Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 23
LANDIÐ
Kraftur og reynsla til forystu!
Opnun kosningamiðstöðvar á Egilsstöðum
Verið velkomin í opnun kosningamiðstöðvar
í Níunni, Miðvangi 1-3
í dag, fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20
Arnbjörgu í
1. sætið
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 25. nóvember
www.arnbjorgsveins.is
Eftir Hlyn Þór Magnússon
Reykhólar | Áhugafólk vinnur að
því að koma upp breiðfirsku báta-
safni á Reykhólum við Breiðafjörð.
Helsti frumkvöðullinn er Aðal-
steinn Valdimarsson, roskinn
skipasmiður úr Breiðafjarðareyj-
um, sem hefur verið búsettur á
Reykhólum síðustu árin eftir ævi-
starf í suðlægari héruðum. Um
málið hefur verið stofnað félag sem
heitir því langa nafni Áhuga-
mannafélag um stofnun Bátasafns
Breiðafjarðar á Reykhólum. Fé-
lagsmenn eru búsettir víða en eiga
breiðfirskar rætur.
Hugmyndir um byggingu
Síðustu misserin hafa Aðalsteinn
og félagar hans safnað um tuttugu
gömlum bátum úr Breiðafjarð-
areyjum og héruðunum í kringum
Breiðafjörð og bjargað mörgum
þeirra frá bráðri eyðileggingu. Í
síðasta mánuði var jafnframt byrj-
að á smíði báts sem er nákvæm eft-
irmynd eins af þeim bátum safns-
ins sem tímans tönn hefur leikið
illa. Yfirsmiður er Hafliði Aðal-
steinsson, sonur hins landskunna
bryggjusmiðs hjá Hafnamálastofn-
un, Aðalsteins Aðalsteinssonar úr
Hvallátrum, en eitt af hugðarefn-
um hans var að koma upp breið-
firsku bátasafni. Þeir Hafliði Aðal-
steinsson og áðurnefndur Aðal-
steinn Valdimarsson eru fimmti og
fjórði maður í óslitnum karllegg
breiðfirskra skipasmiða frá Ólafi
Teitssyni skipasmið í Sviðnum á
Breiðafirði.
Auk þess sem á safninu yrðu
gamlir bátar, ýmist uppgerðir eða
misjafnlega lúnir og illa farnir, svo
og eftirmyndir hinna gömlu báta,
yrðu þar verkfæri og vélar allt frá
dögum Ólafs í Sviðnum og til okkar
daga. Einn af þeim merku bátum
sem þegar eru komnir á ný til virð-
ingar á Reykhólum er bringingar-
báturinn Friðþjófur, sem lá á hvolfi
á Miðhúsum í Reykhólasveit í hálfa
öld en Ragnar Jakobsson úr
Reykjarfirði gerði upp fyrir Þjóð-
minjasafnið fyrir nokkrum árum.
Áhugamannafélagið hefur að-
stöðu til bráðabirgða í Mjólkur-
stöðinni gömlu, rétt ofan við þorpið
á Reykhólum, þar sem Hlunninda-
sýningin er einnig til húsa. Á Reyk-
hóladeginum á þessu ári og í fyrra
voru margir hinna gömlu báta til
sýnis en annars eru þeir geymdir á
ýmsum stöðum. Hugmyndin er að
byggja á Reykhólum nýtt hús fyrir
væntanlegt Bátasafn Breiðafjarð-
ar, þá væntanlega í samvinnu við
Reykhólahrepp og fleiri. Þetta hús
yrði byggt við Mjólkurstöðvarhús-
ið gamla og mynduð ein heild úr
þessum byggingum, þar sem aukið
og endurbætt hlunnindasafn og
veitingarekstur yrðu einnig veiga-
miklir þættir.
Fyrirmynd bátsins sem núna er
verið að smíða er fjögurra manna
far sem heitir Björg en hefur jafn-
an gengið undir nafninu Staðar-
skektan. Bát þennan smíðuðu þeir
Ólafur Bergsveinsson skipasmiður
í Hvallátrum og Gísli sonur hans á
öndverðri síðustu öld. Gísli átti bát-
inn og fór með hann upp að Stað á
Reykjanesi, þar sem hann gerðist
ráðsmaður hjá prófastinum. Morg-
un einn haustið 1925 lagði Gísli upp
frá Stað einn á báti sínum í góðu
veðri, sem brátt snerist í útsynn-
ingshryðjur, og ætlaði norður yfir
Þorskafjörð. Bátinn rak litlu síðar
mannlausan við lendinguna á Stað.
„Það eru sjórinn og lungnabólgan
sem drepa okkur frændur,“ sagði
Ólafur skipasmiður faðir hans, sem
þarna missti þriðja son sinn í sjó-
inn. Þannig á hver bátur sína sögu.
Áhugafólk vinnur að uppbyggingu Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum
Bjarga breiðfirskum bátum
Morgunblaðið/Hlynur Þór Magnússon
Frumkvöðlar Eftirmynd Staðarskektunnar í smíðum. Við bátinn eru þrír af frumkvöðlum væntanlegs Báta-
safns Breiðafjarðar, þau Hafliði Aðalsteinsson, Ásdís Thoroddsen og Aðalsteinn Valdimarsson.
Selfoss | Prentmet Suðurlands á Selfossi
hefur ákveðið að styðja við bakið á starf-
semi Ungmennafélags Selfoss með fjár-
framlögum næstu þrjú árin. Á móti skuld-
bindur félagið sig til að beina öllu sínu
prentverki til Prentmets svo fremi að verð
séu samkeppnishæf, segir í tilkynningu.
Stjórnendur félaganna staðfestu sam-
komulag þessa efnis með handabandi: Örn
Guðnason, framkvæmdastjóri ungmenna-
félagsins (t.v.), og Örn Garðarsson, prent-
smiðjustjóri Prentmets.
Prentmet styrkir
UMF Selfoss í 3 ár
Bolungarvík | Bæjarráð Bolungarvíkur
fagnar þeirri ákvörðun heilbrigðis-
ráðherra að fjölga hjúkrunarrýmum á
norðanverðum Vestfjörðum um tíu. Ráðið
telur eðlilegt að þessi rými verði byggð í
Ísafjarðarbæ enda vanti talsvert upp á að
núverandi rými þar geti talist viðunandi.
Bæjarráð óskar eftir því að tekið verði
heildstætt á málefnum eldri borgara á
svæðinu öllu. Jafnframt er vakin athygli á
því að engin sérhæfð þjónusturými fyrir
heilabilaða eru á svæðinu og bent á mögu-
leika í Bolungarvík í því sambandi.
Styðja byggingu
hjúkrunarrýma
AKUREYRI
BÆJARSTJÓRN Akureyrar lagði á
fundi í fyrradag blessun sína yfir
samning sem bæjarstjóri undirritaði
á dögunum um sölu á hlut Akureyrar
í Landsvirkjun. Bæjarstjórn sam-
þykkti samninginn með átta atkvæð-
um gegn þremur. Fundurinn var
sögulegur að því leyti að hann fór
fram í Hrísey í fyrsta skipti.
Bæjarfulltrúar VG, Baldvin H.
Sigurðsson og Kristín Sigfúsdóttir,
létu bóka mótmæli við sölu eignar-
hluta Akureyrarbæjar í Landsvirkj-
un, „þar sem verðið á hlut bæjarins
er af mörgum talið of lágt og meiri-
hlutaflokkarnir á Alþingi hafa báðir
sagt að Landsvirkjun verði seld
einkaaðilum, því má ætla að raforku-
verð landsmanna muni hækka ef fyr-
irtækið verði einkavætt og einnig að
verðgildi Landsvirkjunar muni stór-
hækka á næstu árum. Því teljum við
að Akureyrarbær eigi ekki að selja
hlut bæjarins á þessum tímapunkti.“
Á Hríseyjarfundinum var einnig
samþykkt sú tillaga bæjarráðs að
ráða Karl Guðmundsson í starf bæj-
arritara Akureyrarkaupstaðar, með
átta samhljóða atkvæðum. Kristín
Sigfúsdóttir og Baldvin H. Sigurðs-
son óska bókað að þau leggi áherslu
á að auglýsa eigi störf á vegum Ak-
ureyrarkaupstaðar „og lýsum undr-
un yfir því að störf á vegum stjórn-
sýslunnar hafi ekki verið auglýst að
þessu sinni.“
Þá var samþykkt sú tillaga stjórn-
sýslunefndar að stofna hverfisnefnd
í Hrísey, en lögð áhersla á að um til-
raunaverkefni til þriggja ára er að
ræða.
Fram kom tillaga frá Hermanni
Jóni Tómassyni bæjarfulltrúa um
breytingu á nafninu úr hverfisnefnd í
hverfisráð og var hún samþykkt með
10 samhljóða atkvæðum.
Salan á hlut í Lands-
virkjun samþykkt
Ljósmynd/Ragnar Hólm
Sögulegt Sigrún Stefánsdóttir, Samfylkingunni, sem stjórnaði fundinum
að þessu sinni, og María Egilsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Bæjarstjórn Akur-
eyrar hélt fund í
Hrísey í fyrsta skipti
Í HNOTSKURN
»Fyrsti fundur bæjar-stjórnar Akureyrar í Hrís-
ey var sögulegur; samþykkt
var að selja hlut Akureyrar í
Landsvirkjun og ráðið í nýtt
starf bæjarritara.