Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 17

Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 17 MENNING DAG Heede, lektor í dönskum bókmenntum við Syddansk Universitet í Óðinsvéum, flyt- ur í dag fyrirlestur undir yf- irskriftinni „Gagnkynhneigð H.C. Andersen: Saga af tilbún- ingi“. Í fyrirlestrinum skýrir Dag frá því hvernig Danir hafa liðið fyrir kvenlega eiginleika H.C. Andersens og ást hans til karlmanna. Ítrekað hefur ver- ið reynt að gera Andersen karlmannlegri en efni standa til og stuðla að gagnkynhneigðri ímynd hans. Fyrirlesturinn, sem fer fram á dönsku, verður í aðalbyggingu HÍ og hefst hann kl. 12.05. Fyrirlestur Gagnkynhneigð H.C. Andersen H.C. Andersen FIMMTU tónleikar tónleika- raðar Jazzklúbbsins Múlans fara fram á morgun á DOMO bar í Þingholtsstræti. Þá tekur trommuleikarinn Erik Qvick ofan hattinn fyrir goðsögninni Art Blakey ásamt nokkrum völdum tónlistarmönnum. Efn- isskráin samanstendur af vin- sælustu lögum Art Blakey’s and the Jazz Messengers sem Blakey stofnaði ásamt píanóleikaranum Horace Silver í kringum 1954. Með Erik leika þeir Snorri Sigurðsson, Ólafur Jónsson, Agnar Már Magnússon og Þorgrímur Jónsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Djass Erik Qvick leikur Blakey á DOMO Erik Qvick ÞEMAKVÖLD Félags þjóð- fræðinga á Íslandi verður haldið á morgun, fimmtudag, klukkan 20. Að venju fer þemakvöldið fram í húsi Sögu- félagsins við Fischersund og verður það þessu sinni til- einkað fatnaði í fornum heim- ildum. Flutt verða tvö erindi. Anna Zanchi, doktorsnemi í forn- íslenskum bókmenntum við University College London, varpar ljósi á notkun fornorræna lýsing- arorðsins „grænn“ og Fríður Ólafsdóttir dósent fjallar um klæðnað fyrr á öldum með hliðsjón af ýmsum þáttum. Þemakvöld Erindi um fatnað í fornum heimildum Fríður Ólafsdóttir Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Í SEPTEMBER síðastliðnum und- irrituðu Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri samn- ing sem í meginatriðum felur í sér 50% aukningu á innlendu efni í Sjón- varpinu á kjörtíma og stóraukin kaup á efni frá sjálfstæðum fram- leiðendum. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Páll Magnússon að ekki væri enn farið að taka neinar ákvarðanir um breytingar á dagskránni enda sé gildistaka áðurnefnds samnings háð frumvarpi sem nú liggur fyrir á Al- þingi um að breyta Ríkisútvarpinu í opinbert hlutafélag. „Þó er ljóst að það er tvennt sem vegur þyngst, gangi samningurinn í gegn. Annarsvegar mikil aukning á kaupum á efni frá sjálfstæðum fram- leiðendum. Hins vegar, og það sem vegur þyngst fjárhagslega, er svo þessi aukning á innlendu efni á kjör- tíma sem á að aukast úr 44% í 65%, sem þýðir að meðaltali klukkutíma lengri innlend dagskrá á hverjum degi,“ segir Páll. „Ljóst er að fréttir eru talsvert stór hluti af efni á þessum kjörtíma og því verður viðbótin væntanlega mest af öðrum toga,“ bætir hann við. Það verða fyrst og fremst tveir flokkar sem keyptir verða frá inn- lendum framleiðendum, að sögn Páls, annarsvegar leikið sjónvarps- efni, sem er langdýrast, og svo heimildarmyndir. Aukning á íslensku efni kemur til með að verða það mikil að auk auk- inna innkaupa verður Sjónvarpið sjálft með mun meiri framleiðslu á innlendu dagskrárefni. „Hvernig hlutföllin verða þarna á milli fer svo eftir jafnvægi í dag- skránni hverju sinni, þungt efni og léttara í bland,“ segir Páll. Erlent efni víkur fyrir hinu inn- lenda af kjörtíma en að sögn Páls verður ekki mikið skorið niður við kaup á erlendu efni, það sé hlutfalls- lega mjög ódýrt miðað við hið inn- lenda. Páll segir þau líta óbeint til sams- konar sjónvarpsstöðva á Norð- urlöndunum og annars staðar í Evr- ópu enda vinni ríkissjónvarpsstöðvarnar allar að sama markmiði. „Okkur ber skylda til og við vilj- um vera með menningarefni sem lýtur öðrum mælikvörðum en við- skiptalegum, það er að markmiðið er ekki alltaf að fá sem flesta áhorf- endur fyrir sem minnstan pening,“ segir Páll og bætir við að kúnstin sé svo að raða dagskránni upp þar sem ólíkir þættir geti stutt hver annan í áhorfi. „Það er til lítils að vera að búa til dýrt og metnaðarfullt efni ef það ekki sett fram í dagskrárlegu sam- hengi sem laðar að sem flesta áhorf- endur.“ Sjónvarp | Sjónvarpið ætlar að auka framboð á innlendu efni Leikið efni langdýrast Páll Magnússon útvarpsstjóri segir allar fyrirhugaðar breytingar á dag- skrá Sjónvarpsins háðar samþykkt á frumvarpi sem nú liggur fyrir á Al- þingi um að breyta Ríkisútvarpinu í opinbert hlutafélag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Breytingar fyrirhugaðar NEW Line Cin- ema, framleið- andi hins geysi- vinsæla þríleiks um Hingadrótt- inssögu, hefur greint leikstjóra þríleiksins, Peter Jackson, frá því að hann muni ekki leikstýra kvikmynd um hobbitann Bilbo Baggins, sem líkt og Hringadrótt- inssaga byggist á skáldsögu eftir breska rithöfundinn J.R.R. Tolk- ien. Kvikmyndafyrirtæki Jacksons, Wingnut Films, hefur um þó nokk- urt skeið staðið í málaferlum gegn New Line Cinema vegna tekna af fyrstu Hringadróttins-myndinni, Föruneyti hringsins. Hefur Jack- son ekki viljað skrifa undir samn- ing við New Line Cinema fyrr en búið væri að höggva á hnútinn. Nú hafa forsvarsmenn kvik- myndaversins hins vegar tilkynnt að einhver annar verði fenginn til verksins þar sem tími sé „af skorn- um skammti“. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir aðdáendur Tolkiens sem eru flestir sammála um að Jackson hafi gert Hringadóttinssögu skil með við- unandi hætti og vel það. Hobbitinn án aðkomu Jacksons Málaferli setja stórt strik í reikninginn Peter Jackson LEIKSTJÓRINN og framleiðand- inn Alison Chernick hefur lokið vinnslu heimildarmyndarinnar Matthew Barney: No Restraint. Í myndinni er fylgst með ektaparinu Matthew Barney og Björk Guð- mundsdóttur vinna að gerð list- rænu myndarinnar Drawing Resta- int 9 í fyrra, þar sem tæp tvö tonn af vaselíni koma m.a. við sögu. Drawing Restaint 9-verkefnið var unnið um borð í hvalveiðiskipi nálægt Nagasaki í Japan. Þar gerir Barney tilraun til að skapa „frá- sagnarskúlptúr“ sem segir sögu af tveimur landspendýrum sem um- breytast í hvali. Í heimildarmyndinni er kafað of- aní hljóðmynd Bjarkar og hug- myndarfræðina á bak við Cremast- er-myndir Barneys. Björk og Barney í mynd MYNDLISTARMAÐURINN Val- gerður Bergsdóttir er heiðursverð- launahafi Myndstefs 2006. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíð- lega athöfn í Listasafni Íslands í gær. Verðlaunin hlýtur Valgerður fyrir hönnun og gerð steindra glugga í Reykholtskirkju og fyrir sýningarnar Teikn og hnit og AND- LIT í Gerðarsafni fyrr á þessu ári. Jafnframt er Valgerður heiðruð fyr- ir fjölþætt störf á vettvangi íslenskr- ar myndlistar sem kennari, stjórn- andi og myndlistarmaður. „Ég átti ekki von á þessu enda var ég þarna meðal mikilla lista- manna. En þessi verðlaun hafa mikla þýðingu fyrir mig, þau eru virðingarvottur, viðurkenning á unnu starfi, uppörvun, hvatning og fjárhagslega er þetta einnig mjög jákvætt,“ segir Valgerður að lokinni verðlaunaafhendingu í gær. Heiðursverðlaun Myndstefs, Myndhöfundasjóðs Íslands, nema samtals einni milljón króna og var þeim nú úthlutað í annað sinn. Auk þess fékk Valgerður afhentan verð- launagrip sem er tveggja milljóna ára gamall kvarssteinn með basalt- flögum og járnflísum, sem fannst í fjörunni við Hala í Suðursveit. Það var einróma niðurstaða dóm- nefndar, sem skipuð var þeim Val- gerði Hauksdóttur myndlistar- manni, Pétri Ármannssyni arkitekt og Björgúlfi Guðmundssyni, stjórn- arformanni Landsbanka Íslands, að Valgerður skyldi hljóta verðlaunin. Áhersla á formteikningu Í umsögn dómnefndar kom fram að í steinglersgluggum Reykholts- kirkju nálgist Valgerður aldar- gamalt listform á nýstárlegan hátt með því að leggja fremur áherslu á formteikningu en litaspil. „Frjálslega teiknuð og samfléttuð hringform mynda þar meginstef ásamt mismunandi blæbrigðum hliðstæðra litatóna. Valgerður er í hópi færustu teiknara og í þessu verki tekst henni að yfirfæra frjálst og leikandi handbragð yfir í miðil glersins á þann veg sem ekki hefur áður sést,“ segir m.a í áliti dóm- nefndar. Gluggarnir í Reykholtskirkju eru fyrsta verkið sem Valgerður vinnur í gler. „Ég lít ekki á mig sem gler- listamann enda gerði ég fyrst og fremst teikningarnar fyrir gluggana. Ég er myndlistarmaður en það að fá viðurkenningu fyrir glerverk hefur vitaskuld ákveðna þýðingu fyrir mig,“ segir Valgerður sem er nú að vinna fyrir lokaða sam- keppni um gerð glugga í Ásakirkju ásamt tveimur öðrum listamönnum. Auk Valgerðar voru Andrés Kol- beinsson ljósmyndari, Atli Hilm- arsson grafískur hönnuður, Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt og myndlist- armennirnir Birgir Andrésson og Rúrí tilnefnd til heiðursverð- launanna. Valgerður Bergsdóttir hlaut heiðursverðlaun Myndstefs 2006 sem afhent voru í gær í Listasafni Íslands Nálgast aldar- gamalt listform á nýstárlegan hátt Morgunblaðið/Golli Heiður Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Valgerði Bergs- dóttur myndlistarmanni heiðursverðlaun Myndstefs í Listasafni Íslands. Í HNOTSKURN »Stefnt er að aukningu á inn-lendu sjónvarpsefni úr 44% í 65 % á kjörtíma á hverju kvöldi. » Innlent efni eykst því umklukkustund að jafnaði á hverjum degi. »Kjörtími í sjónvarpi telstmilli klukkan 19 og 23. »Sjónvarpið mun auka til muna innkaup á efni frá íslenskum framleiðendum auk þess að framleiða meira sjálft. »Leikið sjónvarpsefni ogheimildarmyndir koma til með að vega þyngst í aukinni innlendri dagskrárgerð. »Allar þessar breytingar eruháðar frumvarpi sem nú ligg- ur fyrir á Alþingi um að breyta RÚV í opinbert hlutafélag. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.