Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 24
Rauðspretta og kalkúnaleggir eru meðal þess sem mat- vöruverslanir bjóða á tilboðs- verði fyrir næstu helgi. » 26 neytendur Starfsmenn hjá Þjónustu- miðstöð Reykjavíkurborgar sóttu nýlega námskeiðið Vinnum betur saman. » 30 daglegt líf Helga Sigrún Sigurjónsdóttir kom fyrir skömmu heim úr nokkurra daga gönguferð um eyjuna Sardiníu. » 28 ferðalög Kynhvöt, sjálfsfróun, koss-ar, kelerí, kynörvun,standpína, sjálfsmynd,tilfinningar, fullnæging, kynhneigð, sambönd, samfarir og smokkar er umfjöllunarefni nýs námsefnis, sem Námsgagnastofnun hefur gefið út og ætlað er unglinga- stiginu. Nýja námsefnið fjallar um fé- lagslegar og tilfinningalegar hliðar kynþroskans, en sú nálgun við kyn- fræðsluna átti sér engan stað í skóla- kerfinu fyrr en með námsgreininni lífsleikni, að sögn Ásdísar Olsen, að- junkts í lífsleikni við Kennaraháskóla Íslands. Námsefnið samanstendur af nem- endaheftum í formi tímarita fyrir stráka annars vegar og stelpur hins vegar. Þau innihalda sama efni nema hvað forsíðan er mismunandi og nemendur eru ávarpaðir eftir kyni. Á sérstöku myndbandi, sem er hluti af kennsluefninu, miðlar forfallakenn- ari af gamla skólanum kynfræðsl- unni á gamansaman og hispurs- lausan hátt og missir stundum stjórn á sér í hita leiksins. Handritshöf- undur myndbandsins er eiginmaður Ásdísar, Karl Ágúst Úlfsson. Þá er einnig að finna kennsluleiðbeiningar og foreldraefni á vef Námsgagna- stofnunar. Sjálfsvirðing og ábyrg hegðun Mælt er með því að nemendur fái blöðin til eignar þar sem þeim er ætl- að að svara mörgum af þeim spurn- ingum, sem leita á unglinga í tengslum við kynþroskann. Að sögn Ásdísar má gera ráð fyrir að siðferð- islegir, trúarlegir og menningarlegir þættir hafi áhrif á það hvernig ein- staklingurinn tjáir sig og hegðar sér sem kynvera. „Lögð er áhersla á sjálfsþekkingu og sjálfsábyrgð og markvisst er reynt að gera ungling- inn meðvitaðan um sjálfan sig, um líðan sína og vilja, hugsun og gild- ismat, ótta og óöryggi, hegðun og viðbrögð. Síðast en ekki síst er lagt upp úr sjálfsvirðingu og ábyrgri hegðun.“ Kenndir og hvatir kvikna Að sögn Ásdísar er sérstök áhersla lögð á stelpur sem kynverur og gerendur í kynlífi. „Píkan og þá sérstaklega snípurinn fær sérstaka athygli.“ Áhersla er lögð á sjálf- skoðun og grindarbotnsvöðva. Sjálfsfróun er kennd og rætt er um fullnægingu kvenna. „Þar með sýnist mér að þetta sé í fyrsta sinn sem fjallað er um konur sem kynverur á sama hátt og talað er um pilta sem kynverur, en hingað til hefur verið veruleg kynjaskekkja í þessum mál- um. Tíðahringurinn og móðurlífið er því ekki beint umfjöllunarefnið að þessu sinni heldur er lögð áhersla á að bæði kynin samþykki þennan nýja líkama sinn og læri á hann og þær nýju hvatir og kenndir sem eru að vakna.“ Nýja námsefnið hefur fallið í góðan jarðveg á meðal lífsleiknikenn- ara, en svo verði það bara að koma í ljós hvernig viðtökur það fær. „Ég efast ekki um að þetta efni er áhuga- vert fyrir nemendur, en kennarar þurfa að telja verkefnið verðugt til að það verði tekið inn í skólana. Þetta er ekki skylduefni, en efnið er vel til þess fallið að ryðja brautina fyrir ný- stárlega lífsleiknikennslu. Skiptar skoðanir eru á því hvenær rétt er að hefja kynlífsfræðsluna. Viðvíkjandi þessu nýja námsefni hefur verið mið- að við 8.-bekkinga, það er 13 ára krakka, en að mínu mati mætti færa svona umræður og fræðslu niður um tvö ár eða svo.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ritstjórinn Ásdís Olsen er aðjunkt í lífsleikni við KHÍ. Námsefnið Tvö tímarit, annað ætlað stelpum og hitt strákum, auk kennslumyndbands um kynlífið og kynhvötina. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Horfinn Það getur verið drengjum ákveðið áfall að sjá liminn pinkulítinn eftir að þeir koma upp úr kaldri laug. Ný nálgun á kynfræðsluna Lúsabaninn (e. LouseBuster) nefn-ist nýjasta vopnið í baráttunni viðeinn hvimleiðasta haustgestskólabarna, hárlúsina. Um er að ræða sérhannaða hárþurrku sem ætlað er að þurrka lúsina í hel. Hingað til hefur lúsin mætt örlögum sín- um í rótsterku sjampóbaði en samkvæmt frétt Berlingske tidende verða slík eitur- efni óþörf eftir að Lúsabaninn kemur á markað. Hann blæs örlítið kaldara lofti en venjuleg hárþurrka en sérstakt hrífulaga stykki á enda blástursrörsins tryggir að loftið nái að leika um íverustaði lúsarinnar í hársverðinum. Lúsin er ofurviðkvæm fyrir þurru lofti og þornar upp og drepst í þurrki. Nitin þolir enn síður rakaleysi og sú staðreynd kom að góðum notum við þróun þessa tryllitækis. Lúsugir sjálfboðaliðar Bandaríski líffræðingurinn Dale Clayton á heiðurinn af uppfinningunni. Hann stund- aði rannsóknir á fuglalús og vissi hversu erfitt uppdráttar fuglalúsin á í eyðimerk- urloftslagi sem virtist í hrópandi andstöðu við hversu framúrskarandi vel hárlúsin þreifst í kollinum á hans eigin börnum. Á árunum 2001 til 2005 prófaði Clayton sex mismunandi aðferðir við að blása heitu lofti í hársvörð sem var morandi í lús. Markmiðið var að útrýma óværunni en alls tóku 169 sjálfboðaliðar þátt í tilraununum. Í ljós kom að hrífustykkið var áhrifaríkast því allt að 80% fullvaxinna lúsa drápust við 30 mínútna meðhöndlun með það á enda þurrkunnar. Það dugir til að hindra lúsina í að fjölga sér, sérstaklega þar sem andláts- tíðni nitarinnar er enn hærri. Sem stendur er unnið að því að fá einka- leyfi fyrir Lúsabananum í Bandaríkjunum en búast má við honum í búðarhillur eftir tvö ár. Þangað til er hverjum og einum frjálst að gera eigin tilraunir með hár- þurrkuna á heimatilbúnum „sjálfboðalið- um“ samhliða vikulegum kembingum fyrir framan barnatímann. Loftvopn gegn lúsinni Ekki draugabani Frumgerð Lúsabanans sem þurrkar hárlúsina í hel. daglegtlíf TENGLAR ..................................................... www.nams.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.