Morgunblaðið - 22.11.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.11.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 29 Skógarhæð – Glæsihús Nýkomið í sölu þetta glæsilega hús á einni hæð. Húsið er 220,3 fm og þar af er innbyggður bílskúr 36 fm. Húsið er allt í toppstandi. Glæsilegur garður með heitum potti, góðum veröndum og skjólveggjum. Stórt bílaplan upphitað. Húsið skiptist í forstofu, 4 góð svefnherbergi, öll með skápum, gott sjónvarps- herbergi, 45 fm stofu, glæsilegt baðherbergi og gestasnyrting með sturtuklefa. Rúmgott eldhús með glæsilegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og tvö- földum ísskáp. Innangengt er í flísalagðan bílskúr. Mjög rúmgott geymsluloft er yfir húsinu með ílögðu gólfi og hillum. Allar innréttingar sérsmíðaðar af Guð- mundi Sveinssyni frá Selfossi, garður hannaður af Róbert G. Róbertssyni skrúðgarðyrkjumeistara, innréttingar teiknaðar og hannaðar af Pétri Hafsteini Birgissyni innanhúsarkitekt. Innréttingar eru úr fuglsauga og hlyn. Allar inni- hurðir ná upp í loft. Hlynsparket á gólfum. Glæsilegt hús á frábærum stað. Skógarhæðin var valin fegursta gata Garðabæjar 2002. Aðeins 8 hús í göt- unni. Við enda götunnar er óbyggt svæði og mjög barnvænt. Verð 79,0 m. SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sendu fyrir nokkru frá sér áskorun til stjórnvalda um að gera stórátak í vegamálum. Að mati samtakanna er það aug- ljóslega eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar í dag að færa sam- göngukerfið inn í nútímann. Það dylst engum sem á leið um ís- lenska þjóðvegi að gerð þeirra tilheyrir fortíðinni og það þarf ekkert minna en stór- átak í þessum mála- flokki. Vegfarendur á ferð um landið eiga ekki að upplifa sig sem þátttakendur í rússneskri rúllettu eins og oft er raunin. Samtökin leggja áherslu á að það er ekki nægilegt að veita sama fjármagni í þennan málaflokk á næstu árum og hingað til, til að hraða útbótum í þessum málaflokki þarf verulega aukið fjármagn á næstu árum. Umferð um þjóðvegi landsins hefur fjór- faldast á síðustu 20 árum. Svo aukin umferð þýðir verulega aukna innkomu frá vegfarendum í rík- iskassann. Fjárframlög til vega- mála endurspegla engan veginn þessa fjármuni. Framlög til við- halds vega hafa nánast staðið í stað síðustu 10 ár, voru tæpir 2 milljarðar árið 1995, 2,6 milljarðar árið 2005. Það er hér sem átaksins er þörf. Það þarf að tryggja veru- lega aukningu fjármagns í þennan lið á næstu 10 árum til að koma samgöngukerfinu okkar inn í nú- tímann í eitt skipti fyrir öll. Í síðustu viku kynnti Vegagerðin framkvæmdaáætlun sína um breikkun Suðurlandsvegar. Fram- kvæmdin gerir ráð fyrir að byggja upp 2+1 veg á þessari leið. Í sam- antekt þeirra kemur fram að meðaltals- umferð á veginum sé 6.000–7.300 bílar á dag og að umferð- arspár þeirra geri ráð fyrir að meðaltals- umferð á dag verði um 15.000 bílar í kringum 2025–2030. Í þessu sambandi er áhugavert að skoða muninn á með- alumferð yfir sumarið annars vegar og á veturna hins vegar. Skv. tölum frá Vega- gerðinni er meðalumferð yfir sum- arið á vegkaflanum frá gatnamót- um Hafravatnsvegar að sýslumörkum Árnessýslu 10.192 bílar á dag. Á veturna er þetta sama meðaltal 5.653 bílar á dag. Hversu lýsandi er „meðaltals- umferð á dag yfir árið“ þegar um er að ræða slíkar tölur og hversu nýtilegar upplýsingar vegna fram- kvæmda? Það er mikilvægt að við upp- byggingu og endurgerð vegakerf- isins verði horft til lengri fram- tíðar. Skammtímaávinningur getur verið óhagkvæmur til lengri tíma. Í þessu dæmi hér að ofan um Suð- urlandsveg er ekki laust við að maður spyrji sig – hversu tak- markandi þáttur er vegakerfið á umferðarþunga á veturna? Getur verið að ef tekin verður ákvörðun um 2+2 veg á þessari leið að þar með muni umferðin aukast mun hraðar en hún mundi annars gera? Þegar ákvarðanir eru teknar um framkvæmdir er mikilvægt að stefnt sé að varanlegum lausnum. Það er áríðandi og mikilvægara en flest annað hvað varðar samgöngu- mál á Íslandi að horft sé til lengri framtíðar við áætlanir og fram- kvæmdir. Á fundi SVÞ í dag gefst kostur á að spyrja samgöngu- ráðherra og Vegagerðina um fram- kvæmdaáætlun í vegamálum í nán- ustu framtíð. Aukið fjármagn til vegamála Signý Sigurðardóttir fjallar um samgöngur » Að mati samtakannaer það augljóslega eitt stærsta hagsmuna- mál þjóðarinnar í dag að færa samgöngukerfið inn í nútímann. Signý Sigurðardóttir Höfundur ere forstöðumaður flutningasviðs SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. EF FYRIRHUGAÐAR virkj- anaframkvæmdir í Skagafirði ganga eftir og Villinganesvirkjun verður að veruleika eru Jökuls- árnar glataðar að eilífu. Þessi framkvæmd yrði eins ósjálfbær og nokkur fram- kvæmd getur orðið. Ef af verður er ljóst að komandi kynslóðir fá ekki notið Skaga- fjarðar eins og hann kemur okkur fyrir sjónir í dag. Í stað þess að vernda auð- lindir samtímans eru þær lagðar í rúst. Miklu er fórnað fyrir lítið. Líftími virkjunarinnar er stuttur og áætluð ársverk eftir að hún hefur verið gangsett eru einungis 3–4. Ljóst er að þau ferðaþjónustufyrirtæki er starfa við flúðasiglingar niður árnar eru dæmd til að hætta þeirri starf- semi. Fyrirtækin tvö sem umræð- ir eru stoð við ferðaþjónustu á svæðinu. Flúðasiglingar njóta sí- fellt meiri vinsælda meðal ferða- manna og stöðug aukning er á milli ára. Gera má ráð fyrir enn meiri aukningu á næstu árum í takt við áætlaðan aukinn fjölda ferðamanna hér á landi. Við þessi fyrirtæki starfa á annan tug starfsmanna yfir há- önnina auk fjölda hlutastarfsfólks. Ekki eru það bara leið- sögumenn sem missa vinnuna heldur fjöldi fólks er tengist starf- seminni á annan hátt. Ekki má gleyma þeim margfeldisáhrifum sem verða þegar ferðamaður kaupir sér ferð í flúðasiglingu. Ferðamenn þurfa að gista einhversstaðar, borða og jafnvel sækja í aðra afþreyingu s.s. söfn eða hestaferðir. Mennta- málaráðuneytið veitti í fyrra styrk til uppbyggingar á flúða- siglingaskóla á svæðinu. Náms- efnið er tilbúið og vonast er til að skólinn taki til starfa í vor. Líf- tími skólans yrði ákaflega stuttur. Þarna er enn eitt tækifærið sem myndi glatast. Austari-Jökulsá er viðurkennd sem ein af bestu ám í Evrópu til að stunda flúðasiglingar og straumkajakíþróttina. Hvers vegna að gera þau mistök að virkja bestu á í Evrópu? Vestari-Jökulsá er ekki eins hrikaleg, flúðirnar minni og hent- ar áin því fyrir breiðari ald- urshóp. Flúðasiglingar má m.a. nota til náttúrutúlkunar. Þær eru ein besta leiðin til að kynna fyrir fólki hvernig náttúran vinnur og hvernig jökulsárnar grafa sig of- an í bergið. Leyfum þessum náttúruperlum Skagafjarðar að vera í þeirri mynd sem þær koma okkur fyrir sjónir í dag. Komandi kynslóðir eiga að hafa rétt á að njóta þess sem við fáum að upplifa í dag. Komum ekki í veg fyrir að ein- staklingar framtíðarinnar fái ekki að sigla niður árnar, finna kraft- inn og öðlast aðra sýn á náttúr- una en dagsdaglega. Sýnum ábyrgð og fylgjum hugmynda- fræði sjálfbærrar þróunar. Verndum Jökuls- árnar í Skagafirði Vilborg Arna Gissurardóttir fjallar um virkjanafram- kvæmdir í Skagafirði Vilborg Arna Gissurardóttir » Leyfum þessumnáttúruperlum Skagafjarðar að vera í þeirri mynd sem þær koma okkur fyrir sjónir í dag. Höfundur er nemi í ferðamálafræðum. Í LEIÐARA Morgunblaðsins í gær var fjallað um opinn fund í Hafnarfirði um hugsanlega stækk- un álversins í Straumsvík. Þar voru óskir álversins um breytt fyrirkomulag á opinberum gjöld- um meðal annars gerðar að um- talsefni. Til útskýringar óskast eftirgreindu komið á framfæri. Það er óumdeild staðreynd að álverið í Straumsvík greiðir hlut- fallslega hærri skatta en nokkurt annað fyrirtæki á Íslandi. Um starfsemina gildir sérstakur skattasamningur við íslenska ríkið og samkvæmt honum ber fyrirtækinu að greiða 33% í skatt af arði á meðan önnur fyrirtæki greiða 18%. Á móti kemur að ál- verinu er ekki gert að greiða fasteignagjöld sem eru mikilvægur tekjustofn sveitarfé- laganna. Hafnarfjarð- arbær verður því af slíkum tekjum frá ál- verinu – og vafalaust munar um minna. Í umræddum skattasamningi eru hins vegar ákvæði um að fyr- irtækið geti sagt honum upp og gengið inn í hið al- menna íslenska skatt- kerfi kjósi það svo. Árið 2003 óskaði ál- verið eftir slíkri breytingu en af- greiðslu þess erindis er enn ekki lokið af hálfu stjórnvalda. Vonast er til að lyktir fáist í málinu á þess- um vetri. Tekju- skattsprósenta fyr- irtækisins mun í framhaldinu lækka en bæjarsjóður fær eðlilegar tekjur í formi fasteignagjalda, sem ein og sér munu nema um 500 milljónum króna á ári ef fyrirhuguð stækkun álversins verður að veruleika. Því til viðbótar myndi verulega aukin notkun á Straumsvíkurhöfn færa bæjarfélaginu auknar tekjur í formi hafnargjalda, en gera má ráð fyrir að þau gætu numið hátt í 300 milljónum króna á ári. Með þessari breytingu á fyr- irkomulagi opinberra gjalda ál- versins í Straumsvík til samræmis við það sem gildir um önnur fyr- irtæki í landinu lækka greiðslur til ríkisvaldsins. Hins vegar aukast tekjur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar umtalsvert – og enn frekar ef stækkun álversins verður heim- iluð. Þar er um mikla fjármuni að ræða á hverju ári og vafalaust verður fjárhagsleg hlið stækk- unarinnar eitt af aðalatriðum þeirrar umræðu sem bíður okkar á næstu vikum og mánuðum um kosti og galla stækkunar álvers- ins. Eðlilegar tekjur til Hafnarfjarðar Hrannar Pétursson svarar leiðara Morgunblaðsins »Hins vegar aukasttekjur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar umtals- vert – og enn frekar ef stækkun álversins verð- ur heimiluð. Hrannar Pétursson Höfundur er upplýsinga- fulltrúi Alcan. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.