Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 17

Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 17 ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is MINNST tuttugu og þrír Palestínu- menn týndu lífi og á fimmta tug særðist í aðgerðum Ísraelsher á Gaza í gær. Mahmoud Abbas, forseti Pal- estínumanna, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna árásanna, en hann hefur jafnframt sakað Ísr- aelsstjórn um að fyrirgera friðarvið- ræðum með aðgerðunum. Flestir, eða átján, féllu í skothríð ísraelskra skriðdreka í bænum Beit Hanoun á norðurhluta Gaza. Talið er að yfir fjörutíu manns hafi særst í skothríðinni, sem talsmenn Evrópu- sambandsins og Alvaro de Soto, sér- stakur erindreki Sameinuðu þjóð- anna í Miðausturlöndum, fordæmdu. Í yfirlýsingu vegna árásarinnar sagði de Soto að sér „blöskraði“ að- gerðir hersins, sem hefðu beinst gegn íbúðarhúsum og leitt til dauða „fjölda óbreyttra borgara, þar með talið margra kvenna og barna“. „Við fjarlægðum aflimuð lík úr húsunum. Við sáum fætur, hendur og hluta úr höfðum fest við veggina,“ sagði Palestínumaðurinn Rahwi Hamad, sem var á vettvangi í gær. Ellefu hinna látnu komu úr sömu fjölskyldunni en að sögn AFP-frétta- stofunnar urðu fimm samstæð íbúða- hús fyrir sprengjuregninu. Tugir Palestínumanna fallið Ismail Haniya, forsætisráðherra Palestínumanna, krafðist neyðar- fundar öryggisráðs SÞ, til að binda enda á „fjöldamorð“ Ísraelshers á Gaza og Vesturbakkanum. Tugir Palestínumanna hafa látið lífið í aðgerðum Ísraelshers síðustu viku og hækkaði tala látinna frekar í gær þegar fimm féllu í áhlaupi hers- ins á Vesturbakkanum, þar af fjórir meintir vígamenn. Þá lést einn Pal- estínumaður í árás hersins á flótta- mannabúðir í Jabaliya. Úr herbúðum Fatah og Hamas, helstu fylkinga Palestínumanna, ber- ast nú áskoranir til fylgismanna þeirra um að fremja sjálfsmorðsárás- ir í Ísrael í hefndarskyni. Að auki skýrði blaðið Jerusalem Post frá því, að Hamas hefði hvatt til árása gegn bandarískum skotmörkum. Ghazi Hamad, talsmaður Hamas, sagði hins vegar í viðtali við blaðið að slíkar árásir væru ekki fyrirhugaðar, en hann hafði áður lýst yfir í samtali við AP-fréttastofuna, að Ísraelsríki ætti sér ekki lengur tilverurétt. Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísr- aels, sagðist í gær harma „harmleik- inn“, á sama tíma og Amir Peretz varnarmálaráðherra fyrirskipaði taf- arlausa rannsókn á málinu. „Ísraelsher gerir allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar verði fyrir árásum í aðgerðum sínum, en því miður verða stundum hörmuleg slys. Við biðjumst afsökunar,“ sagði Livni utanríkisráðherra í gær. Hátt í þúsund særst í árásum Ekki er þó útlit fyrir að aðgerðum Ísraelshers á Gaza linni í bráð. Þann- ig sagði hátt settur aðili í hernum í gær í samtali við AFP-fréttastofuna, að þær myndu halda áfram til að stuðla m.a. að lausn hermannsins Gil- ad Shalit sem var rænt í sumar. Sú aðgerð kallaði á hörð viðbrögð Ísraelshers en í nýrri skýrslu lækna- samtaka sem láta sig mannréttindi varða, PHR, kemur fram, að 247 hafi fallið í árásum á Gaza frá því í júní, þar af 57 börn af alls 155 óbreyttum borgurum. Þá hafi 996 særst. Blóðbað í Beit Hanoun Reuters Harmur Palestínskur drengur er færður á sjúkrahús á Gaza í gær. Erindreki SÞ í Miðausturlöndum fordæmir aðgerðir Ísraelshers á Gaza-svæðinu London. AFP. | Hringurinn umhverfis Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, vegna lánamálsins þrengdist í gær, þegar líklegur arftaki hans, Gordon Brown fjármálaráðherra, var beðinn að svara skriflega ásök- unum um að Verkamannaflokkurinn hefði boðið auðmönnum upp á sæti í lávarðadeildinni gegn „lánum“ sem voru dulbúin kosningaframlög. Á sama tíma skýrðu breskir fjöl- miðlar frá því, að Alan Milburn, sem gegnt hefur starfi yfirmanns kosn- ingamála hjá flokknum, hefði þegar verið yfirheyrður vegna málsins. Rannsóknin nær einnig til Íhalds- flokksins og Frjálslynda demókrata- flokksins, helstu stjórnarandstöðu- flokka Bretlands, en athyglin hefur fyrst og fremst beinst að stjórn Blairs, sem dagblaðið Daily Tele- graph fullyrðir að verði yfirheyrður innan nokkurra vikna. Lord Peter Goldsmith, ríkissak- sóknari, hefur ítrekað að hann muni taka þátt í ákvörðun um að leggja fram ákærur í málinu komi til þess. Andstæðingar stjórnarinnar segja þetta óeðlilegt, í ljósi þess að Gold- smith er sagður nátengdur Blair. Brown yfirheyrður Colombo. AFP. | Að minnsta kosti 65 óbreyttir borgarar létu lífið og um 300 særðust, þegar stjórnarherinn á Sri Lanka lét sprengjum rigna yfir flóttamannabúðir í austurhluta landsins, að því er uppreisnarmenn úr röðum Tamíl-Tígranna og hjálp- arstarfsmenn fullyrða. Tala látinna er þó á reiki og hefur breska ríkisútvarpið, BBC, það eftir heimildarmanni úr röðum Tígranna að minnst 45 hafi fallið og 125 særst. Búðirnar eru í Batticaloa-héraði, þar sem geisað hafa hörð átök á milli hersins og Tígranna að undanförnu. Talsmenn hersins brugðust hart við ásökunum Tígranna. „Þetta er það sem Tígrarnir vildu, að valda saklausum tamílum skaða með því að ögra hernum til að svara tilviljana- kenndum […] sprengjuárásum Tígr- anna,“ sagði í yfirlýsingu varnar- málaráðuneytisins. Segja tímasetninguna vel valda Tígrarnir svöruðu stjórninni af hörku og sögðu hana hafa tímasett árásina með hliðsjón af þingkosning- unum í Bandaríkjunum og dómnum yfir Saddam Hussein, til að tryggja að athygli umheimsins beindist ekki að átökunum á Sri Lanka. Árásin í gær var sú mannskæð- asta þegar um er að ræða óbreytta borgara úr röðum tamíla allt frá því að vopnahléið komst á árið 2002, ef undan er skilin loftárásin í bænum Mullaitivu í ágúst sl., þegar Tígrarn- ir sökuðu stjórnarherinn um að hafa myrt tugi ungmenna. Herinn á Sri Lanka fellir tugi óbreyttra borgara Málstofa um lagalegan grundvöll hvalveiða Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, föstudaginn 10. nóvember 2006 kl. 12.15-14.00 Dagskrá: 12.15 Inngangur: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands. 12.30 Fyrirlestur: Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu. 13.00 Fyrirlestur: Richard Caddell, lagaprófessor við Háskólann í Wales, Bangor. 13.30 Fyrirspurnir og umræður. 14.00 Slit. Lagadeild Allir velkomnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.