomuna af vá-
tryggingastarfsemi algerlega óvið-
unandi enda hafi afkoma þeirra
undanfarin misseri verið borin uppi
af miklum fjárfestingatekjum, m.a.
vegna mikilla hækkana hlutabréfa
en útilokað sé að sú ávöxtun standist
til lengri tíma.
Tryggingar hafa hækkað
langt umfram almennt verðlag
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands
hækkaði undirvísitöluliðurinn trygg-
ingar um 13,5% á fyrstu níu mán-
uðum ársins, þar af hækkuðu bif-
reiðatryggingar og
ábyrgðartryggingar um 15% en vísi-
tala neysluverðs hækkaði á sama
tíma um 6,3% þannig að hækkun á
tryggingaliðunum er meira en tvö-
falt meiri en hækkun verðlags.
Svör forsvarsmanna stærstu
tryggingafélaganna þriggja ríma
mjög illa við vísitölur Hagstofu Ís-
lands; talsmenn bæði VÍS og Trygg-
ingamiðstöðvarinnar segja tekju-
aukningu af iðgjöldum að langmestu
leyti vera til komna vegna fjölgunar
viðskiptavina en einungis að mjög
litlu leyti vegna hækkunar iðgjalda.
Burtséð frá „eðlilegri aukningu“
vegna fólksfjölgunar eða aðflutts
fólks er þó engu að síður vandséð
hvaðan þessi mikla fjölgun viðskipta-
vina eigi að koma því ekkert trygg-
ingafélaganna fjögurra, sem hér
starfa, kannast við að hafa misst
mikla eða umtalsverða markaðshlut-
deild til keppinautanna. »8
Teikn um minni
samkeppni
Bifreiðatryggingar hækka um 15% á
fyrstu níu mánuðum ársins
LÆKKANIR einkenndu íslensk-
an hlutabréfamarkað í gær en ein-
ungis eitt félag hækkaði í verði,
Flaga um 0,36%. Össur lækkaði um
3,02%, Avion Group um 2,59%,
Landsbankinn 2,35%, Glitnir 2,17%
og Actavis um 2,0%. Úrvalsvísitalan
lækkaði um 1,54% í Kauphöll Ís-
lands í gær og var lokagildi hennar
6.196,01 stig við lokun markaða.
Krónan styrktist hins vegar um
0,17% í gær, samkvæmt upplýs-
ingum frá Glitni. Við upphaf við-
skipta var gengisvísitalan 120,3
stig, en við lokun var hún 120,1.
Velta nam 13,5 milljörðum. Gengi
dollarans er 68,25 krónur, pundsins
130 krónur og evrunnar 87,15.
Almenn lækkun
hlutabréfa í Kaup-
höllinni í gær
MIKIL viðskipti voru með hluta-
bréf Danske Bank í kauphöllinni í
Kaupmannahöfn í gær, m.a. eftir að
orðrómur fór á kreik um að ítalski
bankinn Sanpaulo IMI hefði hug á
að yfirtaka danska bankann. Yfir 7
milljónir hluta skiptu um eigendur í
gær og gengi bréfa bankans hækk-
aði um 3,14%. Að sögn fréttavefjar
Børsens vildu talsmenn Danske
Bank hvorki tjá sig um orðróminn
né hlutabréfaviðskiptin í gær. Bør-
sen hefur eftir verðbréfamiðlara,
að franski bankinn Credit Agricole
hafi keypt um helming hlutabréf-
anna sem skiptu um eigendur.
Ítalskur banki
orðaður við
Danske Bank
Morgunblaðið/Ómar
Umbreytingar Mikill samfelldur hagvöxtur hefur verið á Spáni í meira en
áratug og er landið nú áttunda stærsta hagkerfi heimsins. » 12
fimmtudagur 9. 11. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Michel Platini vill breytingar á meistaradeildinni >> 3
HAUKAR MÁTTLITLIR
BARNINGUR OG DÓMARARÖFL Í VIÐUREIGN
GRANNLIÐANNA ÚR KÓPAVOGI OG HAFNARFIRÐI >> 4
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Emil er samningsbundinn Totten-
ham en hann gekk í raðir Lundúnar-
liðsins frá FH um áramótin 2004-05
og gerði tveggja og hálfs árs samn-
ing við félagið. Hann lék fyrsta árið
með varaliði Tottenham en var í jan-
úar á þessu ári lánaður til Malmö og
lék með liðinu út leiktíðina en láns-
samningurinn rann út um síðustu
helgi.
Emil þótti standa sig afar vel með
Malmö og óskuðu forráðamenn
sænska liðsins eftir því við Totten-
ham að þeir vildu kaupa hann en
Emil ljáði ekki máls á að vera um
kyrrt hjá félaginu.
Ætla að láta á það reyna hvort
ég eigi möguleika
„Ég á að vera mættur á æfingu hjá
Tottenham innan tveggja vikna að
því er yfirmaður knattspyrnumála
hjá Tottenham tjáði mér í vikunni,“
sagði Emil við Morgunblaðið í gær
en hann er staddur hér á landi í
stuttu fríi.
„Ég ætla láta á það reyna hvort ég
eigi einhvern möguleika hjá Totten-
ham. Það er búið að ganga mjög vel
hjá mér persónulega undanfarna
mánuði og ég mæti til Englands
reynslunni ríkari og í fínu formi. Ég
hafði mjög gott að því að fara til
Malmö og ég held að það sé ekki
spurning að ég hef bætt mig mikið
með því að fá að spila svona mikið.
Forráðamenn Malmö vildu ólmir
halda mér og sögðust allt vilja fyrir
mig gera en ég sagði þeim að ég vildi
fara aftur til Englands þar sem
mekka fótboltans er. Tottenham er
stór og sterkur klúbbur og ef maður
fær tækifæri og nýtir það þá veit
maður aldrei hvað gerist,“ sagði Em-
il sem hefur stimplað sig vel inn í ís-
lenska landsliðið en hann átti mjög
góðan leik gegn Svíum á dögunum í
sínum fimmta landsleik.
Emil, sem var í banni um síðustu
helgi þegar Malmö tapaði fyrir AIK,
3:0, í lokaumferðinni, lék alls 19 leiki
með liðinu í sænsku úrvalsdeildinni
og skoraði 5 mörk en Malmö hafnaði
í 7. sæti.
Emil aftur
til Tottenham
LANDSLIÐSMAÐURINN Emil
Hallfreðsson hefur leikið sinn síð-
asta leik með sænska úrvalsdeild-
arliðinu Malmö og ætlar að freista
gæfunnar á nýjan leik með enska
úrvalsdeildarliðinu Tottenham.
Hættur hjá sænska liðinu Malmö sem
vildi kaupa hann frá Tottenham
Emil Hallfreðsson.
VEGNA gríðarlegrar úrkomu
á Spáni verða breytingar
gerðar á keppnisdagskrá
lokaúrtökumótsins fyrir Evr-
ópumótaröðina í golfi. Birgir
Leifur Hafþórsson úr GKG
mun leika á lokaúrtökumótinu
á San Roque-vellinum í Cadiz
en ekki verður hægt að leika á
gamla hluta vallarins fyrr en
eftir næstu helgi. Forsvars-
menn mótsins hafa því ákveð-
ið að lengja keppnisdagskrá
mótsins um tvo daga. Um síð-
ustu helgi var gríðarleg úr-
koma á þessu svæði og
skemmdust 12., 13. og 15.
braut gamla vallarins töluvert
og verður hann ekki notaður í
fyrstu tveimur umferðum
keppninnar.
Fyrstu tvær umferðir
mótsins verða því leiknar á
fjórum dögum en keppni hófst
í morgun. Birgir Leifur hefur
ekki leik fyrr en á morgun
föstudag og leikur síðan aftur
á sunnudaginn.
Á mánudag verður gamli
völlurinn tekinn í notkun að
nýju og þá verður keppnis-
haldið komið í eðlilegt horf.
Alls eru 167 kylfingar sem
hefja leik en að loknum 72 hol-
um á þriðjudag í næstu viku
verður keppendum fækkað í
70. Þeir fá tækifæri til að leika
tvo hringi til viðbótar á mið-
vikudag og fimmtudag.
Keppni lýkur 16. nóvember og
fá 30 efstu keppnisrétt á Evr-
ópumótaröðinni á næsta ári.
Votviðri setur strik í
reikninginn hjá Birgi
ÍSLANDSMEISTARAR
Hauka í körfuknattleik
kvenna hefja í kvöld þátttöku
í Evrópukeppninni. Haukarn-
ir taka á móti spænska liðinu
Caja Canarias á Ásvöllun en
liðin áttust einnig við í keppn-
inni í fyrra og léku fyrsta
Evrópuleikinn í kvennaflokki
á Íslandi frá upphafi. Caja
Canarias hafði betur í báðum
viðureignunum, 58:97 á Ás-
völlum og 95:51 á Kanaríeyj-
um. Það má reikna með þung-
um róðri hjá Haukum, sem
hafa unnið alla fjóra leiki sína
á Íslandsmótinu. „Við ætlum
að reyna að gera eins vel og
við getum en auðvitað gerum
við okkur grein fyrir því að
mótherjarnir í Evrópukeppn-
inni eru sterkir. Ég tel að lið-
ið okkar í dag sé betra en í
fyrra og reynslan sem stelp-
urnar fengu með þátttökunni
á síðustu leiktíð mun örugg-
lega hjálpa þeim,“ sagði
Ágúst Björgvinsson, þjálfari
Hauka, við Morgunblaðið.
Ágúst segir að lið Cran Can-
aria sé með tvo bandaríska
leikmenn sem eru betri en
þeir sem voru með því í fyrra
en þær Ashley Battle og Kaa-
lya Chones, sem leika með
liðinu, spiluðu báðar í
WNBA-deildinni í sumar.
„Mínar stelpur bættu sig
gríðarlega í keppninni í fyrra
og ég vona að sama verði upp
á teningnum í ár. Þær ætla að
selja sig dýrt.“
Þungur róður hjá Hauk-
um gegn Caja Canaria
Reuters
Gleði Michael Essien og Didier Drogba voru báðir á skotskónum fyrir Englandmeistara Chelsea í gærkvöldi þeg-
ar þeir burstuðu Aston Villa, 4:0, í deildabikarnum. Hér fagna þeir saman markinu sem Essien skoraði.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 32
Veður 8 Viðhorf 34
Staksteinar 8 Umræðan 34/39
Úr verinu 10 Bréf 39
Erlent 16/17 Minningar 44/48
Höfuðborgin 18/20 Brids 51
Höfuðborgin 22 Myndasögur 57
Austurland 23 Dagbók 58/61
Akureyri 23 Staður og stund 58
Landið 23 Leikhús 54
Daglegt líf 24 Bíó 58/61
Menning 26, 54/57 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
DeCode, móðurfélag Íslenskrar
erfðagreiningar, tapaði 62,2 millj-
ónum Bandaríkjadala (4,2 millj-
örðum ÍKR) fyrstu níu mánuði árs-
ins. Á sama tímabili í fyrra var tap
félagsins 41,6 milljónir Bandaríkja-
dala. Félagið skýrir aukið tap m.a.
með hærri kostnaði við lyfjarann-
sóknir og -þróun. » Forsíða
Hugmyndir um breytt skipulag
Háskóla Íslands verða kynntar á há-
skólafundi 17. nóvember. Í stað 11
háskóladeilda komi 5–7 skólar sem
hver um sig innihaldi deildir. Meira
samræmi yrði í nemendafjölda skól-
anna en er milli núverandi há-
skóladeilda. » Baksíða
Óánægja ríkir hjá starfsfólki
Miðstöðvar mæðraverndar með
breytt skipulag sem tekur gildi 24.
nóvember nk. Þá eiga konur með
áhættuþætti á meðgöngu að sækja
mæðravernd á Landspítala í stað
miðstöðvarinnar. » 4
Erlent
George W. Bush Bandaríkja-
forseti lýsti í gær yfir persónulegri
ábyrgð á ósigri repúblikana í þing-
kosningunum í fyrradag og tilkynnti
við sama tækifæri að Donald Rums-
feld varnarmálaráðherra viki fyrir
Robert Gates, fyrrverandi forstjóra
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA.
» Forsíða
Pólitíski pendúllinn í bandarísk-
um stjórnmálum færðist aftur til
vinstri í kosningunum í fyrradag, 12
árum eftir að repúblikanar fengu
meirihluta á þinginu. » 32
Demókratinn Keith Ellison var
kjörinn þingmaður í fulltrúadeild-
inni fyrir Minnesota og er hann
fyrsti músliminn sem sest á Banda-
ríkjaþing. Deval Patrick var kjörinn
ríkisstjóri í Massachusetts og er
hann fyrsti blökkumaðurinn til að
gegna embættinu í ríkinu. » 16
Að minnsta kosti 23 Palest-
ínumenn týndu lífi og á fimmta tug
særðist í aðgerðum Ísraelshers á
Gazasvæðinu í gær. » 17
Vísbendingar eru um að dregið
hafi úr verðsamkeppni á trygg-
ingamarkaði á undanförnum mán-
uðum. Talsmaður neytenda telur
ekki eðlilegt í samkeppnisumhverfi
að verð vöru eða þjónustu hækki
sjálfkrafa í samræmi við breytingar
á vísitölu. » Viðskipti
FILIPPUS Hannesson býr nú einn á Núps-
stað. Hann verður 97 ára í næsta mánuði og
fer allra sinna ferða af bæ akandi á eigin bíl.
Það vekur athygli sveitunga hans þegar
hann kemur á glansandi Subaru. Var haft á
orði að bíllinn væri svo glæsilegur að hann
hlyti að vera mjög nýlegur. Filippus var
spurður hvort hann hefði verið að endurnýja
bílinn?
„Nei, bíllinn minn er orðinn sex ára, en
hann er alltaf eins og nýr,“ sagði Filippus.
Ertu einn á Núpsstað núna?
„Já, já. Svona eru sveitirnar farnar. Gott á
meðan einn tórir því bæirnir eru bara mann-
lausir allt of margir.“
Bara ein skepna á bænum
En ertu með skepnur?
„Bara eina. Sjálfan mig,“ svaraði Filippus
og hló.
Þú vílar ekkert fyrir þér að aka?
„Nei, nei. Vegirnir eru góðir.“
Ferðu í langa bíltúra?
„Það er nokkuð síðan ég fór til Reykjavík-
ur. Ætli sé ekki komið á annað ár síðan.“
En þú ekur innan sveitar og í kaupstað?
„Auðvitað, annars færi maður í svelti.“
Filippus nefndi að sér þætti veðráttan
hafa breyst mikið í áranna rás. „Hún er ekk-
ert svipuð. Svo mörgum sinnum betri en hún
var. Það er ekki samjöfnuður á því,“ sagði
Filippus. Hann segir að mest muni um að
norðanáttin sé nær horfin.
„Það er rétt að kemur smágusa að norðan,
svo er óðara komið í logn. Áður lá hann vik-
um og mánuðum saman í norðanátt.“
Og þá kaldri norðanátt?
„Heldur betur, en nú er bara hlýtt þó hann
sé á norðan. Enda er nú allur ís að hverfa.“
Systkinin á Núpsstað, börn Hannesar
Jónssonar landpósts og Þórönnu Þórarins-
dóttur, voru tíu. Fimm þeirra eru á lífi, Mar-
grét, f. 1904; Filippus, f. 1909; Jón, f. 1913;
Jóna, f. 1924; og Ágústa, f. 1930.
Veðráttan er miklu betri
Filippus Hannesson á Núpsstað, tæpra 97 ára, fer allra sinna ferða á eigin bíl
Morgunblaðið/RAX
Systkini Filippus er að verða 97 ára. Hér er hann
með Margréti systur sinni sem er 102 ára.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
REKSTRARKOSTNAÐUR ís-
lenska lífeyrissjóðakerfisins nam
rúmum 2,7 milljörðum króna í fyrra
og hækkaði um tæpar 300 milljónir
króna milli ára eða 11,5%.
Rekstrarkostnaðurinn hefur
hækkað jafnt og þétt undanfarin ár.
Þannig hækkaði hann um 15% milli
áranna 2003 og 2004 og hækkunin
milli 2003 og 2002 nam 13%. Samtals
hefur kostnaður við rekstur kerfis-
ins hækkað um tæpar 1.100 milljónir
króna á undanförnum fjórum árum
frá árinu 2001 þegar rekstrarkostn-
aðurinn nam 1.659 milljónum króna.
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða
er færður á tveimur stöðum í reikn-
ingum þeirra. Annars vegar er um að
ræða beinan rekstrarkostnað sem
nam 1.589 milljónum króna í fyrra og
hækkaði um 130 milljónir kr. milli
ára eða 9%. Hins vegar er um að
ræða rekstrarkostnað sem færður er
sem hluti fjárfestingargjalda. Þessi
kostnaður nam 1.152 milljónum
króna í fyrra og hækkaði úr 1.001
milljón króna árið 2004 eða rúm 15%.
Regluleg iðgjöld til lífeyrissjóð-
anna námu tæpum 70 milljörðum
króna í fyrra. Rekstrarkostnaður
sjóðanna sem hlutfall af iðgjöldum til
þeirra nam 3,9% og lækkar talsvert
milli ára, en þetta hlutfall var 4,3% á
árinu 2004.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af
eignum lækkar einnig milli ára og
nemur 0,22% í fyrra samanborið við
0,25% árið 2004, en eignir lífeyris-
sjóðakerfisins um síðustu áramót
námu tæpum 1.220 milljörðum
króna.
2,7 milljarðar í rekstur
lífeyrissjóðanna í fyrra
!
MARGIR samglöddust Guðbjörgu Kristjánsdóttur á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði
þegar hún hélt upp á aldarafmæli sitt í gær. Meðal af-
mælisgesta voru tvær starfsstúlkur á Hulduhlíð sem
báðar eru nýbúnar að fæða og því í barneignarfríi. Þær
komu með börnin sín að óska Guðbjörgu til hamingju
með daginn. Munar rétt tæpri öld á aldri afmælisbarns-
ins og hvítvoðunganna. F.v.: Edda Dóra Helgadóttir,
óskírður Ingvarsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, óskírð
Andrésdóttir og Þórhildur Tómasdóttir.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Nær 100 ára aldursmunur
„ÞETTA eru aðallega útfærsluatriði
sem eftir er að klára og skýrist innan
skamms hvort samkomulag næst,“
segir Sigurður Eyþórsson, formaður
nefndar um lagaumhverfi stjórn-
málaflokka, sem vinnur að því um
þessar mundir að kynna formönnum
stjórnmálaflokkanna þær tillögur
sem nefndin fjallar um. „Þeir hafa
yfirleitt tekið þessu vel en hafa sett
fram athugasemdir sem við erum að
reyna að vinna úr.“
Í nefndinni hefur m.a. verið rætt
um fjárreiður flokkanna og reikna
má með að einhverjar breytingar
verði á lögum um bókhald stjórn-
málaflokka í kjölfarið.
Sigurður segir horfur á samkomu-
lagi góðar en þetta séu tillögur sem
komi öllum flokkum við og því verði
að vinna þetta í sátt og það geti tekið
sinn tíma. Hann segir að þegar sátt
náist verði skilað skýrslu til forsætis-
ráðherra, ásamt tillögunum, og í
framhaldi muni þingið taka á málinu.
Góðar líkur
á sátt flokka
Kynningar – Miðbæjarpósturinn
fylgir Morgunblaðinu í dag.