Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞETTA VAR SLÆMT, GRETTIR HÚN REYNDI AÐ KEYRA YFIR MIG Á BÍLNUM SÍNUM SEM BETUR FER ERU FLUTNINGABÍLAR EKKERT SÉRSTAKLEGA MEÐFÆRILEGIR ÞÚ KANNT SKO AÐ VELJA ÞÆR ÉG VAR AÐ BÚA TIL LÍMONAÐI, SNOOPY... OG ÞÚ FÆRÐ AÐ SMAKKA FYRSTUR! ALLT Í LAGI, ÉG SKAL SETJA MEIRI SYKUR ÞESSAR LEIÐBEIN- INGAR ERU Á ÞREMUR TUNGU- MÁLUM! Æ, NEI! ÉG ER MEÐ LÍM Á HÖNDUNUM ÞÆR ER FYRST Á ÍSLENSKU, SÍÐAN FRÖNSKU OG ENDA Á FINNSKU ÞETTA LÍM LÍTUR ÚT EINS OG BRÁÐINN OSTUR ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞETTA SÉ FYRIR SEX ÁRA OG ELDRI ÞETTA ER MEIRI VIÐBJÓÐ- URINN MAÐUR ÞARF AÐ TALA ÞRJÚ TUNGU- MÁL TIL ÞESS AÐ LESA ÞETTA ÉG VONA AÐ MÖMMU FINNST ÞETTA DAGBLAÐ FLOTT, ÞVÍ ÞAÐ ER EKKI AÐ FARA AÐ LOSNA AF GÓLFINU ÉG BYRJAÐI Á ÞVÍ AÐ GERA STÓR MISTÖK... ÉG SETTI KONUNA MÍNA Á ALLT OF HÁAN STALL! OG MÉR HEFUR VERIÐ ILLT Í BAKINU SÍÐAN ATLI, ÞÚ VEIST EKKI HVAÐ ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA Í HLÝÐNISSKÓLA FYRST LÁTA ÞAU ÞIG LEGGJAST NIÐUR SÍÐAN LÁTA ÞAU ÞIG STANDA KJURANN Í TÍU MÍNÚTUR ÁN ÞESS AÐ HREYFA ÞIG!! ÉG VEIT EKKI AF HVERJU ÉG ER AÐ TALA VIÐ KÖTT SJÁIÐ! ÞARNA ER HVÍTA-VATNSGIL! ÉG HEF HEYRT AÐ ÞAÐ SÉ EKKERT SMÁ SKEMMTILEGT TÆKI! EIGUM VIÐ AÐ FARA? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI. ÉG ER EKKI VISS UM AÐ ÉG ÞOLI ÞAÐ ÞAÐ LÍTUR EKKERT HRÆÐILEGA ÚT! ÉG VAR AÐ TALA UM RÖÐINA EFTIR ÞETTA ATRIÐI ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ FINNA FANGA NASHYRNINGSINS OG FRELSA ÞÁ EN HVAÐ MEÐ MARÐA RIFIÐ ÞITT? ÞAÐ ER ALLT Í LAGI MEÐ MIG ÉG HEF NÁÐ HONUM ÁÐUR OG ÉG GET GERT ÞAÐ AFTUR HANN Á EKKI MÖGULEIKA Á AÐ SIGRA MIG Félag háskólakennara ogFélag prófessora við Há-skóla Íslands standa fyrirmálþingi um akademískt frelsi næstkomandi föstudag, 10. nóvember. Málþingið er haldið í Öskju – náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, og hefst kl. 13.30. Gísli Sigurðsson er formaður fé- lags háskólakennara: „Akademískt frelsi er forsenda fyrir því að rann- sóknir dafni og einn af hornsteinum starfs Háskóla Íslands er að fólk sem ráðið er til rannsókna ráði sjálft hvaða viðfangsefni á að rannsaka hverju sinni og að fjármögnun hafi ekki áhrif á aðferðir eða nið- urstöður,“ segir Gísli spurður um til- efni málfundarins. „Á Íslandi hefur verið byggt upp fjármögnunarkerfi fyrir rannsóknir með svokölluðum samkeppnissjóðum þar sem reynt er að tryggja hlutleysi með umsókn- arferli sem byggist á jafningjamati. Á málþinginu ætlum við að ræða þau vandamál sem tengjast þessu fyr- irkomulagi og sömuleiðis fjalla um það vandamál sem fylgir styrkja- sjóðum sem gera þá kröfu til um- sækjenda að rannsóknir séu á til- teknu sviði, fyrirfram afmörkuðu af sjóðnum, eins og algengt er með marga rannsóknarsjóði Evrópusam- bandsins.“ Gísli nefnir að jafningjamat sam- keppnissjóða geti stuðlað að íhalds- semi í styrkveitingum: „Þeir sem sitja í úrskurðarnefndum eru iðu- lega eldri vísindamenn sem fengið hafa viðurkenningu fræðasamfélags- ins og haft mótandi áhrif á ríkjandi stefnu í fræðunum. Hættan er sú að umsækjendur sem koma fram með nýjar hugmyndir, sem ganga þvert á þær aðferðir sem fyrir eru, geti átt erfitt uppdráttar. Kerfið getur því verkað hamlandi á að róttækar vís- indabyltingar komi fram. Eins er mögulegt að þeir sem sitja í úr- skurðarnefndum reynist með einum eða öðrum hætti í faglegri sam- keppni við umsækjendur,“ útskýrir Gísli. „Hins vegar má nefna marga kosti sem fylgja núverandi kerfi, sem ætlað var að auka skilvirkni, láta vísindamenn skilgreina verkefni sín vel fyrirfram og fá faglegt mat á gildi ólíkra verkefna svo að styrkir yrðu veittir á sem bestan hátt.“ Þrír fyrirlesarar taka til máls á ráðstefnunni: Sigurður Erlingsson, formaður Félags prófessora, mun fjalla um umræður um akademískt frelsi á þingi norrænna háskóla- kennara í Stykkishólmi sl. vor. Bente Gullveig Alver, prófessor við Háskólann í Björgvin, mun fjalla um samspil stjórnmála og fjárveitinga, og Þórólfur Þórlindsson, prófessor við HÍ, flytur erindið „Akademískt frelsi og fjármögnun rannsókna.“ Loks verða pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara auk Marð- ar Árnasonar, þingmanns Samfylk- ingar, Sigurðar Kára Kristjáns- sonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, Katrínar Jakobsdóttur, íslensku- fræðings og varaformanns Vinstri- grænna og Eiríks Smára Sigurðs- sonar, deildarstjóra vísindasviðs Rannís. Fundarstjóri er Annette Lassen og umræðustjóri Ævar Kjartansson. Rannsóknir | Opið málþing um stöðu aka- demísks frelsis á Íslandi á föstudag kl. 13.30 Er akademísku frelsi ógnað?  Gísli Sigurðs- son fæddist í Reykjavík 1959. Hann lauk stúd- entsprófi frá MS 1978, BA-prófi í íslensku og bók- menntafræði frá HÍ 1983, M.phil.- prófi frá Uni- versity College Dublin 1986 og doktorsprófi í íslenskum fornbók- menntum frá HÍ 2002. Gísli var gistidósent við Háskólann í Winni- peg 1988. Árið 1990 hóf Gísli störf sem sérfræðingur við Árnastofnun, og var skipaður vísindamaður, nú rannsóknarprófessor, 2002. Hann hlaut verðlaun Konunglegu Gust- avs Adolfs akademíunnar árið 2004 fyrir bókina The Medieval Icelandic Saga and Oral Tradition. Gísli er kvæntur Guðrúnu Hólmgeirsdóttur og eiga þau tvær dætur. VELGENGNI Latabæjar virðast engin takmörk sett. Smáskífan LazyTown Bing Bang er komin inn á veðmálalista William Hill í Bretlandi sem líkleg til að ná fyrsta sæti á sölulista tónlistar þar í landi fyrir þessi jól. Fyrir hver jól í Bretlandi er mikil spenna fyrir því hvaða lag muni verða númer eitt á tónlistanum, margir listamenn keppa um þetta sæti og veð- mangarar gefa út líkur og taka við veðmálum á hvert lag. Nú hefur smá- skífa Latabæjar komist inn á þennan lista, sem þykir mjög gott. Veðjað á Latabæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.