Morgunblaðið - 09.11.2006, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður Hall-varðsson, raf-
virki í Reykjavík,
fæddist í Vest-
mannaeyjum 9. maí
1937. Hann lést á
Landspítala Landa-
koti sunnudaginn 5.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Hall-
varður Sigurðsson
verkamaður í Vest-
mannaeyjum, f. á
Seyðisfirði 14. maí
1902, d. 5. ágúst
1967 og Sigríður Guðjónsdóttir, f.
á Rauðafelli í A-Eyjafjallahreppi í
Rang. 26. júlí 1910, d. 7. febrúar
1995. Systur Sigurðar eru Guð-
björg, f. 4. maí 1935, Ingibjörg, f.
15. apríl 1936, gift Halldóri Val
Þorsteinssyni, Ásta, f. 25. júní
1939, gift Jóni Stefánssyni og
Hrefna, f. 2. júní 1952, gift
Tryggva Geir Haraldssyni.
Sigurður kvæntist 4. október
1958 Málhildi Þóru Angantýs-
dóttur sjúkraliða, f. í Reykjavík 2.
júlí 1938. Foreldrar hennar eru
Angantýr Guðjónsson verkstjóri í
Reykjavík, f. í Reykjavík 22. maí
1917, d. 6. ágúst 1961 og Dóra
Sigríður Halldórsdóttir, f. í
Reykjavík 9. september 1911.
Börn Sigurðar og Málhildar Þóru
eru: a) Angantýr tæknifræðingur í
Reykjavík, f. í Vestmannaeyjum
1967. Foreldrar hans eru Óskar
Jónsson og Sólveig Guðmunds-
dóttir. Börn þeirra eru Hildur
Þóra Þorvaldsdóttir, f. í Reykja-
vík 23. mars 1986 og Sigurjón
Þór, f. á Selfossi 1. október 1995.
Sigurður ólst upp í Vestmanna-
eyjum og hóf sinn búskap þar.
Fluttist síðan til Reykjavíkur
1962. Hann nam rafvirkjun við
Iðnskólann í Vestmannaeyjum,
tók sveinspróf þaðan 1962. Starf-
aði hjá Erling Ágústssyni raf-
virkjameistara, Raftækjavinnu-
stofu Haraldar Eiríkssonar;
Raftækjavinnustofu Sigurðar
Bjarnasonar, hjá Ólafi Jensen raf-
virkjameistara, Bræðrunum
Ormsson og Þórði Finnbogasyni
rafvirkjameistara. Sigurður var
stundakennari við Iðnskólann í
Reykjavík frá 1975–1980. Starfs-
maður Félagi íslenskra rafvirkja
frá 1974 og síðar Rafiðnaðarsam-
bands Íslands þar til hann lét af
störfum vegna veikinda vorið
2002. Var gjaldkeri Félags ís-
lenskra rafvirkja 1969–1978 og
varaformaður frá 1978–1987.
Gjaldkeri Rafiðnaðarsambands Ís-
lands 1978–1993. Sat í fræðslu-
nefnd rafiðna, sveinsprófsnefnd,
stjórn Iðnráðs Reykjavíkur og
fleiri nefndum sem tengdust
verkalýðshreyfingunni.
Útför Sigurðar verður gerð í
dag frá Bústaðakirkju og hefst at-
höfnin klukkan 11.
10. janúar 1959,
kvæntur Erlu Björk
Gunnarsdóttur
meinatækni í Reykja-
vík, f. í Reykjavík 29.
ágúst 1960. Foreldr-
ar hennar eru Gunn-
ar Sigursveinsson og
Hrefna Jónsdóttir.
Börn þeirra: Heiða
María, f. í Óðinsvéum
í Danmörku 7. sept-
ember 1988, Stefán
Már, f. í Reykjavík
13. mars 1991 og
Ágúst Hrafn, f. í
Reykjavík 19. mars 1998. b) Hall-
varður, rafvirki í Noregi, f. í
Reykjavík 11. september 1959,
kvæntur Önnu Margréti Ingólfs-
dóttur, f. í Reykjavík 11. febrúar
1958. Foreldrar hennar eru Ing-
ólfur Árnason og Þóranna Þór-
arinsdóttir. Börn þeirra eru 1)
Hreimur Örn Heimisson, f. í
Reykjavík 1. júlí 1978, unnusta
Þorbjörg Sif Þorsteinsdóttir, f. 9.
mars 1981 og dóttir þeirra er
Embla Margrét, f. 17. september
2005, 2) Sigurður, f. í Reykjavík 7.
desember 1982, 3) Inga Þóra, f. í
Reykjavík 6. september 1993 og 4)
Guðjón Heiðar, f. á Selfossi 11.
apríl 1995. c) Elín Fríða viðskipta-
fræðingur í Reykjavík, f. í Reykja-
vík 11. janúar 1966, gift Davíð Þór
Óskarssyni, f. í Skipagerði í V-
Landeyjahreppi 4. september
Í dag kveð ég tengdaföður minn
Sigurð Hallvarðsson, vin og félaga.
Mín fyrstu kynni af Sigga, eins og
hann var alltaf kallaður, voru sum-
arið 1992 þegar ég var að gera hosur
mínar grænar fyrir dóttur hans. Til
að byrja með held ég að hann hafi
ekki verið ýkja hrifinn af þessum til-
færingum mínum og fundist ég vera
að taka frá honum dóttur hans, Elínu,
og dótturdóttur, Hildi Þóru. En hann
gaf mér þó möguleika á að sýna sér
að ég gæti staðið mig og úthlutaði
mér því verkefni að múra heima hjá
sér baðherbergi sem hann var að
taka í gegn. Hann tók út verkið þegar
því var lokið og það hafði greinilega
verið ágætlega unnið hjá mér því að
upp frá því urðum við mestu mátar.
Elín og Siggi unnu bæði á þessum
tíma hjá RSÍ, iðulega þegar þau hitt-
ust utan vinnunnar fóru þau alltaf að
tala um eitthvað henni tengt. RSÍ var
Sigga mikið hjartans mál, það var
bæði vinnan hans og áhugamál. Þeg-
ar Sigurjón fæddist og Elín var
heima í fæðingarorlofi, kom Siggi oft
heim til okkar og passaði á meðan El-
ín skrapp í vinnuna til að ganga frá
einhverjum málum. Eftir að Siggi
hætti að vinna vorið 2002 fann hann
sér nýtt áhugamál, ættfræði. Hann
reyndi eins mikið og hann gat að
vinna þetta sjálfur en varð þó stund-
um að leita til Elínar eða Angantýs til
þess að fá aðstoð. Við Elín, Hildur og
Sigurjón fluttum í næstu blokk við
hliðina á Sigga og Möllu, í Grafarholt-
inu, ári á eftir þeim. Oft eftir skóla fór
Sigurjón til afa og ömmu, og stóð þá
iðulega í samningaviðræðum við afa
sinn um að deila með honum tölvunni.
Hildur sótti alltaf mikið í afa sinn og
fannst mér hún oft snúa honum um
fingur sér, en það var líklega vegna
þess að hún bjó þar fyrstu fimm ár
ævi sinnar.
Fyrir tíu árum fórum við fjölskyld-
an fyrst saman til Portúgal með
Sigga og Möllu og hafa þessar ferðir
verið árvissar síðan. Í fyrstu ferðun-
um var Siggi heill heilsu. Synti einsog
selur í sjónum, og lék sér við Hildi og
Sigurjón í sundlauginni. Á kvöldin
fannst honum gaman að fá sér léttan
snúning með Möllu. Seinni árin, eftir
að heilsan fór að gefa sig, breyttust
ferðirnar aðeins. Hann vildi helst
sitja á kvöldin á svölunum í íbúðinni
okkar og spjalla. Oft kom það fyrir að
ég eldaði eitthvað fyrir okkur og við
sendum þær mæðgur út, og þá áttum
við Siggi okkar stundir á svölunum.
Hann sagði oft sögur úr Eyjum eða
frá ferðalögum sem þau Malla höfðu
farið í. Þessar stundir voru skemmti-
legar og eiga eftir að lifa í minning-
unni.
Um leið og ég kveð Sigga vil ég
þakka honum fyrir allar stundirnar
sem að við áttum saman, og vona að á
þeim stað þar sem hann er núna, séu
svalir og einhver til að spjalla við.
Davíð Þór Óskarsson.
Sigurður Hallvarðsson fæddist í
Vestmannaeyjum og ólst þar upp og
hafði lokið þar námi í rafvirkjun þeg-
ar hann fluttist upp á meginlandið.
Við sem þekktum Sigga heyrðum
fljótt að hann taldi sig alltaf Vest-
mannaeying og bar mikinn hlýhug til
sinna æskustöðva. Fljótlega eftir að
Sigurður kom upp á land fór hann að
taka virkan þátt í störfum Félags ís-
lenskra rafvirkja og félagar hans
settu hann smám saman til meiri
trúnaðarstarfa. Hann var fyrst í
trúnaðarráði og var síðar gerður að
gjaldkera félagsins og var það um ár-
bil og síðar varformaður félagsins.
Hann var virkur þátttakandi við und-
irbúning og stofnun Rafiðnaðarsam-
bands Íslands og sat öll þing sam-
bandsins sem fulltrúi FÍR, var
kjörinn í miðstjórn sambandsins sem
gjaldkeri og varð starfsmaður sam-
bandsins. Sigurður sat í fjölmörgum
nefndum fyrir RSÍ, þar á meðal
sveinsprófs- og fræðslunefndum.
Einnig var hann ákaflega virkur í
uppbyggingu og rekstri orlofsbyggða
verkalýðshreyfingarinnar. Hann sat
fjölmörg þing ASÍ sem fulltrúi raf-
iðnaðarmanna. Á þessari upptaln-
ingu sést glögglega að Sigurður var
einn af forystumönnum rafiðnaðar-
manna síðustu áratugi síðustu aldar
og virkur þátttakandi í starfi heildar-
samtaka íslenskra launamanna.
Sigurður var ekki allra eins og
gengur og gerist í félagsstarfi. Lif-
andi félagsstarf byggist á því að
menn setji fram sínar skoðanir og
færi fyrir þeim rök. Hann var ætíð
ákveðinn fylgismaður Sjálfstæðis-
flokksins og fór ekkert dult með það.
Allmargir töldu á þessum árum að
stjórnarsæti í verkalýðshreyfingunni
væru þinglýst eign vinstri manna og
töldu að það eitt að stjórnarmaður í
verkalýðsfélagi væri í Sjálfstæðis-
flokknum væru nægileg rök til þess
að ómerkja viðkomandi. Þessi viðhorf
náðu aldrei upp á borð í samtökum
rafiðnaðarmanna, þar voru flokks-
skírteini ekki skoðuð við val á for-
ystumönnum, menn voru valdir af
eigin verðleikum.
Sigurður var hrókur alls fagnaðar
þegar menn komu saman og gekk
stundum að mati sumra manna of
hratt um gleðinnar dyr. Reyndar var
það svo lengi fram eftir síðustu öld,
að menn í félagsstörfum gerðu ekki
mikinn greinarmun á því hvenær
mætti ganga til fagnaðar. Á þessu
urðu miklar breytingar upp úr 1980
og öll vinnubrögð urðu faglegri. End-
anleg vatnaskil urðu svo árið 1990
með Þjóðarsáttinni, þegar aðilar
vinnumarkaðs tóku sig saman og
settu sér skýr markmið og þvinguðu
stjórnmálamenn inn á sömu brautir.
Sigurður var af þeirri kynslóð
manna sem færðu íslenskt þjóðfélag
frá fátækt til þeirrar miklu velferðar
sem við búum við í dag. Engin kyn-
slóð hefur gengið jafnrösklega til
verks og staðið að jafnmiklum breyt-
ingum á sínu samfélagi. Verkalýðs-
hreyfingin tók ákaflega virkan þátt
og allar veigamestu breytingarnar
áttu þar sínar rætur. Það eru margir
sem ekki átta sig á þessu og taka því
sem við búum við sem sjálfsögðum
hlut sem ætíð hafi verið til staðar. Við
stöndum í mikilli þakkarskuld við
þessa kynslóð og forystumenn henn-
ar. Það er ekki hægt að minnast á
störf Sigurðar án þess að nefna eig-
inkonu hans Málhildi, eða Möllu eins
hún er ætíð nefnd. Þau hjón voru
ákaflega samhent í öllu og Malla virk-
ur þátttakandi í öllu starfi Sigga og
alls ekki síðri málsvari okkar rafiðn-
aðarmanna en Siggi.
Sigurður skilaði ákaflega miklu og
góðu dagsverki fyrir samtök rafiðn-
aðarmanna og við stöndum í mikilli
þakkarskuld við hann. Fyrir hönd
rafiðnaðarmanna sendi ég Möllu og
fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur.
Guðmundur Gunnarsson.
Sigurður Hallvarðsson
MINNINGAR
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAGNEA I. SIGURÐARDÓTTIR,
(Maddý),
hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum,
áður til heimilis
í Engihjalla 11,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn
10. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrkarsjóð langveikra
barna.
Jóhanna Ágústsdóttir, Ólafur Hermannsson,
Linda Ágústsdóttir, Jón Þorkelsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN EINARSSON
vélstjóri
frá Smyrlabjörgum,
Suðursveit,
lést á Sóltúni 2 sunnudaginn 5. nóvember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn
10. nóvember kl. 13.00.
Alda Júlíusdóttir,
Jón Ívar Einarsson, Dóra Kristín Briem,
stjúpbörn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MATTHÍASAR JÓNSSONAR,
Hæðargarði 33.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Sóltúns fyrir hlýja og góða umönnun.
Inga Ísaksdóttir,
Friðrik, Steinunn, Ísak og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
EDVARD ÖRN OLSEN
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut þriðjudaginn 31. október.
Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstu-
dag inn 10. nóvember kl. 15.00.
Sigþrúður Ingólfsdóttir
og fjölskylda.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY STEFÁNSDÓTTIR,
Brekkuhúsi 1,
Hjalteyri,
verður jarðsungin frá Möðruvallakirkju í Hörgár-
dal laugardaginn 11. nóvember kl. 11.00.
Karl Sigurðsson,
Stefán Karlssson, Nína Guðmunda Ingvarsdóttir,
Sigurbjörn Karlsson,
Sigurður Karlsson, Sigurlaug Jóhannesdóttir,
Anna Jóna Karlsdóttir, Aðalbjörn Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ANDRÉS ÁSMUNDSSON
læknir,
Sjafnargötu 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn
10. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Íþróttafélag
fatlaðra í Reykjavík.
Þorbjörg Pálsdóttir,
Stefán Andrésson, Þórunn Andrésdóttir,
Katrín Andrésdóttir, Gunnar Kristjánsson,
Þóra Andrésdóttir, Gunnar H. Roach,
Andrés Narfi Andrésson, Ása Sjöfn Lórensdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg systir mín, mágkona og móðursystir
okkar,
JÓDÍS SNORRADÓTTIR,
áður Leifsgötu 5,
Reykjavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar þriðju-
daginn 7. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Jónsdóttir, Hafsteinn Hólm og systrabörn.