Morgunblaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 20
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
E
inn viðskiptavinur minn
var svo þakklátur fyrir
að ég hafði bjargaði
honum frá sárri og
bráðri tannpínu að
hann færði mér þessa fallegu gjöf
þegar hann kom heim frá Gambíu
tveimur mánuðum síðar,“ segir Geir
Atli Zoëga tannlæknir um tréstyttu
sem skorin var út í annarri heims-
álfu en stendur nú í glugganum á
tannlæknastofu hans í borginni við
sundin blá. „Hann var alveg í öngum
sínum af því tannpínan skall á hon-
um degi áður en hann hélt út í langt
frí til Gambíu til að heimsækja ætt-
ingja sína og vini, en hann er fæddur
þar og uppalinn. Þegar hann hringdi
heim til mín á laugardegi með þessi
vandræði sín þá fannst mér ekkert
annað koma til greina en að bjarga
manninum, ekki gat ég sent hann
sárþjáðan úr landi. Auk þess hefur
hann og fjölskylda hans öll, konan
hans og börnin, verið tryggir við-
skiptavinir hjá mér í mörg ár.“
Hugsuður með tannpínu
„Konan hans færði mér einmitt
þennan þakklætisvott, en hún tjáði
mér að dag einn þegar hann var á
gangi um markað í Gambíu, þá hafi
hann rekið augun í þessa styttu og
hún minnti hann á tannpínuneyðina
sem hann hafði verið í. Þá varð hon-
um hugsað til mín og hann ákvað að
kaupa styttuna og gefa mér hana.
Mér þykir mjög vænt um að hafa
fengið þessa gjöf og styttan mun
fylgja stofunni minni um ókomna
framtíð. En það skemmtilega er að
þó hann hafi séð í þessari styttu
manneskju þjáða af tannpínu, þá
hafa aðrir séð ýmislegt annað. Sumir
sjá hugsuð, aðrir sjá aðeins abstrakt
listaverk.“
Rauðvín, koníak og listaverk
Geir segir að ekki sé óalgengt að
fólk færi honum þakklætisvott í
ýmsu formi. „Sumir koma með rauð-
vín og aðrir með koníak og ég tek
glaður við því þó svo að ég drekki
ekki áfengi sjálfur, því mér finnst
gaman að geta boðið gestum mínum
góð vín þegar ég held matarboð.
Stundum hef ég líka fengið lista-
verk, bæði stór og smá. Mér þykir
sérlega vænt um tannlæknatrúð sem
ég fékk frá lítilli stúlku sem var hjá
mér en hún átti mjög erfitt með að
sætta sig við tannlækna. En hægt og
rólega sætti hún sig við mig og okk-
ur tókst í sameiningu að vinna bug á
tannlæknahræðslunni. Móðir henn-
ar var svo glöð með árangurinn að
hún bjó til þennan góða tann-
læknatrúð sem gleður mörg börn
sem hingað koma.“
Þakklætisvott-
ur frá Gambíu
Morgunblaðið/Sverrir
Bjargvætturinn Geir Atli tannlæknir fékk gjöf frá Gambíu fyrir að hafa losað mann við tannpínu.
|miðvikudagur|22. 11. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Það er mikilvægt að fara reglu-
lega í tannskoðun, drekka vatn
og borða grænmeti og bursta
tennur kvölds og morgna. » 25
tennur
Það á fátt betur saman en góð-
ur kaffibolli og skemmtileg bók
og voru tvö ný bókakaffi - opn-
uð í borginni nýlega. » 22
kaffihús
Gauti Helgason er nú
sestur að í Borgarnesi þar
sem hann galdrar fram
listarétti. » 22
matur
Nýgengi húðkrabbameina hefur
aukist hratt hérlendis á und-
anförnum áratugum og er nú
með því hæsta sem gerist. » 24
heilsa
Það má með sanni segja aðtölvan sé þarfasti þjónn nú-tímamannsins. Líkt og með
annað sem tengist mannskepn-
unni getur ýmislegt komið
upp í þeim samskiptum.
Tölvur geta skemmst og
gögn geta tapast á
ótrúlegan máta.
Norska fyrirtækið
Kroll Ontrack Data
Recovery sérhæfir
sig í því að bjarga
tölvugögnum sem virð-
ast hafa glatast um aldur
og ævi. Það hefur nú tekið
saman lista yfir 10 ótrúlegustu
tölvusögur ársins
10. Missti tölvuna úr þyrlu.
Maður sem starfar hjá alþjóðlegu síma-
fyrirtæki varð fyrir því óláni að missa fartölv-
una sína úr þyrlu er hann var við störf í Móna-
kó.
9. Gögnin hurfu eftir sjampóþvott.
Einn farþegi, sem flaug frá London til Var-
sjár í Póllandi, hafði pakkað fartölvunni sinni í
sömu tösku og hann setti hreinlætisvörurnar.
Það vildi ekki betur til en svo að sjampóið lak
yfir allt sem var í
töskunni og eyðilagði
harða diskinn í tölvunni.
8. Átakanlegt fyrir
gamanleikarann.
Breskur gamanleikari varð
fyrir því óláni að missa tölvuna sína
í gólfið með þeim afleiðingum að
harði diskurinn skemmdist.
Það kom sér afar illa þar
sem hann tapaði jafn-
framt 5.000 ljós-
myndum,
6.000 lögum
og helm-
ingnum af bók
sem hann var að skrifa.
Hann leitaði til sérfræðinganna
sem náðu að endurheimta gögnin fyrir
hann.
7. Björguðu vísindarannsóknum.
Breskur háskóli sem stundar miklar vísinda-
rannsóknir varð fyrir því að tapa gríðarlegu
miklu magni af gögnum þegar eldur kom upp í
skólanum.Reykur og vatn úr slökkvitækjum
skemmdi mikið af tölvubúnaði. Það náðist þó að
bjarga 30 tölvum, eða um einu terabæti af gögn-
um.
6. Banani á harða disknum.
Þá datt einum manni í hug að leggja gamlan
banana ofan á utanáliggjandi harðan disk sem
hann átti. Bananinn fór brátt að mygla og lak
bananagumsið inn á diskinn sjálfan og olli
skemmdum á tækinu. Skemmst er þó frá því að
segja að þeim hjá Kroll Ontrack tókst að bjarga
harða disknum, en það sama er ekki hægt að
segja um bananann.
5. Harði diskurinn sem hraðahindrun.
Á hverju ári dúkkar upp fólk sem leggur tölv-
urnar eða harða diskinn í veg fyrir ökutæki. Það
tókst þó að bjarga gögnum úr tölvu sem flug-
vallarökutæki ók yfir. Þá björguðust nokkrir ut-
análiggjandi harðir diskar sem voru í bakpoka
sem vörubifreið hafði ekið yfir.
4. Ítarlegt forsnið.
Einn maður lét sér ekki nægja að forsníða
harða diskinn sinn einu sinni eða tvisvar, heldur
gerði hann það 10 sinnum áður en hann gerði
sér grein fyrir því að á tölvunni væri að finna
mikilvægar upplýsingar sem hann hefði átt að
gera afrit af.
3. Fríinu bjargað.
Maður einn kom heim úr draumaferðalaginu
frá Barbados en var svo óheppinn að hann gat
ekki fundið myndirnar sem hann tók neð-
ansjávar er hann kafaði til þess að skoða kórala
sérstæða fiska. Hann hafði tekið myndirnar
með nýju vatnsheldu myndavélinni sinni. Það
kom hinsvegar í ljós að myndavélin var ekki
jafn vatnsheld og haldið var fram í auglýsing-
unni. Þrátt fyrir það tókst að bjarga mynd-
unum.
2. Úr öskunni í eldinn.
Háskólaprófessor var afar pirraður á stöðugu
pípi sem kom frá harða diskinum í nýju tölvunni
hans. Hann dó þó ekki ráðalaus og ákvað að
opna tölvuna sjálfur og úða hana með smurefni
til þess að losna við hljóðið. Þetta reyndist vera
hin besta aðferð til þess að losna við óhljóðið en
þetta gerði jafnframt það að verkum að hann
gat ekki lengur kveikt á tölvunni.
1. Illa þefjandi verkefni.
Fyrir einn viðskiptavin var gagnatapið ekki
alvarlegt en ástandið varð þeim mun verra þeg-
ar hann ákvað að vefja skítugum sokkum um
harða diskinn sinn til að verja hann gegn
hnjaski. Hann sendi svo diskinn til Kroll Ont-
rack. Sokkarnir reyndust ekki vera sú vörn sem
maðurinn hélt að þeir yrðu og því skemmdist
diskurinn við flutningana. Verkefni þeirra hjá
Kroll Ontrack reyndist því vera erfiðara en
upphaflega stóð til. Umræddur viðskiptavinur
lofaði því að framvegis mundi hann nota bólu-
plast.
Tíu ótrúlegustu tölvusögurnar
Tannlæknatrúður Gjöf
frá lítilli stúlku sem
sættist við tannlækna.