Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 313. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
S- og SV-átt,
10–25 m/s en 15–
20 NV-lands.
Slydda, síðar
rigning, úrkomulítið á NA-
og A-landi. Hvöss SA-átt S-
lands í kvöld.» 8
Heitast Kaldast
8°C 1°C
Drögum á morgun
Tryggðu þér miða
fyrir kl. 18 á morgun
í 800 6611 eða á hhi.is
Áttu miða?
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Landsbankans og einn aðaleigandi
bankans, staðfesti í gær, að hann er aðalfjár-
festirinn á bak við tilboð Eggerts Magnússon-
ar, formanns Knattspyrnusambands Íslands, í
enska úrvalsdeildarliðið West Ham United.
Björgólfur sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem greint er frá þessu.
Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að þeir
Björgólfur og Eggert hafi verið vinir í áraraðir
og báðir hafi „ástríðufullan áhuga á enska fót-
boltanum“.
Nú stendur yfir áreiðanleikakönnun á bók-
haldi West Ham á vegum þeirra Björgólfs og
Eggerts og er búist við því að niðurstaða þeirr-
ar könnunar liggi fyrir um eða upp úr miðjum
mánuðinum, samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins.
Eggert Magnússon hækkaði tilboð sitt sl.
mánudag í West Ham í 75 milljónir punda
(rúmar 9.700 milljónir króna) auk þess sem
hann lagði fram greinargerð um hvernig kaup-
in yrðu fjármögnuð.
Í kjölfar þess tilboðs ákvað stjórn West Ham
að opna bækur sínar fyrir Eggerti og fjárfest-
ingarfélögum.
Björgólfur
býður í West
Ham United
SYSTURNAR Eleane Reed og Chris Conner
færðu í gær Reykjavíkurborg til eignar tutt-
ugu ljósmyndir frá Höfða sem teknar voru
þegar foreldrar þeirra, George og Minnie
Piddington, bjuggu og störfuðu þar undir lok
5. áratugar síðustu aldar. Piddington-hjónin
unnu í nokkur ár sem bílstjóri og ráðskona hjá
breska sendiherranum, en Höfði var bústaður
breska sendiherrans á árunum 1938 til 1952.
Að sögn þeirra systra kom George Pidd-
ington fyrst til Íslands á stríðsárunum þegar
hann var í breska hernum. Í framhaldinu var
honum boðin staða bílstjóra hjá sendiherr-
anum hérlendis, en hann mátti einungis þiggja
starfið væri hann kvæntur. „Til þess að geta
þegið starfið flýttu pabbi og mamma brúð-
kaupi sínu um ár,“ segir Eleane Reed.
Að sögn Reed og Conner töluðu foreldrar
þeirra ávallt um Íslandsárin sem besta tímabil
ævi sinnar. „Það hefur því lengi verið draumur
okkar að heimsækja þetta einstaka land í
norðri sem heillaði þau svo mjög,“ segja Reed
og Conner. | 6
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bestu æviárin
voru á Íslandi
Merkar myndir Bresku systurnar afhenda
Júlíusi Vífli Ingvarssyni gjöfina.
KRÖPP lægð nálgast landið í kvöld og þá
hvessir af suðaustri, samkvæmt upplýsingum
Veðurstofu Íslands. Búast má við suðaustan
stormi á öllu sunnanverðu landinu í kvöld.
Talsverð rigning eða slydda fylgir lægðinni.
Lægðin fer líklega norður með vestur-
ströndinni og þá gengur í vestan storm með
éljum í fyrramálið. Búast má við vestan
stormi eða hvassviðri víðast hvar á morgun.
Morgunblaðið/Ásdís
Stormur í kortunum
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HUGMYNDIR að breyttu skipu-
lagi Háskóla Íslands (HÍ) verða
kynntar á háskólafundi 17. nóvem-
ber nk. Í þeim felst m.a. að í stað 11
núverandi deilda komi 5–7 skólar
sem hver um sig yrði deildaskipt-
ur.
Ólafur Þ. Harðarson prófessor
hefur stýrt vinnunefnd háskóla-
ráðs, skipaðri af háskólarektor.
Nefndin hefur undirbúið breyt-
ingahugmyndirnar. Hann sagði að
í stefnu HÍ frá liðnu vori í tengslum
við markmið um að komast í
fremstu röð væri gert ráð fyrir að
farið yrði í þessa vinnu. Þá hefðu
verið gerðar athugasemdir við nú-
verandi deildaskiptingu í annars
jákvæðum skýrslum Ríkisendur-
skoðunar og Evrópsku háskóla-
samtakanna.
Núverandi deildir þykja of
margar og eins eru þær mjög mis-
stórar. Í þeim fámennustu eru 100–
200 nemendur en þeim fjölmenn-
ustu allt að 2.500 nemendum.
Deildarforsetar hafa sama hlut-
verk í skipuriti, án tillits til stærðar
deildanna. Skólarnir yrðu nær
hver öðrum í stærð en deildir nú.
Nú er HÍ skipt í fjögur svið; heil-
brigðisvísindasvið, hugvísindasvið,
félagsvísindasvið og verkfræði- og
raunvísindasvið. Sviðaskiptingin
leggur nokkuð línur um mögulega
skóla þ.e. heilbrigðisvísindaskóla,
hugvísindaskóla, félagsvísinda-
skóla og verkfræði- og raunvís-
indaskóla. Einnig hefur verið rætt
um uppeldisvísindaskóla. Ólafur
sagði þá hugmynd tengjast hugs-
anlegri sameiningu HÍ og Kenn-
araháskólans (KHÍ). Þá yrði KHÍ
væntanlega kjarninn í uppeldisvís-
indaskólanum. Hugvísindaskóli
gæti innifalið núverandi hugvís-
indadeild og guðfræðideild. Fé-
lagsvísindaskóli gæti innihaldið fé-
lagsvísindadeild, viðskipta- og
hagfræðideild og lagadeild eða þá
að sérstakur skóli yrði stofnaður
um lagadeild og viðskipta- og hag-
fræðideild. Verkfræði- og raunvís-
indasvið yrði í einum skóla eða
tveimur.
Ólafur taldi að á fyrirhuguðum
háskólafundi yrði fyrst og fremst
fjallað um frumhugmyndirnar. Síð-
an tæki við gagnger umræða innan
háskólans. „Ég á von á því að há-
skólinn komist að niðurstöðu um
endurskoðun á skipulagi sínu á
fyrrihluta næsta árs.“
Skipulag Háskólans
til endurskoðunar
Hugmyndir uppi um að 5–7 skólar komi í stað 11 núverandi deilda
Í HNOTSKURN
»Kristín Ingólfsdóttir, rekt-or HÍ, sagði er hún kynnti
stefnu skólans fyrir árin 2006–
2011 að gert væri ráð fyrir því
að deildaskipting HÍ yrði end-
urskoðuð. Hún yrði einfölduð
og skólanum jafnvel skipt nið-
ur í nokkra skóla.
» Innan hvers skóla yrðumargar deildir og er hug-
myndin sú að nýju deildirnar
yrðu að verulegu leyti byggð-
ar á núverandi skoraskipt-
ingu.
»Sumar litlar núverandi há-skóladeildir gætu orðið
deildir innan nýju skólanna.