Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 50

Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 50
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is SEX myndhöfundar eru tilnefndir til heið- ursverðlauna Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem verða afhent næstkomandi þriðjudag. Þetta er í annað sinn sem heið- ursverðlaunum Myndstefs er úthlutað en þau eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu. „Þótt þetta heiti heiðursverðlaun þá er ekki verið að veita þau fyrir nokkurra ára- tuga feril á einhverju sviði heldur er verið að miða þau við þá myndhöfunda sem eru að vinna í dag og hafa komið með athygl- isvert framlag á seinustu árum,“ segir Knútur Bruun, stjórnarformaður Myndstefs, og bætir við að verðlaunin séu ekki eingöngu fyrir unnið verk heldur líka uppörvun um framhald. Úthluta eigin fé Innan vébanda Mynd- stefs eru á fjórtánda hundrað manns í sex að- ildarfélögum. „Verðlauna- upphæðin nemur einni milljón króna, Landsbanki Íslands leggur til helminginn en hinn helmingurinn kemur úr sjóðum Myndstefs,“ segir Knútur. Aðspurður hvað sé frábrugðið með Sjón- listaverðlaununum og heiðursverðlaunum Myndstefs segir Knútur Sjónlistaverðlaunin vera miklu víðtækari. „Þar er verið að veita peninga sem ríkið og fleiri koma að, en við erum að úthluta höfundum að hluta til þeirra eigin peninga og það er stóri mun- urinn.“ Þriggja manna dómnefnd, skipuð þeim Valgerði Hauksdóttur myndlistarmanni, Pétri Ármannssyni arkitekt og Björgólfi Guðmundssyni stjórnarformanni Lands- banka Íslands, valdi tilnefnda eftir ábend- ingum frá aðildarfélögum Myndstefs og velja þau líka sigurvegarann. Knútur segir að þeim hafi þótt eðlilegra að láta einhverja úr þeirra eigin hópi sitja í dómnefnd frekar en aðkomandi fræðinga. „Grasrótin er að veita sínu fólki verðlaun, okkur finnst vel hafa til tekist með að velja í dómnefndina, þar situr fólk með mikla yfirsýn og þekk- ingu á þessu sviði.“ „Myndstefi vex fiskur um hrygg með hverju árinu. Samtökin eru að stækka og ná inn meiri tekjum og það er að vera meiri og meiri viðurkenning á höfundarétti myndhöf- unda í landinu. Við úthlutum líka verkefna- og ferðastyrkjum á hverju ári. Það eru allt peningar sem við erum að fá í greiðslu fyrir höfundarétt og komum þeim út til höfund- anna aftur með þessum hætti,“ segir Knút- ur að lokum. Forseti Íslands veitir heiðursverðlaun Myndstefs við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands á þriðjudaginn. Tilnefndir eru: Andrés Kolbeinsson, ljósmyndari, Atli Hilm- arsson grafískur hönnuður, Birgir Andr- ésson myndlistarmaður, Rúrí myndlist- armaður, Sigríður Sigurþórsdóttir arkitekt og Valgerður Bergsdóttir myndlistarmaður. Myndlist | Sex tilnefndir til heiðursverðlauna Myndstefs Veitt fyrir athyglisvert framlag til listarinnar Knútur Bruun Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is F áir tónlistarmenn hafa vakið jafnmikla undr- un og umtal hin síðustu ár og Sufjan Stev- ens. Plata hans frá því í fyrra, Illinois (full- ur titill: Sufjan Stevens invites you to: Come on feel the Illinoise) toppaði fjöl- marga árslista tónlistartímarita og hafa tónlistar- áhugamenn fylgst grannt með hverju skrefi hans síðan. Auk þess að vera í dýrlingatölu hjá jaðartónlist- artímaritum er nafn hans farið að skjóta upp kolli æ oft- ar í meginstraumnum, og ekki skrýtið, enda fátt ut- angarðs eða skringilegt við sjálfa tónlistina, sem best færi á að lýsa einfaldlega sem gríðarlega fallegri. Það er engu upp á Sufjan logið og tónleikarnir sem hann heldur í kvöld og annað kvöld ásamt fjögurra manna hljómsveit óhikað einn af atburðum ársins í hérlendu tónlistarlífi. Fylkin fimmtíu Greinarhöfundur sá Sufjan Stevens á tónleikum í Berlín í fyrrahaust. Líkt og hér á landi lék hann í kirkju, en Sufjan sjálfur fór þess á leit við tónleikahaldara hér á landi að honum yrði útveguð kirkja til hljómleikahaldsins. Sufjan er afar trúaður maður, en hvort hann er að leita eftir góðum hljómburði eða nálægð hins heilaga anda veit ég ekki. Tónleikarnir í Berlín fóru fram 19. október í Passion- kirche, kirkju sem er nokkuð framþróuð hvað tónleika- hald varðar þar sem það var bar í horninu. Það þótti Ís- lendingnum skrítið. Á þeim tónleikum var Stevens að fylgja Illinois eftir og hafði sér til fulltingis sveitina The Illinoisemakers. Skemmst frá að segja var uppsetning tónleikanna nán- ast í öfugu hlutfalli við þá fegurð og angurværð sem ein- kennir plötuna. Grallaraskapur og stuð einkenndi settið og vinnan sem í það var lögð var eftirtektarverð. Sufjan virðist ekki geta gert neitt með hangandi hendi, og metnaður hans (sem virðist einkennast af einhvers kon- ar fullkomnunaráráttu) er mikill, en Illinois er aðeins einn fimmtugasti hluti af tilkomumesta temaverki sem dægurtónlistarmaður hefur ráðist í. Sufjan hyggst nefnilega semja plötu um öll fylki Bandaríkjanna, og í því skyni virðist engan veginn nægja að semja lagstúfa og gefa þeim heiti sem skírskota til fylkisins. Nei, Sufjan Fegurðin fullkomnuð Sufjan Stevens spilar í Fríkirkjunni í kvöld og annað kvöld Snillingur Sufjan Stevens er 31 árs gamall og kemur frá Detroit í Michigan-fylki í Bandaríkjunum. hefur lagst í umfangsmiklar rannsóknir á fylkjunum, og bindur plöturnar saman af nákvæmni, þar sem hvert lag tekur á stað eða atburði sem tengist sögu þess. Sufjan er nú þrjátíu og eins ár og plöturnar í þessu verkefni eru orðnar tvær, Illinois og Michigan (Greetings from Michigan: The Great Lake State). Michigan er heima- fylki Sufjans, en hann er fæddur þar, í Detroit. Meðfram þessu er Sufjan að gefa út aðrar plötur og fyrir þessi jól er t.d. áætlaður kassi með fimm jólaplötum sem Sufjan hefur tekið upp í gegnum tíðina. Þá kom út í ár plata með lögum sem tekin voru upp í tengslum við Illinois. Heitir hún The Avalanche: Outtakes and Extras from the Illinois Album og inniheldur tuttugu og eitt lag. Ég ét hatt minn og ýmislegt annað líka þegar Sufjan skilar inn fimm- tugustu plötunni. Tónleikum flýtt En aftur að Berlínartónleikunum. Sufjan og sveit hans voru íklædd lúðalegum íþróttafötum, kven- fólkið í klappstýrumúnderingu og karlmennirnir í jogginggöllum, allt kirfilega merkt Illinois. Á undan hverju lagi kom sérstaklega samið kynningarlag, auk þess sem búið var að semja sérstaka dansa og höndum var veifað samkvæmt einhverju kerfi. Tónleikunum lauk með því að sveitin bjó til mann- gerðan pýramída á sviðinu! Hápunktur tónleikanna var þegar Sufjan lék einn á kassagítar hið und- urfallega lag „Chicago“ og svei mér þá, ef maður heyrði ekki tárin falla á marmaragólf kirkjunnar. Sufjan er hingað kominn til að kynna áðurnefnda Avalanche og hefur verið að troða upp í fleiri Evr- ópuborgum. Guð má vita hvað hann er með í poka- horninu nú. Um upphitun sér St. Vincent, stúlka nokkur sem hefur getið sér orðs að undanförnu sem framúrskarandi gítarleikari. Hefur meðal annars leikið með avant-garde-tónskáldinu Glenn Branca og er jafnframt í „stórsveitinni“ Polyphonic Spree. Væntanlegir tónleikagestir ættu að athuga að tónleikunum í kvöld hefur verið flýtt og verður húsið opnað kl. 18. Tónleikarnir hefjast því klukkan 18.30 en ekki 20. Fór Sufjan sjálfur fram á þetta, en hann og fylgdarlið hans ætlar eins og fleiri á tónleika Sykurmolanna sem verða síðar um kvöldið. |föstudagur|17. 11. 2006| mbl.is Fjórar kvikmyndir verða frum- sýndar um helgina, þar á meðal stórmyndin um njósnarann James Bond. » 54 kvikmyndir Nýjasta plata Bigga, Id, fær þrjár stjörnur hjá Atla Bollasyni tónlistargagnrýnanda Morgun- blaðsins. » 55 dómur Aðalskona vikunnar sem nú líð- ur er Elínborg Halldórsdóttir, betur þekkt sem Ellý í Q4U og einn dómara X-Factor. » 55 aðallinn Hljómsveitin Sykurmolarnir heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt í dag með tónleikum í Höll- inni. » 52 tónlist staðurstund

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.