Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 53
menning
! "#$#%&
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sérhæð við Landakotstún
eða nágrenni óskast
Traustur kaupandi óskast eftir 140-160 fm sérhæð á
framangreindu svæði.
Staðgreiðsla í boði fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Jólahreingerning
30% afsláttur af
öllum vörum*
Póstsendum
*nema kjólum
2.000 kr. slá:
Kjólar, pils, úlpur o.m.fl.
1.000 kr. slá:
Peysur, gallabuxur, kjólar við
buxur, toppar og fleira og fleira
Stundum hvolfist skyndilega yf-ir mann löngun til þess aðfara út úr húsi að kvöldlagi –
hlusta á góða tónlist og fá sér
kannski eins og eitt rauðvínsglas.
Oftast nær á rúmhelgum dögum, því
þessi iðja er varla í boði um helgar
nema með of miklu fylgiáreiti. Það
er yfirleitt hægt að láta þetta eftir
sér. Framboð af slíkri afþreyingu er
til staðar og hefur aukist ef eitthvað
er.
Múlinn er eini virki og starfandidjassklúbburinn á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem hægt er að
ganga að tónleikum vísum á hverju
fimmtudagskvöldi.
Múlinn, sem heitir í höfuðið á út-
varpsmanninum geðþekka, Jóni
Múla Árnasyni, sem um áratuga
skeið uppfræddi þjóðina og skemmti
með djassþáttum á RÚV, hefur víða
haft aðsetur í miðborginni. Það er
fagnaðarefni að búið sé að finna
Múlanum stað í miðborginni sem
vonandi verður framtíðaraðsetur
hans. Og þetta er staður sem talsvert
hefur verið lagt í og þar sem hægt er
að láta sér líða vel.
Það eru tveir íslenskir athafna-menn sem reka nýja veitinga-
staðinn þar sem Múlinn er til húsa.
Staðurinn heitir Domo og er í Þing-
holtsstræti og athafnamennirnir eru
Kormákur Geirharðsson og Skjöld-
ur Sigurjónsson, sem þekktir eru
fyrir rekstur Ölstofunnar og herra-
fataverslunar Kormáks og Skjaldar
sem aðallega verslaði með fremur
sérviskulegan en vandaðan klæðnað.
Domo er á tveimur hæðum. Á
þeirri efri verður opnaður matsölu-
staður í næsta mánuði og þar verður
línan asísk-franskur bræðingur og
innangengt verður niður í kjall-
arann sem tekur nálægt 100manns í
sæti. Fyrir miðjum salnum, niðri í
nokkurs konar gryfju, er svið og
þótt innanstokksmunir séu úr harð-
viði og lítið um pluss og skraut er
hljómburðurinn hinn þokkalegasti.
Það er afslappað andrúmsloft á
staðnum og óvenjuvítt til veggja fyr-
ir djassklúbb. En Domo er miklu
meira en djassklúbbur þótt stað-
urinn hýsi Múlann. Þarna er ætlunin
að halda útgáfutónleika af marg-
víslegu tagi og jafnframt verður
staðurinn vettvangur þeirra sem
ekki ennþá hafa gefið út tónlist en
hafa ástríðu fyrir henni.
Margir þekkja það frá veit-ingastöðum í Evrópu að geta
snætt ljúfan málsverð og notið síðan
góðrar tónlistar á sama stað. Svona
er t.d. einn þekktasti djassklúbbur
Englands, Ronnie Scott’s, upp-
byggður, nema hvað þar er hægt að
matast inni á sjálfum tónleikastaðn-
um. Hjá Domo verður snætt á efri
hæðinni og síðan geta matargestir
farið niður um stiga niður í kjall-
arann þar sem tónlistin verður. Um
helgar ráða síðan diskaþeytarar að
ríkjum, en ætlunin er þó að hafa tón-
listina fremur lágstemmda þannig
að gestir geti haft samskipti sín á
milli eftir sem áður.
Þótt djassinn verði fyrirferð-armikill á Domo ætla Kormák-
ur og Skjöldur að bjóða upp á ýmsar
aðrar tónlistarstefnur. Á mið-
vikudögum verður t.a.m. FTT og
FÍH með staðinn fyrir sig og þar
geta þeir sem hafa eitthvað til tón-
listarmálanna að leggja spreytt sig
og kvöldið endar svo á djamsession.
Á fimmtudagskvöldum er síðan Múl-
inn málið. Í kvöld verða t.a.m. fimm
ára afmælistónleikar B3. Agnar Már
Magnússon, Ásgeir Ásgeirsson og
Erik Qvick leika þá frumsamið efni
og lög eftir Wes Montgomery og
Hammond-leikarana Larry Goldings
og Jimmy Smith. Annað kvöld stígur
síðan Egill Ólafsson á stokk og kynn-
ir nýútkomna plötu sína, Miskunn
dalfiskanna og á miðnætti flytur
salsasveit Tómasar R. Einarssonar
tónlist á nýútkomnum diski sem kall-
ast Romm Tomm Tomm. Ganga má
út frá því sem vísu að þar verður
feikilegt stuð enda sveitin þétt og
traust í suðrænni sveiflu.
Þar með er ekki allt talið því fram
til jóla eru sjö fimmtudagskvöld til
viðbótar. Eiríkur Orri Ólafsson
trompetleikari hefur sett saman
kvintett sem flytur frumsamda tón-
list, Jazz sendiboðar Eriks Qvick
boða fagnaðarerindið, A.S.A tríóið
flytur Monk og gæðatrommarinn
Scott McLemore fyrir eigin tríói í
desember. Síðustu tónleikar á árinu
í Múlanum verða útgáfutónleikar á
nýjum geisladiski Jóels Pálssonar,
Varpi. Framundan er því gleðilegur
djassvetur með góðgæti í nýjum
húsakynnum.
Djass og matur á Domo
»Hjá Domo verðursnætt á efri hæðinni
og síðan geta matargestir
farið niður í kjallarann
þar sem tónlistin verður
Sveifla Domo í Þingholtsstræti er vettvangur djassins. Þar leika í kvöld
tríóið B3, Ásgeir Ásgeirsson, Erik Qvick og Agnar Már Magnússon.
gugu@mbl.is
AF LISTUM
Guðjón Guðmundsson