Morgunblaðið - 09.11.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 39
FYRIR KL. 9.00. FYRIR KL. 12.00. EKKERT STÖÐVAR OKKUR.
DHL kemur sendingum á áfangastað með ýmsu móti. Við erum með heimsins stærsta flutninganet
og komum pökkunum til skila á fleiri staði innan Evrópu fyrir kl. 09.00 og fyrir kl. 12.00 en
nokkur annar. Ráðgjafar okkar eru í viðbragðsstöðu núna, það er ekki eftir neinu að bíða.
HRINGDU Í SÍMA 535 1100 EÐA HEIMSÆKTU VEFINN OKKAR, WWW.DHL.IS, TIL AÐ SENDA
PAKKANN AF STAÐ NÚNA.
GENGIÐ hefur verið frá kaupum
ríkisins á hlutum Reykjavíkurborgar
og Akureyrar í Landsvirkjun. Við
þessi viðskipti er í sjálfu sér ekkert
athugavert. Borgarstjóri Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson gerði ágætlega grein
fyrir sjónarmiðum meirihlutans í
Reykjavík vegna þessarar sölu.
Borgarstjóri gerði einnig grein
fyrir því með hvaða hætti fyrirhugað
væri að nota ágóðann af sölunni.
Þ.e.a.s. 23 milljörðum verður varið til
greiðslu á framtíðarlífeyrisskuld-
bindingum Reykjavíkurborgar.
Væntanlega er þá verið að tala um
greiðslur til Lífeyrissjóðs starfs-
manna Reykjavíkurborgar. Við þá
ráðstöfun er ýmislegt að athuga og í
raun óásættanleg fyrir mikinn meiri-
hluta íbúa Reykjavíkur.
Að undanförnu hafa hinir almennu
lífeyrissjóðir legið undir miklu ámæli
vegna aðgerða til að stemma stigu
við vaxandi örorkubyrði þessara
sjóða, sem mun óhjákvæmilega leiða
til skerðingar á lífeyrisgreiðslum síð-
ar verði ekki gripið í taumana nú
þegar. Fjármögnun þessara sjóða
byggist á framlögum launþega og at-
vinnurekanda á hverjum tíma, sem
síðan felur stjórnum sjóðanna ávöxt-
unina til allrar framtíðar. Komi síðar
í ljós að ávöxtun sjóðanna standi ekki
undir lífeyrisskuldbindingunum ger-
ist aðeins eitt, sjóðirnir verða að
grípa til skerðingar á greiðslum til
sinna umbjóðenda.
Öfugt er því hins vegar farið með
lífeyrissjóði hins opinbera, þ.á m. Líf-
eyrissjóð starfs-
manna Reykja-
víkurborgar. Víst
er það svo að fjár-
mögnun sjóðanna
byggist á sömu
lögmálum,
þ.e.a.s. fram-
lögum atvinnu-
rekandans og
launþegans og
stjórnum sem falin er ávöxtun. En
bregðist ávöxtunin í þessum sjóðum
gilda hins vegar önnur lögmál, í stað
þess að grípa til skerðingar er sent
bréf annaðhvort til fjármálaráðherra
eða borgarstjóra þar sem tíundaðir
eru greiðsluerfiðleikar sjóðsins og
peningar eru sendir um hæl til þess
að sjóðirnir geti staðið við skuldbind-
ingar sínar. Í þessum sjóðum þarf
ekki að grípa til skerðinga.
Rök borgarstjóra í þessu máli
kunna að vera þau að þessar framtíð-
arskuldbindingar hverfi ekki og því
sé betra að tryggja þetta fjármagn í
þær, skuldbindingar þessar gagn-
vart starfsmönnum Rvkb. eru lög-
varðar sem betur fer fyrir starfs-
menn. Þetta er þekkt úr
einkavæðingarferli ríkisstjórn-
arinnar, stór hluti þess ágóða hefur
runnið til greiðslu framtíð-
arskuldbindinga opinberra lífeyr-
issjóða þ.á m. Lífeyrissjóðs alþing-
ismanna og ráðherra sem hafa nú
þegar skammtað sér lífeyriskjör
langt umfram velsæmismörk.
Það er móðgun við hina almennu
íbúa Reykjavíkur, þá sem borga í al-
menna lífeyrissjóði að eyrnamerkja
þessa peninga með þessum hætti.
Þetta er ekki rétti peningurinn til að
nota í skuldajöfnun gagnvart lífeyr-
issjóðum, jafnvel þótt þetta komi til
með að líta betur út á prenti, hvað
varðar skuldastöðu borgarinnar á
næstu árum. Til greiðslu lífeyr-
isskuldbindinga hefur borgarstjórn
útsvarið, jafnvel þótt það komi til
með að hefta framkvæmdagleði nú-
verandi borgarstjórnar að einhverju
leyti, það er sami raunveruleiki og
aðrar borgarstjórnir hafa þurft að
búa við.
Sé það hins vegar einlægur vilji
borgarstjórnarmeirihlutans að nýta
þessa peninga í þágu lífeyrisréttinda
allra íbúa Reykjavíkur má vel fara þá
leið að skipta þessum peningum á
milli allra lífeyrissjóðanna sem starfa
á Reykjavíkursvæðinu eftir höfða-
tölu. Með þeim hætti mættu flestir
vel við una, bæði almennu sjóðirnir
og þeir opinberu.
Það er vegna þessa sem ákvörðun
meirihlutans í Reykjavík um notkun
á ágóða vegna sölu LV er óásætt-
anleg, með yfirlýsingunni segir borg-
arstjóri það berum orðum að þessi
ágóði er aðeins ætlaður hluta Reyk-
víkinga, þeir sem vinna á hinum al-
menna markaði fá ekki neitt. Sé það
vilji meirihlutans að Reykvíkingar
allir njóti ávaxtanna af sölu LV munu
borgarfulltrúar endurskoða ráð-
stöfun þessa ágóða þegar samningur
þessi kemur til afgreiðslu borg-
arstjórnar.
ODDUR FRIÐRIKSSON,
Marteinslaug 12, Reykjavík.
Um notkun LV gróðans
Frá Oddi Friðrikssyni:
Oddur Friðriksson
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í UMRÆÐU um frumvarp rík-
isstjórnarinnar um hluta-
félagavæðingu Rík-
isútvarpsins eru þau
rök einkum færð
fram að hlutafélaga-
formið hafi sannað
sig sem gott form í
fyrirtækjarekstri.
Undir það vil ég taka.
Áður en hlutafélaga-
formið ruddi sér til
rúms var iðulega erf-
itt að selja stór fyr-
irtæki, nokkuð sem
reyndist auðveldara
eftir að eignarhlut-
irnir urðu fleiri og
smærri. Að þessu
leyti hefur hluta-
félagaformið auðveld-
að kaup og sölu fyr-
irtækja og þannig
gert eignarhaldið
sveigjanlegra. Annað er, að með
hlutafélagaforminu hefur aðkoma
eigenda að rekstrinum fengið
ákjósanlegan farveg og eru hlut-
hafafundir til marks um hvernig
eigendur, stórir og smáir, geta
veitt aðhald með því að pund
þeirra sé vel ávaxtað í fyrirtæk-
inu. Með skírskotun m.a. til þessa
get ég heilshugar tekið undir að
hlutafélagaformið er gott og hef-
ur sannað sig. Ef hins vegar um
er að ræða stofnun sem ekki
stendur til að selja og ef um það
er að ræða að hlutabréfið verður
aðeins eitt og í forsjá eins ráð-
herra, leyfi ég mér að spyrja
hvort hlutafélagaformið sé
heppilegt. Þetta stendur til að
gera með Ríkisútvarpið nái
frumvarp rík-
isstjórnarinnar fram
að ganga. Til stend-
ur að gefa út aðeins
eitt hlutabréf. Á
hluthafafundinum
verður því aðeins
menntamálaráðherra
eða fulltrúi hans til
þess að ræða við
stjórnarmenn (sem
endurspegla stjórn-
armeirihlutann í rík-
isstjórn hverju sinni)
og að sjálfsögðu út-
varpsstjóra sem
verður einráður yfir
mannahaldi og allri
dagskrárgerð. Mér
væri þetta allt skilj-
anlegra ef til stæði
að selja Rík-
isútvarpið. Eða ef gert væri ráð
fyrir nokkrum fjölda hluthafa
sem veittu stofnuninni aðhald!
Ekkert slíkt stendur til – að
sögn. Ríkisstjórnarflokkarnir,
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur, sverja og sárt við
leggja að engin áform séu um
fjölgun hluthafa, hvað þá um
sölu hlutabréfa. Mér er spurn:
Er verið að hafa einhvern að
fífli?
Hvern er verið að
hafa að fífli?
Ögmundur Jónasson skrifar um
hlutafélagavæðingu Rík-
isútvarpsins
Ögmundur Jónasson
» Til stendurað gefa út
aðeins eitt
hlutabréf.
Höfundur er alþingismaður.