Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 36

Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN UMFERÐARÖRYGGI hefur mik- ið verið til umræðu í kjölfar margra umferðarslysa á þessu ári. Þrátt fyrir að mörg öruggari umferð- armannvirki hafi verið byggð á undanförnum árum dylst fæstum að umferðaröryggi hefur ekki verið eflt nægilega. Markvissari aðgerðir skortir einfaldlega í þessum málaflokki. Ég furða mig til dæmis oft á því hvers vegna ýmis ár- íðandi verkefni, sem all- ir eru sammála um að þurfi að gera, eru ókl- áruð og hanga yfir okkur árum og jafnvel áratugum saman. Gott dæmi um þetta eru einbreiðar brýr á þjóð- vegi nr. 1, hringveginum, sem bless- unarlega heyra brátt sögunni til þar sem loks hillir undir að allar brýr á hringveginum verði tvíbreiðar. Í dag blasir hins vegar við nýtt verkefni af svipuðum toga hér á höf- uðborgarsvæðinu þar sem umferðin virðist þyngjast dag frá degi. Tvöföld- un akreina á þjóðvegum sem tengjast höfuðborgarsvæðinu er eitt brýnasta samgöngumál okkar tíma. Í ljósi hinn- ar miklu umferðar sem er á þessum vegum gengur einfaldlega ekki að bílar aki í gagnstæða átt án þess að nokkuð skilji á milli. Við þurfum ekki að líta langt til að sjá kostina við tvöföldun akreina. Tvöföldun Reykjanesbrautar, sem er langt komin, sýnir glögglega hve mikið ör- yggi felst í tvöföldun vega. Það eru mörg verk- efni sem ráðast þarf í sem fyrst þar sem núverandi lausnir duga engan veginn.  Klára þarf tvöföldun Reykjanes- brautar milli Kópavogs og Hafn- arfjarðar með mislægum gatna- mótum og öflugum hljóðvörnum.  Fjölga þarf akreinum á Kringlu- mýrarbraut og byggja mislæg gatnamót við Miklubraut.  Gera þarf mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Reykjavíkurvegar.  Setja þarf undirbúning á fullt vegna ganga undir Kópavog við Hlíðarfót.  Fjölga þarf aðreinum og frár- einum á helstu umferðaræðum.  Lengja þarf og lagfæra aðreinar þar sem mesta umferðarálagið er.  Byggja þarf göngubrýr og und- irgöng sem kæmu í stað göngu- brauta með ljósum.  Nota hringtorg í stað umferð- arljósa þar sem því verður kom- ið við. Hér er aðeins fátt eitt nefnt en við blasir að fara verður ítarlega yfir sam- göngumál höfuðborgarsvæðisins í heild í samvinnu við sveitarfélögin á svæðinu. Umferðartafir með tilheyr- andi kostnaði fyrir einstaklinga, fyr- irtæki og þjóðfélagið allt eru daglegt brauð íbúa Suðvesturkjördæmis. Stórátaks er þörf ef leysa á umferð- arhnútana og auka umferðaröryggi í kjördæminu til hagsbóta fyrir þjóðfé- lagið. Ný nálgun og skilningur á um- ferðarmálum höfuðborgarsvæðisins eru forsendur nauðsynlegra umbóta. Þess vegna er tími til kominn að næsti samgönguráðherra komi úr Suðvest- urkjördæmi. Ég hef ekkert á móti vegabótum úti á landi en umbætur þar mega ekki verða til þess að það vega- kerfi, sem langflestir Íslendingar nota að jafnaði dag hvern, verði út undan. Suðvesturkjördæmi á kortið í samgöngumálum Ármann Kr. Ólafsson fjallar um samgöngubætur á höfuðborg- arsvæðinu »… við blasir að faraverður ítarlega yfir samgöngumál höf- uðborgarsvæðisins í heild í samvinnu við sveitarfélögin á svæð- inu. Ármann Kr. Ólafsson Höfundur sækist eftir 3. sæti í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Suðvest- urkjördæmi. ÞÓTT menntakerfi okkar Íslend- inga sé gott þá bíða þar brýn verk- efni. Menntamál eru sá málaflokkur þar sem aldrei má slaka á, því harðnandi samkeppni á vinnumark- aði kallar sífellt á starfsfólk með hærra menntunar- og þekk- ingarstig. Um leið og ég fagna áformum um byggingu nýs framhaldsskóla í Mosfellsbæ bendi ég á brýna nauðsyn þess að stofnsetja nýjan fram- haldsskóla í Kópavogi á næsta kjörtímabili. Mikil fjölgun íbúa í Kópavogi gerir þörf fyrir nýjan framhalds- skóla í bænum mjög brýna og hlýtur að vera forgangs- mál, með sama hætti og í Mos- fellsbæ. Efling verkmenntunar er mjög mikilvæg og ákveðin hugarfars- breyting þarf að eiga sér stað gagn- vart henni. Ástandið í sumum iðn- greinum er orðið alvarlegt þegar litið er til nýliðunar og auka verður möguleika iðnmeistara á að fjölga nemum sem þeir hafa í læri. Við getum ekki búið við það að okkar helstu iðngreinar þurfi í framtíðinni að leita út fyrir landsteinana eftir faglærðu fólki. En þótt framhaldsskólinn sé afar mikilvægur verður ekki framhjá því litið að grunnskólinn er það ekki síður. Í grunnskólanum er lagður sá grunnur sem tækifæri ungmenna byggjast á. Þar er mikilvægt að hafa í huga, því að sveigjanleiki í skólastarfi er mikilvægur og tæki til þess að efla skólastarfið enn frekar. Mennt er máttur segir hið fornkveðna og óumdeilt er að menntakerfið er einn helsti drifkraftur hag- kerfisins. Í skólum landsins eiga allir nemendur að njóta jafnra tækifæra, óháð efnahag. Þar verðum við einnig að hlúa afar vel að þeim nemendum sem búa við erfiðar fé- lagslegar aðstæður. Við eigum heldur ekki að vera feimin við að grípa til sér- tækra úrræða við að auka tækifæri barnanna okkar með betri mennt- un. Eitt þeirra atriða sem þar hljóta að koma til skoðunar er auk- inn sveigjanleiki í skólastarfi og m.a. að greiða góðum kennurum hærri laun. Þar geta sveitarfélögin gegnt lykilhlutverki í starfsemi grunnskólanna. Ég tel einnig mikilvægt að einka- aðilar komi í auknum mæli að starf- semi skólanna. Það þarf að draga úr miðstýringu í skólastarfi og gefa ólíkum rekstrarformum tækifæri og losa þannig úr læðingi þann kraft sem býr í starfsfólki skólanna. Æskilegast er að hér á landi starfi bæði einkaskólar og opinberir, því það eflir starf þeirra og hvetur bæði nemendur og kennara til dáða. Með auknu valfrelsi foreldra og nemenda verður skólastarfið kraft- meira og námsframboð fjölbreytt- ara. En þótt nauðsynlegt sé að auka fjölbreytni í skólastarfi má það ekki vera á kostnað jafnræðis mennta- stofnana. Þær eiga að sitja við sama borð þegar kemur að fjárveitingum opinberra aðila. Aukið valfrelsi í skólastarfi er nauðsynlegt, en um leið verður að tryggja jöfn tækifæri nemenda og að skólagjöld skerði ekki jafnrétti til náms. Sveigjanlegt, framsækið skólakerfi eykur fjölbreytni í námi og laðar fram það besta í nem- endum. Það er málefni sem ég er reiðubúinn að berjast fyrir. Aukin fjölbreytni í menntamálum Jón Gunnarsson fjallar um menntamál » Aukið valfrelsi ískólastarfi er nauð- synlegt, en um leið verð- ur að tryggja jöfn tæki- færi nemenda og að skólagjöld skerði ekki jafnrétti til náms. Jón Gunnarsson Höfundur er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar og sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. AÐ AFLOKNU glæsilegu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi síðastliðinn laugardag er ástæða til að þakka öllum þeim sem að komu. Það voru hátt á fimmta þúsund flokks- og stuðnings- menn Samfylking- arinnar sem stilltu upp sigurliði fyrir kosningarnar í maí næstkomandi. Þá skiptu þeir tugum sem störfuðu við framkvæmd próf- kjörsins í sjálfboða- vinnu og gerðu um- gjörðina trausta. Ennfremur vil ég þakka meðframbjóð- endum mínum drengi- lega og heiðarlega baráttu í alla staði. Síðast en ekki síst vil ég þakka þann stuðning sem ég fékk í prófkjörinu. Ég er meðvitaður um þá ábyrgð sem mér er falin með að leiða kröftugan hóp jafnaðarmanna í fjölmennasta kjör- dæmi landsins. Undir henni ætla ég og mun standa. Í prófkjörum er tek- ist á millum samherja. Öflugur nítján manna hópur lagði sitt fram og niðurstaðan er ljós. Þrátt fyrir röðun í ein- staka sæti þá er það fyrst og fremst Sam- fylkingin sem vann sig- ur í prófkjörinu um síðustu helgi, sigur sem sýnir að Samfylk- ingin er tilbúin. Jafnaðarmenn eiga góðan hljómgrunn í Suðvesturkjördæmi, sem og annars staðar á landinu. Það er okkar frambjóðenda og flokksmanna að koma skilaboðum okkar um jafnrétti, frelsi og sam- hug á framfæri á kom- andi mánuðum. Okkur mun takast það og kosningarnar í maí næstkomandi munu verða árangursríkar – fyrir Samfylkinguna og um leið fólkið í landinu. Sigur Sam- fylkingarinnar Gunnar Svavarsson fjallar um prófkjör Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi Gunnar Svavarsson » Það er okkarframbjóð- enda og flokks- manna að koma skilaboðum okk- ar um jafnrétti, frelsi og sam- hug á framfæri á komandi mán- uðum. Oddviti framboðslista Samfylking- arinnar í Suðvesturkjördæmi. Á ÍSLANDI starfa öflugir háskólar sem er ætlað að vera í senn rann- sóknastofnun og vísindaleg fræðslu- stofnun. Metnaður innan háskólanna er mikill og stefna þeir að því að verða meðal þeirra bestu í heimi. Kennarar hafa ákveðna rannsóknarskyldu jafn- hliða kennslu og í öllum námsgreinum er fyrst lagður traustur fræði- legur grunnur áður en námið sveigist að þjálf- un til sérhæfðs starfs eða rannsókna. Fagháskólar Þessi mikli fræðilegi grunnur er ekki nauð- synlegur í öllu námi á háskólastigi og margir nemendur vilja fyrst og fremst áframhaldandi menntun í fagnámi að loknu starfsnámi. Á Ís- landi eru ekki skólar sem bjóða upp á fag- nám á háskólastigi að loknu starfs- eða verk- námi sem leggur minni áherslu á fræðilegan grunn og rannsóknir en beinist að verkmenntun og þjálfun til starfa. Auðveldlega væri hægt að koma upp fagháskól- um hér á landi með því að heimila verk- menntaskólum og fjöl- brautaskólum að bjóða upp á sérhæft nám á sínu faggreinarsviði að loknu stúdentsprófi, sveinsprófi eða öðrum skilgreindum starfsnáms- brautum að uppfylltu ákveðnu lág- marki. Slíkir skólar myndu sérhæfa sig í þeirri verkmenntun sem fyrir er í skólanum og/eða því námi sem þörf er fyrir á viðkomandi landssvæði. Faghá- skólinn væri þá í sama húsnæði og framhaldsskólinn og nýtir húsnæði og kennslukrafta sem þegar eru við fram- haldsskólann. Fagháskólar erlendis Ef horft er til Finnlands, sem þykir í dag standa framarlega á flestum svið- um menntamála, stundar um einn þriðji nemenda nám í rannsókn- arháskólum og tveir þriðju í fagháskól- um eða öðrum háskólum sem bjóða skemmri verkmenntun. Markmið Finna er að auka gæði og virðingu verk- og fagmenntunar, styrkja al- mennan þekkingargrunn þeirra sem hljóta þjálfun til sérhæfðra starfa og tengja nám þörfum atvinnuvega í hverju héraði. Sömu sögu er að segja í Bandaríkjunum þar sem um helmingur nem- enda stunda nám eftir framhaldsskóla í skólum sem nefnast „community colleges“ en þeir skólar leggja litla áherslu á rannsóknir en bjóða nám með lokaprófi eftir tvö ár. Þeir bjóða fjölbreytta verkmenntun auk al- mennra námskeiða sem stúdentar geta fengið metin sem byrjun á lengra námi í öðrum skólum. Sjálfstætt skólastig Menntamálaráðherra skipaði sl. vor starfs- námsnefnd, sem nýlega skilaði skýrslu með ýms- um tillögum um úrbætur í starfsnámi. Þar koma m.a. fram hugmyndir um fagháskóla og í tillög- unum er gert ráð fyrir að fagháskólinn verði sjálf- stætt skólastig í fram- haldi af framhaldsskól- anum með áherslu á þarfir atvinnulífsins. Námið verði opið öllum nemendum sem ljúka framhaldsskóla. Mikið er rætt og ritað um að efla verkmenntun hér á land. Orð eru vissulega til alls fyrst en er ekki tíma- bært að við Íslendingar stígum slík skref og setjum á stofn sambærilega fagháskóla og eru t.d. á Norðurlönd- unum og í Bandaríkjunum. Faghá- skólar mundu styrkja þetta mennt- astig verulega, efla um leið verkmenntun hér á landi og virðingu fyrir iðnnámi. Fagháskólar Sigurrós Þorgrímsdóttir fjallar um menntamál Sigurrós Þorgrímsdóttir »… er ekkitímabært að við Íslendingar stígum slík skref og setjum á stofn sam- bærilega faghá- skóla og eru t.d. á Norðurlönd- unum og í Bandaríkj- unum. Höfundur er alþingismaður og sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Suðvesturkjördæmi. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Fullkomnaðu verkið með Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.