Morgunblaðið - 09.11.2006, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.11.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 19 Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 www.damask.is Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. 10-30% afsl. af völdum vörum fimmtudag og föstudag Dýnuhlífar, sængur, rúmmfatnaður o.fl. DREKAFRÆÐI Í þessari mögnuðu bók, er fjallað um allt sem viðkemur drekum. Glæsilegt alfræðirit um þessar voldugu skepnur sem eru bæði dularfullar og stórbrotnar. ÓTAL UPPFINNINGAR SNILLINGANNA Fólkið á bak við merkustu hugmyndirnar, fræg mistök og hvað framtíðin ber í skauti sér. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „SÝNINGIN kom út úr námskeiði sem Benedikt Erlingsson og Char- lotte Böving héldu hjá okkur en þar var fjallað um frásagnartækni og hvernig fólk segir sögur,“ segir Sig- urður H. Pálsson formaður áhuga- leikfélagsins Hugleiks um sýning- una Einu sinni var... sem Hugleikur sýnir í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. „Það eru tólf manns í sýningunni sem koma fram hver á fætur öðrum og segja sögur sem eiga það allar sammerkt að fjalla um einhverja for- feður þess sem segir söguna. Þetta eru gjarnan örlagasögur og það er nokkuð gegnumgangandi að ef þessi saga hefði ekki gerst þá væri sá sem segir hana ekki til.“ Sigurður segir sjálfur eina sögu um það hvernig afi hans og amma kynntust. Aðspurður hvort það sé ástarsaga vill hann engu ljóstra upp og segir fólk bara þurfa að mæta á staðinn og hlusta á, en það er aðeins þessi eina sýning í kvöld. „Sögurnar eru rækilega krydd- aðar með ýmiskonar tónlist, bæði rímnatónlist og lögum sem tengjast sögunum sjálfum og eru sungin án undirleiks,“ segir Sigurður og bætir við að tónlist kalli oft fram forna tíð. Notalegt að vera í kjallaranum Vetrarstarf Hugleiks í Þjóðleik- húskjallaranum hófst í október með sýningu á sex stuttum leikþáttum en þetta er annar veturinn í röð sem leikfélagið er með dagskrá þar. „Við byrjuðum á því í fyrra að vera með reglulega dagskrá í Þjóðleikhús- kjallaranum yfir veturinn. Þegar Þjóðleikhúsið bauð okkur að halda þessu áfram í ár vorum við mjög fljót að samþykkja það. Þetta er talsverð viðbót við starfsemina hjá okkur og gerir það að verkum að hún er orðin viðameiri en nokkru sinni, síðasta leikár var t.d. það langafkastamesta hingað til í sögu félagsins og það stefnir í að þetta verði eitthvað svipað.“ Eftir sýninguna í kvöld verður Hugleikur aftur í Leikhúskjallar- anum í desember með jóladagskrá þar sem sýndir verða fjórir leik- þættir og flutt jólaleg tónlist. „Í febrúar verður svo dagskrá í tilefni þorrans, eitthvað á þjóðlegu nót- unum. Í apríl verðum við líklega með áþekka dagskrá og var í október þ.e blandaða leikþætti og svo gerum við ráð fyrir að vera með hreina tónlist- ardagskrá í maí en við enduðum leikárið í Þjóðleikhúskjallaranum þannig líka í fyrra, með tónleikum.“ Sigurður segir meðlimi Hugleiks mjög þakkláta Þjóðleikhúsinu fyrir að gefa þeim þetta tækifæri. „Það er frábært og notalegt að vera í Þjóð- leikhúskjallaranum. Það er mikil stemning sem fylgir því að vera að gera það sem við erum að gera í þessu húsi, þótt við séum ekki komin hærra en í kjallarann,“ segir Sigurð- ur að lokum og hlær. Einu sinni var... hefst kl. 20 í kvöld, miðaverð er 1.000 kr. Leikhús | Hugleikur segir sögur í Þjóðleikhúskjallaranum Örlagasögur um forfeður Morgunblaðið/Ásdís Sagnaþulur Sigurður H. Pálsson segir sögu um forfeður sína í Einu sinni var…, sýningu Hugleiks. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.