Morgunblaðið - 22.11.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 41
menning
VEFÚTGÁFA breska dagblaðsins
Guardian birti á mánudaginn um-
fjöllun um tónleika Sykurmolanna
sem haldnir voru í Laugardalshöll sl.
föstudag. Í greininni, sem ber fyrir-
sögnina „Sætir endurfundir Sykur-
molanna“ er lítillega sagt frá bak-
grunni sveitarinnar, tilefni
tónleikanna og þeirri staðreynd að
um 1.000 erlendir aðdáendur hafi
gert sér ferð til Íslands í þeim til-
gangi að verða vitni að endurfundum
sveitarinnar. Þá er einnig vísað í um-
fjallanir á bloggsíðum breskra aðdá-
enda þar sem farið er lofsamlegum
orðum um tónleikana. Þar kemur
meðal annars fram að sveitin hafi
engu gleymt, að Björk sé fullkomin
söngkona og að Einar Örn hafi verið
stórskemmtilegur á sviðinu.
Rangfærslur
Þó virðist sem einn áhorfandinn
hafi ekki alveg skilið háðsglósur
Einars Arnar um Árna Johnsen, en
á á bloggi einhvers sem kallar sig
Eat Me Big Time kemur fram að
sveitin hafi tileinkað nokkur lög
„finnska þingmanninum Árna John-
sen sem var dæmdur í fangelsi fyrir
spillingu fyrir þremur árum, en
sneri aftur á þing fyrr í þessum mán-
uði“. Það eru fleiri sem gera sig seka
um að fara með fleipur en Eat Me
Big Time því í greininni kemur fram
að Sykurmolarnir hafi einungis spil-
að í 20 mínútur, en þeir spiluðu mun
lengur.
Í lok greinarinnar er bent á að
myndskeið frá tónleikum Sykurmol-
anna megi nálgast á netinu.
Sætir Sykurmolar
Morgunblaðið/ÞÖK
Sætur sykur Breskir bloggarar eru hrifnir af Sykurmolunum.
Fjallað um tónleika Sykurmolanna á
vefsvæði dagblaðsins The Guardian
http://www.youtube.com/
watch?v=3QCfaZO-OJ0&eurl=
MIKIL gróska er
í útgáfu menning-
artímarita um
þessar mundir. Í
nóvembermánuði
hafa ein þrjú slík
litið dagsins ljós:
Andvari, rit Hins
íslenska þjóð-
vinafélags, Tíma-
rit Máls og menn-
ingar og Ritið, tímarit
Hugvísindastofnunar. Öll bjóða
tímaritin upp á áhugaverða lesningu
eftir fjölbreyttan hóp höfunda.
Aðalgreinin í Andvara þetta sinnið
er æviþáttur Eysteins Jónssonar,
ráðherra og alþingismanns, eftir
Ingvar Gíslason fyrrum mennta-
málaráðherra.
Í Tímariti Máls og menningar
kennir ýmissa grasa sem endranær,
en í ljósi nýliðinnar Eddu-hátíðar
vekur þó e.t.v. mesta athygli grein
Dagnýjar Kristjánsdóttur prófess-
ors um verk Magnúsar Schevings
um íþróttaálfinn, „Latibær er
skyndibiti“.
Ritið í ár er helgað framúrstefnu.
Þar er að finna sjö greinar og tvær
þýðingar sem fást við félagslega og
fræðilega þýðingu þeirra róttæku
listastefna tuttugustu aldar sem
kenndar hafa verið við avant-garde.
Andvari,
Ritið og
TMM
HINN virti leik-
stjóri Robert Alt-
man lést á sjúkra-
húsi í Los
Angeles í fyrri-
nótt, 81 árs að
aldri. Starfsferill
Altmans spann-
aði rúm fimmtíu
ár en hann var
þekktur fyrir
kvikmyndir á borð við M-A-S-H,
Nashville, The Player, Short Cuts
og Prét-á-Porter. Síðasta verkefnið
sem hann lauk var gamanmyndin A
Prairie Home Companion sem frum-
sýnd var í kvikmyndahúsum vest-
anhafs í júní síðastliðnum.
Altman var frægur fyrir að fara
sínar eigin leiðir í Hollywood og
sniðganga duttlungafullar óskir
stóru kvikmyndaveranna sem þó
gengu með grasið í skónum á eftir
honum. Leikstjórnarstíll Altmans
var mjög sérstakur en hann má
þekkja af fjölmörgum persónum í
hverri mynd, langar samtalssenur
sem flytjast á milli karaktera og
undirbúningslítill leikur sem reyndi
á og dró fram sköpunarkraft leik-
aranna sjálfra.
Á löngum ferli sínum hlaut hann
fimm Óskarsverðlaun fyrir leik-
stjórn, síðast fyrir kvikmyndina
Gosford Park en árið 2006 fékk hann
Óskarinn fyrir æviframlag sitt til
kvikmyndagerðar.
Robert
Altman allur
Robert Altman
♦♦♦