Morgunblaðið - 17.11.2006, Page 30
daglegt líf
30 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
M
ér finnst mjög gott að byrja
daginn á því að útvarpa
morgunspjalli héðan heiman
frá mér áður en ég fer úr
húsi og þeytist út um allan
bæ,“ segir Ingólfur Margeirsson, nýútskrif-
aður sagnfræðingur, sem er þessa dagana
að skrifa MA-ritgerð en gefur sér þó tíma
til að sinna starfi sínu sem útvarpsstjóri á
sinni eigin útvarpsstöð. Ingólfur sendir út á
hverjum morgni af heimasíðu sinni, fer yfir
dagblöðin og veltir fyrir sér þeim málefnum
sem þar ber á góma og spilar tónlist á milli.
„Ég er að velta fyrir mér að senda út bók-
menntagagnrýni í töluðu máli núna fyrir jól-
in og forlögin hafa tekið vel í þá hugmynd.
Eins er ég að hugsa um að gera það sama
með tónlist sem gefin er út hér á landi.“
Kynnist skemmtilegu tónlistarfólki
Ingólfur er búinn að vera með heimasíð-
una ingo.is í nokkur ár, þar sem hann
bloggar um málefni líðandi stundar og setur
inn sagnfræðilegan fróðleik, en fyrir fjórum
vikum tók hann til við að útvarpa líka af
síðunni sinni. „Með nýju Macintosh-tölvunni
minni keypti ég forrit þar sem hægt er að
taka upp tónlist og talað mál og senda út á
heimasíðunni. Þetta byggist á venjulegri út-
sendingartækni og þar sem ég er vanur því
að vinna í útvarpi, klippa efni til og annað
slíkt, þá var ekkert mál fyrir mig að tileinka
mér þetta.“
Ingólfur segir að út um allan heim séu
svona útvarpsheimasíður, eða Podcast. „Við
tölum mikið saman þessir útvarpsstjórar,
sendum hver öðrum tónlist og annað slíkt
og þetta er mjög skemmtilegt og alþjóðlegt
samfélag. Auðvitað er frábært að vera með
útvarp sem hægt er að hlusta á um allan
heim. Tónlistarmenn sem eru ekki mjög
þekktir nota þetta mikið til að koma tónlist
sinni á framfæri. Ég hef uppgötvað ótrúlega
marga listamenn í gegnum þetta útvarp og
er til dæmis í góðu netpóstssambandi við
tónlistarmann í Japan, unga stelpu í Am-
eríku og djassgrúppu í Hollandi. Allir þessir
aðilar eru í skýjunum yfir því að ég sé að
spila tónlistina þeirra á Íslandi í útvarpinu
mínu.“
Bráðum líka sjónvarpsútsendingar
Ingólfur segist fá mikinn lestur á síðuna
sína, um 800 innslög í hverri viku. „Ég er
rosalega ánægður með það og tvisvar hef ég
fengið viðbrögð frá ráðherrum við blogginu
mínu. Guðni Ágústsson og Björn Bjarnason
voru ósammála einhverju sem ég hafði
skrifað og þeir sendu mér póst þess vegna
og reyndar skrifaðist ég á við Björn um
þetta mál í heilan eftirmiðdag. Ég hafði svo-
lítið gaman af því að dómsmálaráðherra Ís-
lands eyddi hálfum degi í það að rífast við
bloggara vestur í bæ. En auðvitað sýnir
þetta líka hvað Netið er orðið sterkur mið-
ill. Nokkrir pólitíkusar hafa óskað eftir því
að koma í viðtal til mín á útvarpsstöðinni
minni og ég á eftir að sinna því. Útvarpið
mitt stefnir því í að verða alvöru ljósvaka-
miðill. Ég get líka farið með stafrænt hljóð-
upptökutæki út í bæ og tekið viðtöl sem ég
svo hleð inn á síðuna mína, ég er ekki bund-
inn af því að taka efni upp hér heima. Ég
ætla fljótlega af stað með sjónvarpsútsend-
ingar því þetta forrit býður upp á það að ég
geti farið með myndbandsvél út í bæ og
tekið viðtöl eða gert hvað annað sem mér
dettur í hug og sjónvarpað því af heimasíð-
unni minni.“
Útvarp Ingó heima í stofu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útvarpsstjóri Ingólfur kann því vel að vera stjórinn á ingo.is og hér tekur hann útvarpsviðtal
við Guðna Má Henningsson um tónlist og trú og allt sem hann þarf er tölva og míkrafónn.
Hann er með stúdíó heima hjá
sér og útvarpar af heimasíðunni.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
heimsótti ofvirka rithöfundinn,
blaðamanninn og sagnfræðing-
inn Ingólf Margeirsson.
www.ingo.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Fötin mín eru hugsuð fyrirleikskólabörn. Þau eruþægileg og litrík, úr góð-um efnum og eiga að þola
þvott og ærslagang. Ég ákvað að
skreyta fötin með skemmtilegum
smáatriðum, svo sem kanínu- og
geimverueyrum, því mér finnst
barnaföt oft of alvarleg og lík tísku-
fatnaði fullorðinna. Börn eiga að fá
að vera börn á meðan þau eru börn,“
segir fatahönnuðurinn Helga Ólafs-
dóttir, sem hannaði barnafatalínu
sem nýkomin er í verslanir Hag-
kaupa.
Fatalínan hennar Helgu er fram-
leidd í Tyrklandi, Kína og á Indlandi
undir vörumerkinu „Snú snú“ og eru
fötin sérsniðin fyrir leikskólabörn á
öllum aldri.
Helga hafnaði í öðru sæti í hönn-
unarsamkeppni sem Hagkaup stóð
fyrir og hefur í kjölfarið þróað
barnafatalínuna Snú snú.
Góður hugmyndabanki
Helga lærði fatahönnun í Kaup-
mannahöfn og London og útskrif-
aðist árið 2000 frá BEC Design. Síð-
an hefur hún unnið fyrir NTC, All
Saints og Nikita. Núna er Helga bú-
sett á Íslandi og vinnur heima hjá
sér. „Eftir að ég eignaðist börnin
mín kom áhuginn á að hanna barna-
föt af sjálfu sér. Ég var alltaf að spá
og spekúlera í barnafötum og hef
verið að teikna hugmyndir að barna-
fötum síðustu fjögur árin. Ég á því
orðið nokkuð góðan hugmynda-
banka með barnafatnaði,“ sagði
Helga í samtali við Daglegt líf.
Helga segist í sjálfu sér
ekki eiga sér nein uppá-
haldsefni að vinna með, en
litir séu miklu fremur sitt
uppáhald. „Ég byrja alltaf
að spá í litina áður en ég vel
efnin, en auðvitað er mik-
ilvægt að velja slitsterk efni í
barnaföt. Að öðru ólöstuðu
fannst mér sérstaklega skemmti-
legt að hanna flísgallana fyrir Snú
snú-línuna. Öll íslensk börn eiga
orðið flísfatnað enda er mikið af flís-
fötum í boði. Hjá mér er treyjan
með tvöfaldri hettu, hún er síðari að
aftan svo það sé ekki bert á milli og
svo er hlíf yfir rennilásahausnum
svo hann liggi ekki kaldur á höku
barnsins. Buxurnar eru svo með
stroffi í mittið svo þær liggi vel að
líkamanum og neðst á skálminni er
líka stroff svo hún komist ofan í
stígvél.“
Þegar Helga er innt eftir framtíð-
arplönunum segir hún að hugurinn
stefni út fyrir landsteinana. „Mér
fannst rosalega gaman að starfa í
London og Kaupmannahöfn hefur
sömuleiðis alltaf togað í mig enda er
mikið að gerast í danskri fatahönn-
un. Það hefur líka verið mikill upp-
gangur í íslenskri hönnun síðustu
árin og það eru margir starfandi
fatahönnuðir á Íslandi núorðið.
Fólk og fyrirtæki hér á landi eru
sífellt að verða meðvitaðri um
íslenska hönnuði og á Hag-
kaup hrós skilið fyrir hönn-
unarsamkeppnina, sem er
hreint frábært framtak og
tækifæri fyrir íslenska hönnuði.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hönnuðurinn Helga Ólafsdóttir á fjölda hugmynda að barnafatnaði.
Slitsterk og litrík föt á
líflega leikskólakrakka
hönnun
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is