Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HVERN gæti grunað að einn
íbúðarbruni geti leyst úr læðingi
um 30 MW orku, eða sem svarar
um 10% af afli Búrfellsvirkjunar?
Þetta er staðreynd sem fæstir geta
ímyndað sér að sögn Björns Karls-
sonar brunamálastjóra. Hann bæt-
ir við að fæstir geri sér heldur
grein fyrir hversu gífurlega hratt
eldur getur breiðst út í venjulegri
íbúð. Hann hefur borið vitni í
dómsmálum í erlendis vegna elds-
voða og hefur brugðið upp ljós-
myndum í dómsal, fyrst af eldi á
byrjunarstigi í einni gardínu og
síðan alelda herberginu. Síðan
spyr hann dóminn hvað hugs-
anlegt sé að þarna líði langur tími
á milli. Oftast giska menn þá á 10–
15 mínútur en staðreyndin er allt
önnur. „Eldur í íbúð getur vaxið
óskaplega hratt,“ segir hann. „Eitt
herbergi með pínulitlum loga í get-
ur orðið alelda á minna en tveim
mínútum með gífurlegum eldi sem
pumpast út um alla íbúð svo einna
helst minnir á náttúruhamfarir.
Þetta gerist miklu hraðar en al-
menningur gerir sér grein fyrir.
Enn fremur er kraftur í eldinum
miklu meiri en fólk getur nokkru
sinni ímyndað sér. Eldtungur í
íbúðarbruna geta myndað 30
megavatta orku þegar mest er.“
Þekkt að hrina eldsvoða
ríði yfir á skömmum tíma
Hver íbúðarbruninn hefur rekið
annan í haust og er eitt mannslát
rakið til þeirra orsaka það sem af
er ári, í Grindavík í lok október sl.
Því til viðbótar liggja hjón alvar-
lega slösuð á gjörgæsludeild eftir
eldsvoðann í Ferjubakka í fyrra-
kvöld, að ógleymdum miklum
íbúðarbruna í Keflavík á mánudag.
Þá er ótalinn alvarlegur bruni á
Húsavík á laugardag. Eldsupptök í
Ferjubakka eru ókunn en rann-
sókn beinist að því hvort kerti eða
vindlingur hafi kveikt í stofusófa.
Hér á landi lætur að meðaltali
einn einstaklingur lífið í brunum
árlega. Björn segir það þekkt að
hrina eldsvoða ríði yfir á skömm-
um tíma en þess á milli gerist lítið.
Nú blasir við að eldsvoðahrina hef-
ur átt sér stað með mjög alvar-
legum afleiðingum en skýringar
þar að lútandi liggja ekki á lausu.
„En þetta er mjög alvarlegt mál
og hugurinn er hjá því fólki sem
lenti í þessum atvikum,“ segir
Björn.
Hann segir að eldsvoðinn í
Ferjubakkanum, og þá aðallega
viðbrögð slökkviliðs, sýni og sanni
að viðbragðið sé mikið og end-
urspegli ágæti þess að hafa sam-
einað slökkviliðin á höfuðborg-
arsvæðinu. Til marks um þetta
nefnir hann þann tíma sem kom
frá fyrsta brunaboði, þar til búið
var að bjarga hjónunum út. 16
mínútur liðu þarna á milli í tilviki
konunnar og 17 hjá manni hennar.
Birgir Finnsson, sviðsstjóri út-
kallssviðs SHS, segir viðbragð
annarra íbúa í stigaganginum hafa
verið hárrétt, með því að fara ekki
út í reykfylltan stigaganginn.
„Fólk fór þess í stað út á svalir eða
út í glugga og það var hin rétta
ákvörðun,“ segir hann. „Þegar
komið er út á svalir þarf að vekja
athygli á sér, sérstaklega þegar
lögregla og slökkvilið eru komin á
staðinn. Og sú var einmitt raunin
þetta kvöld, hægt var að vera í
sambandi við fólkið og gefa því fyr-
irmæli.“
Meiri orka í íbúðarbruna
en fólk getur ímyndað sér
Morgunblaðið/Sverrir
Bruni Slökkviliðsmenn að störfum við Ferjubakka í fyrrakvöld. Allt að 30 MW orka getur losnað úr læðingi
í einum íbúðarbruna og býður slökkviliðið ávallt upp á þá þjónustu að meta brunavarnir í fjölbýlishúsum.
Mikil hrina íbúðareldsvoða og mannslát vekur óhug en viðbrögð talin góð
BJÖRG Benjamínsdóttir, nágranni hjónanna sem
slösuðust í eldsvoðanum í Ferjubakka 12 í fyrra-
kvöld, segir ástandið hafa verið skelfilegt þegar
ljóst var hvað hafði gerst en björgun nágrannanna
úr stigaganginum hefði gengið fljótt og vel.
„Það var um klukkan hálfellefu að það var komið
með þvílíkum látum og bankað hjá mér, með þeim
orðum að við skyldum forða okkur út því það væri
kviknað í uppi,“ segir hún. „Rétt á eftir kom lög-
reglan og allt tiltækt lið og vísaði öllum út. Þegar ég
kom út í garðinn sá ég ekki betur en stofan stæði í ljósum logum. Á
efstu hæðinni var fólk í einni íbúð lokað inni í einhvern tíma en ég
myndi segja að björgun hefði gengið vel. Slökkviliðið var með marga
körfubíla og voru slökkviliðsmennirnir mjög snöggir.“
Áfallahjálp var boðin á staðnum en Björg sagðist ekki hafa þegið
hana. Birgir Finnsson, sviðsstjóri SHS, segir það hafa komið betur út
að hafa umrætt fólk úti á svölum á meðan verið var að slökkva, í stað
þess að taka það strax í körfustól út af svölunum. Til þess ráðs hefði
samt verið gripið ef hætta hefði steðjað að fólkinu og voru bílarnir því
tilbúnir ef á þyrfti að halda. Í stigaganginum hefðu hurðir verið reyk-
þéttar og sinnt sínu hlutverki vel, en á efstu hæðinni hefði reykþrýst-
ingur verið meiri og því nauðsynlegt fyrir fólkið að halda sig úti á svöl-
unum eins og raunin varð. Hefðu íbúarnir haldið vel ró sinni.
„Áttum að forða okkur því
það var kviknað í uppi“
BOÐAÐ hefur verið til stofnfundar
Vinafélags Grímseyjar næstkomandi
laugardag og verður félagið opið öll-
um áhugamönnum um Grímsey,
jafnt brottfluttum Grímseyingum
sem öðrum velunnurum Grímseyjar
hvar sem þeir eru búsettir á landinu.
Helgi Daníelsson er forgöngumað-
ur að stofnun félagsins en Helgi hef-
ur látið sig Grímsey miklu varða.
Hefur hann m.a. gefið út tvær bækur
um eyna, Grímsey og Grímseyingar
árið 2003 og ári síðar ljósmyndabók-
ina Grímsey-Perla við heimskauts-
baug, með ljósmyndum eftir Frið-
þjóf Helgason og texta eftir Valgarð
Egilsson rithöfund.
„Markmiðið er að kynna Grímsey
og efla tengslin við hana á einn og
annan hátt,“ seg-
ir Helgi um vina-
félagið. Stofn-
fundurinn verður
haldinn á fæðing-
ardegi dr. Dan-
íels Willard
Fiske, hins mikla
velgjörðarmanns
Grímseyinga, en
á laugardaginn
eru liðin 175 ár frá fæðingu Fiske.
11. nóvember er réttnefndur
þjóðhátíðardagur Grímseyinga, að
sögn Helga enda hafa þeir haldið
daginn hátíðlegan allt frá 1924.
„Ég hef orðið var við mikinn
áhuga á Grímsey eftir að ég gaf út
tvær bækur um Grímsey,“ segir
Helgi. „Við ætlum að efla tengslin
við Grímsey. Við munum jafnvel efna
til ferða þangað og halda samkomur
og ýmislegt fleira og eftir atvikum
munum við styrkja við góð og þörf
málefni í Grímsey. “
Að sögn hans verður ekkert ár-
gjald innheimt og engar sérstakar
kvaðir munu fylgja félagsaðildinni.
Boðað er til stofnfundar félagsins í
safnaðarheimili Neskirkju á laugar-
daginn kl. 14. Þeir sem áhuga hafa
en eiga þess ekki kost að mæta á
stofnfundinn geta sent Helga til-
kynningu þar um á netfangið helgi-
dan@simnet.is. Helgi leggur áherslu
á að allir sem áhuga hafa geti orðið
félagar í Vinafélagi Grímseyjar hvar
sem þeir eru búsettir á landinu.
Efla tengslin við Grímsey
og styrkja góð málefni
Vinafélag Grímseyjar stofnað á fæðingardegi Willard Fiske
Helgi Daníelsson
FYRSTA sunnudag í vetri var opnuð málverka-
sýning í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Er hér um að
ræða allmörg verk eftir listmálarann Ólaf
Túbals. Hann hélt á sinni tíð margar sýningar
en þau verk sem hér eru sýnd eiga sér sérstæða
sögu. Ólafur Túbals (1897–1964) var fæddur í
Múlakoti í Fljótshlíð og ól þar allan sinn aldur.
Hjónin Sigríður Hjartar og Stefán Guðbergs-
son keyptu jörðina árið 2000. Við tiltekt komu í
leitirnar lítið olíumálverk, sem Ólafur málaði
1918, og smám saman fundust fleiri myndir.
Að húsabaki í Múlakoti var málarastofa Ólafs,
með stórum norðurglugga. Þegar Ólafur lést
breytti húsið um hlutverk og var notað sem
geymsluhúsnæði og bílskúr.
Í kassa í dimmu skoti fannst upprúllað stórt
olíumálverk, sem líklega hefur átt að vera alt-
aristafla. Síðar við nánari athugun kom í ljós að
sumar rúllurnar innihéldu málverk, mörg mjög
illa farin. Myndverkin voru hreinsuð og þurrk-
uð. Því miður hafði gólfraki og tímans tönn unn-
ið svo á myndunum að á þær vantar töluvert og
svo stökkar eru þær að nauðsynlegt var að
geyma þær undir gleri, svo unnt væri að hand-
fjatla þær. Hjónin Sigríður og Stefán létu inn-
ramma myndirnar og eru þær nú komnar upp á
vegg í Sögusetrinu ásamt ýmsum munum frá
Ólafi, m.a. ferðadagbækur hans.
Listamannanýlenda í Múlakoti
Í Múlakoti var listamannanýlenda um langt
árabil. Margir helstu brautryðjendur í íslenskri
málaralist dvöldu þar við listiðkun, einkum má
nefna Ásgrím Jónsson, sem kom fyrst í Múlakot
sumarið 1913 og var þar í mörg sumur. Margir
fleiri af helstu listamönnum þjóðarinnar dvöldu í
Múlakoti á sumrin. Flestir þeir íslensku málarar
sem á annað borð máluðu landslagsmyndir á ár-
unum milli 1930 og 1960 máluðu í Múlakoti og
má segja að þar hafi verið rekin fyrsta menning-
artengda ferðaþjónustan á Íslandi. Í Múlakoti
dvaldi einnig einn frægasti málari Dana, Jo-
hannes Larsen, en hann var fenginn til að mynd-
skreyta nýja þýðingu á Íslendingasögunum.
Ferðaðist Ólafur með honum og hefur án efa
lært mikið af honum eins og fleiri listamönnum
sem dvöldu á bænum. Erfitt er að geta sér til um
hvað Ólafur ætlaðist fyrir með allar þær myndir
sem fundust ófrágengnar í Múlakoti, e.t.v. hugð-
ist hann halda yfirlitssýningu verka sinna en
entist ekki aldur til þess.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri opnaði sýn-
inguna en það er menningarnefnd Rangárþings
eystra sem stendur fyrir sýningunni og verður
hún opin daglega kl. 15–18 til 12. nóvember og
er aðgangur ókeypis.
Fundinn
fjársjóður
Sögusetrið Verk eftir Ólaf Túbals.