Morgunblaðið - 17.11.2006, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Lilja SigríðurHafliðadóttir
fæddist í Bolunga-
vík 6. desember
1917. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum
9. nóvember 2006.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Bach-
mann Jónsdóttir
húsmóðir, frá
Steinsholti í
Borgarfirði, f. 23.
ágúst 1891, d. 9.
desember 1972, og
Guttormur Andrésson arkitekt, f.
13. september 1896, d. 1. apríl
1958. Sigríður giftist Hafliða S.
Bjarnasyni, sútunarmeistara, frá
Skálavík f. 9. október 1892, d. 11.
mars 1970 en hann ættleiddi Lilju.
Hálfbræður Lilju voru Egill, f. 15.
apríl 1923, d. 16. september 1988,
og Halldór, f. 16. apríl 1928, d. 6.
mars 1987.
Hinn 10. október 1942 giftist
Lilja Ragnari Kjærnested stýri-
manni, f. 25. ágúst 1918, en hann
fórst með Goðafossi 10. nóvember
1944. Ragnar og Lilja eignuðust
einn son, Ragnar Kærnested flug-
virkja f. 1. apríl 1945, eiginkona
hans er Sigrún Ólafsdóttir kenn-
ari f. 13. desember 1950. Börn
þeirra eru 1) Bylgja Kærnested
hjúkrunarfræðingur, f. 5. ágúst
1973, gift Gizuri
Bergsteinssyni hér-
aðsdómslögmanni.
Börn þeirra eru
Þórunn María, f. 15.
desember 1996,
Bergsteinn, f. 9.
október 2001, og
Ólafur Árni, f. 4.
september 2006. 2)
Örvar Kærnested
viðskiptafræðingur,
f. 13. júlí 1976. Kona
hans er Harpa
Ævarsdóttir, flug-
freyja, f. 14. febrúar
1976. Börn þeirra eru Ragnar
Snær, f. 17. mars 1997, Ævar, f. 3.
júlí 2002, og Eva, f. 21. júlí 2005.
3) Dröfn Kærnested lögfræðing-
ur, f. 22. september 1981. Maður
hennar er Kristinn Guðjónsson
verkfræðingur, f. 3. janúar 1981.
Í ágúst 1955 giftist Lilja Jóni S.
Elíassyni verslunarstjóra f. 19.
febrúar 1930, d. 21. október 1983.
Sambýlismaður Lilju er Óttar
Októsson verslunarmaður, f. 5.
janúar 1936.
Lilja vann mestan hluta starfs-
ævi sinnar við verslunarstörf.
Hún var mjög listræn og vann ár-
um saman við að sauma út í flíkur
fyrir fyrirtæki í Reykjavík.
Útför Lilju verður gerð frá
Seljakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku ástin mín, hún Lilja, er
horfin til fegurri heima. Lilja Haf-
liðadóttir lést að kvöldi 9. nóvember
sl. Ein af hinum elskulegu hjúkr-
unarfræðingum á hjúkrunarheim-
ilinu að Droplaugarstöðum hringdi
og tilkynnti mér að Lilja væri að
deyja. Þó að ég vissi að hverju
stefndi síðustu dagana, var þetta
samt eins og reiðarslag.
Við Lilja kynntumst fyrir tuttugu
árum eða í nóvember 1986 í ferða-
lagi á vegum Oddfellowstúkunnar
Þórsteins sem ég er bróðir í, en hún
var ekkja Oddfellow bróður míns,
Jóns S. Elíassonar.
Lilja var lífsglöð og laðaði fólk að
sér, en einnig mikill listamaður eins
og sjá má af því sem hún hefur gert.
Eftir hana liggur mikið verk, svo
ótrúlegt má teljast. Hún málaði á
postulín, heilt matarstell, fjöldann
allan af veggplöttum, skálum, ösku-
bökkum, vösum og lömpum af öllum
stærðum. Einnig málaði hún olíu-
málverk mest af blómum en einnig
af landslagi.
En þetta var ekki nóg, hún var
líka mikil hannyrðakona, saumaði
stór og lítil veggteppi og bakhlið á
fjölda handspegla, sem saumað var
með mjög litlu spori (petidpong)
auk þess rýjaði hún stór gólfteppi
sem hún teiknaði sjálf munstrið að.
Hún var í eðli sínu mikill hönnuður,
sem sjá má af öllum þeim fjölda af
fatnaði sem hún hannaði og saum-
aði á sig.
En hin frjóa hugsun hennar skóp
hina ótrúlegustu nytjahluti sem hún
bjó til, saumaði og bróderaði fyrir
verslanir og einstaklinga.
En líf hennar var ekki þrauta-
laust, hún giftist æskuástinni sinni,
Ragnari M. Kjernested stýrimanni
hjá Eimskip 1942 en hann fórst með
Goðafossi 1944, en þá var hún ófrísk
að Ragnari syni sínum. En Lilja
gafst ekki upp, hún vann hin ýmsu
verslunarstörf sem einstæð móðir.
Árið 1955 giftist hún síðan Jóni S.
Elíassyni en hann dó 1983.
Við áttum saman tuttugu yndis-
leg ár, þar sem við ferðuðumst mik-
ið, bæði innan lands og utan til
hinna ólíkustu landa og áttum þar
margar eftirminnilegar stundir.
Það var mér mikil gæfa að kynnast
Lilju og hún gjörbreytti raunveru-
lega lífi mínu. Lilja, ástin mín, takk
fyrir allar hinar fjölmörgu yndis-
legu stundir sem við áttum saman
innan lands sem utan. Ég fæ aldrei
fullþakkað fyrir þá gæfu að kynnast
þér og öll þau tuttugu ár sem við
áttum saman. Þú lentir síðustu árin
í veikindum sem tóku þig út úr lífs-
ins erli og fórst á hjúkrunarheimilið
Droplaugarstaði snemma árs 2005
og vil ég þakka öllu því góða fólki
sem þar annaðist þig frábærlega
allt til síðustu stundar af mikilli
hlýju og elskusemi.
En nú hafa öll þín mein verið
læknuð og þú horfið til fegurri
heima. Ég vil votta Ragnari og fjöl-
skyldu mína dýpstu samúð.
Guð veri með þér og varðveiti um
alla tíð.
Okkar leiðir lágu saman,
á lífsins fögru braut.
Við höfðum gleði og gaman,
uns Guð líknaði þinni þraut.
Þín frjóa hugsun færði þér
eitt fagurt líf að skapa.
Að hanna, mála og sauma hér,
eitt heimili, til að taka.
Við áttum saman yndisleg ár,
um áratugi tvo.
Nú felli ég nokkur fögur tár
og finn, ég sakna þín svo.
Óttar Októsson.
Ástkær amma mín Lilja Hafliða-
dóttir er fallin frá. Aðeins 28 ára
gömul missti hún eiginmann sinn,
Ragnar Kjærnested stýrimann,
sem fórst með flutningaskipinu
Goðafossi við strendur Íslands. Á
þeim tíma áttu þau von á barni og
eignaðist amma föður minn, Ragnar
Kærnested, tæplega hálfu ári síðar.
Amma lærði því snemma að standa
á eigin fótum. Amma giftist síðar
Jóni Elíassyni verslunarstjóra, sem
gekk föður mínum í föður stað.
Ömmu og Jóni varð ekki barna auð-
ið, en við systkinin komum tíðum á
heimili þeirra í Eskihlíðinni þar sem
okkur var alltaf vel tekið enda
amma einstaklega umhyggjusöm og
gestrisin. Margar góðar minningar
um ánægjulegar stundir sem amma
og Jón, eða afi Nonni eins og hann
var kallaður, veittu mér og systk-
inum mínum koma upp í hugann.
Berjaferð á Vestfjörðum, sundferð-
ir og hádegisverður á Hótel Loft-
leiðum. Þegar ég hugsa til ömmu sé
ég fyrir mér geislandi, drífandi og
sérstaklega duglega konu. Hún
hugsaði vel um heilsuna, bæði gekk
og synti daglega enda mjög heilsu-
hraust framan af ævi sinni. Við
systkinin fórum oft í sund með
ömmu og afa. Þar var fyrir hópur
kvenna með glæsilegar sundhettur
sem allar voru saumaðar af ömmu.
Amma vann alla tíð við verslunar-
störf. Hún var mjög fjölhæf, sérlega
listræn og mikill fagurkeri. Hún
virkjaði listahæfileika sína á mörg-
um sviðum og sat sjaldan auðum
höndum. Eftir hana liggja margir
ómetanlegir munir, svo sem út-
saumsteppi, handmálaðir postulíns-
munir, málverk og svo mætti lengi
telja. Allt sem hún tók sér fyrir
hendur gerði hún af miklum mynd-
arskap og alúð. Síðustu árin var
heilsa ömmu bágborin. Hún hafði
þó alla tíð notið lífsins, ferðast mik-
ið og stundað mikla útivist. Þó sökn-
uður og tóm ríki í hjarta mínu veit
ég að hvíldin var ömmu kærkomin.
Ég kveð þig, amma mín, og þakka
þér fyrir allar þær stundir sem þú
gafst mér, systkinum mínum og
fjölskyldum okkar. Þú varst góð
amma. Hvíl þú í friði.
Þín
Bylgja
Elsku amma Lilja, ég kveð þig nú
með söknuði.
Þegar ég hugsa til baka um liðnar
stundir eru margar góðar minning-
ar sem skjóta upp kollinum. Það er
mér ofarlega í huga allt dótið sem
þú áttir og gaman var að gramsa í,
máta kjóla, skartgripi og skó. Þú
hafðir ætíð mikinn áhuga á tísku,
bæði fatatísku og skótísku. Þú áttir
ekki orð yfir og hneykslaðist mikið
á skótísku unga fólksins þegar ég
var unglingur og allir gengu í skóm
með þykkum botni. Þér fannst til
háborinnar skammar að ungar kon-
ur klæddust ekki dömulegri skóm.
Þær voru ófáar ferðirnar sem mað-
ur gerði sér í Kringluna þar sem þú
starfaðir í tískuvöruverslun, og ekki
skemmdi fyrir að þú laumaðir
gjarnan að mér pening sem ég
eyddi iðulega í vitleysu. Þú varst
mikil listakona og snillingur í öllu
sem þú tókst þér fyrir hendur,
hvort sem það var að mála olíu-
málverk, útsaumur eða matargerð.
Við systur fórum gjarnan í fata-
skápinn þinn fyrir árshátíðir og
fengum lánaða kjóla og enginn ann-
ar í heiminum átti eins, enda gerðir
af þér frá a til ö. Kjólarnir vöktu
ætíð mikla lukku enda listaverk
hver fyrir sig.
Þessar minningar eru einungis
brot af þeim frábæru stundum sem
ég átti með þér og því kveð ég þig
með söknuði en þó þakklæti yfir að
hafa átt þig sem ömmu og þakklæti
yfir því að þjáningum þínum sé loks
lokið.
Þín
Dröfn.
Höfðinginn hún Dúdú frænka er
látin. Okkur langar til að minnast
hennar sem hafði svo mikil áhrif á
bernsku okkar en hún var stóra
systir pabba, sem leit alla tíð upp til
hennar. Var mjög kært með þeim
systkinum og umgengust þau mikið,
ekki síst þar sem afi Hafliði og
amma Sigga bjuggu hjá þeim Jóni á
þeim tíma og svo líka síðar þar til
pabbi lést 1987. Eftir það dró úr
samskiptum, við frændsystkinin
komin með okkar fjölskyldur hvert
og leiðtogarnir, þau systkinin, ekki
til að leiða hópinn lengur. En minn-
ingin um elskulega frænku lifir.
Pabbi kallaði hana alltaf Dúdú og er
okkur það því tamast.
Hún var orkubolti og sífellt að,
ávallt í góðu skapi og jákvæð. Lifði
lífinu lifandi fram í háa elli og var
góð fyrirmynd. Hún ferðaðist mikið
fótgangandi, létt og keik í fasi og
ávallt hin glæsilegasta í klæðaburði
og bar sig vel. Tók sig til og lærði að
synda á miðjum aldri og stundaði
síðan daglega laugarnar á meðan
heilsan leyfði. Gaman var að heyra
pabba segja frá þessu með stolti, en
hann var sundmaður frá unga aldri
og hafði aldrei skilið vatnshræðslu
systur sinnar.
Hvergi voru flottari veislur en
hjá Dúdú og voru þær sífellt til-
hlökkunarefni. Ekki síst jólaboðin.
Hvað skyldi hún hafa að þessu
sinni? Konfektsínuna, útlenskt sæl-
gæti, nýjar skreytingar, nýja rétti
eða eitthvað með líkjör? Það fannst
okkur krökkunum verst. Hún bjó til
heimsins flottustu kökur og eftir-
rétti og maður skóflaði á diskinn en
gat svo ekki borðað því það var
bragðbætt með sherry eða ein-
Lilja Sigríður
Hafliðadóttir✝ Okkar elskulegi og ástkæri
GUÐMUNDUR INGI ÓLAFSSON,
Hólabraut 14,
Skagaströnd,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans miðviku-
daginn 8. nóvember, verður jarðsunginn frá Hóla-
neskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 18. nóvem-
ber kl. 14.00
Ólafur R. Ingibjörnsson, Hrönn Árnadóttir,
Árný Guðrún Ólafsdóttir, Haraldur Friðriksson,
Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Ari Þór Guðmannsson,
Brynjar Max Ólafsson,
Ingibjörn Hallbertsson.
✝
Elskuleg systir mín, mágkona og móðursystir
okkar,
JÓDÍS SNORRADÓTTIR,
áður Leifsgötu 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 18. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Jónsdóttir, Hafsteinn Hólm og systrabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞORGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Höskuldarvöllum 17,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardag-
inn 18. nóvember kl. 14.00.
Sigurður Kristjánsson,
Guðbjörg S. Gísladóttir, Sigurður Guðjónsson,
Guðmundur M. Sigurðsson, Edda Auðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir, Róbert Vogt,
María Þ. Sigurðardóttir, Gísli G. Gíslason,
Magnús Jenni Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
LAUFEYJAR GUÐRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR,
Brekkuhúsi 1,
Hjalteyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Skjaldar-
vík fyrir einstaka umönnun og ómetanlegan stuðn-
ing og hlýju.
Karl Sigurðsson,
Stefán Karlsson, Nína Guðmunda Ingvarsdóttir,
Sigurbjörn Karlsson,
Sigurður Karlsson, Sigurlaug Jóhannesdóttir,
Anna Jóna Karlsdóttir, Aðalbjörn Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN I. W. JÖRGENSEN,
Öldugötu 9,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild LSH Landakoti laugardaginn
11. nóvember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
mánudaginn 20. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Stefanía G. Snorradóttir,
Sigrún S. Snorradóttir,
Snorri J. Snorrason, Sigrún Alda Jensdóttir,
Carsten J. Kristinsson, Bryndís Bragadóttir
og barnabörn.