Morgunblaðið - 22.11.2006, Side 40

Morgunblaðið - 22.11.2006, Side 40
staðurstund Steinunn Sigurðardóttir skrifar frá París um Nóbelsverðlauna- hafann Toni Morrison sem með- al annars skrifaði Beloved. » 43 bækur Breskt sjónvarpsefni var hlut- skarpt á alþjóðlegu Emmy- verðlaunaafhendingunni sem fram fór á mánudaginn. » 42 verðlaun Höskuldur Ólafsson fjallar um nýja plötu bandaríska tónlistar- mannsins Tom Waits í listapistli dagsins. » 43 af listum Erlendir fjölmiðlar og bloggrar um allan heim hafa fjallað um afmælistónleika Sykurmolanna, hver með sínum hætti þó. » 41 tónlist Bandaríski sjónhverfingamað- urinn David Blaine hangir nú yfir Times-torgi í New York og snýst í hringi. » 44 fólk Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is MAÐURINN er vænglaus fluga nefnist ný bók átta leiksagna eftir Matthías Johannessen sem Vaka-Helgafell gefur út. „Þetta eru átta leikrit, þar af einn þríleikur, flest byggð á kynnum mínum við þekktar per- sónur og um sumar hef ég skrifað fyrir margt löngu, svo þessi verk eru einskonar niðurstaða mín af reynslu blaðamannsins,“ segir Matthías þegar blaðamaður spyr hann um innihald bók- arinnar og hnýsilegan undirtitil hennar, leiks- ögur. Og hann bætir við: „Sem slíkar eru per- sónurnar ekki sýndar í neinu dramatísku ljósi, heldur sem þátttakendur í uppákomum í stíl fáránleikans eða ítalska spunans og gætu þannig minnt á Eins og þér sáið sem var sýnt með Jóni gamla í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Benedikts Árnasonar, en þó harla ólík þessum gamla einþáttungi að öðru leyti. Guðmundur G. Hagalín vildi í gagnrýni sinni að ég lengdi Eins og þér sáið, en ég hef ekki fundið hjá mér þörf til þess, þótt hann hafi líklega haft rétt fyrir sér. Slík persónusköpun í leikritun er engin nýj- ung, þannig kemur Sókrates fyrir í eldgömlu klassísku leikverki án þess maður hafi hann í huga, því að allar fyrirmyndir í skáldskap gleymast með tímanum og þurfa þannig ekki að þvælast fyrir persónum sínum. Ég kalla þetta leiksögur vegna þess að í flestum verkunum er blaðamaður eða sögu- maður sem stjórnar spunanum að leiks- lokum.“ Þetta er nokkuð annað form en þú notaðir í eldri leikritum þínum, svo sem Jóni gamla og Fjaðrafoki. „Já, þetta form hefur hentað mér upp á síð- kastið því ég hafði löngun til að skrifa mig frá raunsæisdrama eins og Jóni gamla og Fjaðra- foki, en um það síðar nefnda sagði Páll Bald- vin Baldvinsson á sínum tíma það hefði verið fyrsta sósíalrealíska leikritið íslenskt! Kristín Jóhannesdóttir bjó til úr því sjónvarpsleikrit löngu eftir sýningarnar í Þjóðleikhúsinu, Gler- brot, en þá valdi hún Björk í aðalhlutverkið. Já, ég vildi skrifa mig frá slíkum raunsæis- verkum, jafnvel þótt Sólborg og Sólmyrkvi hafi aldrei verið flutt eða sýnd, enda hef ég ekki óskað þess. Þau eru til á prenti og það nægir mér, hvað sem verður.“ Ljóðrænt ívaf Matthías segir að í þessum nýju leiksögum sé ljóðrænt ívaf sem sé einskonar framhald af verki sem hann skrifaði handa Helga Skúla- syni og heitir Sókrates. „Sókrates minnir mig alltaf af einhverjum ástæðum á Þórberg. Ég gæti þá líklega einnig nefnt Guðs reiði sem var flutt í útvarpi í leikgerð Sveins Einarssonar og svo sjónvarpsleikritin um Ófelíu og Sjóarann og spákonuna og umhverfi þeirra sem Hilmar Oddsson fullgerði, en ég tek svo til orða vegna þess ég tel það séu alltaf að minnsta kosti tveir höfundar að leikverki, höfundurinn og leik- stjórinn, svo að ekki sé talað um kommuna yfir i-ið, leikarana og aðra þá sem halda sýningum uppi. En þeir koma ekki við sögu í prentuðu leikverki svo ég ber víst einn ábyrgð á þessum prentsögum, að minnsta kosti enn sem komið er! En þó er víst ákveðið að útvarpið flytji eitt verkanna í vetur í leikstjórn Ásdísar Thorodd- sens, en frumgerð annars verks hefur verið leiklesin af leikfélagi Kópavogs.“ Þú hefur lengi fengist við að skrifa leikrit, kannski lengur en margur heldur. „Ég hef alltaf haft áhuga á leiklist og þá ekki sízt bókmenntalegum samtölum frá því ég var í framhaldsnámi við Kaupmannahafn- arháskóla, en þar skrifaði ég Sólmyrkva vet- urinn 1955–56.“ Metnaðurinn hefur minnkað Hvernig var leikritum þínum tekið? „Það var aldrei nein lognmolla kringum þessi gömlu verk mín á sínum tíma og upp á síðkastið hefur verið uppörvandi að fylgjast með umfjöllun Árna Ibsens um þau og aðrar leikbókmenntir, svo frumlegur höfundur sem hann er og ágætt skáld. En það var meiri áhugi á innlendum leikverkum fyrstu árin eft- ir að íslenzka sjónvarpið kom til sögunnar en verið hefur nú alllengi og ég sé ekki betur en metnaðurinn hafi minnkað í þeim efnum, og sjaldnast eru gömul verk endurflutt í ljósvök- unum. Aðra ljósvaka en þá ríkisreknu er ekki ástæða til að nefna, þar hefur aldrei verið neinn metnaður í þessum efnum og ber eig- endum og afþreyingarmarkaðnum ófagurt vitni. Þar virðist viðmiðunin vera við það sem boðið var upp á frá Keflavíkurflugvelli á sínum tíma, en ég sé ekki að neinn sakni þess. Það voru bundnar vonir við þessar innlendu stöðvar, en þær hafa brugðizt.“ Leiksögur Matthíasar Matthías Johannessen Þykir metnaðurinn hafa minnkað hjá íslenskum sjónvarpsstöðvum. „Niðurstaða mín af reynslu blaðamannsins“ „ÉG HELD mikið upp á þennan konsert, hann er einn af fallegustu verkum sem samin hafa verið fyrir selló,“ segir Margrét Árnadóttir sellóleikari um konsert fyrir selló og hljómsveit í D-dúr eftir Joseph Haydn sem hún spilar með Sinfón- íuhljómsveit unga fólksins, Ungfó- níu, á tónleikum í kvöld. „Haydn samdi tvo sellókonserta, annan í C-dúr og svo þennan í D- dúr. Þessi konsert gerir miklar tæknilegar kröfur til einleikarans og er nokkuð erfiður í flutningi,“ segir Margrét sem lauk einleik- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 undir hand- leiðslu Gunnars Kvaran og mast- ersnámi frá Juilliard tónlistarhá- skólanum í New York síðastliðið vor. Kennarar hennar þar voru Harvey Shapiro og David Soyer. „Gunnsteinn Ólafsson stjórnandi Ungfóníunnar hafði samband við mig til að spila á þessum tónleikum. Þau fá oft ungt fólk sem er úti í námi til að spila með sér og gefa því þannig tækifæri til að koma heim og spila. Mér þykir þetta skemmti- legt verkefni og það er gaman að vinna með hljómsveitinni.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Mar- grét spilar með Ungfóníunni en hún býr í New York þar sem hún spilar með ýmsum kammerhópum. Nýtt íslenskt verk Á tónleikunum í kvöld mun Ung- fónían líka frumflytja nýtt verk eftir Tryggva M. Baldvinsson. Verkið nefnist Sprettur og er sérstaklega samið fyrir hljómsveitina. Auk þess er á efnisskránni sinfónía Mozarts nr. 40 í g-moll. Verk Tryggva hefur yfir sér tápmikið yfirbragð og er nafn verksins bein tilvísun í karakt- er þess. Sprettur hefst á hægri upp- hitun, en svo er rokið á stað yfir hæðir og hóla. Eftir nokkra hvíld á hæsta punkti, þar sem hljóðfæra- leikararnir kasta mæðinni, er loka- spretturinn tekinn og markinu náð á síðustu dropunum. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins er sjálfstætt starfandi hljómsveit sem var stofnuð fyrir réttum tveim- ur árum síðan. Hún er skipuð nem- endum á höfuðborgarsvæðinu sem lengst eru komnir í hljóðfæranámi í tónlistarskólum á höfuðborgarsvæð- inu. Tónleikarnir í kvöld fara fram í Neskirkju og hefjast kl. 20:00. Fallegur sellókonsert og tápmikill Sprettur hjá Ungfóníu Ungfónía Sinfóníuhljómsveit unga fólksins ásamt Margréti Árnadóttur sellóleikara spilar í Neskirkju í kvöld m.a. verk eftir Joseph Haydn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.