Morgunblaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 31
Fimmtudagur 23. nóvember
9.00 Skráning og afhending þinggagna
9.30 Þingsetning
Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu.
Ávarp
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
„Umferðarljósið“, verðlaunagripur Umferðarráðs veittur í
sjöunda sinn þeim aðila, einstaklingi, samtökum eða stofnun,
sem unnið hefur sérstaklega árangursríkt og/eða eftirtektar-
vert starf á sviði umferðaröryggismála.
Tónlist – Lögreglukórinn
Stjórnandi Guðlaugur Viktorsson
Einsöngur Eiríkur Hreinn Helgason
Stutt hlé
10.30 Umferðaröryggisáætlun til 2016
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu og formaður Umferðaröryggisráðs.
10.45 Nýskipan lögreglumála – þáttur lögreglu í
auknu umferðaröryggi
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
11.00 Rannum – Rannsóknarráð umferðaröryggismála
Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Vegagerðarinnar, formaður.
Fyrirspurnir og umræður
11.40 Léttur málsverður
Öruggari vegir, götur og umhverfi vega
12.45 Umferðaröryggi vegakerfa
Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar
Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Vegagerðarinnar.
13.00 Hringtorg – mismunandi útfærslur á Íslandi
Erna Hreinsdóttir verkefnastjóri, Vegagerðinni og
Bryndís Friðriksdóttir verkfræðingur, Línuhönnun.
13.15 „EuroRAP“ (European Road Assessment Program)
á Íslandi
Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður FÍB.
13.30 Nýjungar í vegriðsmálum og öryggisbúnaði
vega í Evrópu
Bernd Wolfgang Wink, stjórnarmaður í European
Uninon Road Federation.
Fyrirspurnir og umræður
Forvarnir, löggæsla
14.30 Sjálfvirkt hraðaeftirlit á Íslandi
Hjálmar Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn,
Ríkislögreglustjóraembættinu.
14.45 Hraðastjórnun á vegum (Speed Management)
Rögnvaldur Jónsson, fyrrv. framkvæmdastjóri,
Vegagerðinni.
15.00 Umferðarfræðsla í skólum
Ásta Egilsdóttir, kennari í Grundaskóla á Akranesi og
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi hjá
Umferðarstofu.
Fyrirspurnir og umræður – kaffihlé
Öruggari ökutæki – öruggari ökumenn – ungir ökumenn
15.45 Árekstrar í alvarlegum bílslysum og árekstravarnir
Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur í tæknimálum
ökutækja, Umferðarstofu.
16.00 Hraðakstur – ungir ökumenn – viðhorf, lífsstíll,
ábyrgð. Nauðsyn fræðslu um orsakir og
afleiðingar alvarlegra umferðarslysa
Ásdís J. Rafnar hrl., formaður rannsóknarnefndar
umferðarslysa.
16.15 Ökuréttindi – aldur, þroski, reynsla og hæfni
Holger Torp, sérfræðingur ökunáms, Umferðarstofu.
Fyrirspurnir og umræður
Þingfundi frestað
Föstudagur 24. nóvember
Áfengi, lyf, þreyta, slysarannsóknir
9.00 Umferðaróhöpp og meiðsli eldri ökumanna
Guðmundur Freyr Úlfarsson, aðstoðarprófessor í
byggingarverkfræði við Washington–háskóla í St. Louis.
(Verkefni styrkt af Rannum 2005).
9.15 Fíkniefnaskimun – áhrifarík greiningaraðferð
gegn fíkniefnaakstri
Jón Sigfússon, forstöðumaður Rannsókna og greiningar,
Háskólanum í Reykjavík.
9.30 Syfja og akstur
Gunnar Guðmundsson Dr. Med., lungnalæknir.
Fyrirspurnir og umræður
Kaffihlé
Umferðaröryggi í alþjóðlegu samhengi
10.15 Ísland og umheimurinn; þróun alþjóðlegs samstarfs
í umferðaröryggismálum
Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu
og varaformaður Umferðarráðs.
10.30 Umferðaröryggi í Evrópu – staðan í dag og
leiðir til úrbóta
Dr. Günter Breyer, aðstoðarvegamálastjóri
Austurríkis Fyrirspurnir og umræður
11.30 Pallborðsumræður
Fulltrúar skiptast í umræðuhópa samkvæmt
dagskrárliðum þingsins.
12.15 Hádegisverður
13.00 Umræðuhópar hefja störf
14.45 Fulltrúar umræðuhópa gera í stuttu máli grein
fyrir starfi þeirra
Almennar fyrirspurnir og umræður
– ályktanir þingsins
15.45 Þingslit – formaður Umferðarráðs
Móttaka í boði samgönguráðherra
Umferðarþing er öllum opið. Þátttökugjald með veitingum er
12.500 kr. Skráning er á heimasíðu Umferðarstofu, www.us.is,
til 22. nóvember. Þar er að finna nánari upplýsingar um þingið.
Einnig í síma 580 2000.
UMFERÐARÞING
2006
Hótel Loftleiðum 23. og 24. nóvember
ÉG MÁ til með
að þakka fyrir
mig, eins og hin-
ir frambjóðend-
urnir. Kosninga-
barátta mín var
ólík annarra að
því leyti að ég
gerði lítið sem
ekkert til að fá
fólk til að kjósa
mig. Annað en þá það að láta fara
sem minnst fyrir mér. Að frátöldu
þátttökugjaldinu, kostaði þessi
„prófkjörsslagur“ tæplega fimmtán
þúsund krónur, sem ég borgaði
með yfirdrætti á bankareikningi
mínum. Engu að síður fékk ég fjör-
tíu prósent atkvæða, sem ég er
harla ánægður með. Ekki síst í
ljósi þess að þarna úti, meðal
þeirra sem ekki taka þátt í próf-
kjörum flokkanna, eru þúsundir
kjósenda sem eiga samleið með
mér. Og ég með þeim.
Tölum betur saman í vor.
Með bestu kveðju.
ELLERT B. SCHRAM.
Kveðja til
kjósenda
Frá Ellerti B. Schram:
Ellert B. Schram
LOKS fór af stað viðkvæm umræða,
sem annars hefur myndast graf-
arþögn um, eða um frjálsa flæðið af
innflytjendum undanfarið. Einn
þingmaðurinn þorði loks að standa
uppi í hárinu á kollegum sínum og
segja hug sinn og meirihluta þjóð-
arinnar. Þetta hefur ekkert með
kynþátta- „þetta eða hitt“ að gera.
Enga hræsni.
Fjöldi innflytjenda er hraðvax-
andi vandamál í svo fámennu landi.
Reyndar hóf forsetafrúin okkar
máls á þessu fyrir nokkru í sjón-
varpinu er hún sagði að Íslendingar
ættu að takmarka og vanda val sitt
á innflytjendum – þjóðin væri það
fámenn og enn sem komið væri lítið
um árekstra. Það eru orð að sönnu.
Það er að skapast vandamál sem
á eftir að verða að enn stærra
vandamáli eins og við höfum orðið
vitni að annars staðar á Norð-
urlöndunum og það er að myndast
ákveðin hræsni í fjölmiðlum þar
sem umræðan um takmörkun
streymisins gengur út á „rasisma“
eða „kynþáttafordóma“, jafnvel
„hatur“. Mín skoðun er að þetta hafi
ekkert með þau stóru orð að gera.
Sumir pólitíkusar beina kosn-
ingaspjótum sínum að þessum fjöl-
mörgu erlendu innflytjendum í von
um aukið fylgi, en því miður skilja
sumir varla orð í íslensku eftir allt
að fjögurra ára búsetu.
Glæpum er að fjölga með ljós-
hraða og Hraunið virðist vera fjög-
urra stjörnu hótel fyrir marga frá
Austur- Evrópu svo fangavist dreg-
ur ekki úr áhættunni t.d. af mansali,
vændi eða eiturlyfjasmygli og
neysla eitursins fer ört vaxandi með
hverjum deginum í okkar fámenna
þjóðfélagi. Trúarstríð þekkist ekki
hér. Ekki ennþá.
Það hefur verið umræða um „fá-
tækt á Íslandi“ og öryrkjar og elli-
lífeyrisþegar þessa lands virðast
þurfa að klóra meira og meira í
bakkann varðandi kjör sín, á meðan
verktakar vaða hérna uppi með
hvert háhýsið á fætur öðru með
ódýru vinnuafli, húsaleiga er löngu
komin úr böndunum og ungt fólk
berst í bökkum við að koma yfir sig
rándýru húsnæði. Mér er því spurn,
hefur þjóðfélagið efni á endalausu
flæði atvinnulauss fólks utan úr
heimi? Það hefur sýnt sig í um-
ræðunni að vilji meirihluta þjóð-
arinnar er að sporna við þessu
flæði.
A.m.k. verður að hafa takmörk.
HARPA KARLSDÓTTIR,
Hrauntungu 71, Kópavogi.
Kynþátta
hvað?
Frá Hörpu Karlsdóttur:
♦♦♦
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn