Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 313. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FEGURÐIN EIN
EF AÐ LÍKUM LÆTUR FALLA TÁR Á TÓNLEIK-
UM SUFJANS STEVENS Í FRÍKIRKJUNNI >> 50
ÚTVARP INGÓ
LJÓSVAKI INGÓLFS
MARGEIRSSONAR
STÚDÍÓ Í STOFUNNI >> 30
Opið til 19 í dag
og 10–18 á morgun
Gefðu þér
góðan tíma
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
EMBÆTTISMENN franska sósíal-
istaflokksins sögðu í gærkvöldi að hin
53 ára gamla Segolene Royal hefði
sigrað í forkosningunum vegna for-
setaframboðsins á næsta ári.
„Flokksmenn hafa tekið skýra
ákvörðun. Það ætti ekki að þurfa
nema eina umferð,“ sagði Bruno Le
Roux, háttsettur talsmaður sósíalista.
Skömmu fyrir miðnætti var talið að
Royal fengi 55–60 af hundraði at-
kvæða og þyrfti því ekki að efna til
seinni umferðar
milli tveggja efstu
úr fyrri umferð.
Liðsmenn
flokksins, alls um
219.00 manns,
kusu í gær milli
Royal og tveggja
annarra fram-
bjóðenda, Domin-
ique Strauss-
Kahn og Laurent Fabius en þeir eru
báðir fyrrverandi ráðherrar. Hinn
fyrrnefndi mun hafa fengið næstmest
fylgi í gær. Talsmenn Strauss-Kahn
og Fabius í héraðinu Herault gáfu í
skyn að brögð hefðu verið í tafli,
stuðningsmenn þeirra hefðu verið
hindraðir í að kjósa. Einnig hefði sést
til kjósenda sem skiluðu tveim kjör-
seðlum.
Sigri Royal í forsetakosningunum
verður hún fyrst kvenna til að gegna
embættinu í landi sínu. Andstæðingar
Royal, sem hefur tekist vel að fanga
athygli fjölmiðla og almennings, saka
hana um hentistefnu. Og margir rót-
tækir vinstrimenn segja hugmyndir
hennar ganga þvert gegn hefðbundn-
um baráttumálum sósíalista.
Royal forsetaefni sósíalista
Gæti orðið fyrst franskra kvenna á forsetastóli
Segolene Royal
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
ÁKVEÐIÐ hefur verið að senda íslenska
sprengjuleitarmenn til Líbanons í byrjun næsta
árs á vegum Íslensku friðargæslunnar. Val-
gerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra upplýsti
þetta í umræðum á Alþingi í gær. Verkefni
sprengjuleitarmannanna verður m.a. að hreinsa
svæði í suðurhluta Líbanons. Þeir eiga að starfa
við hlið neyðaraðstoðarsveitar sænska ríkisins
og vera undir verndarvæng Sameinuðu þjóð-
anna. Þeir verða vopnlausir og munu bera
merki SÞ, að sögn ráðherra.
Ætlunin er að senda tvö þriggja manna teymi
til Líbanons; tvo sérfræðinga frá Landhelgis-
gæslunni og einn bráðaliða eða sjúkraflutninga-
mann. Hvort teymið um sig verður, fyrst í stað,
sex vikur í Líbanon. Bækistöðvar þeirra verða í
Týrus í Líbanon.
„Öryggisástandið á þessu svæði er eins gott
og verða má, um þessar mundir, að sögn Sam-
einuðu þjóðanna,“ sagði utanríkisráðherra í
samtali við Morgunblaðið. | 10
Íslenskir sprengjuleitar-
menn fara til Líbanons
Í HNOTSKURN
»Aðgerðasvæði íslensku friðargæslu-mannanna verður einskorðað við ábyrgð-
arsvæði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon.
»Liðsmenn sveitarinnar munu klæðastfatnaði sem sveitin notar í verkefnum
fyrir Landhelgisgæsluna hér á landi og
bráðaliðarnir verða í venjulegum einkennis-
klæðnaði sjúkraflutningamanna.
NJÖRÐUR P. Njarðvík, rithöfundur og kenn-
ari, veitti í gær viðtöku Verðlaunum Jónasar
Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt þeim sem
þykir hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri
tungu gagn. Á myndinni má sjá verðlaunahaf-
ann fyrir miðju ásamt Þorgerði K. Gunnars-
dóttur menntamálaráðherra og Einari Sveins-
syni, stjórnarformanni Glitnis, en bankinn
leggur til verðlaunaféð. | 23 og miðopna
Morgunblaðið/Eyþór
Njörður hlýtur Jónasarverðlaun
BIRGIR Leifur Hafþórsson atvinnukylf-
ingur úr GKG tryggði sér í gær keppnisrétt
á stærstu atvinnumótaröð í Evrópu með því
að enda í 24. sæti á lokaúrtökumótinu á San
Rouqe á Spáni.
Birgir er fyrsti íslenski karlkylfingurinn
sem fær keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.
Hann mun því etja kappi við marga af bestu
kylfingum heims. Má þar nefna Ernie Els,
Retief Goosen og Sergio Garcia.
„Ég er í skýjunum yfir að hafa náð tak-
markinu eftir tíu ára bið. Þetta er hægt. Að
vera íslenskur og geta eitthvað í golfi.
Margir hafa efast um að þetta væri hægt en
ég er stoltur af þessum áfanga,“ segir Birg-
ir. | Íþróttir
Birgir í hópi
þeirra bestu
BÓKIN Biblían á hundrað mínútum, sem
bókafélagið Ugla hefur gefið út, er nú í
fyrsta sæti á lista Pennans-Eymundssonar
yfir söluhæstu bækur almenns efnis, hand-
bækur og fræðibækur. Þá er bókin í átt-
unda sæti á heildarlista yfir seldar bækur í
öllum flokkum vikuna 8. til 14. nóvember.
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra
bóka hjá Pennanum-Eymundsson, segir
þetta mjög sérstakt. Biblían hafi aldrei áð-
ur komist í efsta sæti á lista yfir söluhæstu
bækur hjá versluninni.
Í ritinu Biblían á hundrað mínútum er
dregið saman efni Biblíunnar í texta sem
tekur ekki nema rúman einn og hálfan
tíma í lestri. „Þetta er Biblían í hnotskurn.
Hún geymir frásagnir Biblíunnar í hnot-
skurn, frá Mósebókunum til Opinberunar
Jóhannesar,“ segir Jakob F. Ásgeirsson,
sem er útgefandi og þýðandi bókarinnar.
Hann segir mjög ánægjulegt að bókin
skuli fá þessar góðu viðtökur.
Biblía á toppi
metsölulistans
♦♦♦