Morgunblaðið - 09.11.2006, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Washington. AP, AFP. | Nokkuð var um sögu-
leg úrslit á landsvísu í þingkosningunum í
Bandaríkjunum og meðal annars þau, að
þar er fyrsti múslíminn
kominn á þing. Þess ber
þó að geta, að hann á
ekki rætur sínar að rekja
til múslímskra landa,
heldur er um að ræða
Bandaríkjamann, sem
snerist til íslams.
Demókratinn Keith
Ellison var kjörinn full-
trúadeildarþingmaður
fyrir Minnesota með
góðum meirihluta en þó
töluvert minni en flokksbróðir hans og fyr-
irrennari hafði haft í kjördæminu. Fór hann
yfirleitt ekki undir 70%. Reyndi Alan Fine,
frambjóðandi repúblikana, að gera sér mat
úr trú Ellisons og gaf í skyn, að hann væri
gyðingahatari, en það dugði ekki til. Var
það raunar svo, að samtök gyðinga í Demó-
krataflokknum og áhrifamikið dagblað í
eigu gyðinga í Minneapolis studdu hann
gegn Fine, sem þó er gyðingur.
Í Massachusetts urðu þau tíðindi, að Dev-
al Patrick var kjörinn ríkisstjóri, og er hann
fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því emb-
ætti í ríkinu. Er hann annar blökkumaður-
inn, sem sigrar í ríkisstjórakosningum í
Bandaríkjunum, en sá fyrri var L. Douglas
Wilder í Virginíu. Lét hann af embætti
1995.
Tveir milljarðar kr.
í kosningabaráttuna
Margir fylgjast grannt með Hillary Clint-
on með forsetakosningarnar 2008 í huga og
úrslitin í kjördæmi hennar í New York
spilla ekki fyrir henni í því efni. Var hún
endurkjörin sem öldungadeildarþingmaður
með 67% atkvæða. Fór hún með 30 milljónir
dollara, rúmlega tvo milljarða ísl. kr., í
kosningabaráttuna eða meira en nokkur
annar frambjóðandi í kosningunum á
þriðjudag. Þykir það benda til, að hún vilji
verða forsetaefni demókrata 2008 og einnig
það, að hún studdi ýmsa aðra frambjóðend-
ur og flokksbræður sína með fé. Æ sér gjöf
til gjalda.
Talið er víst, að Nancy Pelosi verði forseti
fulltrúadeildarinnar og jafnframt fyrsta
konan í því embætti. Hefur hún alltaf verið
andvíg stríðinu í Írak og er hlynnt frjálsum
fóstureyðingum. Er hún „hreinasta mar-
tröð“ í augum hægrisinnaðra repúblikana
eins og einn þeirra komst að orði og fyrir
kosningar reyndu þeir að nota hana sem
grýlu í því skyni að hvetja sína menn til
dáða. Pelosi sigraði í sínu kjördæmi í San
Francisco með rúmlega 80% atkvæða.
Múslími
á þing í
fyrsta sinn
Patrick, ríkisstjóri
í Massachusetts.
Blökkumaður kosinn rík-
isstjóri í Massachusetts
SHANTI, sem er átta mánaða gamall tígur, horfði
bænaraugum á ljósmyndara sem bar að garði í
verslunarmiðstöð í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu, í
gær. Shanti litli er hafður til sýnis á bak við örygg-
isgler en í bakgrunni má sjá gesti veitingahúss lyfta
glösum í trausti þess að hann blandi sér ekki í boðið.
AP
Einmana og á róli í glerbúrinu
New York. AFP. AP. | Repúblikaninn
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri Kaliforníu, tryggði sér
örugglega endurkjör í kosningun-
um á þriðjudag, þegar hann gjör-
sigraði andstæðing sinn og demó-
kratann Phil Angelides.
Sigur hans var þó meðal fárra
ljósa í myrkrinu hjá flokkssystk-
inum hans, sem töpuðu meirihluta
ríkisstjóraembætta eftir að hafa
haldið honum allt frá árinu 1994.
Þannig höfðu demókratar betur
í Colorado, Arkansas og Ohio, vígj-
um repúblikana, og New York,
Maryland og Massachusetts og eru
nú við völd í 28 af 50 ríkisstjóra-
stöðum landsins og hefur hlutfallið
snúist alveg við. Konur komu vel út
úr kosningunum, eru níu ríkis-
stjórar og hafa aðeins einu sinni
áður verið svo margar.
Kjör Eliots Spitzers í New York
kom ekki á óvart, enda hafði hann
mælst með allt að 50 prósenta for-
skot á repúblikanann John Faso.
Spennan var hins vegar í algleym-
ingi í Massachusetts, þar sem
blökkumaðurinn Deval Patrick
sigraði repúblikanann Kerry Heal-
ey. Það sama var upp á teningnum
í Ohio, þar sem Ted Strickland bar
sigurorð af repúblikanum Ken
Blackwell, en hvorugt ríkið hafði
kjörið demókrata í þessa stöðu frá
árinu 1986. Kjör demókratanna
Bill Ritter í Colorado og Mike
Beebe í Arkansas sætti einnig tíð-
indum en repúblikanar höfðu haft
síðarnefndu stöðuna allt frá 1992.
Stóðust atlögu repúblikana
Til að auka á gleði demókrata
héldu þeir ríkisstjóraembættum
sínum í Michican, Wisconsin og
Oregon. Repúblikanar fylgdust ná-
ið með kosningunum í Michican,
þar sem frambjóðandi þeirra,
milljónamæringurinn Dick DeVos,
tapaði fyrir Jennifer Granholm,
eftir að hafa sett 35 milljónir dala,
eða um 2,4 milljarða króna, af eigin
fé í kosningabaráttuna.
Demókratanum Jim Davis mis-
tókst hins vegar að sigra Charlie
Crist, sem verður því eftirmaður
Jeb Bush, bróður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, sem vegna
reglna á Flórída gat ekki boðið sig
fram í þriðja sinn eftir tvö kjör-
tímabil sem ríkisstjóri.
Sigrar demókrata skipta máli í
næstu forsetakosningum árið 2008.
Ríkisstjórar flokksins geta þannig
örvað grasrótina, smalað kjósend-
um á kjörstað, um leið og embættin
gefa kost á að veita framtíðarleið-
togum mikilvæga reynslu.
Schwarzenegger öruggur
sigurvegari í Kaliforníu
Arnold
Schwarzenegger
Jennifer
Granholm
Níu konur í embætti ríkisstjóra eftir sigur demókrata í kosningunum
New York. AP, AFP. | Kjósendur í Suð-
ur-Dakóta felldu í fyrradag tillögu
um að banna fóstureyðingar næstum
hvernig sem á stæði en í Missouri
var samþykkt að breyta lögum til að
tryggja, að þar mætti stunda stofn-
frumurannsóknir. Eru hvor tveggja
úrslitin áfall fyrir bandaríska hægri-
menn en þeir geta þó huggað sig við
það, að lög um bann við hjónabandi
samkynhneigðra voru samþykkt í
sjö ríkjum.
Stofnfrumurannsóknirnar voru
meginmálið í baráttunni um öld-
ungadeildarþingsætið í Missouri.
Nutu þær stuðnings demókratans
Claire McCaskill, sem hreppti sætið,
en repúblikaninn Jim Talent barðist
hart gegn þeim. Galt hann fyrir það
með þingsætinu.
Í fimm ríkjum var samþykkt að
hækka lágmarkslaun og í Michigan
var samþykkt að kyn og kynþáttur
ættu engu að ráða um það hverjir
fengju inni í opinberum háskólum
eða starf á vegum hins opinbera.
Hér var í raun verið að ganga gegn
hinni svokölluðu „jákvæðu mis-
munun“ en henni hefur verið beitt til
að auka hlut ýmissa minnihlutahópa
í skólum og hjá hinu opinbera. Eftir
hálfan mánuð verður tekist á um lög
þessa efnis fyrir hæstarétti Banda-
ríkjanna.
Mesti æsingurinn
í Suður-Dakóta
Í kosningunum var alls tekist á
um 205 sérstök mál í 37 ríkjum en
mestur var hitinn í kringum fóstur-
eyðingafrumvarpið í S-Dakóta.
Hafði það verið samþykkt á rík-
isþinginu en það bannaði allar fóst-
ureyðingar nema í því skyni að
bjarga lífi konunnar.
Um 55% kjósenda samþykktu að
hafna lögunum en þau voru sér-
staklega samin með það í huga að
ögra og hugsanlega steypa svoköll-
uðum Roe v. Wade-úrskurði hæsta-
réttar frá árinu 1973 en með honum
voru fóstureyðingar lögleiddar.
Eins og fyrr segir var samþykkt
að banna hjónaband samkyn-
hneigðra í sjö ríkjum, Colorado,
Idaho, Suður-Karólínu, Suður-
Dakóta, Tennessee, Virginíu og
Wisconsin, en tillaga um það var
felld í Arizona. Er það fyrsta ríkið,
sem það gerir, af þeim 28, sem hafa
tekið afstöðu til málsins.
Af öðrum málum má nefna, að í
Arizona var samþykkt, að enska
væri opinbera málið, en um það seg-
ir ekkert í alríkislögum. Sögðu
stuðningsmenn tillögunnar, að þetta
væri nauðsynlegt til að laga innflytj-
endur að bandarísku samfélagi.
Kjósendur í Arizona voru hins vegar
ekki jafnhrifnir af annarri tillögu um
að gera kosningarnar að eins konar
lottói um leið og gefa einhverjum
einum kjósanda milljón dollara fyrir
að hafa kosið.
Sums staðar var hert að ólögleg-
um innflytjendum og víða voru tób-
aksskattar hækkaðir og þrengt enn
betur en áður að reykingafólki.
Hart tekist á um sérmálin
Alls var kosið sérstaklega um 205 mál í 37 ríkjum Bandaríkjanna
Í HNOTSKURN
» Báðir flokkar vekja stund-um upp sérmál, sem þeir
telja vinsæl, í von um að hagn-
ast á því í þingkosningum.
» Málin eru af ýmsum toga,merkileg sem ómerkileg,
en dæmi eru um, að skatta-
ákvarðanir, sem teknar eru
með þessum hætti, hafi komið
viðkomandi ríki mjög illa.
» Sérmálin voru nú 205 í 37ríkjum og 19 í Arizona.
BRESKUM vísindamönnum tókst
fyrir skömmu að gefa músum sem
höfðu misst sjónina sýn á ný með því
að græða í þær óþroskaðar frumur
úr sjónhimnu heilbrigðra músa.
Skýrt er frá tilrauninni á vefsíðu
breska ríkisútvarpsins, BBC, en
fjallað er um niðurstöður hennar í
nýjasta hefti tímaritsins Nature.
Vísindamennirnir sóttu frumurn-
ar úr þriggja til fimm daga gömlum
músum, eða á því skeiði þegar sjón-
himnan er að myndast. Þær voru síð-
an græddar í erfðabreyttar mýs sem
höfðu sjúkdóma er leiða til blindu.
Dr. Jane Sowden, formaður rann-
sóknarhópsins, var himinlifandi með
niðurstöðurnar. „Við höfum komist
að þeirri niðurstöðu að þroskuð sjón-
himna, sem áður var talið að væri
ekki hægt að laga, getur í raun stutt
við þróun nýrra ljósnema.“
Eru vonir bundnar við, að aðferða-
fræðin muni síðar nýtast milljónum
blindra og sjónskertra manna.
Blindar
mýs fá sýn
Managua. AFP. | Daniel Ortega, marx-
isti og fyrrverandi leiðtogi Sandin-
istahreyfingarinnar í Níkaragva, er
réttkjörinn for-
seti landsins.
Talsmaður yf-
irkjörstjórnar
skýrði frá þessu í
fyrrakvöld og því
er ljóst, að enn
hefur fjölgað í
hópi vinstrisinn-
aðra leiðtoga í
Rómönsku Amer-
íku, Bandaríkja-
stjórn til mikillar hrellingar. Hafði
hún og sérstaklega sendiherra henn-
ar í Managua, höfuðborg Níkaragva,
skorað á landsmenn að hafna Ortega
en kjósa heldur keppinaut hans,
Eduardo Montealegre.
Er Ortega fagnaði sigrinum lagði
hann áherslu á sáttfýsi og hófsemi og
fullvissaði erlenda fjárfesta um, að
þeir hefðu ekkert að óttast.
„Ég tel, að kominn sé tími fyrir
annað og betra andrúmsloft í stjórn-
málum landsins, fyrir samvinnu en
ekki sundrungu, fyrir Níkaragva og
þá, sem höllum fæti standa,“ sagði
Ortega er Montealegre hafði óskað
honum til hamingju.
Ortega í
forsetastól
í Níkaragva
Daniel Ortega