Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG VIL eindreg-
ið skora á rík-
isstjórn og borg-
arsstjórn að
kaupa aftur
Heilsuvernd-
arstöðina við
Barónsstíg.
Heilsuvernd-
arstöðin er teikn-
uð af einum
frægasta arkitekt landsins (að öll-
um öðrum ólöstuðum), en hún var
teiknuð af Einari heitnum Sveins-
syni, arkitekt Reykjavíkurborgar
og Gunnari H. Ólafssyni.
Þar sem aldarafmæli Einars heit-
ins Sveinssonar var 16. nóvember í
haust, væri það verðugt verkefni að
heiðra minningu hans
með því að borgin
eignaðist þetta glæsi-
lega hús aftur.
Einar var fyrsti ís-
lenski arkitektinn sem
lauk námi í arkitektúr
frá Þýskalandi. Hann
nam sín fræði frá hin-
um fræga háskóla í
Darmsdadt í Þýska-
landi og lauk þaðan
námi 1932. Skömmu
eftir að hann kom
heim, eða 1934, var
hann gerður að húsa-
meistara Reykjavík-
urborgar og var hann
það allt til hann lést í
mars 1973. Eftir Einar liggur svo
ótrúlega mikil vinna, vönduð og
fögur, og var hann vafalaust af-
kastamesti listamaður í sinni grein.
Einar var afar stoltur af Heilsu-
verndarstöðinni og Borgarspít-
alanum í Fossvogi sem hann er líka
höfundur að enda mátti hann vera
það. Jón Björnsson arkitekt, lauk
við starf Einars við Borgarspít-
alann.
Ég kynntist Einari er ég var ráð-
inn raftækjavörður við Borgarspít-
alann 1965. Einar var að mínu mati
afar mikið prúðmenni en afskaplega
ómannblendinn maður. Þegar við
vorum að velja tæki og ljós við
Borgarspítalann 1965 og 1968 urðu
kynni okkar allnáinn. Einar kom
oftast á kvöldin, eftir venjulega
vinnu eða fyrir hádegi á laug-
ardögum og á sunnudögum til að
skoða og athuga vinnu dagsins og
hugsa allt verulega vandað; þá vor-
um við kannski búnir að sitja tvo til
þrjá sjúkrahúsfundi. Þá var verið
að innrétta Borgarspítalann 1965-
1970. Einar flanaði
ekki að neinu, allt varð
að vera fyrsta flokks,
ljós, tæki, vinna, litir
og annað. Hann valdi
sér við hlið aðeins
fyrsta flokks fagmenn,
topp arkitekta, og aðra
verkmenn. Hann fékk
sér þekktan listamann
(Valtý Pétursson) til
að velja með sér litina
á Heilsuverndarstöðina
og Borgarspítalann.
Ég taldi mig hafa lært
mikið af honum fyrir
það er ég þakklátur.
Einar var svo mikill
framúrstefnumaður að Heilsu-
verndarstöðin hentar í dag fyrir allt
það sama og hún var byggð fyrir,
1953-55, engu þarf að breyta nema
venjulegu viðhaldi.
Föðurbróðir minn, Jón Ormsson,
hafði lengi verið eftirlitsmaður ljósa
og raftækja hjá borginni. Í hans
hlut kom að velja ljós með Einari í
Heilsuverndarstöðina, þeir voru
miklir vinir.
Ég minnist þess þegar við vorum
að velja ljós í stóra borðsalinn á
Borgarspítalanum, þetta var fyrir
hádegi á sunnudegi, ljósaklasar,
fimm til sjö kúlur við hvert ljósa-
stæði, ég stóð upp í tröppu og færði
kúlurnar til, eina neðar, tvær ofar,
þetta myndaði eins konar vínber-
jaklasa. Innanhúsarkitektinn,
Gunnar heitinn Gunnarsson, var
ekki alveg sammála Einari. Þetta
stóð yfir í tvo til þrjá tíma, allt í
einu segir Einar með sinni einstöku
hægð og vináttu: „Mér finnst voða-
lega leiðinlegt að vera ekki sam-
mála þér Gunnar minn en svona
ætla ég nú að hafa þetta.“
Einar heitinn var fæddur 16.
nóvember 1906 og er því ald-
arafmæli hans í haust, hann lést 12.
mars 1973. Ég vonast eftir að
Heilsuverndarstöðin verði aftur í
eigu Reykjavíkurborgar eða rík-
isins.
Það var nú meiri rataskapurinn
hjá R-listanum að selja þetta glæsi-
lega hús. Það virðast allar eignir
borgarinnar hafa verið falar hjá R-
listanum og síðan notaðar sem
eyðslufé.
KARL JÓHANN ORMSSON
Starengi 26, Reykjavík.
Áskorun til ríkisstjórnar
og borgarstjórnar Reykjavíkur
Frá Karli J. Ormssyni:
Morgunblaðið/Brynjar GautiHeilsuverndarstöðin við Barónsstíg.
Karl J. Ormsson
Einar Sveinsson
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
SÆL Þorgerður Katrín.
Félag íslenskra fótaaðgerðafræð-
inga skorar á þig að fella nú þegar úr
gildi vilyrði það sem Mennta-
málaráðuneytið veitti Snyrtiakademí-
unni í Kópavogi með bréfi dags. 31.
júlí 2006 varðandi nám í fótaaðgerða-
fræðum. Vilyrðið var veitt án samráðs
við heilbrigðisráðuneytið, stafsgrein-
aráð heilbrigðis- og félagsgreina og
Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga.
Félagið er mjög uggandi um fram-
tíð fagsins ef hefja á kennsluna á þeim
forsendum sem stefnt er að í Snyrti-
akademíunni.
Ennfremur skorum við á þig að
draga það ekki lengur að tilnefna full-
trúa í nefnd þá sem heilbrigð-
isráðherra skipaði í september sl. til
að fjalla um framtíð náms í fótaað-
gerðum á Íslandi heldur gera það nú
þegar svo að nefndin geti hafið störf.
Þar sem KB banki kemur að fjár-
mögnun skólans má ætla að arðsem-
iskröfur bankans þrýsti á um að nám-
ið hefjist sem fyrst. Upphaf náms í
fótaaðgerðum hérlendis á að grund-
vallast á faglegum undirbúningi í sam-
starfi Félags íslenskra fótaaðgerða-
fræðinga, menntamála- og
heilbrigðisyfirvalda en þar eiga fjár-
hagsleg sjónarmið ekki að ráða ferð-
inni því að lengi býr að fyrstu gerð.
SÓLRÚN Ó.
SIGURODDSDÓTTIR,
formaður.
Áskorun – Opið bréf til
menntamálaráðherra
Frá Félagi íslenskra
fótaaðgerðafræðinga:
MÁNUDAGINN
6. nóvember sl.
ritar maður að
nafni Stefán
Helgi bréf til
blaðsins þar sem
hann úthúðar
stefnu borgaryf-
irvalda í bíla-
stæðamálum og
vill miklar bætur
þar á. Eins og
fyrirsögn bréfsins gefur til kynna
vill Stefán Valur íhuga þann mögu-
leika að flytja Kvennaskólann og
Menntaskólann burt úr bænum, en
fyrirsögnin er einmitt „Flytjum MR
og Kvennaskólann úr miðbænum“.
Ritar Stefán þetta bréf vegna þess
að hann á erfitt með að fá stæði
beint fyrir utan heimili sitt.
Ágætt er að rifja upp sögu
Menntaskólans fyrir Stefáni, en hún
er um margt merkileg. Skólinn á
sögu að rekja til biskupsstólsins í
Skálholti frá árinu 1056, en eftir
viðkomu á Hólavöllum og á Bessa-
stöðum var skólinn fluttur haustið
1846 í það hús sem hann starfar í
nú. Það var nokkru áður en Stefán
Valur var svo mikið sem fósturvísir
og áður en bílar fóru að keyra hér
um götur.
Í bréfi áðurnefnds Stefáns segir
einnig: „Og stefna borgaryfirvalda
um þéttingu byggðar gerir illt
verra. Byggingarverktakar ásælast
byggingarreiti og vilja byggja há-
hýsi hvar sem mögulegt er í þessu
rótgróna hverfi í algerri mótsögn
við byggingarsöguleg einkenni þess
[…].“ Eru þessi orð merkileg þegar
aldur og saga Menntaskólans og
Kvennaskólans eru höfð í huga, því
Kvennaskólinn á Fríkirkjuvegi 9
reis einnig fyrir daga Stefáns, eða
árið 1909. Stefán er því í mótsögn
við sjálfan sig og kemur upp um fá-
fræði sína á opinberum vettvangi,
sem er fremur neyðarlegt.
Enda þótt húsnæðis skólanna
nyti ekki við væri eigi að síður
margt við skrif Stefáns að finna.
Búseta í miðbænum býður upp á
umhverfi gamalla og fallegra húsa
auk þess sem flestöll þjónusta er í
göngufæri við íbúana. Íbúar mið-
bæjarins hafa því ákveðin forrétt-
indi og er svæðið eftirsóknarvert ef
marka má íbúðaverð þess. Það sem
einkennir líka gamla bæinn eru
þröngar götur, enda er hann byggð-
ur fyrir tíma ökutækjanna. Það er
góður kostur fyrir þá sem kjósa að
nota reiðhjól og almennings-
samgöngur, en Lækjartorg er ein-
mitt ein helsta meginæð stræt-
isvagnanna.
Draga má þá ályktun af skrifum
Stefáns Helga að hann hafi ekki
farið til margra evrópskra borga,
eða hefur þá í besta falli verið með
skerta meðvitund í þeim ferðum,
því mitt í borgum nágrannaríkja
okkar eru helstu samgöngutæki
einmitt reiðhjól, strætisvagnar og í
sumum tilvikum neðanjarðarlestir.
Stefán Helgi streitist samt sem áð-
ur við og vill vera á bíl sem aug-
ljóslega er svo fínn að rífa ætti
þann stað sem er hvað merkileg-
astur í sögu sjálfstæðisbaráttu Ís-
lendinga, allt fyrir bíl Stefáns
Helga.
Ekki má heldur gleyma þeirri
staðreynd að borgaryfirvöld gera
mjög vel við einkabíla og fara marg-
ir ferkílómetrar verðmæts bygging-
arlands undir umferðarmannvirki.
Einnig hefur engin gjaldtaka verið
á almenningsbílastæðum nema á
litlu svæði mitt í bænum.
Hægt er að finna margar aðrar
leiðir til að auðvelda Stefáni lífið.
Sem dæmi má nefna að tvö bíla-
stæðahús eru í nágrenninu, við
Traðarkot og undir Ráðhúsinu.
Hinum reiða íbúa yrði varla meint
af að ganga þessa stuttu leið frekar
en nokkrum öðrum og mætti einnig
líta á það sem heilsubótargöngu, nú
þegar mikið er rætt um offitu og
hjartasjúkdóma. Reiðhjól eru reglu-
lega seld á uppboði hjá lögreglunni
og síðast en ekki síst eru títtnefndu
strætisvagnarnir ódýr og umhverf-
isvænn kostur fyrir íbúa miðbæj-
arins sem og höfuðborgarbúa alla.
Sú hugmynd að fjarlægja gamla
Menntaskólann og Kvennaskólann
er nokkuð sem hugsandi mönnum
dytti varla í hug.
DAGUR SNÆR SÆVARSSON,
forseti Vísindafélags Mennta-
skólans í Reykjavík.
Menntaskólann
burt úr bænum?
Frá Degi Snæ Sævarssyni:
Dagur Snær
Sævarsson
HÁSKÓLI Íslands hefur sett sér
háleit markmið til framtíðar og
markað sér skýra stefnu fram til
2011. Þau þrjú aðalmarkmið sem
Háskólinn hefur sett sér eru fram-
úrskarandi rannsóknir, framúrskar-
andi kennsla og framúrskarandi
stjórnun og stoðþjónusta. Vaka, fé-
lag lýðræðissinnaðra stúdenta fagn-
ar þessu framtaki Háskólans og tel-
ur það eitt af hlutverkum sínum sem
félags í hagsmunabaráttu stúdenta
að styðja og aðstoða Háskólann við
að ná þessum markmiðum sínum.
Í stefnu Háskóla Íslands frá
2006–2011 eru kynntar hugmyndir
um að skipta Háskólanum upp í
nokkra minni skóla. Það þýðir að
skora- og deildaskipting skólans
yrði endurskoðuð frá grunni með
það að markmiði að efla starfsein-
ingar hans. Þessu
fagnar Vaka og telur
mjög nauðsynlegt. Til
að hver deild geti
sinnt sínum mark-
miðum til fullnustu er
mikilvægt að auka
sjálfstæði þeirra.
Í raun má segja að
stjórnsýsla Háskól-
ans í núverandi mynd
sé orðin úrelt og úr-
bóta er því þörf.
Rektor skipaði í
haust nefnd til að
fara yfir þessi mál og
á hún að skila tillögum um skiptingu
Háskólans í smærri skóla. Loka-
tillögur nefndarinnar eiga að vera
tilbúnar fyrir mitt ár 2007. Núna
hafa hins vegar grunnhugmyndir
nefndarinnar verið kynntar og
verða þær ræddar á háskólafundi í
dag.
Tillögurnar fela í sér að skólanum
verði skipt upp í 6 minni skóla og
hver skóli verði að faglega sjálf-
stæðri einingu. Einnig yrði innan
hvers skóla starfrækt að minnsta
kosti ein rannsóknarstofnun. Þessi
skipting yrði til þess að auka sam-
starf og samþættingu innan deilda
sem sameinaðar yrðu í einum skóla.
Skólarnir 6 sem þá yrðu til sam-
kvæmt þessum fyrstu tillögum væru
félagsvísindaskóli, heilbrigðis- og líf-
vísindaskóli, hugvísindaskóli, laga-
og viðskiptaskóli, tækni- og nátt-
úruvísindaskóli og uppeldisvís-
indaskóli. Tillögur þessar bjóða upp
á ýmsar útfærslur sem ekki verður
farið nánar í og taka ber fram að
þetta eru ekki endanlegar tillögur
frá nefndinni.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, er sammála meginstefi
þessara hugmynda og telur mik-
ilvægt að góð og málefnaleg um-
ræða fari fram um þessar hug-
myndir í skólanum í vetur. Félagið
mun leggja sitt af mörkum til að svo
verði. Einnig vill félagið minna á
mikilvægi þess að vandað verði til
verka við uppbyggingu hvers skóla
fyrir sig. Vaka leggur einnig til að
einhvers konar reglur verði settar
fyrir hvern þessara skóla og þá sér-
staklega að bann yrði lagt við upp-
töku skólagjalda. Einnig telur Vaka
það eðlilegast að skráningargjaldið
sem nemendur greiða skuli renna
beint til þeirrar deildar sem nem-
andi stundar nám í. Vaka telur að ef
vel takist til með þessa end-
urskipulagningu geti hún verið lyk-
ilatriði í að tryggja Háskóla Íslands
sem menntastofnun í fremstu röð.
Endurskipulagning Háskóla
Íslands – framfaraspor
Helga Lára Haarde og
Sunna Kristín Hilmarsdóttir
fjalla um málefni Háskóla
Íslands
» Í raun má segja aðstjórnsýsla Háskól-
ans í núverandi mynd sé
orðin úrelt og úrbóta er
því þörf.
Helga Lára er ritari Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta,
og Sunna Kristín situr í stúdentaráði
fyrir hönd Vöku.
Helga Lára
Haarde
Sunna Kristín
Hilmarsdóttir