Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 11            Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SVEITARFÉLAGIÐ Ölfus og Orkuveita Reykjavíkur hafa orðið við tilmælum Skipulagsstofnunar um að stöðva framkvæmdir við stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Skipulagsstofnun telur að sveitarfé- lagið hafi veitt framkvæmdaleyfi án þess að hafa til þess heimild og að aðrar framkvæmdir sem OR hafi ráðist í í samráði við sveitarfélagið hafi einnig verið óheimilar þar sem ekki sé gert ráð fyrir þessum fram- kvæmdum á aðal- og deiliskipulagi. Samkvæmt upplýsingum frá OR snúast framkvæmdirnar umdeildu annars vegar um vegagerð upp Stóra-Skarðsmýrarfjall og borun á fjórum rannsóknarborholum þar og hins vegar borun einnar rannsókn- arborholu í Hverahlíð. Leyfið sem um ræðir tekur ein- ungis til vegagerðarinnar og borun einnar niðurrennslisholu. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar- stjóri Ölfuss, segir í bréfi til Skipu- lagsstofnunar að þó að framkvæmd- ir hafi verið stöðvaðar sé ekki verið að fallast á að sveitarfélaginu hafi verið óheimilt að veita „bráðabirgða- leyfi fyrir þeim rannsóknarverkefn- um sem verið er að vinna að.“ Bent á vandann í mars Í bréfinu sem Stefán Thors skipu- lagsstjóri sendi bæjarstjóra Ölfuss og óskaði eftir stöðvun fram- kvæmda, kemur m.a. fram að þegar Skipulagsstofnun féllst á umhverf- ismat virkjunarinnar í lok mars á þessu ári var bent á að framkvæmd- in væri ekki í samræmi við aðal- skipulag sveitarfélagsins og kallaði á breytingar á því. Þá væru fyrirhug- aðar framkvæmdir á nýju orku- vinnslusvæði og breytingar á núver- andi iðnaðarsvæði væru háðar breytingum á gildandi deiliskipu- lagi. Breyting á aðalskipulagi var auglýst 9. október sl., hálfu ári eftir að fallist var á umhverfismat, en frestur til að gera athugasemdir er ekki runninn út. Þá liggur fyrir til- laga að breytingu á deiliskipulagi en hún hefur hins vegar ekki verið aug- lýst. Í greinargerð Ölfuss og Orkuveitu Reykjavíkur um málið er fjallað um „bráðabirgðaframkvæmdaleyfi“ sem var gefið út 31. mars sl. en Landvernd hefur m.a. bent á að það hugtak sé ekki til í íslenskri stjórn- sýslu. Í bréfum Skipulagsstofnunar vegna málsins er heldur aldrei minnst á bráðabirgðaleyfi heldur alltaf fjallað um framkvæmdaleyfi. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR, sagði að fyrirtækið hefði verið í fullum rétti enda með leyfi til fram- kvæmdanna frá sveitarfélaginu og það sé enn í fullu gildi. Hann gerir ekki ráð fyrir að stöðvun fram- kvæmda tefji orkuafhendingu. Skipulagsstofnun telur fram- kvæmt í óleyfi á Hellisheiði Framkvæmdir voru stöðvaðar við stækkun Hellisheiðarvirkjunar eftir að Skipulagsstofnun lýsti því yfir að þær væru óheimilar. Forstjóri OR segir þetta lítil áhrif hafa á rekstur virkjunarinnar. Morgunblaðið/RAX Orkuframkvæmdir Skipulagsstjóri segir að fyrirhugaðar framkvæmdir séu háðar breytingum á deiliskipulagi. Í HNOTSKURN » Samkvæmt upplýsingumfrá OR eru framkvæmd- irnar umdeildu annars vegar vegagerð upp Stóra-Skarðs- mýrarfjall og gerð 4 rann- sóknarborholna á fjallinu og hins vegar gerð rannsóknar- borholu í Hverahlíð. » Þessi stækkun virkjunar-innar miðar að því að af- henda Norðuráli orku 2008. „VIÐ hefðum gjarnan viljað halda þessu samstarfi áfram eins og það var, ég neita því ekki,“ segir Guð- mundur Einarsson, forstjóri Heilsu- gæslunnar í Reykjavík, um þá ákvörðun Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, að slíta samningi sínum við heilsugæsluna um rekstur Mið- stöðvar mæðraverndar. Miðstöðin hefur sérhæft sig í eftirliti með þeim hópi kvenna sem skilgreindur hefur verið með áhættu af einhverju tagi á meðgöngu, en mun á næstu dögum, þegar starfsemin flyst úr Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur í Mjódd, hætta eftirliti með þunguðum kon- um og gegna ráðgjafar- og stuðn- ingshlutverki. Munu konur í áhættu- meðgöngu sækja eftirlit á LSH. Þau Arnar Hauksson yfirlæknir MM og Sigríður Sía Jónsdóttir, yf- irljósmóðir MM, sögðu í samtali við Morgunblaðið í gær að öflugt þróun- arstarf hefði verið unnið þau sjö ár sem MM hefði starfað og að hún sinnti þjónustu við viðkvæman hóp kvenna. Til stóð að flytja starfsemi MM í Mjódd og hafði húsnæði þar verið innréttað þegar LSH, sem lagði til eina stöðu sérfræðings í áhættu- Guðmundur segir heilsugæsluna hafa lagt sig fram við að kynna starf- semi Miðstöðvar mæðraverndar. „Við áttum í löngum viðræðum við Landspítalann um þessi mál. Þær viðræður hafa staðið meginhlutann af þessu ári og af krafti frá því í maí. Við héldum að við værum að semja um endurnýjað samstarf, en það fór svona,“ segir Guðmundur og vísar til samningsslitanna. „Það verður auð- vitað samstarf áfram og það er skylda okkar sem stýrum þessum stofnunum að sjá til þess að sam- starfið verði gott í framtíðinni. Við munum ekkert láta deigan síga í því,“ bætir hann við. Guðmundur segir jafnframt að starfsemi MM hafi verið kynnt ráð- herra heilbrigðismála. „Við höfum gert það sem við getum til að kynna þeim stöðuna,“ segir hann. Breytingunum ætlað að efla mæðraverndina Í samtali við Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, bendir hún á að í ráðuneytinu sé mikil þekking á starfsemi jafnt heilsugæslunnar, LSH og MM. „Með þessu skrefi er verið að efla verulega mæðravernd- ina á heilsugæslustöðvunum, því 85% af þunguðum konum verður eft- ir breytingu sinnt þar. Þeim 15% kvenna sem eru með áhættumeð- göngu verður sinnt á kvennasviði LSH þar sem mikil sérfræðiþekking er til staðar og tæki og aðstæður með því besta sem þekkist,“ segir Siv og bendir á að þannig sé verið að gera skýrari aðgreiningu milli þjón- ustunnar fyrir konur sem ekki eru í áhættumeðgöngu og fyrir þær sem þurfi á sértækri mæðravernd að halda. þætti á meðgöngu. Búið væri að gera þetta að verulegu leyti en það yrði nú klárað. Guðmundur segir að heilsugæsl- unni beri að vinna út frá þeim for- sendum sem hún hafi. Ljóst sé að búið hafi verið að leggja mikinn metnað í að innrétta það húsnæði sem MM átti að fá til eftirlits og ann- arra verkefna í Mjóddinni, en það muni nýtast ágætlega í aðra starf- semi. Heilsugæslan sé ekki ánægð með að LSH skuli hafa slitið sam- starfinu en ekki sé hægt að draga „LSH í eitthvað sem hann vill ekki.“ meðgöngu, sleit samningi við heilsu- gæsluna. Guðmundur segir að þar af leiðandi hafi ekki verið „um annað að ræða fyrir okkur en að draga úr um- fangi miðstöðvarinnar hjá okkur. Við töldum ekki fært að tvær mið- stöðvar á vegum ríkisins væru að togast á um konur sem eru skil- greindar í einhverri áhættu varðandi sína meðgöngu“. Reynt yrði að byggja samstarf stofnananna á þess- um nýja grundvelli og flytja alla al- menna mæðravernd yfir á heilsu- gæslustöðvarnar, sem og konur sem væru taldar með vægari áhættu- Vildu halda samstarfi áfram Forstjóri Heilsugæsl- unnar í Reykjavík segir að þurft hafi að draga úr umfangi Miðstöðvar mæðraverndar eftir að LSH sleit samningi við heilsugæsluna. Morgunblaðið/Ásdís Frágangur Smiðirnir Kjartan Tryggvason og Borgþór Jónasson unnu í gær við frágang á húsnæði í Mjódd, en þangað flyst MM í lok vikunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.