Morgunblaðið - 09.11.2006, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Fjallað verður um leikverkiðAmadeus eftir Peter Shaffer í
Borgarbókasafninu í Kringlunni í
kvöld kl. 20. Hilmir Snær Guðnason,
leikari sýningarinnar, leikstjórinn
Stefán Baldursson og Þórunn Þor-
grímsdóttir, leikmyndahöfundur,
ræða um vinnu leikhópsins.
Nú er síðasta tækifærið til að hlusta áástarsöngvöku í Minjasafnskirkjunni
og næstsíðasta sýningarhelgi brúðkaups-
sýningarinnar að renna upp.
Í tengslum við sumarsýningu Minjasafns-
ins á Akureyri Ef þú giftist – brúðkaups-
siðir fyrr og nú, sem vegna góðrar aðsókn-
ar stendur til 19. nóvember, munu Íris Ólöf
Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson
flytja lög um ástina í Minjasafnskirkjunni í
kvöld kl. 20.30.
Á efnisskrá eru bæði gamlir og nýir ást-
arsöngvar og ljóð, allt frá aldargömlum
rímnalögum til dægurlaga nútímans. Eftir
að söngvökunni lýkur gefst áheyrendum
tækifæri til að heimsækja safnið sem verð-
ur opið frá 21.30–23 þetta kvöld.
Allir eru velkomnir og aðgangseyrir á
söngvökuna er 1.000 krónur.
Tónlist
Café Paris | DJ Lucky spilar Soul Funk og
Reggí frá kl. 21.30-01.
DOMO Bar | Í kvöld kl. 21. Brot af því besta
frá þematónleikum sem B3 Tríó hefur haldið
á Múlanum sl. 5 ár með tónlist eftir org-
elleikarana Jimmy Smith og Larry Goldings
og gítarleikarann Wes Montgomery
Félag íslenskra hljómlistarmanna | Tón-
leikar til styrktar tónlistarsafninu Melódíur
minninganna á Bíldudal í kvöld kl. 20. Fram
koma Jón Kr. Ólafsson, Ragnar Bjarnason,
Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur og
fleiri. Miðaverð 1.500 kr.
Salurinn, Kópavogi | III Píanókeppni Ísland-
eildar EPTA, forkeppni.
Myndlist
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006 Opið mán-þri. kl. 10-
18 og laug. kl. 11-16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir með
sýninguna „Puntustykki“. Sýningin stendur
til 1. des.
Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak-
sal til 12. nóvember.
Gallerí Stigur | „Vinátta“ myndlistarsýning
Elsu Nielsen til 17. nóvember. Opið kl. 13-18
virka daga, kl. 11-16 laugard.
Gallerí Sævars Karls | Þráinn málar í
bernskustíl. Börn, tákn og tilfinningar. Sýn-
ingin stendur til 22. nóvember.
Gallery Turpentine | Georg Guðni sýnir ný
málverk og kolateikningar til 21. nóv.
Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum Ara
í tilefni 220 ára afmælis Reykjavíkurborgar.
Opið virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-
16. www.gerduberg.is
Gerðuberg | Sýning á afrískum minjagripum
sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræð-
ingur hefur safnað saman. Blanda af göml-
um munum og nýstárlegum sem saman
mynda heild sem gefur góða mynd af min-
jagripaúrvali í Afríku. Opið virka daga kl. 11-
17, um helgar kl. 13-16. www.gerduberg.is
Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson)
með sýningu á olíumálverkum og teikn-
ingum í neðri sölum til 27. nóv. Baski sýnir
verk sem tengjast Kili og sögu Reynistaða-
manna sem þar urðu úti 1780.
Hafnarborg | 11. nóvember til 30. desember.
Ljósmyndarinn Spessi sýnir verk úr vænt-
anlegri bók sem mun bera titilinn „Loca-
tions“ og kemur út nú fyrir jólin. Sýningin
hefur fengið sömu yfirskrift. Myndir af stöð-
um sem bera ummerki mannfólksins.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13-19 og á
sunnudögum kl. 10-15. Til 12. nóv.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
i8 | Klapparstíg 33-35. Katrín Pétursdóttir
Young vöruhönnuður sýnir snjóbretti og
hjálma. Sýning Katrínar Sigurðardóttur,
Stig, stendur yfir. Opið þri-fös kl. 11-17 og
laugardaga kl. 13-17.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með
myndlistasýningu til 24. nóv.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk. Á sama tíma opnar
Ásmundur bróðir Snorra sýningu á Café
Karólínu. Sýning Snorra stendur til 12. jan-
úar 2007. Nánari upplýsingar um verk
Snorra eru á www.this.is/snorri
Kirkjuhvoll Akranesi | Eiríkur Smith sýnir
um 30 verk, bæði olíu- og vatnslitamyndir í
Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946-
2000). Opið virka daga nema mánudaga kl.
12-17.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eftir
1980. Sýningin rekur þróunina í málverkinu
frá upphafi níunda áratugs tuttugustu aldar
fram til dagsins í dag. Á annað hundrað verk
eftir 56 listamenn eru á sýningunni. Sjá
nánar á www.listasafn.is. Sýningin stendur
til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi - 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar. Sýningin
nefnist Sog. Viðfangsefni listamannsins er
straumvatn.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Banda-
rísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af
fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem
fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýning-
unni. Sýningin hefur farið víða um heim,
m.a. til New York og Lundúna.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Sjá nán-
ar á www.lso.is
Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þver-
holti 2. Grasakonan Gréta Berg fjallar um
tengsl hjúkrunar, geðræktar og lista og
stendur til 11. nóv. Boðið er upp á slökun á
laugard. Opið virka daga kl. 12-19 og laug-
ard. 12-15 í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns verður
framlengd um óákveðinn tíma. Árni sýnir ol-
íumálverk 70x100. Opið kl. 9-17 alla daga
nema laugardaga er opið kl. 12-16.
www.arnibjorn.com
Næsti Bar | Undir meðvitund, sýning Bjarna
Helgasonar, þar sýnir hann tíu akrýlmálverk
ásamt skissum og útprenti. Sýningin er opin
á afgreiðslutíma Næsta bars og stendur til
11. nóvember.
Skaftfell | Sýning vegna Listmunauppboðs.
42 verk eftir 36 listamenn. Sjá www.skaft-
fell.is
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda hefð-
bundins veggjakrots. Sem málverk tak-
markast verkið af eðli Gallerísins VeggVerk.
Þannig á þetta verk, og þau sem á eftir
munu koma, styttri líftíma en hefðbundin
málverk, því listamennirnir munu allir nota
sama rýmið. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á
ljósmyndum sem varðveittar eru í Mynda-
safni Þjóðminjasafnsins og ekki hefur tekist
að bera kennsl á. Sýndar eru myndir af
óþekktum stöðum, húsum og fólki og gestir
beðnir um að þekkja myndefnið og gefa
upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tekið á
móti hópum eftir samkomulagi.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stendur
yfir sýning á skjölum úr einkaskjalasafni
Hjörleifs Hjörleifssonar. Skjölin sem tengj-
ast öll fjölskyldu Hjörleifs eru flest frá um
1900 og eru mörg þeirra glæsileg að útliti.
Opið kl. 10-16 virka daga.
Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms-
kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og
sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur
sett saman með sóknarnefnd og Listvina-
félagi Hallgrímskirkju. Til. 30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
Gamla Presthúsinu. Opið eftir samkomulagi.
500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn - Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10-17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík
2001. Fróðleik er miðlað með margmiðl-
unartækni. Opið alla daga kl. 10-17.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá
Hrafnagili - 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað-
ur. Sýningin spannar æviferil Jónasar í máli
og myndum. Sjá nánar á heimasíðu safnsins
www.landsbokasafn.is
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist - sýn-
ingartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú. Unnið í samvinnu við
Þjóðminjasafn Íslands. Opið laugard. og
sunnud. til 19. nóv. kl. 14-16. Aðrar sýningar:
Eyjafjörður frá öndverðu og Akureyri-
bærinn við Pollinn.
Minjasafnið á Akureyri | Ástarsöngvaka í
kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá eru bæði gamlir
og nýir ástarsöngvar og ljóð allt frá ald-
argömlum rímnalögum til dægurlaga nú-
tímans. Flytjendur: Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
og Hjörleifur Hjartarson. Safnið er opið kl.
21.30-23. Aðgangseyrir 1000 krónur.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns |
Í húsnæði Seðlabankans að Kalkofnsvegi 1
hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís-
lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safns-
ins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðl-
unarformi um hlutverk og starfsemi
Seðlabanka Íslands. Gengið inn um aðaldyr
bankans frá Arnarhóli. Aðgangur ókeypis.
Opið mán.-föst. kl. 13.30-15.30.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12-
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upphaf
símasambands við útlönd. Vjelasmiðja Jó-
hanns Hanssonar - Málmsteyperíið, Kap-
alhúsið og húsin á Wathnestorfunni. Opið
virka daga kl. 13-16 www.tekmus.is
Veiðisafnið - Stokkseyri | Skotveiðisafn -
Íslensk og erlend skotvopn ásamt upp-
stoppuðum veiðidýrum og veiðitengdum
munum. Sjá nánar á www.hunting.is Opið
um helgar í nóvember kl. 11-18. S. 483-1558
fyrir bókanir utan sýningartíma.
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend-
ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam-
vinnu rithöfundar og myndlistarmanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku-
hönnun og Fyrirheitna landið. Veitingastofa
með hádegisverðar- og kaffimatseðli er í
húsinu, einnig safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handverk listfengra kvenna
frá ýmsum tímum. Sýningin byggir á rann-
sóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og bún-
ingafræðings. Myndefni útsaumsins er m.a.
sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld fyrri alda.
Leiklist
Kringlusafn | Í kvöld kl. 20 verður fjallað um
leikverkið Amadeus eftir Peter Shaffer í
Borgarbókasafninu í Kringlunni. Hilmir
Snær Guðnason leikari sýningarinnar, leik-
stjórinn Stefán Baldursson og Þórunn Þor-
grímsdóttir leikmyndahöfundur ræða um
vinnu leikhópsins. Verið velkomin.
Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er
hún hjartnæm fjölskyldusápa? Er hún
dramatísk og kraftmikil hestasýning? Er
hún hárbeitt ádeila? Er hún sterkar konur í
fyrsta klassa? Eða hraustir menn með
stinna rassa? Þjóðarsálin er allt þetta og
svo miklu meira. Miðasölusími: 694-8900
midasala@einleikhusid.is
Dans
Café Cultura | Salsakvöld með Carlosi
Sanchez, salsakennara, á morgun, laug-
ardag. Frí danskennsla í salsa kl. 10.30-11.30.
Upplýsingar á www.salsa.is
Skemmtanir
Garðheimar | „Kósý“ konukvöld í kvöld kl.
19-22. Aðventuskreytingar, jólakortagerð,
tískusýningar o.fl., prufukeyrsla á nýjum
Colt, Icelandair býður 2 konum í kvenna-
ferð, lukkupottar, léttar veitingar .
Málaskólinn LINGVA | TAL-hópar í ítölsku,
spænsku og ensku hefjast í nóvember. Uppl.
á www.lingva.is, s. 561-0315. Courses in Ice-
landic for foreigners start again in nov-
ember. Price kr. 12.500. tel: 561-0306,
www.lingva.is.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Hamraborg 6a. Í dag
kl. 17.15 verða kynntar nýjar bækur. Sigrún
Davíðsdóttir les úr Feimnismálum og Stefán
Máni les úr Skipinu. Í Bókabúðinni Hamra-
borg er 30% afsl. af bókunum til laug-
ardags. Heitt á könnunni frá Kaffibúðinni
Hamraborg. Aðgangur ókeypis.
Skriðuklaustur | Kvöldvaka og útgáfuhóf í
tilefni útgáfu Gunnarsstofnunar á úrvali
austfirskra draugasagna. Lesnar sögur og
sungin þjóðlög. Djöflatertur og draugakökur
í Klausturkaffi. Dagskráin hefst kl. 20.30.
Fyrirlestrar og fundir
Fossvogskirkja | Gunnhildur Heiða Axels-
dóttir flytur fyrirlestur um makamissi á
vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð, kl. 20-22, í kvöld.
Landakot | Í dag kl. 15 verður haldinn
fræðslufundur á vegum Rannsóknastofu í
öldrunarfræðum RHLÖ í kennslusalnum á 7.
h. á Landakoti. Helga Ragnarsdóttir, fé-
lagsráðgjafi, mun fjalla um öldrunarinnsæi.
Sent verður út með fjarfundabúnaði.
Nordica hotel | Háskólinn í Reykjavík stend-
ur fyrir ráðstefnunni Þitt tækifæri-allra hag-
ur í samstarfi við KOM almannatengsl 15.
nóv. kl. 13-17. Fjallað um samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja. Skráningar fara fram á
vefsíðunni www.internetid.is/csr/
Frístundir og námskeið
Mímir símenntun ehf | Hefur þú áhuga á að
læra arabísku? Byrjendanámskeið hefst 22.
nóvember. Kennt verður í 6 skipti á mánu-
dögum og miðvikudögum frá kl. 20-22.15 í
Gamla Stýrimannaskólanum. Kennari er Jó-
hanna Kristjónsdóttir. Nánari upplýsingar
hjá Mími í síma 580-1800.
staðurstund
Leiklist
Fjallað um leik-
verkið Amadeus
Söfn
Ástarsöngvaka í
Minjasafnskirkjunni
Borat kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
The Devil Wears Prada kl. 8 og 10.20
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
eeeee
V.J.V. - Topp5.is
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
eeeee
„Eitt orð: Frábær“
-Heat
eeee
Empire
Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.
„...epískt meistaraverk!“
- Salon.com
„Tveir þumlar upp!“
- Ebert & Roeper
T.V. - Kvikmyndir.com
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
HÚSIÐ ER Á LÍFI OG ÞAU ÞURFA
AÐ BJARGA HVERFINU
Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
eeeee
EMPIRE
eeeee
THE MIRROR
eeee
S.V. Mbl.
eee
LIB, Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is