Morgunblaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
ÚTHAFSTRYLLIRINN Adrift
sækir innblástur í Open Water (́05),
ódýra, óháða hrollvekju um raunir
hjóna sem voru í ógáti skilin eftir úti á
ballarhafi þegar bátur sem flutti
froskkafara hélt í land. Myndin var
fersk, vel leikin og áhrifarík og skilaði
umtalsverðum hagnaði. Adrift er
sögð, líkt og Open Water, byggð á
sönnum atburðum, það breytir litlu,
því hún virkar í flesta staði eins og illa
gerð eftiröpun.
Að þessu sinni er fjallað um sex
manna endurfundi gamalla bekkjar-
félaga sem halda á nýrri og glæsilegri
skútu eins þeirra í skemmtisiglingu
út á Kyrrahafið. Allt leikur í lyndi,
skútan komin langt út á rúmsjó og
vinirnir farnir að busla í sjónum þeg-
ar þeir uppgötva sér til skelfingar að
gleymst hefur að setja út stigann.
Við tekur lítið spennandi martröð
án umtalsverðs skemmtanagildis.
Vandi Adrift öðru fremur er mátt-
laust handrit sem eyðir púðrinu í inn-
byrðis rifrildi og nagg í stað þess að
byggja upp vitræn átök við þær
hrikalegu aðstæður sem myndast.
Fólkið er ungt og hraust en getur
enga björg sér veitt, svamlandi við
hliðina á skútunni og lífsbjörginni.
Ekki bætir úr skák að persónurnar
eru vankynntar til sögunnar, áhorf-
andinn nær ekki að tengjast þessum
frekar hrokafulla mannskap sem
eyðir kröftum sínum í innantómar
deilur, móðursýki og sjálfsmeð-
aumkvun í stað þess að finna úrræði.
Fyrir bragðið er leikurinn tilþrifalaus
og spennan lítil sem engin í höndum
leikstjórans, sem tekur allar nær-
tökur í vatnstanki eða á lygnum vogi.
Hefði þess vegna getað filmað í bað-
karinu heima hjá sér; engar öldur, að-
eins Drottins dýrðar koppalogn.
Kornabarn er með í för en nærvera
þess gerir framvindu Adrift aðeins
enn vandræðalegri. Ljósu punktarnir
er fagmannleg kvikmyndataka þar
sem notuð eru forvitnileg sjónarhorn
og skútan er geggjuð. Mynd hinna
ónýtttu tækifæra.
Busl í baðkari
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Hans Horn.Aðalleikendur: Sus-
an May Pratt, Eric Dane, Richard Speight
Jr., Cameron Richardson, Niklaus Lange,
Ali Hillis. 95 mín. Þýskaland 2006.
Á reki (Adrift) Adrift „Mynd hinna ónýtttu tækifæra.“ Sæbjörn Valdimarsson
Sykurmolarnir koma saman í fyrstasinn í tuttugu ár í kvöld í Laug-ardalshöll til að fagna tuttugu ára af-mæli hljómsveitarinnar, tuttugu ára
afmæli Smekkleysu, útgáfufyrirtækis hennar,
og tuttugu ára afmæli Ammælis, fyrstu smá-
skífunnar sem sveitin sendi frá sér. Þótt ekki
sé alveg uppselt á tónleikana er mikill áhugi
fyrir þeim og þannig koma um 1.000 manns
að utan gagngert til að fara á tónleikana.
Einar Örn Benediktsson, söngvari Syk-
urmolanna, segir að þetta þrefalda tvítugs-
afmæli sé vissulega fyrst og fremst afmæl-
isfögnuður, „en að sama skapi var það alltaf
hlutverk Sykurmolanna sem poppdeild
Smekkleysu að skaffa peninga og ef það tekst
þá leggst það inn í frekari útgáfustarfsemi fé-
lagsins eins og verið hefur alla tíð; það má
segja að þetta séu tuttugu ára spilaskuldir“.
Hljómsveitin hóf æfingar í október, fyrst
hljómsveitaræfingar, en síðan slógust söngv-
ararnir í hópinn í nóvember. Einar segir að
það hafi komið þeim öllum á óvart hve gaman
var að byrja að æfa og eins að enginn var
sérlega ryðgaður þótt sumir hafi lítið fengist
við hljóðfæraslátt á liðnum árum. „Það kom
mér einna skemmtilegast á óvart hve Bragi
stóð sig vel, hann var eiginlega betri en við
hin og þó þótti líklegt að hann væri ryðg-
aðastur. Mig grunar að hann hafi falið bassa í
kjallaranum heima hjá sér eða að hann sé
farinn að skrifa bækur með mjög feitum
penna.“
Að sögn Einars var mesta spennan fyrir
æfingarnar hvort þau myndu standast sjálf-
um sér snúning eftir allan þennan tíma, en sá
ótti var ástæðulaus þegar á reyndi. „Minn-
ingin var sem sé ekki bara góð, hún var
sönn,“ segir Einar og bætir við að þeim hafi
fundist einna skemmtilegast að heyra hve
margt af tónlistinni var og er „ógeðslega
klikkað“. „Ég finn mikla gleði í því sem við
erum að gera og þá sjálfur farinn að skilja al-
mennilega hvað aðrir upplifðu við tónlistina,
upplifi það mjög sterkt og verð eiginlega
hálfmeyr þegar ég hugsa um það.“
Á tónleikadagskránni í Höllinni er úrval
laga frá öllum ferli hljómsveitarinnar. Laga-
listinn var þannig valinn að hver greiddi at-
kvæði í sínu horni, skrifaði sextán eða
sautján laga lista sem hann vildi helst að
yrðu flutt og þegar listarnir voru lagðir sam-
an kom í ljós að allir vildu taka sömu lögin.
„Það var því eindreginn vilji,“ segir Einar og
bætir við að lögin séu álíka mörg af hverri
plötu. „Það kom í ljós þegar við fórum að
pæla í þessu að sum laganna höfðu ekki enst
nógu vel, voru of tímabundin til að hægt væri
að spila þau í dag.“
Á tónleikum sínum hér á landi fluttu Syk-
urmolarnir lög sín jafnan á íslensku, en að
sama skapi á ensku erlendis nema á stöku
tónleikum þegar útlendingarnir fengu líka ís-
lenska útgáfu. Einar segir að þegar æfingar
fóru af stað hafi þau ekkert velt því fyrir sér
hvort taka ætti lögin á íslensku eða ensku, en
svo hafi það atvikast svo að um helmingur
þeirra sé á ensku. Það hentar kannski vel
fyrir tónleikagesti í Laugardalshöllinni í
kvöld því að sögn Einars koma um þúsund
tónleikagestir hingað til lands beinlínis til að
sjá hljómsveitina spila, um fjórðungur frá
Skandinavíu, fjórðungur frá Bretlandi, fjórð-
ungur frá Bandaríkjunum og restin frá ýms-
um löndum.
Aðspurður hvort ekki sé spennandi að
halda áfram fyrst svo gaman hafi verið að
byrja að æfa aftur svarar hann því til að það
eitt sé um þessa tónleika að segja að þau hafi
gefið sér sjálfum aðeins eitt loforð: að klára
þessa tónleika af heilum hug. „Núna vitum
við að við getum þetta, en það er ekkert sem
segir að við ætlum að gera það aftur.“
Tónleikar Sykurmolanna verða í Laug-
ardalshöll í kvöld og verður húsið opnað kl.
19. Á undan Sykurmolunum leika hljómsveit-
irnar múm og Rass og plötusnúðarnir
Dj@mundo og KGB. Eins og getið er er enn
eitthvað eftir af miðum og verða þeir seldir
hjá midi.is og í verslunum Skífunnar í dag, en
einnig verður miðasala í Laugardalshöllinni
frá hádegi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ammæli Sykurmolarnir fagna þreföldu tvítugsafmæli í kvöld; Bragi Ólafsson, Þór Eldon, Björk Guðmundsdóttir, Sigtryggur Baldursson, Margrét Örnólfsdóttir og Einar Örn Benediktsson.
Fyrst og fremst afmælisfögnuður