Morgunblaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 318. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Kynntu þér málið
og sæktu um á spron.isAR
G
U
S
/
06
-0
55
2
BEYGT TIL VINSTRI
ARNÓR GAUTI HELGASON ÆTLAR AÐ BERJAST
VIÐ FLÖKKUKINDINA Í SÉR Í BORGARNESI >> 22
TONI MORRISON
STEINUNN SIGURÐAR-
DÓTTIR SKRIFAR UM
SYNGJANDI SKÁLDSÖGUR >> 43
Eftir Ívar Benediktsson og
Víði Sigurðsson í London
„ÞETTA gerð-
ist allt mjög
hratt. Það hafði
verið umræða
um West Ham í
talsverðan tíma
og Kia Joor-
abchian var að
skoða mögu-
leikana á að
kaupa félagið.
Sú umræða ýtti við okkur fyrir sjö
til átta vikum,“ segir Eggert
Magnússon, verðandi stjórnarfor-
maður enska knattspyrnufélagsins
West Ham, í gær. Þá hafði eign-
arhaldsfélagið West Ham Holding,
sem samanstendur af Eggerti
Magnússyni og Björgólfi Guð-
mundssyni, formanni bankaráðs
Landsbanka Íslands, gengið frá
kaupum á 83% hlut í enska félag-
inu. Kaupverðið er 85 millj. punda,
jafnvirði 11,4 milljarða kr., auk
þess sem West Ham Holding yf-
irtekur um 23 millj. punda skuldir,
um 3,1 milljarð kr.
„Þegar svona tækifæri bauðst,
að fara í þetta með aðila sem ég
þekki mjög vel og treysti 100 pró-
sent, var þetta afar spennandi
kostur fyrir mann sem er búinn að
vera tengdur fótbolta allt sitt líf,“
sagði Eggert og vísar til samstarfs
við Björgólf um kaupin.
„Enska úrvalsdeildin er senni-
lega stærsta fótboltakeppni í heim-
inum og það að vera allt í einu kom-
inn við stjórnvölinn á einu þeirra
liða sem skipa þá deild er að sjálf-
sögðu mikil og spennandi áskor-
un,“ sagði Eggert enn fremur.
Óvissa hefur ríkt undanfarnar vik-
ur um eignarhald félagsins. Um
tíma blasti við að íranski kaup-
sýslumaðurinn Kia Joorabchian
myndi kaupa félagið. Aðkoma hans
að félaginu hugnaðist ekki öllum,
og þar spiluðu kaup á argentínsk-
um knattspyrnumönnum til félags-
ins í haust talsvert inn í, sem og ótti
um að hann ætlaði aðeins að hagn-
ast tímabundið á félaginu.
Eggert verður stjórnarformað-
ur félagsins og verður kjörinn þeg-
ar yfirtöku Íslendinganna á félag-
inu lýkur í byrjun desember. Þrír
aðrir Íslendingar koma inn í stjórn
ásamt Eggerti, þeir Þór Kristjáns-
son, bankaráðsmaður í Lands-
banka Íslands, Guðmundur Odds-
son, lögfræðingur í London, og
Sighvatur Bjarnason, forstjóri
Fisco. Björgólfur verður heiðurs-
forseti West Ham.
Blatter varar við auðmönnum
Ekki eru allir jafn hrifnir af
kaupum erlendra fjárfesta á knatt-
spyrnufélögum. Sepp Blatter,
forseti Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins (FIFA), sagði í gær að
ein helsta ógnin við þróun knatt-
spyrnu í heiminum væri sókn auð-
manna í knattspyrnufélög. Hætt
væri við að sumir þeirra væru ekki
að kaupa félögin af hreinni ást á
íþróttinni.
„Nýjasta dæmið er kaup forseta
íslenska knattspyrnusambandsins
á West Ham. Við verðum að vera
varkár svo knattspyrnan endi ekki
í höndum manna sem vilja að hún
þjóni þeim í stað þess að þeir séu í
þjónustu hennar,“ var m.a. haft
eftir Blatter í vefútgáfu breska
blaðsins Guardian.
West Ham Holding kaupir 83% hlut í West Ham fyrir 11,4 milljarða króna
Þetta gerðist
mjög hratt
Reuters
Stjórnarformaðurinn Eggert Magnússon tekur nú við stjórn enska
knattspyrnufélagsins West Ham sem á heimavöll á Upton Park.
Forseti FIFA segir kaup auðmanna á
knattspyrnuliðum ógn við íþróttina
Sepp Blatter
West Ham | Íþróttir
Beirút. AP, AFP. | Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna fordæmdi í gærkvöldi
morð á líbanska ráðherranum Pierre
Gemayel sem var skotinn til bana í
bíl sínum í Beirút. Ráðið hvatti allar
fylkingarnar í landinu til að sýna
stillingu og koma í veg fyrir frekara
ofbeldi.
Öryggisráðið samþykkti einnig
áform um að alþjóðlegur dómstóll
réttaði yfir meintum morðingjum
Rafiqs Hariris, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Líb-
anons, sem var
myrtur í fyrra.
Hizbollah-
hreyfingin í Líb-
anon sagði að
enginn vafi léki á
því að markmiðið
með morðinu á
Pierre Gemayel
væri að valda
glundroða og borgarastríði í landinu.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti fordæmdi morðið og sagði að
Sýrlendingar væru að reyna að grafa
undan stjórn Líbanons.
Sýrlendingar neituðu því að þeir
hefðu staðið fyrir morðinu. Þeir
sögðu að markmið morðingjanna
væri að kynda undir ólgu og koma af
stað götumótmælum gegn Sýrlend-
ingum í Líbanon.
Líbanskur ráðherra myrtur | 15
Segja morðingjana ætla
að valda stríði í Líbanon
Pierre Gemayel
London. AP. | Eiturefna-
rannsókn bendir til þess
að Alexander Litv-
inenko, fyrrverandi
njósnaforingi rússnesku
leyniþjónustunnar, hafi
ekki veikst af völdum
þallíns, eitraðs málms,
eins og talið var.
Læknar sögðu þó að
ljóst væri að Litvinenko
hefði veikst af völdum
einhvers konar eitrunar og enn væri leitað
að leifum af öðrum eiturefnum sem kynnu
að hafa valdið veikindunum.
Læknarnir sögðu að frumrannsókn benti
til þess að ólíklegt væri að Litvinenko hefði
verið byrlað þallínsalt, sem er algengasta
mynd efnisins, en hugsanlegt væri þó að
geislavirkt þallín hefði valdið veikindunum.
John Henry, þekktur eiturefnafræðing-
ur, sagði að ef til vill mætti rekja veikindin
til geislavirks efnis. Henry nefndi þrjá
möguleika: Litvinenko kynni að hafa veikst
vegna blöndu af þallíni og öðru eiturefni,
vegna þallíns og geislavirks efnis eða vegna
geislavirks þallíns. Hann taldi geislavirkt
þallín líklegustu orsökina og sagði að hugs-
anlega hefðu allar leifar af efninu horfið úr
líkamanum á þeim þremur vikum sem liðn-
ar væru frá því að Litvinenko veiktist.
Þallíneitrun
talin ólíkleg
Alexander
Litvinenko
Katmandú. AP. | Ríkisstjórn Nepals og upp-
reisnarhreyfing maóista undirrituðu í gær
friðarsáttmála sem bindur formlega enda á
tíu ára uppreisn sem kostaði um 13.000
manns lífið.
Sáttmálinn er afrakstur viðræðna sem
staðið hafa frá því í apríl þegar lýst var yfir
vopnahléi í landinu eftir margra vikna
fjöldamótmæli sem urðu til þess að Gyan-
endra konungur endurreisti þingið sem
hann leysti upp fjórtán mánuðum áður til að
taka sér alræðisvald.
Samkvæmt friðarsáttmálanum á hreyf-
ing maóistanna að fá 73 sæti af 330 á bráða-
birgðaþingi Nepals og einnig ráðherraemb-
ætti í stjórn sem mynda á fyrir næstu
mánaðamót.
Sáttmáli um
frið í Nepal
♦♦♦