Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 37

Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 37 AÐ MISSA ástvin, hvort sem það gerist skyndilega eða á sér einhvern aðdraganda, er alltaf mikið áfall. Þetta á sérstaklega við þegar um fráfall maka er að ræða. Að missa maka sinn er eitt af mestu áföllum lífsins. Umbreytingin frá eiginkonu í ekkju, frá eiginmanni til ekkils er sársaukafull. Það kostar gífurleg átök að reyna að átta sig á þessu nýja hlutverki og að þurfa allt í einu að segja ég í staðinn fyrir við getur verið ótrúlega erfitt. Mig langar í þessari stuttu grein að fjalla um nokkur almenn atriði sem ef til vill geta gert gönguna sem framundan er, eða sem jafnvel þegar er hafin, ögn auðveldari. Eitt af því mikilvægasta sem þú gerir eftir að þú hefur misst maka þinn er að þú gefir þér leyfi til að syrgja. Bæði konur og karlar verða að gefa sér leyfi til að syrgja. Að fresta því að takast á við tilfinningar sínar með því að fylla stundaskrána frá morgni til kvölds kann ekki góðri lukku að stýra. Það mun aðeins seinka og jafnvel auka sorgarvinn- una. Að neita sér um að syrgja getur ef til vill hjálpað til við að loka sárs- aukann úti tímabundið en þjáningin er enn til staðar og hún býr innra með þér þar til þú viðurkennir hana og reynir að takast á við hana. Sorginni er ef til vill best lýst sem samsafni af tilfinningum. Viðbrögðin við dauða ástvinar þíns ná yfir ótrú- lega tilfinningaskala, áfall, doði, reiði, sársauki og þrá, þetta er að- eins brotabrot af þeim tilfinningum sem hellast yfir við ástvinamissi. Þær geta jafnvel komið allar í einu, þetta er nánast eins og að vera í rússíbana, tilfinningalegum rússí- bana. Sorgin og sorgarviðbrögðin fara ekki eftir ákveðnum leiðum, ekkert frekar en lífið sjálft. Sorgin er eðli- leg tilfinning en um leið persónuleg, enginn syrgir á sama hátt þó við eig- um margt sameiginlegt. Ein af goðsögnunum um sorgina er sú að skyndilega sé hún bara far- in, þú þurfir í raun lítið annað að gera en að bíða, þá hætti sársaukinn smátt og smátt. Þetta er ekki svona auðvelt því sorgarvinnsla krefst bæði vinnu og tíma og getur tekið ótrúlega á bæði andlega og lík- amlega. Því er mikilvægt að hugsa vel um heilsuna, reyna að borða þó allur matur sé bragðlaus, reyna að fara út að ganga þó það sé ekki nema út á næsta horn og reyna að sofa þó það virðist lífsins ómögulegt. Þegar versta áfallið er yfirstaðið þá getur eftirlifandi maki fengið það á tilfinninguna að hún/hann sé að missa tökin á lífinu og ekkert sé framundan nema sorg og sút. En mannneskjan er undarlegt fyrirbæri og smátt og smátt fer að rofa til og það er mikilvægt að hafa í huga að innra með okkur býr vonin um að hafa þetta af. Þrátt fyrir alla sorgina og sökn- uðinn þá er dagurinn í dag sá raun- veruleiki sem blasir við. Minningar um maka okkar eru mjög mik- ilvægar en við megum ekki nota þær sem skjólgarð fyrir nýjum vindum sem blása um líf okkar. En við eig- um að taka okkur þann tíma sem við þurfum, við erum þau sem vitum hvenær við erum tilbúin til að takast á við lífið á nýjan leik. Þriðji fyrirlestur Nýrrar dögunar, sam- taka um sorg og sorg- arviðbrögð, á þessu starfsári, verður hald- inn í Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. nóv- ember kl. 20. Þar mun Gunnhildur Heiða Ax- elsdóttir fjalla um makamissi út frá eigin reynslu. Fyrirlesturinn er öllum opinn og þó erfitt sé að hafa sig af stað þá fullyrði ég það, að betra er af stað farið en heima setið. Það er svo gott að hitta fólk sem orðið hefur fyrir svip- aðri reynslu og þú og sjá og heyra að lífið er þess virði að lifa því þrátt fyr- ir allt. Að segja ég í staðinn fyrir við Elína Hrund Krist- jánsdóttir fjallar um ástvinamissi og sorgarviðbrögð » Þrátt fyrir alla sorg-ina og söknuðinn þá er dagurinn í dag sá raunveruleiki sem blasir við. Elína Hrund Kristjánsdóttir Höfundur er guðfræðingur og situr í stjórn Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.