Morgunblaðið - 22.11.2006, Side 22

Morgunblaðið - 22.11.2006, Side 22
matur 22 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Ö rlög mín réðust yfir rauðvínsglasi í heita pottinum hjá Kjartani og Sirrý,“ segir nýi vertinn á Landnáms- setrinu í Borgarnesi, Arnór Gauti Helgason, og brosir í kampinn. Þar á hann vitaskuld við framkvæmda- stjóra setursins, hjónin Kjartan Ragnarsson og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. „Ég er í eðli mínu flakkari,“ held- ur Gauti, eins og hann er kallaður, áfram. „Ég er búinn að vera á flakki í fjórtán ár og nú er tími til kominn að festa rætur og berjast við flökku- kindina í sér.“ Gauti lærði sitt fag á Hótel Sögu en undanfarin sjö ár hefur hann að mestu búið erlendis, m.a. í Sviss, Lundúnum og Danmörku, þar sem hann var um tíma kokkur í Legó- landi. „Reyndar hef ég ekki unnið sem kokkur á öllum þessum stöðum. Ég er alltaf að reyna að komast úr kokkinum. Það gengur hvorki né rekur,“ segir hann og hlær. En hvers vegna tók hann þá starf- ið á Landnámssetrinu að sér? „Ég var búinn að ferðast um land- ið sem kokkur í sumar, vera í sjö eða átta veiðihúsum, áður en mér var boðið að koma hingað og bjarga einni helgi. Kjartani og Sirrý hefur greinilega litist ágætlega á mig því þau báðu mig eftir þessa helgi að gerast hér veitingamaður í fullu starfi. Mér leist ekkert á það í fyrstu en, eins og ég segi, réðust örlögin í heita pottinum. Kjartan og Sirrý eru mjög sannfærandi fólk. Eldmóður þeirra og almennilegheit eru bráð- smitandi. Þau eru yndislegt fólk. Það spillir heldur ekki fyrir að finna stuðning bæjarbúa við Landnáms- setrið. Það eru tvö þúsund manns á bak við þennan stað.“ Dvölin í Borgarnesi leggst vel í Gauta. „Það er frábært að vera kom- inn hingað í sveitasæluna. Það er miklu minna stress hér en í Reykja- vík. Ég er kominn með húsnæði og kærasta mín og tvö fósturbörn eru á leiðinni frá Danmörku, þannig að við ætlum að setjast hérna að.“ Ást og hamingja sett í matinn Gauti segir að hann hafi frjálsar hendur í eldhúsinu. Þá er hug- myndin að hann verði sýnilegur í veitingasalnum. „Nálægðin við kúnnann er lykilatriði. Maturinn bragðast alltaf betur ef kokkurinn er Morgunblaðið/Eyþór Sýnilegur Gauti hefur frjálsar hendur í eldhúsinu og er auk þess áberandi í veitingasal Landnámssetursins. „Maturinn bragðast alltaf betur ef kokkurinn er á staðnum,“ segir hann og glottir. Hnossgæti Bakaður lax með bláberjasósu og spínatskel. Loksins komin ástæða til að beygja til vinstri Arnór Gauti Helgason segist vera flakkari í eðli sínu, en hefur nú sest að í Borgarnesi þar sem hann galdrar fram sannkallaða listarétti. Hann sagði Orra Páli Ormarssyni alla söguna. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Te og kaffi hefur nú nýlegaopnað tvö ný kaffihús áhöfuðborgarsvæðinu, ann-ars vegar í hinni rótgrónu verslun Eymundsson í Austurstræti og hinsvegar í glænýrri hönnunar- og húsgagnaverslun Saltfélagsins við Grandagarð sem áður hýsti verslun Ellingsen. Að sögn Bene- dikts Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra Kaffiheims, sem rekur te- og kaffibarina, er bóka-„fílingur“ á báð- um stöðum því á meðan menn setj- ast niður með uppáhalds kaffið sitt, má fara um verslanirnar og blaða í bókum og blöðum eða taka með sér í lengri ferðir. Gerðar hafa verið gagngerar breytingar á hinu rótgróna húsnæði Eymundsson í Austurstræti, en þar hefur ekki verið rekið kaffihús síðan Kaffi Tröð var þar og hét. Bætt hef- ur verið við einni hæð þannig að mun rýmra er nú um viðskiptavini og vörur en áður, sérstaklega erlendar bækur. Á góðum dögum verður opn- að út á rúmgóðar og skjólgóðar suð- ursvalir kaffihússins. Að sögn Þór- unnar Ingu Sigurðardóttur, verslun- arstjóra Eymundsson Austurstræti, eru breytingarnar langþráðar. „Með kaffihúsinu rætist gamall draumur okkar því þetta verður lífleg stoppi- stöð á besta stað í miðborginni. Stækkunin gefur okkur líka kost á að breiða almennilega úr bókunum okkar og kynna þær betur þannig að nú verður auðveldara að skoða og finna sér bækur til lestrar eða gjafa.“ Í gamla Ellingsen-húsinu og gamla íshúsinu þar að baki hefur Saltfélagið, ný hönnunar- og hús- gagnaverslun, komið sér fyrir þar sem seld eru húsgögn, ljós, gjafa- vara, bækur og tímarit. Í versluninni verða valdar vörur eftir marga helstu hönnuði samtímans. Stefnt er að því að bjóða reglulega upp á kynningar og fræðslu um hönnun og híbýli og síðar munu þekktir hönn- uðir halda þar fyrirlestra og kynna hönnun sína. Að baki Saltfélaginu stendur, auk Tes og kaffis, Penninn, Eymundsson og Lúmex. Í báðum nýju kaffihúsunum ætlar Te og kaffi að bjóða upp á kaffi- drykki, sælkerasamlokur og kökur auk þráðlauss netaðgangs svo gestir og gangandi geti labbað inn af göt- unni með tölvurnar sínar og fengið sér góða hressingu með vinnunni. Daglegt líf fékk að lokum uppskrift hjá kaffibarþjóninum Mörtu Ólafs- dóttur af biscotti, sem m.a. er boðið upp á með kaffinu í nýju kaffihús- unum. Biscotti 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 100 g pistasíuhnetur 80 g kasjúhnetur 1 dl olía 200 g hrásykur 2 egg Sítónuhýði af 1 sítrónu 1 msk. amaretto-síróp routin 370 g hveiti 10 g hveitiklíð Hrærið saman olíu, sykur og egg. Bætið sítrónuhýðinu og sírópinu saman við. Setjið þurrefnin og hnet- ur saman við og hnoðið. Formið í fjóra aflanga hleifa og bakið í 25 mín við 200°C. Kælið aðeins lengjurnar og skerið í 1–2 cm sneiðar. Lækkið hitann í 140°C og bakið í u.þ.b. 10 mín á hvorri hlið. Kruðeríið henta vel bæði með te og kaffi. Menningarlegt bókakaffi með biscotti Morgunblaðið/Árni Sæberg Saltfélagið Annað kaffihúsið er til húsa í nýrri hönnunar- og húsgagnaverslun við Grandagarð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Biscotti Gott með kaffi og tei. Kaffibarþjónninn Marta Ólafsdóttir í nýja kaffihúsinu í Eymundsson Aust- urstræti, en ekki hefur verið kaffihús þar frá því Kaffi Tröð var og hét. Stefnt er að því að bjóða reglulega upp á kynningar og fræðslu um hönnun og híbýli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.